Annika Ramström skrifaði:
Hej! Under montering står det att man på vänster framstycke ska sticka ”Kant” men inte hur mp ha varv eller om den ska vikas eller överhuvudtaget hur? Vill gärna veta. Med vänliga hälsningar Annika
16.04.2025 - 09:36DROPS Design svaraði:
Hej Annika. Det står längst upp i mönstret: Kant: Sticka 3 cm slätst, 1 v avigt (= vikkant), 3 cm slätst. Mvh DROPS Design
25.04.2025 - 11:25
Lise-Lotte Pettersson skrifaði:
Hej det är fel i varv 6 7, 37 och 38 på mönstebård M3 Mvh Lotta Pettersson
10.01.2020 - 11:27
Vera Bartkowiak skrifaði:
Hallo Drops Team Kann ich diese Jacke auch ohne das Aufschneiden in Hin und Rückreihen stricken Indem ich den Teil dafür weglasse? LG Vera Bartkowiak
20.04.2019 - 14:54DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Bartkowiak, also ja Hin und Zurück können Sie dann auch stricken, hier lesen Sie mehr.Viel Spaß beim stricken!
23.04.2019 - 12:42Marion skrifaði:
Hi I am knitting this pattern and having problem with the steeks never having knitted with them. At the 32cms it says to make a steek but we did that in the beginning. And also where do i make the steeks for the sleeves. Any help please Thanks Marion
23.03.2017 - 21:53DROPS Design svaraði:
Dear Marion, the steek sts for the sleeves should be on each side, so that you have 126-132-138 sts + 5 steek sts for front piece and 127-133-139 m for back piece. Happy knitting!
24.03.2017 - 08:56
Marion Van Der Est skrifaði:
What colour do you use for the steek stitches for Drops 52-6 pattern? Thanks Marion
01.03.2017 - 04:16DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Van Der Est, you can work steek sts with the background colour. Happy knitting!
01.03.2017 - 08:56
DROPS 52-6 |
||||||||||
|
|
||||||||||
Prjónuð peysa með norrænu mynstri úr DROPS Karisma.
DROPS 52-6 |
||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. KANTUR: Prjónið 3 cm sléttprjón, 1 umferð brugðið (= uppábrot), 3 cm sléttprjón. STROFF: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Peysan er prjónuð í hring á hringprjóna, neðan frá og upp eftir stroff og er síðan klippt upp í lokin fyrir handveg og við miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 206 (212-220) lykkjur (meðtaldar 2 kantlykkjur) á hringprjón 2,5 með litnum koksgrár DROPS Karisma. Skiptið yfir í litinn ljós grár og prjónið 4 (4-5) cm stroff fram og til baka með 1 kantlykkju í hvorri hlið við miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið í hring á hringprjón 2 umferðir með litnum ljós grár, 1 umferð með litnum natur, 1 umferð með litnum ljós grár JAFNFRAMT því sem aukið er út um 49 (55-59) lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð og JAFNFRAMT er aukið út um 3 lykkjur við miðju að framan – þessar lykkjur + kantlykkjur (= 5 lykkjur) eru til að klippa upp í lokin og eru ekki prjónaðar inn í mynstur = 253 (265-277) lykkjur + lykkjur til að klippa upp í lokin. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú mynstur þannig: M.1, M.2, M.1, M.3 – byrjið við ör í mynsturteikningu eftir 5 lykkjur sem klippa á upp í við miðju að framan, M.1, M.4 – byrjið við ör í mynsturteikningu eftir 5 lykkjur sem klippa á upp í við miðju að framan og að lokum M.5 upp til loka. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 32 (32-32) cm aukið út um 5 lykkjur í hvorri hlið (þessar lykkjur eru til að klippa upp í lokin og eru ekki prjónaðar með inn í mynstur). Framstykki = 126 (132-138) lykkjur + 5 lykkjur til að klippa upp í lokin, bakstykki = 127 (133-139) lykkjur. Þegar stykkið mælist 52 (52-53) cm fellið af miðju 22 (24-24) lykkjur + 5 lykkjur framan í hálsmáli og stykkið er prjónað til loka fram og til baka. Fellið síðan af við hálsmáli í annarri hverri umferð: 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2 sinnum, 1 lykkja 3 sinnum. Þegar stykkið mælist 56 (55-57) cm fellið af miðju 39 (41-41) lykkjur að aftan fyrir hálsmáli og fellið síðan af 2 lykkjur í hvorri hlið í næstu umferð við hálsmál að aftan. Fellið af þegar stykkið mælist 58 (58-59) cm. ERMI: Fitjið upp 50 (50-52) lykkjur á sokkaprjón 2,5 með litnum koksgrár. Skiptið yfir í litinn ljós grár og prjónið 5 cm stroff. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið 2 umferðir með litnum ljós grár, 1 umferð með litnum natur, 1 umferð með litnum ljós grár. Prjónið síðan mynstur upp úr eins og á fram- og bakstykki (passið uppá að það verði ein mynstureining uppi á ermi – mynstrið endar þegar réttu máli er náð). JAFNFRAMT eftir stroff er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi 32 (32-34) sinnum í S+M: Í 4. Hverri umferð, L: Til skiptis í 3. og 4. hverri umferð = 114 (114-120) lykkjur. Þegar stykkið mælist 49 (49-48) cm prjónið 2 cm sléttprjón með röngu út að saumi yfir kant sem klipptur er upp á fram- og bakstykki, fellið af. FRÁGANGUR: Saumið merkiþráð niður mitt í útauknar lykkjur í hvorri hlið við miðju að framan. Saumið tvo sauma með saumavél sitt hvoru megin við merkiþráðinn ca ½ lykkju frá merkiþræði. Klippið upp fyrir handveg við miðju að framan. Saumið axlasauma. KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið upp ca 116-130 lykkjur meðfram vinstra framstykki á hringprjón 2,5 með litnum ljós grár og prjónið KANTUR – sjá útskýringu að ofan, fellið af. Endurtakið meðfram hægra framstykki, en eftir 1 cm eru prjónuð 6 hnappagöt jafnt yfir – 1 hnappagat = fellið af 2 lykkjur og aukið út um 2 nýjar lykkjur á eftir affelldu lykkjunum í næstu umferð (Munið eftir hnappagati í hálsmáli). Brjótið kantinn saman tvöfaldan að röngu og saumið. HÁLSMÁL: Prjónið upp ca 110-120 lykkjur í kringum hálsmál á sokkaprjón 2,5 með litnum ljós grár og prjónið 2,5 cm sléttprjón, skiptið yfir í litinn koksgrár og prjónið 1 umferð sléttprjón, 1 umferð brugðið, skiptið til baka yfir í litinn ljós grár og prjónið 2,5 cm sléttprjón, fellið af. Brjótið kantinn saman tvöfaldan að röngu og saumið. FRÁGANGUR: Saumið ermar í fram- og bakstykki þannig: Saumið til skiptis eitt spor í síðustu umferð á ermi á undan kanti fyrir saum og eitt spor í fram- og bakstykki á eftir spori úr saumavél. Snúið peysunni við og saumið niður í höndunum kantinn frá ermi yfir kant sem klipptur var upp á fram- og bakstykki. Saumið tölur í. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 52-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.