Johanna skrifaði:
I read your answers to Sofies and Panys question and I still don't understand how and where I have to pick up the 2 additional stitches. So I've knit the first row, starting with the I-Cord stitches and ending with the I-Cord stitches. Do I turn the work and work the increases then?
15.11.2026 - 19:09DROPS Design svaraði:
Dear Johanna, after you have worked the first row beginning with 2 sts I-cord, you have 54-98 sts on needle - finish this row by picking up 1 stitch in each of the both 2 I-cord sts worked at the beginning of the round = you increase 2 sts 56-100 sts. Can this help? Happy knitting!
16.11.2026 - 16:56
Ania skrifaði:
Co to znaczy więc że jest coraz więcej oczek na rzędy skrócone?
07.11.2026 - 09:44DROPS Design svaraði:
Witaj, jak dodajesz oczka na uszy to liczba oczek przed obróceniem robótki będzie coraz wieksza. Przerabiaj dokładnie wg pkt. 1-4. Pozdrawiamy!
07.11.2026 - 16:58
Ania skrifaði:
Dodawanie oczek na uszy punkty 1-4 czy za każdym razem po obróceniu robótki mam przerobić 7 oczek w rzędzie powrotnym czy ma być ich coraz więcej, dlaczego to nie jest dokładnie wyjaśnione
06.11.2026 - 11:20DROPS Design svaraði:
Witaj Aniu, dokładnie tak. Gdy po raz kolejny przerabiasz punkty 1-4, przerabiasz je dokładnie jak jest napisane w opisie. Pozdrawiamy!
06.11.2026 - 23:30
Ania skrifaði:
Dodawanie oczek na uszy punkty 1-4 czy za każdym razem po obróceniu robótki mam przerobić 7 oczek w rzędzie powrotnym czy ma być ich coraz więcej, dlaczego to nie jest dokładnie wyjaśnione
05.11.2026 - 22:09
Sofie skrifaði:
I’m struggling to understand your answer to Pany. The first 2 I-cord stitches are still on the needle, so it’s not the same as in the video you posted. How exactly do I pick up the 2 new stitches in the first 2 I-cord stitches?
23.10.2026 - 15:22DROPS Design svaraði:
Dear Sofie, the first 2 I-cord are at the beginning of the row from RS, work all stitches on needle, then pick up 1 stitch in each of the 2 I-cord at the beginning of the row = you have increased 2 sts, turn and work in garter stitch with 2 I-cord stitches on each side. Happy knitting!
23.10.2026 - 16:29
Pany skrifaði:
« Switch to circular needle size 3 mm and work as follows: 2 stitches I-CORD - read explanation above, work garter stitch over the remaining stitches, after last stitch pick up 1 stitch in each of the 2 first I-cord stitches on round = 56-62-74-80-86-93-100 stitches. » what do you mean pick up 1 stitch in each of the 2 first icord? There seems to be two increases here but i don’t understand where?
18.10.2026 - 22:37DROPS Design svaraði:
Dear Pany, you pick up a stitch from each of the 2 stitches in I-cord. You pick them up normally, as when you pick up for the collar, for example. You can see how to pick up stitches here. Happy knitting!
19.10.2026 - 01:17
Little Chipmunk Bonnet#littlechipmunkbonnet |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð húfa / hetta börn úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað í garðaprjóni með eyrum og i-cord. Stærð fyrirburar – 4 ára.
DROPS Baby 53-6 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið er út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir hverri lykkju með merki. Þegar prjónað er í hring, prjónið uppsláttinn snúið brugðið í næstu umferð. Þegar prjónað er fram og til baka, prjónið uppsláttinn snúið slétt í næstu umferð. I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA / HETTA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað frá miðju að aftan og fram. Fyrst er prjónað í hring á sokkaprjóna með útaukningu og síðan er stykkið prjónað fram og til baka í garðaprjóni með i-cord í hvorri hlið jafnframt sem fellt er af fyrir götum fyrir snúruband í hvorri hlið. Lykkjur eru auknar út og þeim fækkað til að forma eyrun, áður en fellt er af. Það er prjónað snúruband sem þrædd er upp og niður í gegnum götin í hliðum, snúrubandið er síðan notað til að hnýta húfuna/hettuna saman. HÚFA / HETTA: Fitjið upp 12-12-12-12-12-14-14 lykkjur með DROPS Alpaca og skiptið lykkjunum á sokkaprjóna 3, skiljið eftir ca 20 cm frá uppfitjunarþræði, þráðurinn er notaður í lokin til að loka gatinu. Setjið 6-6-6-6-6-7-7 merki í stykkið, merkin eru sett í aðra hverja lykkju. Prjónið GARÐAPRJÓN prjónað í hring – lesið leiðbeiningar að ofan, jafnframt er aukið út um 6-6-6-6-6-7-7 lykkjur í annarri hverri umferð þannig: Aukið út í umferð sem er prjónuð slétt alls 7-8-10-11-12-11-12 sinnum – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 54-60-72-78-84-91-98 lykkjur. Eftir alla útaukningu mælist stykkið ca 3-3-4-4½-5-4½-5 cm. Þegar útaukningu er lokið á að prjóna stykkið til loka fram og til baka. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið þannig: 2 lykkjur I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið garðaprjón yfir þær lykkjur sem eru eftir, á eftir síðustu lykkju á að taka upp 1 lykkju í hvora af fyrstu 2 i-cord lykkjum í umferð = 56-62-74-80-86-93-100 lykkjur. Nú er stykkinu snúið og prjónað er til loka fram og til baka. Prjónið GARÐAPRJÓN prjónað fram og til baka – lesið leiðbeiningar að ofan, með 2 lykkjur I-CORD í hvorri hlið – lesið leiðbeiningar að ofan. Jafnframt eru gerð göt fyrir snúruband í öðrum hverjum cm og í hvorri hlið þannig: Prjónið 2 lykkjur i-cord, 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið garðaprjón þar til 5 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja í garðaprjóni, 2 lykkjur i-cord. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat, gerið göt að tilgreindu máli – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 5½-5½-7-7½-8-8½-9 cm frá miðju að aftan, prjónið EYRU eins og útskýrt er að neðan – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá röngu. EYRU: FRÁ RÖNGU: Prjónið 20-22-28-30-33-35-38 lykkjur, setjið 1 merki í næstu lykkju (= eyrna-miðjulykkja), prjónið 14-16-16-18-18-21-22 lykkjur (= miðja ofan á höfði), setjið 1 merki um næstu lykkju (= eyrna-miðjulykkja), prjónið 20-22-28-30-33-35-38 lykkjur. FRÁ EYRA AÐ EYRA: FRÁ RÉTTU: Prjónið fram að fyrstu eyrna-miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið eyrna-miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið fram að annarri eyrna-miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið eyrna-miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið út umferðina. Snúið stykkinu og prjónið til baka, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt frá röngu. Aukið út á sama hátt 1 sinni til viðbótar = 64-70-82-88-94-101-108 lykkjur. ÚTAUKNING FYRIR EYRA SKREF 1-4: 1- FRÁ RÉTTU: Prjónið fram að fyrstu eyrna-miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið eyrna-miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur. Snúið stykkinu og prjónið 7 lykkjur til baka jafnframt því sem uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt frá röngu (= 2 nýjar lykkjur fyrir eyra). Snúið stykkinu. 2- FRÁ RÉTTU: Prjónið fram að fyrstu eyrna-miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið eyrna-miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið síðan fram að annarri eyrna-miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið eyrna-miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur (= 2 nýjar lykkjur fyrir hvort eyra). Snúið stykkinu og prjónið 7 lykkjur til baka jafnframt því sem uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt frá röngu. Snúið stykkinu. 3-FRÁ RÉTTU: Prjónið fram að annarri eyrna-miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið eyrna-miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið út umferðina (= 2 nýjar lykkjur fyrir annað eyrað). Snúið stykkinu. 4-FRÁ RÖNGU: Prjónið 1 umferð yfir allar lykkjur. Það eru nú 9 lykkjur í hvoru eyra = 72-78-90-96-102-109-116 lykkjur. Prjónið SKREF 1-4 alls 3-3-3-3-3-4-4 sinnum, aukið er út hvoru megin við eyrna-miðjulykkju og prjónaðar eru stuttar umferðir yfir fleiri og fleiri lykkjur, eftir alla útaukningu eru 17-17-17-17-17-21-21 lykkjur í hvoru eyra = 88-94-106-112-118-133-140 lykkjur. ÚRTAKA FYRIR EYRA SKREF 1-3: 1-FRÁ RÉTTU: Prjónið þar til 8-8-8-8-8-10-10 lykkjur eru eftir á undan fyrstu eyrna-miðjulykkju, prjónið 6-6-6-6-6-8-8 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið eyrna-miðjulykkju, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 6-6-6-6-6-8-8 lykkjur (= 2 lykkjur færri í hvoru eyra). Snúið stykkinu og prjónið yfir 15-15-15-15-15-19-19 lykkjur frá röngu. Snúið stykkinu. 2-FRÁ RÉTTU: Prjónið 5-5-5-5-5-7-7 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið eyrna-miðjulykkju, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið þar til 8-8-8-8-8-10-10 lykkjur eru eftir á undan annarri eyrna-miðjulykkju, prjónið 6-6-6-6-6-8-8 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið eyrna-miðjulykkju, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 6-6-6-6-6-8-8 lykkjur (= 2 lykkjur færri í hvoru eyra). Snúið stykkinu og prjónið yfir 15-15-15-15-15-19-19 lykkjur frá röngu. Snúið stykkinu. 3-FRÁ RÉTTU: Prjónið 5-5-5-5-5-7-7 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið eyrna-miðjulykkju, prjónið 2 lykkjur slétt saman og prjónið út umferðina (= 2 lykkjur færri í hvoru eyra). Snúið stykkinu og prjónið 1 umferð til baka frá röngu. Það eru nú 13-13-13-13-13-17-17 lykkjur í hvoru eyra = 80-86-98-104-110-125-132 lykkjur. Prjónið SKREF 1-3 alls 3-3-3-3-3-4-4 sinnum, lykkjum er fækkað hvoru megin við lykkjur með merki og prjónaðar eru stuttar umferðir yfir færri og færri lykkjur, eftir alla úrtöku eru 5 lykkjur í hvoru eyra = 64-70-82-88-94-101-108 lykkjur. Haldið áfram í garðaprjóni, i-cord og götum fyrir snúru jafnframt því sem næsta umferð er prjónuð frá réttu og prjónað er þannig: FÆKKIÐ LYKKJUM FRÁ RÉTTU: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan fyrstu eyrna-miðjulykkju, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið eyrna-miðjulykkju, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið fram að 2 lykkjum á undan annarri eyrna-miðjulykkju, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið eyrna-miðjulykkju, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið út umferðina (= 4 lykkjur færri). Prjónið svona alls 4 sinnum í hverri umferð frá réttu = 48-54-66-72-78-85-92 lykkjur. FREMRI HLUTI Á HÚFU / HETTU: Prjónið garðaprjóni, i-cord og göt þar til stykkið mælist 11-12-13,5-14,5-15-16-17 cm frá miðju að aftan, fellið af. FRÁGANGUR: Notið þráðinn frá uppfitjuninni og þræðið upp og niður í hverja uppfitjunarlykkju, herðið á þræði þannig að gatið lokist. Klippið og festið þráðinn. SNÚRUBAND: Prjónið snúruband 4 lykkjur á sokkaprjóna 3 þannig: Fitjið upp 4 lykkjur og prjónið 1 umferð slétt. * Færið 4 lykkjurnar fram að hægri hlið á sokkaprjóni án þess að snúa stykkinu, herðið á þræði og prjónið slétt yfir allar lykkjur *. Prjónið frá *-* þar til snúrubandið mælist 55-60-60-65-65-70-70 cm. Klippið og festið þráðinn. Þræðið snúrubandið upp og niður í gegnum gataumferð meðfram hliðum á húfu / hettu. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #littlechipmunkbonnet eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 15 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 53-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.