Julia skrifaði:
Tolle, leicht verständliche Anleitung. Super süßes Mützchen!
13.11.2026 - 17:49
Janet skrifaði:
Hallo, ich verstehe den Teil nicht:Das Bindeband nehmen und die 4 Maschen desI-Cords stricken, soll ich das Band anstricken?Liebe Grüße
04.11.2026 - 06:24DROPS Design svaraði:
Liebe Janet, ich verstehe leider nicht wo genau Sie in der Anleitung sind, können Sie uns bitte mehr sagen? Danke im voraus für Ihr Verständnis.
04.11.2026 - 09:07
Agnès Houlmann skrifaði:
Bonjour ! J'ai le même échantillon... J'ai modifié le bord et le point mais ça ne modifie en rien l'échantillon et pour la hauteur j'ai fait la longueur dite ! J'ai fait la 1ère taille avec le fil Air et j'obtient un joli bonnet pour une taille 1à 3 mois 😅😂🤷🏼
19.10.2026 - 10:01
Agnès Houlmann skrifaði:
Correction de mon 1ère commentaire, j'ai fait la plus grande taille 3-4 ans et j'obtient une taille pour du 6 mois 😳🤔
13.10.2026 - 10:15DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Houlmann, est-ce que votre échantillon était juste? vous aviez bien 26 m x 34 rangs jersey = 10x10 cm? Avez-vous bien tricoté la bordure picot ainsi que le point ajouré comme indiqué? Et surtout bien conservé la même tension pendant que vous tricotiez que celle de votre échantillon?
13.10.2026 - 13:56
Agnès Houlmann skrifaði:
J'ai réalisé ce béguin en taille 2-4 ans et j'ai obtenu une taille pour du 6 mois 😳
13.10.2026 - 10:12
Chestnut Bloom Bonnet#chestnutbloombonnet |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð húfa / hetta fyrir börn úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað með gatamynstri og i-cord.
DROPS Baby 52-9 |
|||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- KANTLYKKJUR I-CORD (á við um þegar stykkið er sett saman): BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kantlykkjur þannig (= 4 lykkjur): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. LOK UMFERÐAR: Prjónið kantlykkjur þannig (= 4 lykkjur): Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Haldið svona áfram frá réttu og frá röngu. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Prjónið 2 lykkjur slétt saman á undan hverju merki. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA / HETTA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst eru prjónuð 2 snúrubönd með i-cord, síðan er prjónaður kantur (að andliti) og stykkið er prjónað fram og til baka, síðan er stykkið prjónað í hring (að miðju að aftan). SNÚRUBAND: Fitjið upp 4 lykkjur með DROPS Baby Merino á sokkaprjóna 3. Prjónið fram og til baka í hverri umferð (bæði frá réttu og röngu) þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið slétt þar til stykkið mælist 20-25 cm. Látið lykkjurnar hvíla á sokkaprjóni og klippið þráðinn. Prjónið annað snúruband til viðbótar á sama hátt og klippið þráðinn. KANTUR: Fitjið upp 61-71-75-79-85-89 lykkjur á hringprjón 3. Prjónið sléttprjón fram og til baka í ca 1½ til 2 cm – stillið af að næsta umferð sé frá réttu. Prjónið gataumferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): * Prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir og prjónið 1 lykkju slétt, ekki snúa stykkinu. Takið annað snúrubandið og prjónið yfir 4 lykkjurnar – lesið KANTLYKKJUR I-CORD = 65-75-79-83-89-93 lykkjur. Snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið yfir 4 kantlykkjur, prjónið brugðið út umferðina, ekki snúa stykkinu. Takið hitt snúrubandið og prjónið yfir 4 kantlykkjur eins og útskýrt er í KANTLYKKJUR I-CORD = 69-79-83-87-93-97 lykkjur. Prjónið fram og til baka í sléttprjóni með 4 kantlykkjur i-cord. Prjónið svona þar til stykkið hefur verið prjónað ca jafnlangt hvoru megin við gataumferð. Kanturinn er síðar brotinn inn að röngu í gataumferð og saumaður niður. Setjið eitt merki til að mæla frá fyrir miðju í síðustu umferð sem var prjónuð. HÚFA / HETTA: Prjónið sléttprjón og kantlykkjur eins og áður þar til prjónaður hefur verið ca 1 cm frá merki – stillið af að næsta umferð sé frá réttu. Nú er prjónað MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan. Prjónið 4 kantlykkjur eins og áður, 3-3-0-2-0-2 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 þar til eftir eru 12-12-9-11-9-11 lykkjur, A.2 yfir 5 lykkjur, 3-3-0-2-0-2 lykkjur sléttprjón og 4 kantlykkjur eins og áður. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka þar til mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina. Prjónið síðan sléttprjón með 4 kantlykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist ca 6-7-7-7-8-8 cm frá merki – stillið af að næsta umferð sé frá röngu. Prjónið 2 lykkjur brugðið saman 2 sinnum, prjónið sléttprjón þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið saman 2 sinnum = 65-75-79-83-89-93 lykkjur. Snúið stykkinu að réttu, nú á að prjóna stykkið í hring frá réttu, fyrsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir, setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt frá byrjun umferðar og prjónið síðan 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni (stykkið hefur núna verið sett saman). Prjónið slétt að miðju á milli 4 fléttuðu lykkja, þetta er núna byrjun á umferð. Prjónið hringinn í sléttprjóni þar til stykkið mælist 7-8-8-8-9-9 cm frá merki (= nú eru eftir ca 4-5-6-7-7-8 cm að loka máli). Prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjum er fækkað jafnt yfir 0-0-4-3-4-3 lykkjur = 65-75-75-80-85-90 lykkjur. Setjið 5 merki í stykkið þannig að það eru 13-15-15-16-17-18 lykkjur á milli hverra merkja. Lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA í útskýringu að ofan og fækkið lykkjum í annarri hverri umferð alls 2-3-6-8-7-10 sinnum, fækkið síðan lykkjum í hverri umferð 8-9-6-5-7-5 sinnum = 15 lykkjur eftir í öllum stærðum. Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman umferðina hringinn = 8 lykkjur í öllum stærðum. Klippið þráðinn, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Húfan / hettan mælist ca 11-13-14-15-16-17 cm frá merki. FRÁGANGUR: Brjótið kantinn inn að röngu og saumið niður. Saumið opið sem er í skammhlið á kanti að innanverðu á húfu / hettu. Húfan / hettan mælist ca 13-15-16-17-18-19 cm mælt frá kanti fram að miðju að aftan. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #chestnutbloombonnet eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 10 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 52-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.