Misty Coast Cardigan#mistycoastcardigan |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Alpaca eða DROPS Nord. Stykkið heklað ofan frá og niður í stuðlum og fastalykkjum með laskalínu. Stærð XS – XXXL.
DROPS 273-38 |
|||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJUR: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli/fastalykkju. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.2. Munið að mynsturteikning er lesin frá hægri til vinstri þegar heklað er frá réttu og frá vinstri til hægri þegar heklað er frá röngu. HEKLLEIÐBEININGAR (á við um berustykki og fram- og bakstykki): Umferðir með stuðlum byrja á 3 loftlykkjum sem koma til viðbótar við lykkjur í umferðinni. Þessar lykkjur eru ekki taldar með í lykkjufjöldanum og ekki er heklað í þessar lykkjur í lok næstu umferðar. Umferðir með fastalykkjum byrja með 1 loftlykkju sem kemur til viðbótar við lykkjur í umferðinni. Þessi lykkja er ekki talin með í lykkjufjöldanum og ekki er heklað í þessa lykkju í lok næstu umferðar. HEKLLEIÐBEININGAR (á við um ermi): Ermin er hekluð til skiptis frá réttu og frá röngu. Umferð með stuðlum byrjar með 3 loftlykkjum sem koma í stað 1. stuðul, endið umferðina með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju. Snúið stykkinu. Umferð með fastalykkjum byrjar með 1 loftlykkju sem kemur í stað 1. fastalykkju, endið umferðina með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. Snúið stykkinu. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru heklaðar upp fyrir miðju undir ermi, getur myndast lítið gat í skiptingunni á mill fram- og bakstykkis og erma. Hægt er að loka þessu gati með því að hekla 2 stuðla/fastalykkjur saman í skiptingunni á milli erma og fram- og bakstykkis, heklið 1 stuðul/fastalykkju í síðustu loftlykkju á undan ermalykkjum – bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul/fastalykkju um lykkjuna frá hlið á fram- og bakstykki og dragið síðan þráðinn í gegnum allar lykkjur á heklunálinni, heklið á sama hátt í hinni skiptingunni með því að hekla 1 stuðul/fastalykkju um lykkjuna frá hlið á fram- og bakstykki – bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul/fastalykkju í fyrstu loftlykkju og dragið síðan þráðinn í gegnum allar lykkjur á heklunálinni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið lykkjum hvoru megin við 2 lykkjur fyrir miðju undir ermi þannig: Heklið 3 loftlykkjur (koma í stað fyrsta stuðuls), heklið 2 stuðla saman þannig: * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum fyrstu 2 lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni (= 1 lykkja færri). Heklið eins og áður þar til 3 stuðlar eru eftir, heklið 2 stuðla saman eins og áður (= 1 lykkja færri) og heklið 1 stuðul í síðustu lykkju. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykkið er heklað fram og til baka, ofan frá og niður jafnframt sem aukið er út fyrir laskalínu. Þegar berustykkið hefur verið heklað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er heklað fram og til baka að loka máli. Ermarnar eru heklaðar í hring, til skiptis frá réttu og frá röngu þannig að áferðin verði eins og á fram- og bakstykki. Í lokin er heklaður kantur í hálsmáli fram og til baka. BERUSTYKKI: Notið heklunál 3 og DROPS Alpaca eða DROPS Nord. Heklið 120-124-132-136-144-148-156 LOFTLYKKJUR – lesið leiðbeiningar að ofan. Heklið fram og til baka í MYNSTUR þannig (fyrsta umferðin er frá réttu): Lesið HEKLLEIÐBEININGAR og byrjið á að hekla 3 loftlykkjur, í 4. loftlykkju frá heklunálinni er síðan heklað þannig: Heklið A.1 yfir næstu 20-21-23-22-24-25-27 lykkjur (= framstykki), A.2 í næstu lykkju (= laskalína), A.1 yfir næstu 24-24-24-28-28-28-28 lykkjur (= ermi), A.2 í næstu lykkju (= laskalína), A.1 yfir næstu 28-30-34-32-36-38-42 lykkjur (= bakstykki), A.2 í næstu lykkju (= laskalína), A.1 yfir næstu 24-24-24-28-28-28-28 lykkjur (= ermi), A.2 í næstu lykkju (= laskalína), A.1 yfir næstu 20-21-23-22-24-25-27 lykkjur. Það hafa verið auknar út 4 lykkjur og það eru 124-128-136-140-148-152-160 stuðlar og 4 loftlykkjubogar í umferð. Lykkjurnar skiptast þannig á milli loftlykkjuboganna: 26-26-26-30-30-30-30 lykkjur á hvorri ermi, 30-32-36-34-38-40-44 lykkjur fyrir bakstykki og 21-22-24-23-25-26-28 lykkjur fyrir hvort framstykki. Haldið áfram með A.1 og A.2, aukið út um 8 lykkjur í hverri umferð. Þegar A.2 hefur verið heklað til loka (= 6 umferðir) eru 164-168-176-180-188-192-200 lykkjur og 4 loftlykkjubogar í umferð. Endurtakið síðan síðustu 2 umferðirnar (= A.x) þar til heklaðar hafa verið alls 27-30-31-34-37-41-43 umferðir frá uppfitjunarkanti. Það eru 332-360-376-404-436-472-496 lykkjur og 4 loftlykkjubogar í umferðinni og stykkið mælist ca 14-16-16-18-19-22-23 cm frá uppfitjunarkantinum. Lykkjum er skipt á milli loftlykkjuboganna þannig: 78-84-86-96-102-110-114 lykkjur fyrir hvora ermi, 82-90-96-100-110-120-128 lykkjur fyrir bakstykki og 47-51-54-56-61-66-70 lykkjur fyrir hvort framstykki. Heklið síðan eins og áður með 1 umferð af fastalykkjum og 1 umferð af stuðlum til skiptis, en án þess að auka út – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er heklað um hvern loftlykkjuboga til að loka götunum: Heklið 2 fastalykkjur eða 2 stuðla í kringum loftlykkjubogann (= 1 loftlykkjuboga er skipt út fyrir 2 stuðla/fastalykkjur) = 340-368-384-412-444-480-504 lykkjur. Heklið þar til stykkið mælist 18-19-20-21-22-24-26 cm frá uppfitjunarkanti. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar stykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar kemur laskalínan til með að vera staðsett aðeins inn á framstykki/bakstykki. Heklið eins og áður yfir fyrstu 56-61-63-67-72-79-84 lykkjur (= framstykki), hoppið yfir næstu 64-68-72-78-84-88-90 lykkjur (= ermi), heklið 8-8-10-12-16-18-20 loftlykkjur (= í hlið undir ermi), heklið eins og áður yfir næstu 100-110-114-122-132-146-156 lykkjur (= bakstykki), hoppið yfir næstu 64-68-72-78-84-88-90 lykkjur (= ermi), heklið 8-8-10-12-16-18-20 loftlykkjur (= í hlið undir ermi), heklið næstu 56-61-63-67-72-79-84 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan heklað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 228-248-260-280-308-340-364 lykkjur. Heklið eins og áður og heklið 1 fastalykkju/stuðul í hvern af 8-8-10-12-16-18-20 loftlykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermum. Heklið fram og til baka þar til stykkið mælist ca 45-47-49-50-52-54-56 cm frá uppfitjunarkanti fyrir miðju að aftan – endið eftir umferð með stuðlum. Klippið þráðinn, þræðið þráðinn í gegnum lykkjuna, herðið að og festið þráðinn vel. Peysan mælist ca 45-47-49-50-52-54-56 cm frá miðju að aftan og ca 50-52-54-56-58-60-62 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Lesið HEKLLEIÐBEININGAR og LEIÐBEININGAR ERMI í útskýringu að ofan. Passið uppá að byrja frá réttu eða röngu þannig að áferðin á ermum verði alveg eins og á berustykki. Byrjið fyrir miðju í loftlykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi og heklið fastalykkjur/stuðla í hverja lykkju/loftlykkju. Það eru 72-76-82-90-100-106-110 lykkjur í umferð. Heklið fastalykkjur/stuðla eins og áður – JAFNFRAMT þegar heklaðir hafa verið ca 2 cm frá skiptingunni og næsta umferð er umferð með stuðlum er lykkjum fækkað fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið um 2 lykkjur í öðrum hverjum cm alls 1-1-2-4-7-7-7 sinnum = 70-74-78-82-86-92-96 lykkjur. Heklið síðan þar til ermin mælist 49-49-48-48-47-46-44 cm frá skiptingunni – endið með umferð með stuðlum. Klippið og festið þráðinn. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið heklunál 3 og DROPS Alpaca eða DROPS Nord. Byrjið frá réttu yst á hægra framstykki, festið þráðinn með 1 keðjulykkju. Byrjið í 1. umferð í mynsturteikningu og heklið um loftlykkjurnar frá uppfitjunarkanti (þ.e.a.s. á milli lykkja frá 1. umferð í mynsturteikningu frá berustykki). Heklið A.1, heklið stuðla jafnframt því sem við hverja laskalínu eru heklaðir 2 stuðlar saman (= 4 stuðlar færri) = 116-120-128-132-140-144-152 stuðlar. Heklið næstu umferð í A.1 og heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul út umferðina. Klippið þráðinn, dragið þráðinn í gegnum lykkjuna, herðið á þræðinum og festið vel. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan, tölum er hneppt á milli 2 stuðla í hægri kanti að framan. Fyrsta talan er staðsett ca 1 til 2 cm frá kanti í hálsmáli, síðasta talan er staðsett ca 5 cm frá neðri kanti á peysu. Þær tölur sem eru eftir er skipt jafnt niður á milli fyrstu og síðustu tölu. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mistycoastcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 10 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 273-38
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.