Solveig skrifaði:
Hei, onko olemassa videota ohjeen joustoneule osuuden silmukoiden lisäämisestä.
04.10.2026 - 18:14DROPS Design svaraði:
Hei, lisäykset tehdään langankierroin, joten katso seuraavat videot: Langankierto + Lisääminen langankierroilla, lisätyt silmukat kääntyvät joko oikealle tai vasemmalle
05.10.2026 - 17:59
Dupin skrifaði:
Comment intègre t'on l'augmentation avant la maille endroit étant donné qu'avant la 2ème maille c'est un jeté et après le jeté qui suit la 29ème maille quel est le point ?
27.09.2026 - 15:03DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Dupin, la maille avec le marqueur doit toujours rester une maille endroit, les augmentations vont se tricoter en côtes anglaises de sorte que les côtes anglaises s'élargissent, la 1ère augmentation se tricote ainsi comme 1 maille endroit des côtes anglaises, la suivante se tricote à l'envers, ainsi après 2 augmentations, les côtes anglaises tombent de nouveau juste tout le tour. Bon tricot!
28.09.2026 - 09:53
Kari skrifaði:
The increases are over 2 rounds: 1) yarn over and 2) twist the yarn over/left/right to knit. In the sections mid-front/mid back it says to increase every second round. Question: does this mean the yarn over round and the 2nd and then a round in between these two rounds before starting the yarn over round again OR do you just alternate the two rounds yarn over and twist/knit rounds?
23.09.2026 - 12:53DROPS Design svaraði:
Dear Kari, when you increase every round you will make the yarn over every round the number of times for your size, so that you will have from 1st round with increase: round 1: increase with a yarn over; round 2, increase with a yarn over on the correct place and work the yarn over from previous round twisted. Happy knitting!
24.09.2026 - 07:53
Darry skrifaði:
Why can’t I download this pattern into GoodReader so I can then put it in knit companion ?
09.09.2026 - 01:16DROPS Design svaraði:
Dear Darry, you can download the pattern as a pdf by clicking on the print pattern button and then, when selecting the printer, choosing: "Save as PDF". Then, it should allow you to use it in knit companion. For more information, please check their website. Happy knitting!
13.09.2026 - 19:29
Angelika skrifaði:
Ich denke, das ist kein Vollpatent, sondern ein Halbpatent in der Halsblende.
31.08.2026 - 19:08DROPS Design svaraði:
Liebe Angelika, vielen Dank für den Hinweis, die Anleitung wurde korrigiert. Viel Spaß beim Stricken!
02.09.2026 - 11:27
MARIA skrifaði:
Molto bello, lo lavoro sicuramente, grazie.
31.08.2026 - 11:16
Forest Fall Poncho#forestfallponcho |
|
![]() |
![]() |
Prjónað poncho úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með rúllukanti. Stærð XS - XXXL.
DROPS 272-19 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- STROFF FALSKT KLUKKUPRJÓN: UMFERÐ 1: Prjónið allar lykkjur slétt. UMFERÐ 2: Prjónið 1 lykkju slétt í lykkjuna fyrir neðan næstu lykkju, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* út umferðina. UMFERÐ 3: Prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* út umferðina. Endurtakið UMFERÐ 2 og 3. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN MERKI (= uppslátturinn snýr til hægri): Færið uppsláttinn frá vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón með því að stinga vinstri prjóni inn aftan frá í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið nú nýjar lykkjur jafnóðum inn í klukkuprjón þegar aukið er út í kanti í hálsmáli og í sléttprjóni þegar aukið er út í sjálfu ponchoinu. Á EFTIR MERKI (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið nú nýjar lykkjur jafnóðum inn í klukkuprjón þegar aukið er út í kanti í hálsmáli og í sléttprjóni þegar aukið er út í sjálfu ponchoinu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður með útaukningu. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 88-88-96-96-100-100-104 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði DROPS Alpaca og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið 3 umferðir sléttprjón (= rúllukantur). Prjónið síðan STROFF FALSKT KLUKKUPRJÓN – lesið leiðbeiningar að ofan. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Þegar 2 umferðir af stroffi hafa verið prjónaðar, setjið 2 merki í stykkið þannig: 1. merki er sett í 27-27-29-29-31-31-33 lykkju í umferð (= slétt lykkja við miðju að framan), 2. merki er sett í 71-71-77-77-81-81-85 lykkju í umferð (= slétt lykkja við miðju að aftan). Haldið áfram í hring í stroffi með fölsku klukkuprjóni jafnframt þar sem aukið er út um 1 lykkju hvoru megin við lykkjur með merki í – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er í LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 6 sinnum = 112-112-120-120-124-124-128 lykkjur – endið eftir 2. umferð í útskýringu að ofan. Hálsmálið mælist ca 5 cm án rúllukants. BERUSTYKKI: Skipið yfir í hringprjón 4,5 og prjónið 1 umferð sléttprjón. Nú eru sett 4 ný merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett hvoru megin við 9-9-9-9-11-11-13 axlarlykkjur eins og útskýrt er að neðan. Þegar merkin hafa verið sett eru alls 6 merki í stykkinu og öll merkin eiga að fylgja áfram með í stykkinu. Setjið 1. merkið á undan fyrstu lykkju, teljið 9-9-9-9-11-11-13 lykkjur (= öxl), setjið 2. merkið á undan næstu lykkju, teljið 23-23-25-25-25-25-25 lykkjur (= hægri hlið að framan), haldið merkinu sem situr í næstu lykkju (= 3. merkið í sléttu lykkjunni við miðju að framan), teljið 23-23-25-25-25-25-25 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið 4. merkið á undan næstu lykkju, teljið 9-9-9-9-11-11-13 lykkjur (= öxl), setjið 5. merkið á undan næstu lykkju, teljið 23-23-25-25-25-25-25 lykkjur (= vinstra bakstykki), haldið merkinu sem situr í næstu lykkju (= 6. merkið í sléttu lykkjunni við miðju að aftan), þ.e. 23-23-25-25-25-25-25 lykkjur eftir í umferð (= hægri hlið að aftan). Prjónið sléttprjón í hring og aukið út við merkin eins og útskýrt er hér að neðan. Munið að fylgja prjónfestunni! ATH: Útaukningar eru gerðar mismunandi á hvorri öxl og við miðju að framan/miðju að aftan, svo lesið báða hlutana hér að neðan áður en haldið er áfram og munið eftir útskýringum í LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING með leiðbeiningum til að auka út. ÖXL: Aukið út á EFTIR 2. merki, á UNDAN 4. merki, á EFTIR 5. merki og á UNDAN 1. merki í umferð (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umferð 0-0-0-1-4-6-6 sinnum, í 4. hverri umferð 6-10-10-10-10-12-12 sinnum, í 6. hverri umferð 8-6-6-6-4-2-2 sinnum og síðan í 8. hverri umferð 4 sinnum. Alls hefur verið aukið út 18-20-20-21-22-24-24 sinnum hvoru megin við hvora öxl. MIÐJA AÐ FRAMAN/MIÐJA AÐ AFTAN: Aukið út hvoru megin við 3. og 6. merki (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 54-56-59-60-64-66-67 sinnum, eða að óskuðu máli. Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka mælist stykkið ca 45-47-49-50-53-55-56 cm eftir kant í hálsmáli – mælt í prjónstefnu (= lykkjustefnu) = 400-416-436-444-468-484-492 lykkjur í umferð. Nú er prjónaður kantur eins og útskýrt er að neðan. KANTUR: Skiptið yfir í hringprjón 3 og prjónið stroff með fölsku klukkuprjóni eins og útskýrt er að ofan – stillið lykkjufjöldann ef þörf krefur til að stroffið gangi rétt upp – það á að vera 1 slétt lykkja fyrir miðju að framan/miðju að aftan eins og áður. JAFNFRAMT er aukið út hvoru megin við 3. og 6. merki í annarri hverri umferð eins og áður – útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í stroffið jafnóðum. Prjónið svona þar til kanturinn mælist ca 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt. Notið hringprjón 4,5 og fellið aðeins laust af með sléttum lykkjum. Ponchoið mælist ca 58-60-62-64-66-69-70 cm mælt meðfram miðju að framan eftir kant í hálsmáli. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #forestfallponcho eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 10 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 272-19
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.