Cathrine skrifaði:
Er det feil i diagrammet A 4- A10 på omgangen etter det er strikket rett på vrangen? Får ikke m antall å stemme.
20.05.2026 - 19:29DROPS Design svaraði:
Hei Cathrine, Du har 69 masker på pinnen. Diagrammene er lest fra bunnen oppover. Du strikker 3 kantmasker, A.4 (4 masker), A.5 x 5 (25 masker), A.6 (2 masker + 1 kast), A.7 (1 maske), A.8 (1 kast +2 masker), A.9 x 5 (25 masker), A.10 (4 masker) og 3 kantmasker. Uten å telle kastene siden de er i tillegg, du har: 3 + 4 + 25 + 2 + 1 + 2 + 25 + 4 + 3 = 69 masker. Hilsen Drops Team.
21.05.2026 - 06:42
HM skrifaði:
Dit is een breipatroon, echter er wordt gesproken van haken. Dus, dat klopt niet. Graag corrigeren a.u.b.
18.05.2026 - 08:30
Ewa skrifaði:
Witam, czy na lewej stronie robótki nie powinniśmy dziergam oczka lewe?
17.04.2026 - 18:03DROPS Design svaraði:
Witaj Ewo, zależy od tego, w którym miejscu we wzorze jesteś. W schematach pola oznaczone poziomą kreską oznaczają oczka prawe na lewej stronie robótki. W innych rzędach faktycznie są przerabiane oczka lewe na lewej stronie robótki. Pozdrawiamy!
19.04.2026 - 21:18
MP skrifaði:
Thank you for the pattern! As an advanced beginner knitter, it was a bit challenging at first to understand how the bandana would come together, but after a while it all made sense. It was my first time doing i-cord edges and cast-off, and the result is beautiful!
10.04.2026 - 10:14
Rosy Rhythm Bandana#rosyrhythmbandana |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónaður klútur / skupla úr DROPS Cotton Merino. Stykkið er prjónað með gatamynstri og i-cord.
DROPS 265-5 |
||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.10. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. 3 KANTLYKKJUR MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 1 lykkju í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. I-CORD AFFELLING: Þegar síðasta umferðin er prjónuð frá röngu byrjar affellingin þannig: BYRJUN (= ranga): Í lok umferðar frá röngu eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur á hægri prjóni. Snúið stykkinu. UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið næstu 2 lykkjur snúnar slétt saman. Lyftið 2 lykkjum af hægri prjóni til baka yfir á vinstri prjón. Ekki snúa stykkinu (þegar prjónað er þá herðist á þræðinum sem prjónað er með, þannig að það myndast snúrukantur). Endurtakið UMFERÐ 1 þar til einungis 2 lykkjur eru eftir. Lyftið til baka 2 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón. Fellið af. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KLÚTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka frá miðju og út. Í lokin er fléttað band/snúra í hvorri hlið sem er notað til að festa klútinn með. KLÚTUR / SKUPLA: Fitjið upp 7 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Cotton Merino. Prjónið fram og til baka þannig (fyrsta umferðin er frá röngu): UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 3 KANTLYKKJUR MEÐ I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið 1 lykkju slétt og prjónið 3 kantlykkjur með i-cord. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 3 kantlykkjur með i-cord, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 3 kantlykkjur með i-cord = 9 lykkjur. UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið 3 kantlykkjur með i-cord, 3 lykkjur slétt og prjónið 3 kantlykkjur með i-cord. UMFERÐ 4 (= rétta): Prjónið 3 kantlykkjur með i-cord, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 3 kantlykkjur með i-cord = 13 lykkjur. UMFERÐ 5 (= ranga): Prjónið 3 kantlykkjur með i-cord, 7 lykkjur slétt og prjónið 3 kantlykkjur með i-cord. Prjónið síðan MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan. Prjónið þannig (fyrsta umferð er frá réttu): Prjónið 3 kantlykkjur eins og áður, prjónið A.1, prjónið A.2 yfir 1 lykkju (= miðjulykkjan), prjónið A.3 og prjónið 3 kantlykkjur eins og áður. Setjið eitt merki í miðjulykkjuna og látið merkið fylgja áfram með upp eftir stykkinu svo auðvelt sé að fylgja mynstrinu. Prjónið 3 kantlykkjur eins og áður, prjónið A.1, prjónið A.2 yfir 1 lykkju (= miðjulykkjan), prjónið A.3 og prjónið 3 kantlykkjur eins og áður. Setjið eitt merki í miðjulykkjuna og látið merkið fylgja áfram með upp eftir stykkinu svo auðvelt sé að fylgja mynstrinu. Haldið áfram fram og til baka eftir mynsturteikningu, þegar mynsturteikningin hefur verið prjónuð til loka eru 69 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Nú er mynstrið prjónað þannig (fyrsta umferðin er frá réttu): Prjónið 3 kantlykkjur eins og áður, prjónið A.4 yfir 4 lykkjur, prjónið A.5 alls 5 sinnum á breiddina (það eru eftir 2 lykkjur á undan miðjulykkjunni), prjónið A.6 yfir 2 lykkjur, prjónið A,7 yfir 1 lykkju (= miðjulykkjan), prjónið A.8 yfir 2 lykkjur, prjónið A.9 5 sinnum á breiddina (það eru eftir 7 lykkjur í umferð), prjónið A.10 yfir 4 lykkjur og prjónið 3 kantlykkjur eins og áður. Haldið áfram fram og til baka eftir mynsturteikningu, þegar mynsturteikningin hefur verið prjónuð til loka eru 121 lykkjur í umferð. Síðasta umferðin er prjónuð frá röngu. Fellið af með I-CORD AFFELLING – lesið leiðbeiningar að ofan. Klippið og festið þráðinn. Stykkið mælist ca 46 cm meðfram langhlið og ca 23 cm mælt meðfram miðjulykkju. Klúturinn er formaður eins og þríhyrningur, það á að festa snúru/band í hvorn enda á langhlið á þríhyrningnum. BAND/SNÚRA: Klippið 6 þræði DROPS Cotton Merino sem er ca 80 cm að lengd, þræðið þræðina hálfa leið í gegnum stykkið yst í annarri langhliðinni á klútnum þannig að það verða 12 þræðir sem eru jafn langir. Skiptið þráðunum í 3 hluta með 4 þræði í hverjum hluta. Fléttið þessa hluta saman þar til ca 3 cm eru eftir af þráðum í enda fléttunnar. Bindið þráð utan um endann á fléttunni og festið vel. Gerið annað band/snúru á sama hátt í hinn endann á langhliðinni. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #rosyrhythmbandana eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 8 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 265-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.