Blue Petal Sweater#bluepetalsweater |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Air. Stykkið er heklað ofan frá og niður í stuðlum með gatamynstri á berustykki og picotkanti. Stærð XS - XXXL.
DROPS 266-24 |
||||||||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJUR: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.3 og A.4). LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Aukið út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í/um sömu lykkju (passið uppá að aukið sé út í umferð þegar stuðlar eru heklaðir). Til að reikna út hvernig auka á út jafnt yfir, teljið lykkjufjöldann sem auka á út yfir (t.d. 68 stuðlar) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 22) = 3,1. Í þessu dæmi er aukið út með því að hekla 2 stuðla í 3. lykkju/stuðul. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 (á við um ermar): Þegar heklað er í hring þá kemur umferðin til með að færast til. Setjið merkiþráð fyrir miðju undir ermi, á milli 2 lykkja og látið þennan merkiþráð fylgja áfram með lóðrétt fyrir miðju undir ermi – það á að færa merkiþráðinn til þannig að hann verði allan tímann lóðréttur neðan / undir ermi. Leggið stykkið flatt og athugið að merkiþráðurinn sé fyrir miðju undir ermi þegar lykkjum er fækkað. Lykkjum er fækkað hvoru megin við 2 stuðla við merkiþráðinn þannig: Heklið þar til 3 stuðlar eru eftir á undan merkiþræði, heklið 2 stuðla saman – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2, heklið 2 stuðla (merkiþráðurinn situr á milli þessa stuðla), heklið 2 stuðla saman (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2: Fækkið um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla saman í 1 lykkju þannig: * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum fyrstu 2 lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri). LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-3: Fækkið um 1 fastalykkju með því að hekla 2 fastalykkjur saman í 1 fastalykkju þannig: * Stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykkið er heklað í hring frá hægri öxl að aftan, ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið heklað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið og ermar er síðan heklað í hring hvort fyrir sig. Í lokin er heklaður picotkantur í hálsmáli. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. BERUSTYKKI: Heklið 69-71-73-77-81-83-87 LOFTLYKKJUR – lesið leiðbeiningar að ofan, með heklunál 5 með DROPS Air og tengið lykkjurnar í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið síðan í hring þannig: Heklið A.1 í fyrstu lykkju, heklið A.2 umferðina hringinn = 68-70-72-76-80-82-86 stuðlar + 3 loftlykkjur í byrjun umferðar. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Haldið áfram með stuðla eins og útskýrt er að ofan. Munið að fylgja heklfestunni. Þegar stykkið mælist ca 3 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út 22-26-33-35-31-32-34 stuðla jafnt yfir í næstu umferð – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 90-96-105-111-111-114-120 stuðlar + 3 loftlykkjur. Þegar stykkið mælist ca 6-6-7-7-7-7-7 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út 24-30-33-33-33-33-36 stuðla jafnt yfir í næstu umferð = 114-126-138-144-144-147-156 stuðlar + 3 loftlykkjur. Í fyrstu umferð á eftir síðustu umferð með útaukningu (stykkið mælist ca 7-7-8-8-8-8-8 cm frá uppfitjunarkanti), heklið MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan og heklið fyrstu umferð þannig: Heklið A.3 í fyrstu lykkju, heklið A.4 umferðina hringinn. Haldið svona áfram með mynstur. Jafnframt í hverri umferð merktri með ör í A.4, aukið út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Ör-1: Aukið út 24-30-30-33-30-33-36 stuðla jafnt yfir = 138-156-168-177-174-180-192 stuðlar + 3 loftlykkjur. Ör-2: Aukið út 24-30-30-33-30-33-36 stuðla jafnt yfir = 162-186-198-210-204-213-228 stuðlar + 3 loftlykkjur. Ör-3: Aukið út 26-26-30-34-30-33-36 stuðla jafnt yfir = 188-212-228-244-234-246-264 stuðlar + 3 loftlykkjur. Útaukningu er nú lokið í stærð XS, S, M og L. Ör-4: Aukið út 0-0-0-0-30-30-36 stuðla jafnt yfir = 188-212-228-244-264-276-300 stuðlar + 3 loftlykkjur. Þegar A.3 og A.4 hefur verið heklað til loka á hæðina, heklið síðan stuðla án þess að auka út, þ.e.a.s. heklið A.1 í fyrstu lykkju, heklið A.2 umferðina hringinn. Heklið þar til stykkið mælist 19-20-22-23-23-25-27 cm frá uppfitjunarkanti. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er hekluð, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Heklið 9-9-11-11-11-13-13 loftlykkjur (= 3 loftlykkjur í byrjun umferðar + 6-6-8-8-8-10-10 loftlykkjur í hlið fyrir miðju undir ermi), hoppið yfir næstu 38-44-48-52-54-54-58 lykkjur á berustykki (= ermi), hoppið yfir næstu 38-44-48-52-54-54-58 lykkjur á berustykki (= ermi), heklið eins og áður yfir næstu 56-62-66-70-78-84-92 lykkjur (= framstykki), heklið 6-6-8-8-8-10-10 loftlykkjur (= í hlið fyrir miðju undir ermi), hoppið yfir næstu 38-44-48-52-54-54-58 lykkjur á berustykki (= ermi) og heklið eins og áður yfir síðustu 56-62-66-70-78-84-92 lykkjur (= bakstykki), endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar eins og áður. Fram- og bakstykki og ermar eru síðan heklaðar hver fyrir sig og byrjun umferðar er í skiptingunni á milli fram- og bakstykkis og erma. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 124-136-148-156-172-188-204 lykkjur + 3 loftlykkjur í byrjun umferðar. Heklið hringinn eins og áður með A.1 og A.2 þar til stykkið mælist 27-28-28-29-30-30-30 cm frá skiptingunni. Heklið 2 umferðir fastalykkjur, þ.e.a.s. heklið A.5 í fyrstu lykkju, heklið A.6 umferðina hringinn. Klippið og festið þráðinn. Peysan mælist ca 47-49-51-53-54-56-58 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan og ca 52-54-56-58-60-62-64 cm frá öxl. ERMAR: Nú á að hekla í 38-44-48-52-54-54-58 lykkjur sem hoppað var yfir fyrir ermi í annari hlið á stykki þannig: Festið þráðinn með 1 keðjulykkju í 4-4-5-5-5-6-6 loftlykkju af 6-6-8-8-8-10-10 loftlykkjur sem heklaðar voru fyrir miðju undir ermi, heklið 3 loftlykkjur (= byrjun á umferð), heklið 1 stuðul í sömu lykkju, 1 stuðul í hverja af næstu 1-1-2-2-2-3-3 loftlykkjum, heklið síðan 2 stuðla saman þannig: heklið 1 stuðul í síðustu loftlykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul á sama hátt um stuðulinn í skiptingunni á milli fram- og bakstykkis og erma, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (þetta er gert til að tryggja að sem minnst op verði í skiptingunni á milli fram- og bakstykkis og erma), heklið 1 stuðul í hvern af 38-44-48-52-54-54-58 stuðlum frá berustykki fram að loftlykkjum í annarri hliðinni á erminni, heklið 2 stuðla saman á sama hátt í skiptingunni á milli fram- og bakstykkis og erma, í lokin er heklaður 1 stuðull í hverja af 2-2-3-3-3-4-4 síðustu loftlykkjum undir ermi = 44-50-56-60-62-64-68 stuðlar + 3 loftlykkjur. Heklið hringinn með stuðlum eins og áður, þ.e.a.s. heklið A.1 í fyrstu lykkju og A.2 umferðina hringinn. JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 og LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2. Endurtakið úrtöku 0-0-0-1-1-1-1 sinni til viðbótar þegar stykkið mælist 0-0-0-5-5-5-5 cm frá skiptinginni = 42-48-54-56-58-60-64 stuðlar + 3 loftlykkjur. Heklið síðan þar til ermin mælist 43-42-41-40-41-40-38 cm frá skiptinginni. Heklið 2 umferðir fastalykkjur, þ.e.a.s. heklið A.5 í fyrstu lykkju, heklið A.6 umferðina hringinn – JAFNFRAMT í síðustu umferð er aukið út um 0-0-0-1-2-0-2 fastalykkjur jafnt yfir (aukið út 1 fastalykkju með því að hekla 2 fastalykkjur í sömu fastalykkju) = 42-48-54-57-60-60-66 fastalykkjur + 1 loftlykkja. Nú á að hekla umferð með picot, þ.e.a.s. næsta umferð er hekluð þannig: Heklið A.7 í fyrstu lykkju, heklið A.8 umferðina hringinn (= 14-16-18-19-20-20-22 picot umferðin hringinn). Klippið og festið þráðinn. Ermin mælist ca 45-44-43-42-43-42-40 cm frá skiptingunni. KANTUR Í HÁLSMÁLI MEÐ PICOT: Byrjið við byrjun umferðar efst á berustykki, notið heklunál 4 og heklið 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju, heklið síðan þannig: Heklið A.5 í sömu lykkju, heklið A.6 umferðina hringinn = 68-70-72-76-80-82-86 fastalykkjur + 1 loftlykkja. Í síðustu umferð í A.5/A.6 er fækkað um 2-1-0-1-2-1-2 fastalykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-3 = 66-69-72-75-78-81-84 fastalykkjur + 1 loftlykkja. Nú á að hekla umferð með picot, þ.e.a.s. næsta umferð er hekluð þannig: Heklið A.7 í fyrstu lykkju, heklið A.8 umferðina hringinn (= 22-23-24-25-26-27-28 picot umferðina hringinn). Klippið og festið þráðinn. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #bluepetalsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 14 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 266-24
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.