Granite Grip Mittens#granitegripmittens |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónaðir vettlingar með köðlum fyrir herra úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað neðan frá og upp, frá úlnlið að fingurtoppum.
DROPS 260-32 |
|||||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR MERKIÞRÆÐI ÞANNIG: Prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN MERKIÞRÆÐI ÞANNIG: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt (= 1 lykkja færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, frá úlnlið að fingurtoppum. Lykkjur eru auknar út fyrir opi fyrir þumalfingur, síðan eru lykkjurnar fyrir opi settar á þráð. Lykkjum er fækkað efst á vettlingi. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum opið fyrir þumalfingur áður en þumalfingurinn er prjónaður í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. VINSTRI VETTLINGUR: Fitjið upp 49-55 lykkjur á sokkaprjón 3,5 með DROPS Merino Extra Fine. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 (fitjað er upp með grófari prjónum til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegri). Fyrsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir fyrstu 4-6 lykkjurnar, 1 lykkja slétt, A.1, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir síðustu 30-34 lykkjurnar. Haldið svona áfram með stroff í 10 cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5, prjónið 5-7 lykkjur sléttprjón og fækkið jafnframt um 1-2 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið A.2 yfir lykkjur í A.1, prjónið 30-34 lykkjur sléttprjón og fækkið jafnframt um 4-5 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur = 44-48 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 4-5 lykkjur sléttprjón, prjónið A.2, prjónið 26-29 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur. Munið að fylgja prjónfestunni. Þegar stykkið mælist 11 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út 1 lykkju fyrir opi fyrir þumalfingur hvoru megin við síðustu lykkju í umferð – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út að utanverðu við útauknu lykkjurnar í 3. hverri umferð alls 7-8 sinnum = 58-64 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 17-18 cm frá uppfitjunarkanti, prjónið umferðina eins og áður, en setjið 15-17 þumallykkjurnar á þráð og fitjið upp 1 nýja lykkju í umferð yfir lykkjur á þræði = 44-48 lykkjur. Prjónið síðan í sléttprjóni og A.2 eins og áður þar til vettlingurinn mælist ca 26-28 cm frá uppfitjunarkanti – vettlingurinn mælist ca 16-18 cm mælt eftir stroff og það eru eftir ca 4 cm að loka máli (stillið af e.t.v. þannig að það hafa verið prjónaðar minnst 3 umferðir á eftir umferð með snúningi í kaðli). Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar og 1 merkiþráð eftir 24-26 lykkjur (= í hliðar á vettlingi, þ.e.a.s. það eru 24-26 lykkjur að utan á vettlingi og 20-22 lykkjur innan á vettlingi). Nú byrjar úrtaka efst á vettlingi. Prjónið sléttprjón hringinn eins og áður, en prjónið A.3 yfir lykkjur í A.2. Að auki er lykkjum fækkað á eftir / undan merkiþráðum og lykkjum er fækkað mismunandi utan á vettlingi og innan á vettlingi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: UTAN Á VETTLINGI: Fækkið um 1 lykkju á eftir / undan merkiþræði í annarri hverri umferð alls 5-6 sinnum. INNAN Á VETTLINGI: Fækkið um 1 lykkju á eftir / undan merkiþræði í annarri hverri umferð alls 5-5 sinnum og síðan í hverri umferð 2-3 sinnum. Eftir alla úrtöku eru 12 lykkjur eftir í umferð. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 6 lykkjur eftir. Klippið þráðinn, þræðið þráðinn í gegnum lykkjurnar, herðið á þræði og festið vel. Vettlingurinn mælist ca 30-32 cm från frá uppfitjunarkanti. ÞUMALFINGUR: Setjið til baka 15-17 þumallykkjur af þræði á sokkaprjóna 3,5 og prjónið einnig upp 4-3 lykkjur á baklið á þumalfingri = 19-20 lykkjur. Prjónið hringinn í sléttprjóni þar til þumalfingurinn mælist ca 6-6½ cm. Í næstu umferð er prjónuð 1-0 lykkja slétt, prjónið síðan þær lykkjur sem eftir eru slétt saman 2 og 2 = 10-10 lykkjur eftir. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 5-5 lykkjur. Klippið þráðinn, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Þumallinn mælist ca 6½-7 cm. HÆGRI VETTLINGUR: Fitjið upp 49-55 lykkjur á sokkaprjón 3,5 með DROPS Merino Extra Fine. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Fyrsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt) yfir fyrstu 30-34 lykkjurnar, A.1, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir næstu 4-6 lykkjur, 1 lykkja slétt. Haldið svona áfram með stroff í 10 cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5, prjónið 30-34 lykkjur sléttprjón og fækkið jafnframt um 4-5 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið A.2 yfir lykkjur í A.1, prjónið 5-7 lykkjur sléttprjón og fækkið jafnframt um 1-2 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur = 44-48 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 26-29 lykkjur sléttprjón, prjónið A.2, prjónið 4-5 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 11 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út 1 lykkju fyrir opi fyrir þumalfingur hvoru megin við fyrstu lykkju í umferð – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út að utanverðu við útauknu lykkjurnar í 3. hverri umferð alls 7-8 sinnum = 58-64 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 17-18 cm frá uppfitjunarkanti, prjónið umferðina eins og áður, en setjið 15-17 þumallykkjurnar á þráð og fitjið upp 1 nýja lykkju í umferð yfir lykkjur á þræði = 44-48 lykkjur. Prjónið síðan í sléttprjóni og A.2 eins og áður þar til vettlingurinn mælist ca 26-28 cm frá uppfitjunarkanti – vettlingurinn mælist ca 16-18 cm mælt eftir stroff og það eru eftir ca 4 cm að loka máli (stillið af e.t.v. þannig að það hafa verið prjónaðar minnst 3 umferðir á eftir umferð með snúningi í kaðli). Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar og 1 merkiþráð eftir 20-22 lykkjur (= í hliðar á vettlingi, þ.e.a.s. það eru 20-22 lykkjur innan á vettlingi og 24-26 lykkjur utan á vettlingi). Nú byrjar úrtaka efst á vettlingi. Prjónið sléttprjón hringinn eins og áður, en prjónið A.3 yfir lykkjur í A.2. Að auki er lykkjum fækkað á eftir / undan merkiþráðum og lykkjum er fækkað mismunandi utan á vettlingi og innan á vettlingi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: INNAN Á VETTLINGI: Fækkið um 1 lykkju á eftir / undan merkiþræði í annarri hverri umferð alls 5-5 sinnum og síðan í hverri umferð 2-3 sinnum. UTAN Á VETTLINGI: Fækkið um 1 lykkju á eftir / undan merkiþræði í annarri hverri umferð alls 5-6 sinnum. Eftir alla úrtöku eru 12 lykkjur eftir í umferð. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 6 lykkjur eftir. Klippið þráðinn, þræðið þráðinn í gegnum lykkjurnar, herðið á þræði og festið vel. Vettlingurinn mælist ca 30-32 cm från frá uppfitjunarkanti. Prjónið þumalfingur á sama hátt og á vinstri vettlingi. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #granitegripmittens eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 19 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 260-32
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.