Line Dancing Sweater#linedancingsweater |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Air. Stykkið er heklað í hring, neðan frá og upp með áferðamynstri. Stærð XS - XXXL.
DROPS 264-7 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJUR: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli / fastalykkja. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Munið að mynsturteikning er lesin frá hægri til vinstri þegar heklað er frá réttu og frá vinstri til hægri þegar heklað er frá röngu. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um hálsmál): Fækkið lykkjum í umferð með stuðlum, þ.e.a.s. fækkið lykkjum í umferð 1, 4, 5 eða 6 í mynsturteikningu (lykkjum er ekki fækkað í umferð 2 eða 3 – þessar umferðir eru heklaðar eins og áður án þess að fækka lykkjum, síðar gæti lykkjum fækkað enn frekar í næstu umferð). Ef lykkjum fækkar í umferð 4 í mynsturteikningu, fækkið lykkjum með því að hekla 1 stuðul um loftlykkju (í stað 2 stuðlar um loftlykkju). Ef lykkjum fækkar í umferð 1, 5 eða 6 í mynsturteikningu, fækkið lykkjum með því að hekla 2 stuðla saman þannig: Í LOK UMFERÐAR: Heklið eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir í lok umferðar, * bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næsta stuðul, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum fyrstu 2 lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* einu sinni til viðbótar, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 stuðull færri). Í BYRJUN UMFERÐAR: Heklið 3 loftlykkjur í byrjun umferðar, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næsta stuðul í umferð, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 stuðull færri). LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um ermi): Aukið út 1 lykkju með því að hekla 2 lykkjur í sömu lykkju. AUKIÐ ÚT Á EFTIR MERKI ÞANNIG: Heklið fyrstu lykkju eins og áður, aukið út 1 lykkju í næstu lykkju, heklið eins og áður út umferðina. AUKIÐ ÚT Á UNDAN MERKI ÞANNIG: Heklið eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, aukið út 1 lykkju í næstu lykkju, heklið síðustu lykkjuna eins og áður. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað neðan frá og upp. Fyrst er fram- og bakstykkið heklað í hring, en stykkinu er snúið eftir hverja umferð þannig að heklað er til skiptis frá réttu og frá röngu upp að handvegi. Síðan skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og hvort stykki er heklað til loka fyrir sig. Alltaf er heklað fram og til baka til að áferðin í mynstri á fram- og bakstykki og ermum verði alveg eins allan tímann. Stykkið er heklað í hring, en stykkinu er snúið við eftir hverja umferð á sama hátt og á fram- og bakstykki, síðan er ermakúpan hekluð fram og til baka. Frágangur á stykki er útskýrður í mynstri. Í lokin er heklaður kantur í hálsmáli í hring. FRAM- OG BAKSTYKKI: Heklið 140-148-156-168-184-204-220 LOFTLYKKJUR – lesið leiðbeiningar að ofan, með heklunál 4 með DROPS Air og tengið loftlykkjurnar saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan og heklið þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Heklið A.3 í fyrstu lykkju (= 3 loftlykkjur sem jafngilda fyrsta stuðli), heklið A.2 þar til 1 loftlykkja er eftir í umferð, heklið A.1 í síðustu loftlykkju og endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar = 139-147-155-167-183-203-219 stuðlar + 3 loftlykkjur. Snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= rétta): Heklið A.1 í fyrstu lykkju (= 3 loftlykkjur), heklið A.2 þar til 1 lykkja er eftir, heklið A.3 í síðustu lykkju, endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar, snúið stykkinu. Haldið áfram með A.1 til A.3, til skiptis frá réttu og frá röngu – ATH: Endurtakið umferð 2 til 5 í mynsturteikningu á hæðina. Heklið þar til stykkið mælist 4-4-4-5-5-5-5 cm – endið eftir umferð með fastalykkjum. Skiptið yfir á heklunál 5 og heklið síðustu umferð í A.1 til A.3. Munið eftir að fylgja uppgefinni heklfestu. Heklið síðan mynstur þannig (fyrsta umferð er hekluð frá röngu): Heklið A.6 í fyrstu lykkju (= 3 loftlykkjur), heklið A.5 þar til 1 lykkja er eftir í umferð, heklið A.4 í síðustu lykkju, endið umferðina með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar, snúið stykkinu. Haldið svona áfram með A.4 til A.6 fram og til baka, til skiptis frá réttu og frá röngu – ATH: Endurtakið umferð 1 til 6 í mynsturteikningu á hæðina. Þegar stykkið mælist ca 35-37-37-39-40-40-42 cm, fellið af fyrir handveg í hvorri hlið frá réttu þannig: Heklið 1 keðjulykkju í hverja af fyrstu 4-4-4-6-6-8-8 lykkjum, heklið mynstur eins og áður yfir næstu 62-66-70-72-80-86-94 lykkjur, þ.e.a.s. heklið A.4 í fyrstu lykkju, A.5 yfir næstu 60-64-68-70-78-84-92 lykkjur og A.6 í síðustu lykkju. Heklið fram og til baka yfir þessar 62-66-70-72-80-86-94 lykkjur á bakstykki eins og útskýrt er að neðan. BAKSTYKKI: Haldið síðan áfram að hekla mynstur fram og til baka þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60-62 cm (það eru 4 cm að loka máli). Nú er lykkjum fækkað fyrir hálsmáli þannig: Byrjið frá hlið og heklið eins og áður yfir fyrstu 19-21-23-23-27-29-33 lykkjur, fækkið um 1 stuðul yfir næstu 2 lykkjur – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA = 20-22-24-24-28-30-34 lykkjur, snúið stykkinu og heklið til baka. ATH: Lykkjan sem ekki gengur jafnt upp í mynstri við hálsmál eftir úrtöku er hekluð eins og stuðull/fastalykkja (eftir því í hvaða umferð í mynsturteikningu er hekluð). Heklið fram og til baka eins og áður yfir þessar 20-22-24-24-28-30-34 lykkjur þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64-66 cm. Klippið og festið þráðinn. Haldið áfram frá sömu hlið (= rétta/ranga) þar sem úrtaka fyrir hálsmáli byrjar í hinni hliðinni á stykkinu, hoppið yfir fyrstu 20-20-20-22-22-24-24 lykkjur (= hálsmál fyrir miðju að aftan), heklið 1 keðjulykkju í næstu lykkju, fækkið um 1 stuðul yfir næstu 2 lykkjur – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚRTAKA, heklið síðan mynstur eins og áður út umferðina = 20-22-24-24-28-30-34 lykkjur, snúið stykkinu og heklið fram og til baka eins og áður þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64-66 cm. Klippið og festið þráðinn. FRAMSTYKKI: Byrjið frá réttu, teljið 8-8-8-12-12-16-16 lykkjur á fram- og bakstykki frá bakstykki (= handvegur), byrjið með 1 keðjulykkju í næstu lykkju, heklið A.4 í fyrstu lykkju, heklið A.5 yfir næstu 60-64-68-70-78-84-92 lykkjur og A.6 í síðustu lykkju (= framstykki). ATH: Það eru eftir 4-4-4-6-6-8-8 lykkjur í umferð fyrir handveg í hinni hliðinni. Haldið áfram að hekla mynstur fram og til baka yfir 62-66-70-72-80-86-94 lykkjur á framstykki þar til stykkið mælist 46-48-50-51-52-53-54 cm (það eru eftir 8-8-8-9-10-11-12 cm að loka máli). Nú er lykkjum fækkað fyrir hálsmáli þannig: Byrjið frá hlið og heklið eins og áður yfir fyrstu 22-24-26-26-30-34-38 lykkjur, fækkið um 1 stuðul yfir næstu 2 lykkjur – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚRTAKA, snúið stykkinu, fækkið um 1 stuðul yfir fyrstu 2 lykkjur og heklið eins og áður út umferðina (= 2 lykkjur færri), síðan er lykkjum fækkað þannig: UMFERÐ 1: Heklið eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir að hálsmáli, fækkið um 1 stuðul yfir næstu 2 lykkjur – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚRTAKA, snúið stykkinu. UMFERÐ 2: Fækkið um 1 stuðul yfir fyrstu 2 lykkjur, heklið eins og áður út umferðina. Heklið UMFERÐ 1 og 2 alls 1-1-1-1-1-2-2 sinnum (= 4-4-4-4-4-6-6 lykkjur færri við hálsmál, ásamt fyrstu 2 úrtökum = 20-22-24-24-28-30-34 lykkjur eftir á öxl. Heklið síðan þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64-66 cm. Klippið og festið þráðinn. Haldið áfram frá sömu hlið (= rétta/ranga) að þar sem úrtaka fyrir hálsmáli byrjar í hinni hliðinni á stykki, hoppið yfir fyrstu 14-14-14-16-16-14-14 lykkjur (= hálsmál fyrir miðju að framan), heklið 1 keðjulykkju í næstu lykkju, fækkið um 1 stuðul yfir fyrstu 2 lykkjurnar – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚRTAKA, heklið síðan mynstur eins og áður út umferðina, snúið stykkinu og heklið til baka þar til 2 lykkjur eru eftir að hálsmáli, fækkið um 1 stuðul yfir síðustu 2 lykkjurnar – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚRTAKA, fækkið síðan lykkjum þannig: UMFERÐ 1: Fækkið um 1 stuðul yfir fyrstu 2 lykkjurnar – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚRTAKA, heklið eins og áður út umferðina, snúið stykkinu. UMFERÐ 2: Heklið eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir að hálsmáli, fækkið um 1 stuðul yfir síðustu 2 lykkjurnar. Heklið UMFERÐ 1 og 2 þar til fækkað hefur verið alls 1-1-1-1-1-2-2 sinnum (= 4-4-4-4-4-6-6 lykkjur færri við hálsmál, ásamt fyrstu 2 úrtökum) = 20-22-24-24-28-30-34 lykkjur eftir á öxl. Heklið síðan þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64-66 cm. Klippið og festið þráðinn. ERMAR: Heklið 46-48-52-54-56-58-60 loftlykkjur með heklunál 4 með DROPS Air og tengið loftlykkjurnar saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið mynstur þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Heklið A.3 í fyrstu lykkju (= 3 loftlykkju sem jafngilda fyrsta stuðli), heklið A.2 þar til 1 loftlykkja er eftir í umferð, heklið A.1 í síðustu loftlykkju og endið umferðina með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar = 45-47-51-53-55-57-59 stuðlar + 3 loftlykkjur. Snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= rétta): Heklið A.1 í fyrstu lykkju, heklið A.2 þar til 1 lykkja er eftir í umferð, heklið A.3 í síðustu lykkju, endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar, snúið stykkinu. Haldið áfram með A.1 til A.3, til skiptis frá réttu og frá röngu – ATH: Endurtakið 2. til 5. umferð í mynsturteikningu á hæðina. Heklið þar til stykkið mælist 4-4-4-5-5-5-5 cm – endið eftir umferð með fastalykkjum. Skiptið yfir í heklunál 5 og heklið síðustu umferð í A.1 til A.3. Heklið síðan mynstur þannig (fyrsta umferð er hekluð frá röngu): Heklið A.6 í fyrstu lykkju (= 3 loftlykkjur), heklið A.5 þar til 1 lykkja er eftir í umferð, heklið A.4 í síðustu lykkju, endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar, snúið við. Haldið síðan áfram að prjóna mynstur fram og til baka svona, til skiptis frá réttu og frá röngu – jafnframt þegar stykkið mælist 12-12-11-11-12-12-11 cm aukið út lykkjur fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING og aukið út 1 lykkju í byrjun umferðar. Þegar stykkið mælist 19-19-18-18-18-16-15 cm, aukið út 1 lykkju í lok umferðar. Aukið svona út til skiptis í byrjun og lok umferðar í hverjum 7-7-7-7-6-4-4 cm alls 6-6-6-6-6-8-8 sinnum (= alls 3-3-3-3-3-4-4 sinnum í byrjun umferðar og 3-3-3-3-3-4-4 sinnum í lok umferðar) = 52-54-58-60-62-66-68 lykkjur – ATH: Lykkjurnar sem ekki ganga jafnt upp í mynstur í útaukningu, eru heklaðar sem stuðlar/fastalykkjur (eftir því hvaða umferð í mynsturteikningu er hekluð). Heklið síðan þar til ermin mælist 49-49-48-48-46-43-41 cm. Nú er heklað fram og til baka án þess að enda umferð með 1 keðjulykkju, þ.e.a.s. heklað er fram og til baka eins og áður þannig að það myndast klauf fyrir miðju undir ermi. Heklið þar til ermin mælist ca 52-52-51-52-50-49-47 cm (klaufin mælist ca 3-3-3-4-4-6-6 cm) – athugið mál á lengdina á klaufinni við breiddina á botni í handvegi – þessi mál eiga að vera eins svo stykkin passi saman þegar ermin er saumið við handveginn – sjá b og B í teikningu. Klippið og festið þráðinn. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar við fram- og bakstykki eins og teikning sýnir. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við aðra axlalínuna og heklið með heklunál 5 þannig: Festið þráðinn með 1 fastalykkju í axlasauminn við hálsmál, * heklið 2 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm meðfram hálsmáli, heklið 1 fastalykkju í næstu lykkju *, heklið frá *-* alls ca 26 til 34 sinnum í kringum hálsmál og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun umferðar. Heklið 1 keðjulykkju um fyrsta loftlykkjuboga, 3 loftlykkjur (jafngildir fyrsta stuðli), heklið síðan til skiptis 2 og 3 stuðla um hvern loftlykkjuboga, endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar = ca 65 til 85 stuðlar + 3 loftlykkjur. Heklið síðan 2-2-2-2-3-3-3 umferðir með stuðlum (1 stuðull í hvern stuðul). Klippið og festið þráðinn. Kantur í hálsmáli mælist ca 4-4-4-4-5-5-5 cm. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #linedancingsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 10 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 264-7
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.