Isabelle Faraüs skrifaði:
Bonjour Comment savoir combien de pelotes à acheter pour réaliser sa taille? D avance merci
17.04.2025 - 12:55DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Faraüs, vous trouverez sous l'onglet "Explications" la quantité totale requise pour chaque taille, pour cette robe en XS par ex, il faut 500 g DROPS Cotton Light/50 g la pelote = 10 pelotes. Bon crochet!
22.04.2025 - 10:42
Sylvie skrifaði:
Pouvez-vous m'expliquer comment faire le A4 car je ne comprend pas les explications? Et aussi que veut dire une bride autour de la maille en l'air?
27.03.2025 - 16:26DROPS Design svaraði:
Bonjour Sylvie, A.4 se crochète sur 2 mailles, au 2ème rang, crochetez en lisant de gauche à droite): *1 ml, sautez 1 bride, 1 bride dans la bride suivante*, répétez de *à* tout e tour. Au tour suivant, crochetez ainsi: *sautez la bride et crochetez 2 brides autour de la maille en l'air, autrement dit crochetez 2 brides dans chaque arceau d'1 maille en l'air. Puis, aux rangs 4 à 6, crochetez 1 bride dans chaque bride. Bon crochet!
28.03.2025 - 07:58
Sahara Scent#saharascent |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Heklaður kjóll úr DROPS Cotton Light. Stykkið er heklað ofan frá og niður með stuðlum, gatamynstri og v-hálsmáli. Stærð XS - XXL.
DROPS 257-20 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJUR: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli. HEKLLEIÐBEININGAR: Þegar heklað er fram og til baka eru heklaðar 3 loftlykkjur sem koma í stað fyrsta stuðul í umferð. Síðasti stuðullinn er heklaður í 3. loftlykkju frá fyrri umferð. Þegar heklað er í hring byrjar hver umferð með 3 loftlykkjum, þessar loftlykkjur koma í stað fyrsta stuðul. Í lok umferðar er hekluð 1 keðjulykkja í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar, áður en stykkinu er snúið við þannig að heklað er til skiptis frá réttu og frá röngu. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu þína stærð í mynsturteikningu (á við um A.1). Mynsturteikning sýnir allar umferðir séð frá réttu. LEIÐBEININGAR MÆLING: Öll mál á lengdina eru gerð þegar stykkinu er haldið uppi, annars verður stykkið of langt þegar það er mátað. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Aukið út 1 lykkju með því að hekla 2 lykkjur í sömu lykkju. Til að reikna út hvernig auka á út jafnt yfir, teljið lykkjufjöldann sem auka á út yfir (t.d. 152 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 38. Í þessu dæmi er aukið út með því að hekla 2 stuðla í ca 38. hvern stuðul. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kjóllinn er heklaður ofan frá og niður. Fyrst er hægra band á öxl / hlýri og framstykkið heklað fram og til baka þar til allar útaukningar hafa verið gerðar til loka, síðan eru hekluð 3 stykki á sama hátt þannig að það verða 4 alveg eins stykki. Síðan er heklað í hring yfir öll 4 stykkin og heklað er til skiptis frá réttu og frá röngu að loka máli. Ef að það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir upplýsingar og fram að næstu upplýsingum. HÆGRA BAND Á ÖXL OG FRAMSTYKKI: Notið heklunál 4 og DROPS Cotton Light. Lesið LOFTLYKKJUR og HEKLLEIÐBEININGAR í útskýringu að ofan og heklið 12-12-14-14-14-14 loftlykkjur. Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 3 loftlykkjur koma í stað 1. stuðul), heklið 1 stuðul í hverja af næstu 7-7-9-9-9-9 loftlykkjum = 9-9-11-11-11-11 stuðlar. Lesið MYNSTUR og heklið næstu umferð þannig: Heklið A.1a (= 9-9-11-11-11-11 lykkjur). Heklið A.1a fram og til baka þar til stykkið mælist 4-4-5-5-4-3 cm. Heklið A.1b 1 sinni = 12-12-16-16-16-16 lykkjur. Munið eftir að fylgja uppgefinni heklfestu. Bandið hefur nú verið heklað til loka, nú á að auka út fyrir framstykki, heklið fram og til baka á meðan aukið er út frá réttu og röngu – passið uppá að fyrstu 3 og síðustu 3 lykkjur í umferð eru heklaðar eins og áður. Heklið þannig: Heklið A.2 yfir fyrstu 5 lykkjur (ásamt loftlykkju), heklið 1 stuðul í hvern stuðul þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð (ásamt loftlykkju), endið með A.3 yfir síðustu 5 lykkjur (= 2 lykkjur fleiri í hverri umferð). Heklið þessa umferð þar til aukið hefur verið út alls 11-12-12-13-14-16 sinnum – bæði er aukið út frá réttu og röngu (= 22-24-24-26-28-32 lykkjur fleiri) = 34-36-40-42-44-48 lykkjur í umferð. Stykkið mælist nú ca 17-18-19-20-21-22 cm frá toppi á öxl. Geymið stykkið og heklið 3 stykki til viðbótar á sama hátt (= vinstra framstykki, hægra bakstykki og vinstra bakstykki). KJÓLL: Nú á að hekla hringinn yfir öll 4 stykkin. Heklað er til skiptis frá réttu og röngu, passið uppá að öll stykkin snúin með sömu hliðina út þannig að áferðin haldist. Heklið fyrstu umferð þannig: Byrjið á að hekla 4-5-5-7-8-10 loftlykkjur, heklið yfir hægra framstykki með 1 stuðul í hverja lykkju (= 34-36-40-42-44-48 stuðlar), heklið síðan yfir vinstra framstykki með 1 stuðul í hverja lykkju (= 34-36-40-42-44-48 stuðlar), heklið 8-10-10-14-16-20 loftlykkjur (= undir handvegi), heklið yfir vinstra bakstykki með 1 stuðul í hverja lykkju (= 34-36-40-42-44-48 stuðlar), heklið síðan yfir bakstykki með 1 stuðul í hverja lykkju (= 34-36-40-42-44-48 stuðlar), heklið 4-5-5-7-8-10 loftlykkjur, endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju, snúið stykkinu. Setjið eitt merki í byrjun umferðar (= fyrir miðju undir handvegi). Í næstu umferð er heklaður 1 stuðull í hvern stuðul / loftlykkju = 152-164-180-196-208-232 stuðlar – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR til að loka umferð. Heklið til skiptis frá réttu og röngu með 1 stuðul í hvern stuðul eins og áður þar til stykkið mælist 12-12-13-13-14-14 cm frá merki í hlið undir handvegi – lesið LEIÐBEININGAR MÆLING. Heklið síðan þannig: 1 stuðull, heklið A.4 þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 stuðul í síðustu lykkju. Heklið A.4 alls 6 sinnum á hæðina jafnframt því sem í 4. hverri umferð er aukið út fjölda lykkja sem er gefinn upp að neðan jafnt yfir: ÚTAUKNING 1: Aukið út 4 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 156-168-184-200-212-236 lykkjur. ÚTAUKNING 2: Aukið út 8 lykkjur jafnt yfir = 164-176-192-208-220-244 lykkjur. ÚTAUKNING 3: Aukið út 10 lykkjur jafnt yfir = 174-186-202-218-230-254 lykkjur. ÚTAUKNING 4: Aukið út 6-6-6-6-8-6 lykkjur jafnt yfir = 180-192-208-224-238-260 lykkjur. ÚTAUKNING 5: Aukið út 4 lykkjur jafnt yfir = 184-196-212-228-242-264 lykkjur. ÚTAUKNING 6: Aukið út 0-2-0-0-2-2 lykkjur jafnt yfir = 184-198-212-228-244-266 lykkjur. Þegar A.4 hefur verið heklað til loka 6 sinnum á hæðina eru 184-198-212-228-244-266 stuðlar í umferð. Stykkið mælist ca 52-52-53-53-54-54 cm frá merki í hlið undir ermi og ca 67-70-72-73-75-76 cm frá efst á bandi á öxl – munið eftir LEIÐBEININGAR MÆLING. Heklið síðan 1 stuðul í hvern stuðul eins og áður þar til kjóllin mælist 75-77-79-81-83-85 cm frá efst á bandi á öxl, eða heklið e.t.v. að óskaðri lengd. FRÁGANGUR: Saumið sama band á öxl (= yfir öxl). |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #saharascent eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 8 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 257-20
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.