Cecilia skrifaði:
I don’t understand the folding and crocheting around the stitch. Is there a video to show that? I cannot keep going after row 14.
12.02.2025 - 04:52DROPS Design svaraði:
Hi Cecilie, Here is a video showing how to crochet in and around stitches; https://www.garnstudio.com/video.php?id=690&lang=en Happy crocheting
12.02.2025 - 06:05
Leslie skrifaði:
I would like to make this hat in brown. What yarn color combinations do you recommend for Alpaca Boucle, Brushed Alpaca Silk and Alpaca?
30.12.2024 - 06:13DROPS Design svaraði:
Dear Leslie, you can combine DROPS Alpaca Boucle 0602, Brushed Alpaca Silk 05 and Alpaca 618 or 2020 (which is lighter). Happy crocheting!
30.12.2024 - 07:59
Patty skrifaði:
How do I order yarn for this project? My first time ordering from you. I’d love to make this hat in the colors shown.
29.12.2024 - 15:37DROPS Design svaraði:
Dear Patty, to order yarn see list of DROPS retailers in your country. Happy knitting!
29.12.2024 - 16:11
Cati skrifaði:
Me podrían explicar lo de los hilos marcadores. No entiendo dónde ponerlos. Muchas gracias.
30.09.2024 - 00:16
Simona skrifaði:
Buongiorno, mi piacerebbe fare questo cappello, ma mi servirebbe di almwno 59-60 cm.
22.09.2024 - 22:01DROPS Design svaraði:
Buonasera Simona, per un'assistenza così personalizzata può contattare il suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!
24.09.2024 - 22:25
Lena skrifaði:
Annas hatt
11.08.2024 - 09:17
Sanna skrifaði:
Misty winter hat
10.08.2024 - 14:55
Cathy skrifaði:
Smart warm hat
08.08.2024 - 13:53
Countryside Winter#countrysidewinterhat |
|
![]() |
![]() |
Heklaður hattur úr DROPS Alpaca Bouclé, DROPS Brushed Alpaca Silk og DROPS Alpaca. Stykkið er heklað frá toppi og niður.
DROPS 253-1 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR HEKL: Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er hekluð 1 loftlykkja, þessi loftlykkja kemur ekki í stað 1. fastalykkju heldur er sem viðbót. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju í umferð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HATTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað ofan frá og niður. Allt stykkið er heklað í hring. HATTUR: Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 6 með1 þræði DROPS Alpaca Bouclé, 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk og 1 þræði DROPS Alpaca (= 3 þræðir). Tengið lykkjurnar saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð. UMFERÐ 1: Heklið 1 loftlykkju – lesið UPPLÝSINGAR HEKL, heklið síðan 6 fastalykkjur um loftlykkjuhringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 3: Heklið * 2 fastalykkjur í fyrstu fastalykkju, 1 fastalykkja í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 18 fastalykkjur. UMFERÐ 4: Heklið * 2 fastalykkjur í fyrstu fastalykkju, 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 fastalykkjum *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 24 fastalykkjur. UMFERÐ 5 til 10: Haldið áfram hringinn með fastalykkjum jafnframt því sem aukið er út um 6 lykkjur í hverri umferð eins og áður (í hverri umferð er hekluð 1 lykkja fleiri á milli hverra útaukninga) = 60 fastalykkjur. UMFERÐ 11: Heklið 1 fastalykkja í hverja lykkju og aukið jafnframt út 2-4 fastalykkjur jafnt yfir í umferð = 62-64 fastalykkjur. Munið eftir að fylgja uppgefinni heklfestu. UMFERÐ 12 og 13: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 14: Heklið 1 fastalykkju um hverja lykkju frá fyrri umferð, þ.e.a.s. ekki er heklað í lykkjubogana, en heklað er í kringum sjálfa lykkjuna frá framhlið á stykki, endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkjju. UMFERÐ 15: Snúðu fyrri umferð að þér, þannig að hægt sé að hekla í umferðina á undan fyrri umferð (þ.e.a.s. heklið í lykkjubogana frá 13. umferð), heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju umferðina hringinn. UMFERÐ 16: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 17: Heklið 1 fastalykkju um hverja lykkju frá fyrri umferð, þ.e.a.s. ekki er heklað í lykkjubogana, en heklað er í kringum sjálfa lykkjuna frá framhlið á stykki, endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. UMFERÐ 18: Snúðu fyrri umferð að þér, þannig að hægt sé að hekla í umferðina á undan fyrri umferð (þ.e.a.s. heklið í lykkjubogana frá 16. umferð), heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju umferðina hringinn. Heklið síðan með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju þar til hatturinn mælist ca 15 cm. Nú er barðið heklað eins og útskýrt er að neðan. BARÐ: UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju um hverja lykkju frá fyrri umferð, þ.e.a.s. ekki er heklað í lykkjubogana, en heklað er í kringum sjálfa lykkjuna frá framhlið á stykki, endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. UMFERÐ 2: Snúðu fyrri umferð að þér, þannig að hægt sé að hekla í umferðina á undan fyrri umferð (þ.e.a.s. heklið í lykkjubogana í síðustu umferð á undan barði), heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju umferðina hringinn. UMFERÐ 3: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 4: Heklið 1 fastalykkju um hverja lykkju frá fyrri umferð, þ.e.a.s. ekki er heklað í lykkjubogana, en heklað er í kringum sjálfa lykkjuna frá framhlið á stykki, endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. UMFERÐ 5: Snúðu fyrri umferð að þér, þannig að hægt sé að hekla í umferðina á undan fyrri umferð (þ.e.a.s. heklið í lykkjubogana frá 3. umferð), heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju umferðina hringinn. Stykkið mælist ca 17 cm. UMFERÐ 6: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju og aukið jafnframt út 4-2 lykkjur jafnt yfir í umferð = 66-66 lykkjur. Nú eru settir 12 merkiþræðir í stykkið án þess að hekla umferðina, setjið merkiþræðina á til skiptis á milli 5 og 6 lykkjur umferðina hringinn. UMFERÐ 7: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 8: Heklið fastalykkjur og heklið 2 fastalykkjur í lykkjuna á eftir hverjum merkiþræði umferðina hringinn = 78-78 fastalykkjur. UMFERÐ 9: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 10: Heklið fastalykkjur og heklið 2 fastalykkjur í lykkjuna á undan hverjum merkiþræði umferðina hringinn = 90-90 fastalykkjur. UMFERÐ 11: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 12: Heklið fastalykkjur og heklið 2 fastalykkjur í lykkjuna á eftir hverjum merkiþræði umferðina hringinn = 102-102 fastalykkjur. UMFERÐ 13: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 14: Heklið fastalykkjur og heklið 2 fastalykkjur í lykkjuna á undan hverjum merkiþræði umferðina hringinn = 114-114 fastalykkjur. UMFERÐ 15: Heklið 1 fastalykkju um hverja lykkju frá framhlið á stykki (ekki í lykkjuna, heldur í kringum lykkjuna. UMFERÐ 16: Snúðu fyrri umferð að þér, þannig að hægt sé að hekla í umferðina á undan fyrri umferð (þ.e.a.s. heklið í lykkjubogana frá 14. umferð), heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju umferðina hringinn, endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. Klippið og festið þræðina. Hatturinn mælist ca 25 cm frá toppi og niður. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #countrysidewinterhat eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 8 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 253-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.