Montagut Anne Marie skrifaði:
Bonjour, je viens de réaliser la coccinelle, on doit la monter sur l’envers pour ne pas voir le trait de changement de couleur où alors je me suis trompé quelque part ???
15.10.2024 - 17:24DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Montagut, la maille tricotée avec les 2 fils (rouge et noir) doit être visible sur l'endroit mais le fil noir qui suit doit être lui sur l'envers (invisible sur l'endroit) mais doit être à peine visible - regardez la dernière photo peut-être que ça vous parlera davantage de voir le résultat?
16.10.2024 - 08:10
AbyssalFisj skrifaði:
Bonjour, je trouve les coccinelles vraiment adorable et on peut faire de jolies variations de couleurs. Cependant, il y a une erreur au rang 17. Il y a un jeté en trop après la maille avec les deux couleurs. Je n'ai pas pu compter le bon nombre de mailles après. Merci beaucoup pour ce modèle génial !
26.06.2024 - 10:34DROPS Design svaraði:
Bonjour et merci pour votre retour, la correction a été faite. bonne continuation!
26.06.2024 - 10:55
Sweet Ladybug#dropssweetladybug |
||||
![]() |
![]() |
|||
Prjónuð maríuhæna / leikfang fyrir börn úr Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað fram og til baka í garðaprjóni. Þema: Leikföng.
DROPS Baby 46-20 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynd A. Mynsturteikning sýnir hvernig sporin eru saumuð út. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- MARÍUHÆNA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka frá höfði. Allt stykkið er prjónað í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan. Stykkið er fyllt með vatti og saumað saman að framan, aftan og meðfram hliðum. MARÍUHÆNA: Fitjið upp 16 lykkjur á prjón 3,5 með DROPS Merino Extra Fine í litnum svartur, látið þráðarendann vera ca 20 cm – hann er notaður fyrir frágang. UMFERÐ 1-2: Prjónið slétt. UMFERÐ 3: Prjónið 1 lykkju slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* alls 7 sinnum, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 1 lykkju slétt. Það eru 24 lykkjur í umferð. UMFERÐ 4: Prjónið slétt – uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. UMFERÐ 5-8: Prjónið slétt. Klippið þráðinn, látið þráðarendann vera ca 20 cm – hann er notaður við frágang. UMFERÐ 9-10: Skiptið yfir í litinn rauður – látið þráðarendann vera ca 20 cm – hann er notaður við frágang. Prjónið slétt. UMFERÐ 11: Prjónið 2 lykkjur slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* alls 5 sinnum, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 2 lykkjur slétt. Það eru 30 lykkjur í umferð. UMFERÐ 12: Prjónið slétt – uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Klippið þráð með litnum svartur ca 1 meter, hann er notaður í næstu umferð. UMFERÐ 13: Prjónið 7 lykkjur slétt með litnum rauður, sláið 1 sinni uppá prjóninn með litnum rauður, notið svarta þráðinn og rauða þráðinn og prjónið næstu lykkju slétt (tvöfaldur þráður), sláið 1 sinni uppá prjóninn með litnum rauður og prjónið síðustu 22 lykkjurnar með litnum rauður. Það eru 32 lykkjur í umferð. UMFERÐ 14: Notið litinn rauður og prjónið slétt – uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. UMFERÐ 15: Prjónið 8 lykkjur slétt með litnum rauður, sláið 1 sinni uppá prjóninn með litnum rauður, notið svarta þráðinn og rauða þráðinn og prjónið næstu lykkju slétt (tvöfaldur þráður), sláið 1 sinni uppá prjóninn með litnum rauður og prjónið síðustu 23 lykkjurnar með litnum rauður. Það eru 34 lykkjur í umferð. UMFERÐ 16: Notið litinn rauður og prjónið slétt – uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. UMFERÐ 17: Prjónið 9 lykkjur slétt með litnum rauður, notið svarta þráðinn og rauða þráðinn og prjónið næstu lykkju slétt (tvöfaldur þráður) og prjónið síðustu 24 lykkjur með litnum rauður. UMFERÐ 18. Notið litinn rauður og prjónið slétt. Prjónið eins og 17. og 18. umferð 5 sinnum til viðbótar. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! UMFERÐ 29: Prjónið 7 lykkjur slétt með litnum rauður, prjónið 2 lykkjur slétt saman með litnum rauður, prjónið næstu lykkju með litnum svartur og litnum rauður, prjónið 2 lykkjur slétt saman með litnum rauður og prjónið síðustu 23 lykkjur slétt með litnum rauður. Það eru 32 lykkjur í umferð. UMFERÐ 30: Notið litinn rauður og prjónið slétt. UMFERÐ 31: Prjónið 6 lykkjur slétt með litnum rauður, prjónið 2 lykkjur slétt saman með litnum rauður, prjónið næstu lykkju með litnum svartur og litnum rauður, prjónið 2 lykkju slétt saman með litnum rauður og prjónið síðustu 21 lykkjur slétt með litnum rauður. Það eru 30 lykkjur í umferð. UMFERÐ 32: Notið litinn rauður og prjónið slétt. UMFERÐ 33: Notið litinn rauður, prjónið * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* alls 10 sinnum. Það eru 20 lykkjur í umferð. UMFERÐ 34: Notið litinn rauður og fellið af allar lykkjur með sléttum lykkjum. Látið þráðarendann vera ca 20 cm áður en klippt er frá – hann er notaður við frágang. ÚTSAUMUR: Notið litinn svartur og saumuð út keðjuspor (ca ½-1 cm að lengd) hvoru megin við svörtu lykkjuna á baki á maríuhænunni – sjá mynsturteikningu A. FRÁGANGUR: Brjótið stykkið saman þannig að hliðar á stykkinu liggi að hvorri annarri í hlið á stykki (lykkja með litnum rauður og litnum svartur er fyrir miðju á baki á maríuhænunni), affellingarkanturinn liggur tvöfaldur í annarri hliðinni og uppfitjunarkanturinn liggur tvöfaldur í hinni hliðinni. Það er 1 svartur og 1 rauður þráður við litaskipti í hlið og 1 svartur þráður við uppfitjuarkantinn og 1 rauður þráður við affellingarkantinn. Notið þræði í endum til að sauma uppfitjunarkantinn og affellingarkantinn saman. Fyllið maríuhænuna með vatti. Notið rauða þráðinn til að sauma saman fram að affellingarkanti og notið svarta þráðinn til að sauma saman fram að uppfitjunarkanti. Klippið þræðina og festið vel. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
![]() |
||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dropssweetladybug eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 46-20
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.