Ida skrifaði:
Hei! hva vil det si å ''hekle 1 fastmaske i hver maske samtidig som det økes 10-6-10-8 fastmasker jevnt fordelt''? hvordan hekler man 1 fm i hver fm samtidig som man skal øke? forstår ikke helt denne delen av oppskriften.
20.02.2025 - 14:50
Fiammetta skrifaði:
Buongiorno! Quando si fa riferimento ai cm del lavoro, si parla di diametro o di cm dal punto d’inizio del lavoro (non quindi dal centro)? Non capisco bene che cm si intendano per il cappello e quali per la tesa. Grazie
22.10.2023 - 10:24DROPS Design svaraði:
Buonasera Fiammetta, se non diversamente indicato i cm si misurano dall'inizio del lavoro. Buon lavoro!
23.10.2023 - 22:25
Ida Varani skrifaði:
Snow in Paris
05.08.2023 - 11:01
Dorota skrifaði:
Cinderella
04.08.2023 - 11:43
Hennie skrifaði:
Super leuk
03.08.2023 - 20:39
Hannele Gabrielsson skrifaði:
Toivomani mallinen hattu❣️
03.08.2023 - 19:40
Mí skrifaði:
Klobouček pro sněženku ❄️
03.08.2023 - 17:17
Inge Voigt skrifaði:
Snowy hat
03.08.2023 - 13:30
Snow Explorer Hat#snowexplorerhat |
|
![]() |
![]() |
Heklaður hattur úr DROPS Melody og DROPS Lima. Stykkið er heklað í hring, ofan frá og niður með fastalykkjum.
DROPS 242-14 |
|
------------------------------------------------------ UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er hekluð 1 loftlykkja, þessi loftlykkja kemur ekki í stað fyrstu fastalykkjju. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í umferð, hoppað er yfir loftlykkjuna. LEIÐBEININGAR: Fyrsta umferðin er hekluð frá réttu á stykki, endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. Snúið stykkinu. Heklið næstu umferð frá röngu, endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. Snúið stykkinu. Haldið svona áfram fram og til baka, með til skiptis 1 umferð frá réttu og 1 umferð frá röngu. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 fastalykkju með því að hekla 2 fastalykkjur í sömu fastalykkju. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HATTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað ofan frá og niður. Heklað er í hring, en í hverri umferð er stykkinu snúið við þannig að umferðirnar eru heklaðar til skiptis frá réttu og frá röngu. HATTUR: Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 6 með 1 þræði DROPS Melody og 1 þræði DROPS Lima (2 þræðir) og tengið lykkjurnar saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju = loftlykkjuhringur. Lesið HEKLLEIÐBEININGAR og LEIÐBEININGAR í útskýringu að ofan. UMFERÐ 1: 1 loftlykkja – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 6 fastalykkjur um loftlykkjuhringinn. UMFERÐ 2: 1 loftlykkja, heklið 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju umferðina hringinn = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 3: 1 loftlykkja, heklið * 2 fastalykkjur í fyrstu / næstu fastalykkju, 1 fastalykkja í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 18 fastalykkjur. UMFERÐ 4: 1 loftlykkja, heklið * 2 fastalykkjur í fyrstu / næstu fastalykkju, 1 fastalykkja í hvora af 2 næstu fastalykkjum *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 24 fastalykkjur. UMFERÐ 5: 1 loftlykkja, heklið * 2 fastalykkjur í fyrstu / næstu fastalykkjur, 1 fastalykkja í hverja af 3 næstu fastalykkjum *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 30 fastalykkjur. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Haldið áfram hringinn svona með því að auka út um 6 lykkjur í hverri umferð. Þ.e.a.s. að í hverri umferð er hekluð 1 lykkja fleiri á milli hverra útaukninga. Þegar heklaðar hafa verið alls 9-9-10-10 umferðir eru 54-54-60-60 fastalykkjur í umferð. Í næstu umferð er aukið út um 0-4-2-4 fastalykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING = 54-58-62-64 fastalykkjur. Heklið síðan hringinn með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju (heklað er til skiptis frá réttu og frá röngu eins og áður). Heklið þar til hatturinn mælist alls 17-18-19-20 cm, nú er barðið heklað eins og útskýrt er að neðan. BARÐ: UMFERÐ 1: 1 loftlykkja, heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju jafnframt því sem aukið er út um 10-6-10-8 fastalykkjur jafnt yfir = 64-64-72-72 fastalykkjur. UMFERÐ 2: 1 loftlykkja, heklið * 2 fastalykkjur í fyrstu/næstu fastalykkju, 1 fastalykkja í hverja og eina af 7-7-8-8 næstu fastalykkjum *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 72-72-80-80 fastalykkjur. UMFERÐ 3: 1 loftlykkja, heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju umferðina hringinn. UMFERÐ 4: 1 loftlykkja, heklið * 2 fastalykkjur í fyrstu / næstu fastalykkju, 1 fastalykkja í hverja af 8-8-9-9 næstu fastalykkjum *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 80-80-88-88 fastalykkjur. UMFERÐ 5: 1 loftlykkja, heklið * 2 fastalykkjur í fyrstu / næstu fastalykkju, 1 fastalykkja í hverja og eina af 9-9-10-10 næstu fastalykkjum *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 88-88-96-96 fastalykkjur. UMFERÐ 6 og ÁFRAM: Haldið áfram hringinn með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju þar til 1 umferð er eftir þar til hatturinn mælist 25-26-27-27 cm. Klippið þræðina og festið. KANTUR: Notið heklunál 6, 1 þráð DROPS Melody og 2 þræði DROPS Lima (3 þræðir). Heklið 1 lykkju krabbahekl í hverja fastalykkju frá fyrri umferð, þ.e.a.s. heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju, en heklið í gagnstæða átt (heklið frá vinstri til hægri). Klippið þræðina og festið. Hatturinn mælist alls ca 25-26-27-27 cm. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #snowexplorerhat eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 5 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 242-14
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.