Lara skrifaði:
Ist der Maschenanschlag von 64 Maschen für die Größen 38/40 und 41/43 richtig? Obwohl meine Maschenprobe stimmt, scheint das Bündchen für die Größe 41/43 viel zu weit zu sein.
23.08.2023 - 21:44DROPS Design svaraði:
Liebe Lara, es stimmt so, das Bündchen wird die Arbeit etwas zusammenziehen. Viel Spaß beim stricken!
24.08.2023 - 09:05
Tone Jordan Johnsen skrifaði:
Det ser ut til at det er oppgitt feil garnmengde i og med at man skal ha 100 g, (2 nøster) natur, som det strikkes med hele veien, og de andre to fargene veksler. Da kan jeg ikke forstå at man trenger to nøster, (100 g) av hver av de andre to fargene, (altså fire nøster tilsammen) når sokkene strikkes hele veien med natur kombinert med annen farge. Det stemmer ikke. Kjedelig å sitte med så mye garn til overs.
13.03.2023 - 02:26
Nedellec skrifaði:
Douces chaussettes
17.01.2023 - 19:15
Nina Wøggsborg skrifaði:
Spring socks
17.01.2023 - 17:12
Nina Wøggsborg skrifaði:
Forrest socks
17.01.2023 - 17:11
Watermelon Wanderers#watermelonwandererssocks |
|
![]() |
![]() |
Prjónaðir sokkar úr 2 þráðum DROPS Fabel. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í stroffprjóni og sléttprjóni. Stærð 35 - 43.
DROPS 238-23 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 5-6-6 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 5-6-6 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 4-5-5 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 4-5-5 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 12-12-14 lykkjur eru eftir á prjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um úrtöku fyrir tá): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). Endurtakið við hitt prjónamerkið. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. Allur sokkurinn er prjónaður í 2 þráðum. STROFF / LEGGUR: Fitjið upp 56-64-64 lykkjur á sokkaprjóna 4 með 1 þræði í litnum guacamole og 1 þræði í litnum natur í DROPS Fabel. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2 cm. Í næstu umferð eru prjónaðar 6 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið með 1 þræði í litnum texmex og 1 þræði í litnum natur þar til stykkið mælist 14-15-16 cm (passið uppá að þessar 2 lykkjur brugðið haldi fallega áfram eftir kantinn efst). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Skiptið yfir í 1 þráð með litnum guacamole og 1 þráð í litnum natur og haldið áfram með 6 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið – jafnframt í annarri umferð er fækkað um 7-8-8 lykkjur jafnt yfir með því að prjóna aðra og 3. lykkju slétt saman í hverri einingu með 6 lykkjum slétt = 49-56-56 lykkjur. Haldið áfram með stroff með 5 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið þar til stykkið mælist 16-17-18 cm. JAFNFRAMT í síðustu umferð eru allar 2 lykkjur brugðið prjónaðar saman í 1 lykkju brugðið = 42-48-48 lykkjur. Nú er prjónað sléttprjón þar til stykkið mælist 18-19-20 cm – jafnframt í síðustu umferð er fækkað um 0-4-0 lykkjur = 42-44-48 lykkjur. Klippið þráðinn. Prjónið síðan hæl og fót eins og útskýrt er að neðan. HÆLL OG FÓTUR: Haldið eftir fyrstu 10-11-12 lykkjum á prjóni fyrir hæl, setjið næstu 22-22-24 lykkjur á þráð (mitt ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 10-11-12 lykkjum á prjóni fyrir hæl = 20-22-24 hællykkjur á prjóni. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjurnar með 2 þráðum í litnum natur í 6-6-6½ cm. Setjið 1 prjónamerki mitt í síðustu umferð – stykkið er síðar mælt frá þessu prjónamerki. Prjónið HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan. Eftir hælúrtöku er næsta umferð prjónuð með 1 þræði í litnum guacamole og 1 þræði í litnum natur þannig: Prjónið sléttprjón yfir 12-12-14 hællykkjur, prjónið upp 12-13-13 lykkjur meðfram hlið á hæl, prjónið eins og áður yfir 22-22-24 lykkjur af þræði ofan á fæti og prjónið upp 12-13-13 lykkjur meðfram hinni hliðinni á hæl = 58-60-64 lykkjur. Prjónið að miðju undir hæl – umferðin byrjar núna hér. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við 22-22-24 lykkjur ofan á fæti. Prjónið sléttprjón og fækkið lykkjum í hvorri hlið þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjur á undan fyrra prjónamerki ofan á fæti slétt saman og prjónið 2 fyrstu lykkjur á eftir seinna prjónamerki ofan á fæti snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð alls 4-3-3 sinnum og síðan í annarri hverri umferð alls 7-7-7 sinnum = 36-40-44 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 12-13-14 cm frá prjónamerki á hæl, mælt undir fæti. Skiptið yfir í 1 þráð í litnum texmex og 1 þráði í litnum natur og haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 16-17-18 cm frá prjónamerki á hæl, mælt undir fæti. Skiptið yfir í 2 þræði í litnum natur og haldið áfram eins og áður þar til stykkið mælist 18-19-20 cm frá prjónamerki. Nú eru eftir 4-5-6 cm að loka máli, mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd áður er lykkjum er fækkað fyrir tá eins og útskýrt er að neðan. TÁ: Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á sokknum þannig að það verða 18-20-22 lykkjur bæði ofan á og undir fæti. Prjónið sléttprjón JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-5-7 sinnum og síðan í hverri umferð alls 3-3-2 sinnum = 8 lykkjur eftir í öllum stærðum. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Sokkurinn mælist ca 22-24-26 cm frá prjónamerki á hæl, mælt undir fæti. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #watermelonwandererssocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 238-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.