Caramel Drizzle#carameldrizzlecardigan |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Hekluð peysa með stuttum ermum úr DROPS Safran. Stykkið er heklað ofan frá og niður með laskalínu og pífu. Stærð S - XXXL.
DROPS 231-42 |
||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. HEKLLEIÐBEININGAR: Í hverri umferð með stuðlum er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur. Síðasti stuðull í umferð er heklaður í 3. loftlykkju frá fyrri umferð. Í hverri umferð með fastalykkjum er fyrstu fastalykkju skipt út fyrir 1 loftlykkju. Síðasta fastalykkjan í umferð er hekluð í fyrstu loftlykkju frá fyrri umferð. LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Aukið út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í sama stuðul. ÚTAUKNING-2 (á við um í hlið á fram- og bakstykki): Heklið þar til 2 stuðlar eru eftir á undan prjónamerki, heklið 2 stuðla í næstu lykkju, heklið 1 stuðul í hverja og eina af næstu 2 lykkjum, heklið 2 stuðla í næstu lykkju. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er heklaður fram og til baka, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar og hvert stykki er heklað fram og til baka, hvert fyrir sig. BERUSTYKKI: Heklið 165-177-189-189-201-213 loftlykkjur - lesið LOFTLYKKJA í útskýringu að ofan, með heklunál 3,5 með DROPS Safran – sjá HEKLLEIÐBEININGAR. Nú er heklað mynstur og aukið út fyrir laskalínu þannig: Heklið 1 stuðul í hverja og eina af fyrstu 6 lykkjum, A.1 yfir 18-20-20-20-20-22 lykkjur, A.2, A.1 yfir 36-40-44-44-48-52 lykkjur, A.2, A.1 yfir 36-38-40-40-42-44 lykkjur, A.2, A.1 yfir 36-40-44-44-48-52 lykkjur, A.2, A.1 yfir 18-18-20-20-22-22 lykkjur og 1 stuðull í hverja og eina af síðustu 7 lykkjum. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Í 4. umferð í A.1 og A.2 er aukið út þannig: Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu stuðlum, heklið A.1 eins og áður fram að A.2 og aukið út um 0-0-6-0-6-12 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1, A.2 eins og áður, heklið yfir ermi og næsta A.2 eins og áður, heklið yfir bakstykki og aukið út um 0-2-10-0-12-22 lykkjur jafnt yfir, heklið A.2 eins og áður, heklið yfir ermi og næsta A.2 eins og áður og aukið út um 0-0-4-0-6-12 lykkjur jafnt yfir og endið með 1 stuðul í hverja af síðustu 7 lykkjum. Útauknar lykkjur eru heklaðar í A.1. Þegar A.2 hefur verið heklað til loka, eru 261-275-305-301-337-371 lykkjur í síðustu umferð. Heklið A.3 yfir miðju lykkjur af A.2, þær lykkjur sem eru eftir eru heklaðar eins og áður, þ.e.a.s. A.1 og stuðlar í hvorri hlið. Þegar A.3 hefur verið heklað til loka, eru 329-343-373-401-437-471 lykkjur í síðustu umferð. Stykkið mælist ca 9-9-9-10-10-10 cm. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Heklið 1 stuðul í hverja af fyrstu 47-49-55-58-64-72 lykkjur, hoppið yfir næstu 76-80-84-90-94-98 lykkjur fyrir ermi, heklið 8 loftlykkjur undir ermi, 1 stuðul í hverja og eina af næstu 82-86-96-104-118-130 lykkjur, hoppið yfir næstu 76-80-84-90-94-98 lykkjur fyrir ermi, heklið 8 loftlykkjur undir ermi, heklið 1 stuðul í hverja af síðustu 48-48-54-59-67-73 lykkjur. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 193-199-221-237-265-291 lykkjur. Heklið 1 stuðul í hvern stuðul og 1 stuðul í hverja loftlykkju undir ermi. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8 nýrra lykkja undir ermi. Þegar fram- og bakstykki mælist 12-13-14-15-16-17 cm frá skiptingu, aukið út um 1 stuðul hvoru megin við hvort prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2! Aukið svona út með 5-2-2-2-2-2 cm millibili alls 3-6-6-6-6-6 sinnum = 205-223-245-261-289-315 lykkjur. Þegar fram- og bakstykki mælist ca 30-31-32-31-32-33 cm, heklið A.1 og 1 stuðul í hverja af fyrstu og síðustu 6 lykkjum (kantur að framan). Klippið þráðinn og festið þegar A.1 hefur verið heklað 1 sinni. PÍFA Á BERUSTYKKI: Nú er hekluð pífa í fyrstu umferð með gatamynstri á berustykki, með byrjun frá réttu þannig: Heklið 1 fastalykkju um 7. lykkju séð frá réttu (þ.e.a.s. hoppað er yfir kanta að framan), * heklið 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta stuðul *, heklið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir (þ.e.a.s. umferðin endar með 1 fastalykkju í 7. stuðul inn frá miðju að framan). Snúið stykkinu og heklið A.4 um hvern loftlykkjuboga. Klippið þráðinn og festið þegar A.4 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina. Heklið alveg eins pífu í hina umferðina með gatamynstri á berustykki. PÍFA Á KANTI Á ERMUM: Nú er hekluð pífa yfir lykkjur sem hoppað var yfir á ermi, með byrjun frá réttu þannig: Heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju sem hoppað var yfir á ermi, * 3 loftlykkjur, hoppið yfir 1 lykkju, heklið 1 fastalykkju í næstu lykkju *, heklið frá *-* yfir allar lykkjur sem hoppað var yfir á ermi og endið með 1 fastalykkju í fyrstu lykkju sem var hekluð undir ermi = 38-40-42-45-47-49 loftlykkjubogar. Heklið A.4 um hvern loftlykkjuboga fram og til baka. Klippið þráðinn og festið þegar A.4 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina. Heklið alveg eins pífu meðfram hinum kanti á ermi. ERMI: Byrjið með að hekla kant í kringum handveg þannig: Brjótið pífuna til baka þannig að hægt sé að hekla frá röngu í fyrstu umferð á pífukanti og heklið um fyrstu umferð á pífukanti yst á ermi (þ.e.a.s. með 1 fastalykkju, 3 loftlykkjur). Festið þráðinn með 1 keðjulykkju í 5. lykkju mitt undir ermi, heklið 1 loftlykkju (kemur í stað fyrstu fastalykkju), * 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 lykkju, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, heklið frá *-* yfir 4 næstu lykkjur undir ermi, heklið * 1 loftlykkju, 1 fastalykkju um næstu loftlykkju *, heklið frá *-* yfir lykkjur þar sem pífukanturinn var heklaður og heklið 1 loftlykkju, hoppið yfir 1 lykkju, 1 fastalykkja í næstu lykkju, 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 lykkju og endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í umferð = 42-44-46-49-51-53 loftlykkjubogar. Klippið þráðinn. Heklið frá réttu þannig: Byrjið í 6. loftlykkju niður frá öxl séð frá réttu (þ.e.a.s. brjótið stykkið við öxl og teljið 6 loftlykkjuboga niður frá toppi). Heklið 1 fastalykkju um loftlykkju, heklið 2 stuðla um næstu loftlykkju (þ.e.a.s. upp að axlasaumi), heklið 2 stuðla um hverja og eina af næstu 9 loftlykkjum og endið með 1 keðjulykkju um næstu loftlykkju = 20 stuðlar. Snúið og heklið frá röngu þannig: Heklið 3 loftlykkjur, 1 keðjulykkja um næstu loftlykkju, 2 stuðlar í hvern stuðul og endið með 1 keðjulykkju um næstu loftlykkju í hinni hlið á stykki = 40 stuðlar. Snúið. Heklið 3 loftlykkjur, 1 keðjulykkja um næstu loftlykkju, 2 stuðlar í fyrsta stuðul, 1 stuðul í hvern stuðul þar til 1 stuðull er eftir, 2 stuðlar í næsta stuðul og endið með 1 keðjulykkju um næstu loftlykkju = 42 stuðlar. Haldið svona áfram og aukið út um 1 stuðul í hvorri hlið í hverri umferð alls 10-10-12-12-14-14 sinnum = 60-60-64-64-68-68 lykkjur. Þ.e.a.s. nú eru eftir alls 8-10-8-11-9-11 loftlykkjubogar. STÆRÐ S-M-L: Í næstu umferð er heklaður 1 stuðul í hvern stuðul og til skiptis 1 stuðull og 2 stuðlar um hverja af síðustu loftlykkjum niður að miðjulykkju undir ermi. Snúið og heklið 1 stuðul í hvern stuðul og til skiptis 1 stuðul og 2 stuðla um þær loftlykkjur sem eru eftir í hinni hlið á stykki = 72-75-76 stuðlar. STÆRÐ XL-XXL-XXXL: Í næstu umferð er heklaður 1 stuðull í hvern stuðul og 2 stuðlar um hverja af síðustu loftlykkjum niður að miðjulykkju undir ermi. Snúið og heklið 1 stuðul í hvern stuðul og 2 stuðla um þær loftlykkjur sem eru eftir í hinni hlið á stykki = 86-86-90 stuðlar. ALLAR STÆRÐIR: Í næstu umferð er lykkjufjöldinn jafnaður til 66-72-80-86-92-98 stuðla. Heklið fram og til baka með 1 stuðul í hvern stuðul þar til stykkið mælist 16-17-15-15-15-15 cm þar sem stykkið er styst. Heklið 2 umferðir með fastalykkjum. Klippið þráðinn og festið. Heklið hina ermina á sama hátt. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Heklið kant, með byrjun mitt að framan frá réttu þannig: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju í kringum hálsmál. Klippið þráðinn og festið. FRÁGANGUR: Saumið ermasauma. Saumið tölur í vinstra framstykki. Saumið fyrstu tölu ca 1½-2 cm niður frá kanti í hálsmáli, síðan eru þær 5-5-5-6-6-6 tölur sem eftir eru saumaðar niður með ca 9-9-9½-8½-8½-9 cm millibili. Tölum er hneppt á milli 3. og 4. stuðuls frá kanti í hægri kanti að framan. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #carameldrizzlecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 7 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 231-42
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.