DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7568.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Beige Desert

Heklaður toppur úr DROPS Cotton Merino. Stykkið er heklað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, gatamynstri og blúndukanti. Stærð S – XXXL.

DROPS 231-45
DROPS Design: Mynstur cm-144
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokkki B)
400-450-500-500-550-600 g litur 28, púður

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 4.

HEKLFESTA:
18 stuðlar á breidd og 9 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.
ATH: Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7568.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning A.1 sýnir hvernig umferðin byrjar og endar.

LOFTLYKKJA:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til að reikna út hvernig auka á út jafnt yfir, teljið lykkjufjöldann sem auka á út yfir (t.d. 86 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 25) = 3,4.
Í þessu dæmi er aukið út með því að hekla 2 stuðla í 1 stuðul í ca 3. hvern stuðul.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring, ofan frá og niður. Að lokum er heklaður blúndukantur í kringum berustykki.

BERUSTYKKI:
Heklið 86-90-94-100-104-108 loftlykkjur - lesið LOFTLYKKJA í útskýringu að ofan, með heklunál 4 með DROPS Cotton Merino og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið 3 loftlykkjur, heklið síðan 1 stuðul í hverja loftlykkju = 86-90-94-100-104-108 stuðlar. Heklið 1 umferð með 1 stuðul í hvern stuðul og aukið út um 25-30-26-32-34-36 stuðla jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 111-120-120-132-138-144 stuðlar.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Heklið A.1, síðan er A.2 heklað umferðina hringinn. A.1 sýnir hvernig umferðin byrjar og endar og kemur sem viðbót við lykkjur í A.2. Í hvert skipti sem 2. og 4. umferð í A.2 er hekluð, aukið út um 21-21-21-21-21-24 stuðla jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING. Aukið út alls 6-6-7-7-8-8 sinnum, síðan er aukið út um 21-30-21-27-24-24 stuðla 1 sinni = 258-276-288-306-330-360 stuðlar.

Haldið áfram með A.1 og A.2 þar til stykkið mælist 18-20-22-24-26-28 cm, endið eftir 1. eða 3. umferð.
Stykkið skiptist núna hér:
Heklið 1 stuðul í hverja af fyrstu 75-81-84-90-99-111 lykkjur (bakstykki), heklið 6-6-9-9-12-12 loftlykkjur undir ermi, hoppið yfir 54-57-60-63-66-69 lykkjur, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 75-81-84-90-99-111 lykkjur (framstykki), heklið 6-6-9-9-12-12 loftlykkjur undir ermi, hoppið yfir 54-57-60-63-66-69 lykkjur.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú er næsta umferð af A.2 hekluð, að auki er heklaður 1 stuðull í hverja loftlykkju sem var hekluð undir hvorri ermi = 162-174-186-198-222-246 stuðlar. Haldið áfram hringinn með A.1 og A.2 þar til stykkið mælist ca 10 cm frá skiptingu. Í næsta skipti sem 2. eða 4. umferð í A.2 er hekluð, aukið út um 6 stuðla jafnt yfir í öllum stærðum = 168-180-192-204-228-252 stuðlar. Haldið áfram hringinn með A.1 og A.2 þar til stykkið mælist ca 20 cm frá skiptingu. Í næsta skipti sem 2. eða 4. umferð í A.2 er hekluð, aukið út um 6 stuðla jafnt yfir í öllum stærðum = 174-186-198-210-234-258 stuðlar. Haldið áfram þar til stykkið mælist ca 27 cm frá skiptingu, endið eftir 2. eða 4. umferð í A.2. Heklið A.3 yfir allar lykkjur, byrjið á 2. umferð í mynstri. Klippið þráðinn og festið.

BLÚNDUKANTUR Í KRINGUM BERUSTYKKI:
Blúndukanturinn er heklaður ca 13-17 cm frá kanti í hálsmáli, fyrsta umferð er hekluð í kringum umferð sem er hekluð eins og 2. eða 4. umferð frá berustykki þannig:

UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í kringum stuðul, * heklið 2 loftlykkjur, hoppið yfir 2 stuðla og heklið 1 fastalykkju í kringum næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn.
UMFERÐ 2: Heklið 3 stuðla um hvern loftlykkjuboga, JAFNFRAMT eru lykkjur auknar út jafnt yfir, þannig að lykkjufjöldinn sé deilanlegur með 17.

Heklið síðan eins og útskýrt er í A.3, byrjið á 2. umferð í mynstri. Klippið þráðinn og festið.

Mynstur

symbols = loftlykkja
symbols = fastalykkja í lykkju
symbols = fastalykkja um loftlykkju
symbols = stuðull í lykkju
symbols = stuðull um loftlykkju
symbols = þessi umferð er ekki hekluð, hún hefur nú þegar verið hekluð, þetta sýnir bara hvernig á að hekla næstu umferð
symbols = keðjulykkja
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 231-45

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (17)

country flag Rocio C Torres MURILLO wrote:

Hola. No entiendo la secuencia de aumentos ni en canesú ni en la parte de abajo. No hay algún tutorial en video de este diseño?? Me sería mucho más útil. No entiendo cuántos aumentos en cada vuelta 2 y 4. Primero habla de un número de aumentos y luego de otro pero no especifica luego en cuáles. Preferiría si me explican con número de fila de 1 en adelante.

27.11.2023 - 16:37

DROPS Design answered:

Hola Rocio, todos los videos relevantes para este patrón se encuentran en la sección de videos tutoriales, después del patrón escrito y los diagramas. En cuanto a los aumentos, en el TIP PARA LOS AUMENTOS especifican que se aumentan puntos repartidos trabajando 2 puntos altos en el mismo punto cada cierto número de puntos. Una vez comenzados los diagramas, aumentas cada vuelta 2 y 4 21-21-21-21-21-24 puntos altos 6-6-7-7-8-8 veces en total ( es decir, en 3 vueltas 2 y 3 vueltas 4) y después 21-30-21-27-24-24 puntos altos 1 vez en la siguiente vuelta 2 o 4, dependiendo de la talla.

03.12.2023 - 19:31

country flag Elise wrote:

Jeg klarer ikke å få M3 til å stemme overens med bildet. Kan det være noe feil i mønsteret?

07.09.2023 - 20:04

country flag Tiina Rauta wrote:

Piirroksen a3 ohje ei vastaa kuvassa olevaa reunuspitsiä. Ohjeessa puhutaan piilosilmukoista mutta kuvassa on selkeästi 3 pylvään popcorn.

29.06.2023 - 19:47

country flag Asun wrote:

Hola, muchas gracias por este patrón tan bonito. Ya estoy terminándolo y por lo visto en el diagrama de las ondas del final esta incompleto. En la 5ª fila no se cómo seguir después de las dos ultimas cadenetas.

09.04.2023 - 13:21

DROPS Design answered:

Hola Asun, la última fila se trabaja como sigue: (2 puntos bajos alrededor del arco de cadenetas, punto bajo en el punto,* 2 puntos bajos alrededor del siguiente arco, 1 cadeneta*, repetir de * a * 4 veces más, 2 puntos bajos en el siguiente arco, 1 punto bajo en el siguiente punto, 2 puntos bajos en el siguiente arco). Repite las instrucciones entre paréntesis toda la vuelta.

10.04.2023 - 17:24

country flag Sylvie Bouchet wrote:

Bonjour, j'ai commencé ce modele et je suis bloqué avec le schema a2 et les 21 augmentations au rang 2.j'ai fait 1b+1men l'air+1b puis 1b+1m+1b+1m+1b. pour le rang 3 je ne peux pas respecter 1b,1bdans maille en l'air 1b car j'ai par intervalle 3 brides pour augmentation. comment je peux faire. merci pour votre reponse car je suis bloquée.

07.10.2022 - 17:28

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bouchet, les augmentations dans A.2 se font aux rangs 2 et 4 du diagramme, autrement dit des rangs de brides uniquement - cette leçon explique comment répartir des augmentations à intervalles réguliers. Bon crochet!

10.10.2022 - 08:17

country flag Eva Medina García wrote:

Hola!! Una pregunta... El patrón de las ondas es el mismo para las del canesú y las de la orilla inferior? Es que me da la impresión de que es distinta, no sé... Y otra cosa, qué significa en el patrón de las ondas el dibujito de la última vuelta entre los puntos bajos? Por otro lado, me ha encantado tejer el punto del suéter, muy sencillo y nada aburrido al mismo tiempo. Gracias

12.07.2022 - 22:18

DROPS Design answered:

Hola Eva, las ondas son iguales. La diferencia es el inicio, para las ondas del canesú se trabajan 2 vueltas según el patrón en "Orilla calada" y después se continuar con A.3. En la orilla inferior se trabaja solo A.3. El símbolo del arco parece faltar en las explicaciones del diagrama, enviaremos tu consulta al departamento de diseño para corregir la errata.

13.07.2022 - 11:59

country flag Eva Medina García wrote:

Hola!! Una pregunta... El patrón de las ondas es el mismo para las del canesú y las de la orilla inferior? Es que me da la impresión de que es distinta, no sé... Y otra cosa, qué significa en el patrón de las ondas el dibujito de la última vuelta entre los puntos bajos? Por otro lado, me ha encantado tejer el punto del suéter, muy sencillo y nada aburrido al mismo tiempo. Gracias

12.07.2022 - 19:26

DROPS Design answered:

Hola Eva, ver respuesta arriba.

13.07.2022 - 11:59

country flag Irene wrote:

Grazie per il chiarimento sulla lavorazione del bordo, ho appena finito il modello e sono molto soddisfatta del risultato

18.06.2022 - 14:01

country flag Heather wrote:

Hi on the yoke it reads Each time rounds 2 and 4 in A.2 are worked, increase 21-21-21-21-21-24 treble crochets evenly spaced. Increase 6-6-7-7-8-8 times, then increase 21-30-21-27-24-24 treble crochets 1 time. I get up to where it says Increase 6-8 times but after I am lost. Where does this fit in? Is thus after all the increases or in addition to?\r\n\r\nThank you!

18.06.2022 - 12:42

DROPS Design answered:

Dear Heather, you first increase every round 2 and round 4 in A.2 21-21-21-21-21-24 treble crochets evenly spaced 6-6-7-7-8-8 times (that is, 6-6-7-7-8-8 rounds). The next time you work round 2 or 4, you increase 21-30-21-27-24-24 treble crochets evenly spaced (but only in one round). Happy crocheting!

18.06.2022 - 15:52

country flag Irene wrote:

Ho realizzato il modello ma ho difficoltà per il diagramma A3: il simbolo T rappresenta una maglia alta o una mezza maglia alta? A quale punto corrisponde il simbolo di un archetto tra due gruppi di 2 maglie basse sull'ultimo giro di A3? Viringrazio e aspetto il vostro suggerimento per completare il modello

04.06.2022 - 18:43

DROPS Design answered:

Buongiorno Irene, abbiamo corretto il testo: il simbolo T corrisponde a una maglia bassa.. L'altro simbolo è la catenella. Buon lavoro!

05.06.2022 - 14:36