Mariann skrifaði:
Hvordan hekle Om masken og ikke i maskeledd?
13.12.2023 - 19:17DROPS Design svaraði:
Hej Mariann, se videoen nederst i opskriften :)
14.12.2023 - 08:26
Emilie skrifaði:
Efter man har hæklet kanten i toppen af bøllehatten, fortsætter man så med at vende projektet og hækle henholdsvis på ret og vrang siden, eller bliver man på retsiden indtil man skal hækle skyggen? Altså for at præcisere så snakker jeg om passagen mellem kanten i toppe og skyggen :)
11.07.2023 - 23:52DROPS Design svaraði:
Hei Emilie Det hekles i maskeleddene som før (det hekles rundt, samtidig som arbeidet vendes for hver omgang). mvh DROPS Design
24.07.2023 - 14:37
Guro skrifaði:
Når man hekler i sirkel og bruker en kjedemaske for å lenke sammen runden og starter med en luftmaske, så får man en stygg søm langs hele hatten. Løsningen er jo å droppe dette og heller bare hekle i spiral hele veien, rundt og rundt. Men da får jeg ikke samme mønster på hatten som om man snur arbeidet etter hver runde. Har dere noen bedre løsninger for å ikke få sømmen, men fortsatt snu arbeidet?
24.05.2023 - 15:37DROPS Design svaraði:
Hej Guro, nederst i opskriften finder du en video "Hvordan hekle rundt med fm" - ja du vil få en kant, men den er ikke så stygg :)
25.05.2023 - 07:37
Ernesto skrifaði:
Esiste qualcosa di simile per gli uomini?
08.08.2022 - 19:15DROPS Design svaraði:
Buonasera Ernesto, al momento non abbiamo modelli simili per uomo, ma provi a guardare quiqui la nostra selezione di modelli da uomo. Buon lavoro!
10.08.2022 - 22:26
Ernesto skrifaði:
Sembra così carino!
08.08.2022 - 19:13
Mascha skrifaði:
Wird der Rand auch in Hin- und Rückrunden gehäkelt?
22.07.2022 - 23:05DROPS Design svaraði:
Liebe Mascha, der Abschluss-Rand besteht nur aus einer Runde und diese Runde wird als Hin-Runde gehäkelt. Viel Spaß beim Häkeln!
25.07.2022 - 19:28
Beatrice skrifaði:
Hippie
19.01.2022 - 22:05
Micaela Olivetti skrifaði:
Dolly
14.01.2022 - 14:27
Sunshine Smiles#sunshinesmileshat |
|
![]() |
![]() |
Heklaður hattur úr 2 þráðum DROPS Bomull-Lin. Stykkið er heklað ofan frá og niður.
DROPS 229-29 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er hekluð 1 loftlykkja, þessi loftlykkja kemur ekki í stað 1. fastalykkju. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju í umferð. HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsta umferðin er hekluð frá réttu á stykki. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju í byrjun á umferð. Snúið stykkinu og heklið næstu umferð frá röngu á stykki. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju í byrjun á umferð. Snúið stykkinu og heklið næstu umferð frá réttu á stykki. Haldið svona áfram fram og til baka, til skiptis með einni umferð frá réttu og einni umferð frá röngu. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til að reikna úr hvernig auka eigi út jafnt yfir, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 60 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 15. Í þessu dæmi er aukið út með því að hekla 2 fastalykkjur í 15. hverja lykkju. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HATTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Hatturinn er heklaður ofan frá og niður með 2 þráðum. Allt stykkið er heklað í hring, jafnframt því sem stykkinu er snúið við í hverri umferð - sjá HEKLLEIÐBEININGAR. HATTUR: Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 6 með 1 þræði í hvorum lit í DROPS Bomull-Lin (= 2 þræðir) og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð. UMFERÐ 1: Heklið 1 loftlykkju – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, heklið síðan 6 fastalykkjur um loftlykkjuhringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 3: Heklið * 2 fastalykkjur í fyrstu fastalykkju, 1 fastalykkja í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 18 fastalykkjur. UMFERÐ 4: Heklið * 2 fastalykkjur í fyrstu fastalykkju, 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 fastalykkjum *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 24 fastalykkjur. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Haldið svona áfram hringinn og aukið út um 6 lykkjur í hverri umferð, en í hverri umferð er hekluð 1 lykkja fleiri í hverri útaukningu. Þegar heklaðar hafa verið 10 umferðir eru 60 lykkjur í umferð. Í stærð M/L er hekluð 1 umferð með 1 fastalykkju í hverja lykkju og það hafa verið auknar út 4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 60-64 fastalykkjur.‘ Nú er hekluð 1 umferð frá réttu þannig: Heklið 1 fastalykkju um hverja lykkju, þ.e.a.s. ekki er heklað í lykkjubogana, heldur er heklað um sjálfa lykkjuna. Setjið eitt prjónamerki í þessa umferð. Stykkið er nú mælt héðan. Haldið áfram með fastalykkju í umferð á undan síðustu umferð sem var hekluð, þ.e.a.s. heklað er í lykkjubogana eins og áður. Þegar stykkið mælist 8-9 cm fá umferð með prjónamerki – stillið af að aukið sé út um 0-2 lykkjur í síðustu umferð sem var hekluð, heklið barð. Nú eru 60-66 fastalykkjur í umferð. BARÐ: Setjið 6 prjónamerki í stykkið með 10-11 lykkjur á milli prjónamerkja. Heklið fastalykkjur eins og áður (önnur hver umferð er hekluð frá réttu og röngu eins og áður), JAFNFRAMT er aukið út um 1 lykkju við hvert prjónamerki. UMFERÐ 1: Aukið út um 1 lykkju með því að hekla 2 lykkjur í lykkjuna á eftir hverju prjónamerki (séð frá réttu) = 66-72 lykkjur. Færið prjónamerkin 2 lykkjur til vinstri (séð frá réttu). UMFERÐ 2: Aukið út um 1 lykkju með því að hekla 2 lykkjur í lykkjuna á undan hverju prjónamerki (séð frá röngu) = 72-78 lykkjur. Færið prjónamerkin 2 til vinstri (séð frá réttu). UMFERÐ 3: Aukið út um 1 lykkju með því að hekla 2 lykkjur í lykkjuna á eftir hverju prjónamerki (séð frá réttu = 78-84 lykkjur. Færið prjónamerkin 2 lykkjur til vinstri (séð frá réttu). Haldið svona áfram, að færa prjónamerkin 2 lykkjur til vinstri (séð frá réttu) og aukið út um 1 lykkju við hvert prjónamerki þar til aukið hefur verið út alls 8 sinnum = 108-114 lykkjur. Heklið nú kant í lokin þannig: KANTUR: Heklið nú með 2 þráðum natur í DROPS Bomull-Lin. Næsta umferð með litnum natur á að hekla frá réttu (ekki snúa við eftir hverja umferð eins og í hatti). Í næstu umferð er mynstrið heklað þannig: * heklið 1 fastalykkju í næstu lykkju, 1 loftlykkja, hoppið yfir 2 fastalykkjur, heklið (2 stuðlar + 1 loftlykkja + 2 stuðlar) í næstu lykkju), 1 loftlykkja, hoppið yfir 2 fastalykkjur *, heklið frá *-* umferðina hringinn alls 18-19 sinnum, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð. Klippið frá og festið þræðina vel. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sunshinesmileshat eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 229-29
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.