Grandma’s Hugs#grandmashugsblanket |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklað teppi með ferningum úr DROPS Air.
DROPS 229-5 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. LITIR FERNINGUR (A.1 til A.3): UPPFITJUN OG UMFERÐ 1: natur UMFERÐ 2: bleikur sandur UMFERÐ 3: blush UMFERÐ 4: hveiti UMFERÐ 5: beige UMFERÐ 6: natur UMFERÐ 7: bleikur sandur UMFERÐ 8: natur LITIR KANTUR (A.4 til A.6): UMFERÐ 1: natur UMFERÐ 2: hveiti UMFERÐ 3: beige UMFERÐ 4: natur UMFERÐ 5: bleikur sandur UMFERÐ 6: natur UMFERÐ 7: blush UMFERÐ 8: bleikur sandur UMFERÐ 9: natur LITASKIPTI: Þegar skipt er um lit er heklað þannig: Heklið síðustu lykkju í umferð með lit sem er í umferð, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin á síðustu lykkjunni, skiptið yfir í næsta lit og heklið síðasta uppsláttinn og dragið þráðinn í gegn með nýja litnum, heklið síðan áfram eins og útskýrt er í mynsturteikningu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TEPPI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Teppið samanstendur af 6 ferningum sem saumaðir eru saman með 2 ferninga á breiddina og 3 ferninga á hæðina. Heklið síðan kant í kringum allt teppið. EINN FERNINGUR: Sjá LITIR FERNINGUR í útskýringu að ofan. Byrjið með heklunál 5 og litinn natur í DROPS Air. Heklið 5 loftlykkjur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Sjá LITASKIPTI og heklið mynsturteikningu A.1 (hringur). ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið heklað til loka, heklið þannig: Heklið A.2 (= byrjun og lok umferðar), heklið A.3 alls 4 sinnum í hringinn. Heklið A.2 og A.3 hefur verið heklað til loka, klippið þræðina og festið. Heklið alls 6 ferninga. FRÁGANGUR: Leggið ferningana flata með 2 ferninga á breiddina og 3 ferninga á lengdina – sjá A.7. ATH: Passið að ferningurinn sem merktur er með stjörnu liggi þannig að lok umferðar snúi út að ytri kanti. Stjarnan merkir byrjun á kanti. Saumið ferningana saman kant í kant þannig að saumurinn verði flatur. Klippið þræðina og festið. KANTUR: Sjá LITIR KANTUR í útskýringu að ofan. Byrjið í lykkju í A.2 á ferningi sem er merktur með stjörnu í A.7. Heklið A.4 í þessa lykkju, heklið A.5 alls 3 sinnum, heklið A.6 í hornið á teppinu, heklið A.5 fram að næsta horni á teppi – ATH: Í hvern saum á milli 2 ferninga er hekluð 1 loftlykkja, 2 stuðlar um hornbogann á öðrum ferningnum, 1 loftlykkja, 2 stuðlar um hornbogann á hinum ferningnum. Haldið svona áfram í kringum allt teppið. Þegar A.4 til A.6 hefur verið heklað til loka, klippið þræðina og festið. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #grandmashugsblanket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 10 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 229-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.