Eva Barner Jensen skrifaði:
Rettelse til opskriften str. L Farve 01, natur 125 gr Farve 13, jeansblå 50 gr
30.03.2022 - 17:02
Esmée Tiemens skrifaði:
Hoeveel wol heb ik nodig als ik de trui in één kleur wil breien?
27.03.2022 - 21:34DROPS Design svaraði:
Dag Esmée,
Als ik een vergelijkbar patroon erbij pak kom ik op ongeveer 125-125-150-150-175-175 gram
29.03.2022 - 09:38
Laura Van Der Linden skrifaði:
Kijk ik er over heen of staat er niet genoemd met hoeveel steken je het achter- en voorpand begint?
13.03.2022 - 16:17DROPS Design svaraði:
Dag Laura,
Er miste inderdaad een gedeelte van de eerste zin, het is nu gecorrigeerd.
14.03.2022 - 12:38
Jessica skrifaði:
Hej! Undrar om det är felskrivet i stycket om ärmen, i mitten. Det står "när arbetet mäter 45-44-43-41-40-38 cm, avsluta.." ... I mönstret för övrigt står måtten med lägst först (xs, s, m, etc) men här kommer högsta siffran först.... Är det rätt eller ska jag läsa från andra hållet? Gör medium så frågan är om 41 eller 43 gäller för ärmen. Tack på förhand. Hälsningar Jessica
26.02.2022 - 16:07DROPS Design svaraði:
Hej Jessica, det stemmer som det står da du har bredere skuldervidde i de større størrelser, dvs 43 gælder for M. God fornøjelse!
02.03.2022 - 11:24
Monica skrifaði:
Volendo eseguire il capo con un solo colore, quanti grammi di filato sono necessari? Grazie
15.02.2022 - 19:27DROPS Design svaraði:
Buongiorno Monica, per un'assistenza così personalizzata può rivolgersi al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!
15.02.2022 - 23:47
Jessica Engdahl skrifaði:
Hej Undrar om man ska sticka ärmen runt på rundsticka eller om man stickar fram och tillbaka (fast på rundsticka också) och sedan syr ihop på längden liksom så det blir ett "rör"...? Mvh Jessica
09.02.2022 - 19:09DROPS Design svaraði:
Hej Jessica, du stickar alla delar fram och tillbaka och syr ihop till slut :)
11.02.2022 - 08:58
Nicole Vandenberghe skrifaði:
Rainbow
15.01.2022 - 13:19
Elma skrifaði:
Woodstock
14.01.2022 - 21:12
Kirsty skrifaði:
Spring Meadow
14.01.2022 - 15:44
Candy Stripes#candystripessweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð einföld / basic peysa úr 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í röndum. Stærð XS - XXL.
DROPS 231-2 |
||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- TVEIR ÞRÆÐIR: Þar sem stykkið er prjónað með 2 þráðum, prjónið með þráðinn bæði innan í og utan með sömu dokkunni. SLÉTTPRJÓN: Prjónið 1 umferð slétt frá réttu. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Endurtakið þessar 2 umferðir. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikningin sýnir litina sem prjóna á. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Peysan er prjónuð fram og til baka, neðan frá og upp í stykkjum og er saumuð saman í lokin. Öll peysan er prjónuð með 2 þráðum. BAKSTYKKI: Fitjið upp 52-56-60-66-70-78 lykkjur á hringprjón 8 með 2 þráðum með litnum natur í DROPS Brushed Alpaca Silk – sjá TVEIR ÞRÆÐIR. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Skiptið yfir í 2 þræði með litnum gallabuxnablár. Prjónið nú rendur eftir A.1 í SLÉTTPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Haldið svona áfram. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið rendur eftir A.2 í sléttprjóni. A.2 er endurtekið á hæðina. Þegar stykkið mælist ca 47-49-51-52-54-56 cm, endið eftir heila rönd með litnum natur, prjónið 2 umferðir sléttprjón með 2 þráðum með litnum rauður þannig: Prjónið 2 umferðir sléttprjón með 2 þráðum með litnum rauður. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 15-17-18-21-22-26 lykkjur slétt, fellið af næstu 22-22-24-24-26-26 lykkjur og prjónið 15-17-18-21-22-26 lykkjur. Prjónið nú hvora öxlina til loka fyrir sig. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Skiptið yfir í 2 þræði með litnum natur. Prjónið 2-2-2-4-4-4 umferðir sléttprjón. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Stykkið mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp jafnmargar lykkjur og prjónið á sama háttog bakstykki. ERMI: Fitjið upp 46-48-50-54-56-58 lykkjur á hringprjón 8 með 2 þráðum með litnum natur í DROPS Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Skiptið yfir í 2 þræði með litnum gallabuxnablár. Prjónið 2 umferðir sléttprjón. Prjónið nú rendur eftir A.2 í sléttprjóni. Haldið svona áfram. Þegar stykkið mælist 45-44-43-41-40-38 cm, endið eftir heila rönd með litnum natur, prjónið 2 umferðir sléttprjón með 2 þráðum með litnum rauður. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma, saumið með 1 þræði með litnum natur. Setjið 1 prjónamerki í framstykki og bakstykkið 19-20-21-22-23-24 cm frá axlasaumi og niður. Saumið ermar í á milli prjónamerkja á framstykki og bakstykki – miðja á ermi á að passa við axlasauminn – saumið með 1 þræði með litnum rauður. Saumið ermasauma og hliðarsauma í eitt, með 1 þræði með litnum natur, saumið í ystu lykkjubogana. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #candystripessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 9 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 231-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.