Heidemarie Küspert skrifaði:
Hallo, die Weihnachtsmäuse sind sehr schön, leider fehlt aber das Diagramm. Es geht ja auch ohne zum Stricken, dann einfach in Streifen.
06.12.2021 - 08:45
Empya skrifaði:
Il manque le diagramme!!
06.12.2021 - 06:52DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Empya et merci pour votre retour, les diagrammes sont désormais visibles. Bon tricot!
06.12.2021 - 09:21
Ellen Jones skrifaði:
Where is the diagram?
06.12.2021 - 00:50DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Jones, thanks for your feedback, diagrams are now visible. Happy knitting!
06.12.2021 - 09:21
Christmas Mice#dropsnordicchristmasmice |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónaðar mýs / jólaskraut með norrænu mynstri og röndum úr DROPS Fabel. Þema: Jól.
DROPS Extra 0-1548 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. EYRA: * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* í sömu lykkju þar til alls 13 lykkjur eru fyrir eyra. Nú eru prjónaðar stuttar umferðir fram og til baka yfir eyrnalykkjurnar þannig: snúið stykkinu, prjónið brugðnar lykkjur frá röngu þar til 2 lykkjur eru eftir, snúið, herðið á þræði, prjónið sléttar lykkjur frá réttu þar til 2 lykkjur eru eftir, snúið, herðið á þræði, prjónið sléttar lykkjur frá réttu þar til 2 lykkjur eru eftir, snúið, herðið á þræði, prjónið brugðnar lykkjur frá röngu þar til 4 lykkjur eru eftir, snúið, herðið á þræði, prjónið sléttar lykkjur frá réttu þar til 4 lykkjur eru eftir, snúið, herðið á þræði og prjónið brugðnar lykkjur út umferðina, snúið stykkinu og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn dragist saman þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir aðra hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) = 1 lykkja eftir. Prjónið síðan eins og útskýrt er í uppskrift. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 44 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 11. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 11. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- MÚS - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Allt stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna frá nefi að miðju á baki. Músin er fyllt með vatti. Síðan er skottið prjónað eins og hringlaga snúra. HÖFUÐ: Fitjið upp 4 lykkjur á sokkaprjón 2,5 með litnum svartur í DROPS Fabel. Skiptið 4 lykkjunum niður með 1 lykkju á hverjum prjóni (prjónið með 5. prjóninum). Prjónið í hring eins og útskýrt er að neðan. UMFERÐ 1. * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum = 8 lykkjur (2 lykkjur á hverjum prjóni). UMFERÐ 2: Prjónið slétt (uppslátturinn er alltaf prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat). Skiptið yfir í litinn ljós grár. UMFERÐ 3: Prjónið slétt. UMFERÐ 4: * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum = 12 lykkjur (3 lykkjur á hverjum prjóni). UMFERÐ 5: Prjónið slétt. UMFERÐ 6: * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum = 20 lykkjur (5 lykkjur á hverjum prjóni). UMFERÐ 7: Prjónið slétt. UMFERÐ 8: * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum = 28 lykkjur (7 lykkjur á hverjum prjóni). UMFERÐ 9: Prjónið slétt. UMFERÐ 10: Í þessari umferð eru augun prjónuð, þ.e.a.s. umferðin er prjónuð þannig: Prjónið 8 lykkjur með litnum ljós grár, 1 lykkja með litnum svartur, 3 lykkjur með litnum ljós grár, 1 lykkja með litnum svartur, 15 lykkjur með litnum ljós grár. Síðan er prjónað með litnum ljós grár. UMFERÐ 11: * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 5 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum = 36 lykkjur (9 lykkjur á hverjum prjóni). UMFERÐ 12: Prjónið slétt. UMFERÐ 13: Prjónið slétt. UMFERÐ 14: Í þessari umferð eru eyrun prjónuð, þ.e.a.s. umferðin er prjónuð þannig: Prjónið 9 lykkjur slétt, í næstu lykkju (þ.e.a.s. fyrsta lykkjan í 2. umferð), prjónið EYRA – sjá útskýringu að ofan, prjónið 7 lykkjur slétt, í næstu lykkju (þ.e.a.s.síðasta lykkja í 2. umferð) prjónið EYRA, prjónið sléttar lykkjur út umferðina. UMFERÐ 15 * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 7 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum = 44 lykkjur (11 lykkjur á hverjum prjóni). UMFERÐ 16: Prjónið slétt. Prjónið síðan peysu með röndum eða peysu með norrænu mynstri eins og útskýrt er að neðan. PEYSA MEÐ NORRÆNU MYNSTRI-1 (grunnlitur í litnum ljós perlugrár, «doppur» í litnum rauður): Skiptið yfir í litinn rauður og prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan 1 umferð stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Skiptið yfir í litinn ljós perlugrár og prjónið 4 umferðir í stroffprjóni. Prjónið 1 umferð slétt með litinn ljós perlugrár þar sem aukið er út um 4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 48 lykkjur. Prjónið síðan A.1 hringinn (= 12 mynstureiningar með 4 lykkjum). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið 2 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með litnum rauður. Prjónið síðan bakhlið á músinni eins og útskýrt er að neðan. PEYSA MEÐ NORRÆNU MYNSTRI-2 (grunnlitur í litnum rauður, «doppur» í litnum ljós perlugrár): Skiptið yfir í litinn ljós perlugrár og prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan 1 umferð stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Skiptið yfir í litinn rauður og prjónið 4 umferðir í stroffprjóni. Prjónið 1 umferð slétt með litinn rauður þar sem aukið er út um 4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 48 lykkjur. Prjónið síðan A.2 hringinn (= 12 mynstureiningar með 4 lykkjum). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið 2 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með litnum ljós perlugrár. Prjónið síðan bakhlið á músinni eins og útskýrt er að neðan. PEYSA MEÐ NORRÆNU MYNSTRI-3 (grunnlitur í litnum rauður, mynstur í litnum ljós perlugrár): Skiptið yfir í litinn rauður og prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan 5 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Skiptið yfir í litinn ljós perlugrár og prjónið 4 umferðir í stroffprjóni. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 48 lykkjur. Prjónið síðan A.3 hringinn (= 12 mynstureiningar með 4 lykkjum). Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, prjónið 2 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með litnum rauður. Prjónið síðan bakhlið á músinni eins og útskýrt er að neðan. PEYSA MEÐ RÖNDUM-1 (stroffkantur í litnum ljós perlugrár): Skiptið yfir í litinn ljós perlugrár og prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan 5 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 48 lykkjur. Prjónið síðan A.4 hringinn (= 12 mynstureiningar með 4 lykkjum). Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka, prjónið 2 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með litnum ljós perlugrár. Prjónið síðan bakhlið á músinni eins og útskýrt er að neðan. PEYSA MEÐ RÖNDUM-2 (stroffkantur í litnum rauður): Skiptið yfir í litinn rauður og prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan 5 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 48 lykkjur. Prjónið síðan A.5 hringinn (= 12 mynstureiningar með 4 lykkjum). Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka, prjónið 2 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með litnum rauður. Prjónið síðan bakhlið á músinni eins og útskýrt er að neðan. BAKHLIÐ Á MÚS: = 48 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt með litnum ljós grár. Snúið stykkinu og festið alla þræði. Snúið stykkinu til baka að réttu og fækkið lykkjum þannig: UMFERÐ 1: * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* alls 12 sinnum = 36 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið slétt. UMFERÐ 3: * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* alls 12 sinnum = 24 lykkjur. UMFERÐ 4: Prjónið slétt. UMFERÐ 5: Prjónið allar lykkjur slétt saman 2 og 2 = 12 lykkjur eftir. UMFERÐ 6: Prjónið slétt. Fyllið músina með vatti. UMFERÐ 7: Prjónið allar lykkjur slétt saman 2 og 2 = 6 lykkjur eftir. UMFERÐ 8: Prjónið allar lykkjur slétt saman 2 og 2 = 3 lykkjur eftir. Prjónið síðan skottið eins og útskýrt er að neðan. SKOTT: Prjónið 1 umferð slétt frá réttu yfir 3 lykkjur með litnum ljós grár. * Færið lykkjurnar til baka að byrjun á prjóni, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur frá réttu yfir 3 lykkjur *, prjónið frá *-* þar til skottið mælist ca 10 cm. Klippið þráðinn og þræðið í gegnum lykkjurnar. Festið þráðinn vel og herðið aðeins að áður en hann er festur þannig að skottið beygist aðeins út. STREKKING: Til að eyrun standi fallega upprétt og verði stíf, er hægt að dýfa þeim í sykurvatn eða litlausan gosdrykk og látin þorna í réttu formi. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dropsnordicchristmasmice eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 18 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1548
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.