Monika skrifaði:
Strikket 2 par votter, la en liten plastpose (halv brødpose) i tommelen og festet med sikkerhetsråd, akkurat slik det står i oppskriften. I maskinen på 40 grader normalprogram og med original grønnsåpe. Selve vottene er tovet bra, men tomlene er nesten ikke tovet, og er egentlig deformert. Vottene er ikke brukbare. Metode for toving anbefales ikke!
16.03.2025 - 09:58
Cathrin skrifaði:
Ich habe diese Handschuhe genau nach Anleitung und dem angegebenen Garn in der größten Größe gestrickt. Leider reichen die 2 50g-Knäuel (=100g) jeweils nur für einen Handschuh ohne Daumen. Ich musste also Wolle nachbestellen. 100 g sind wirklich zu wenig bemessen. Denkbar ist, dass durch das Muster mehr Garn benötigt wird als bei glatt rechts gestrickten...
16.12.2024 - 17:18
Emilia skrifaði:
Tack så mycket för hjälpen, blev jättebra! Förutom att tummen inte tovades så mycket när jag hade plastpåse i den… Finns det något sätt att fixa det på?
06.12.2023 - 11:22DROPS Design svaraði:
Hej Emilie, vad kul :) hm.... skull du kunna doppa bara tummen i varmt vatten kanske...?
06.12.2023 - 15:27
Emilia skrifaði:
Hej igen, är det ett omslag på varv 1? Kan inte se det i diagrammet
30.11.2023 - 10:45DROPS Design svaraði:
Hej igen Emilie, jo du börjar varv 1 nederst i diagrammet till höger :)
30.11.2023 - 10:50
Emilia skrifaði:
Hej! I början står det att man ska sticka 20 maskor i A1, och sen upprepa det varvet tills arbetet når 3 cm. Men andra varvet i A1 är det 6 maskor och inte 5 som i första, undrar hur man ska gå tillväga då? Alltså hur nästkommande varv ska vara tack på förhand!
29.11.2023 - 21:49DROPS Design svaraði:
Hej Emilia, jo omslaget på varv 1 stickas rät på varv 2, det ser du i diagrammet :)
30.11.2023 - 10:42
Rikke skrifaði:
Hej. Det ser ud til at instruktionerne til denne opskrift på dansk mangler. Der bliver gentaget størrelse, materialer, pinde og strikkefasthed. Der er et diagram men ikke nogen instruktioner. Har i mulighed for at ligge instruktioner ind? Tak.
15.01.2022 - 21:04DROPS Design svaraði:
Hej Rikke. Tack för info, nu finns hela opskriften på dansk. Mvh DROPS Design
17.01.2022 - 13:45
Find the Magic#findthemagicmittens |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónaðir og þæfðir vettlingar úr DROPS Lima. Stykkið er prjónað í sléttprjóni og gatamynstri. Stærð S - XL.
DROPS 225-15 |
||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ATH: Vegna mynsturs mun fjöldi lykkja í hverri mynstureiningu vera á bilinu 5 til 6 lykkjur. Lykkjufjöldinn sem kemur fram í mynstri er reiknaður út að það séu 5 lykkjur í hverri mynstureiningu, en hafið þetta í huga ef þú ert í umferð þar sem 6 lykkjur eru í hverri mynstureiningu þegar lykkjur eru taldar. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (jafnt yfir) : Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 34 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 8,5. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis 7. og 8. hverja lykkju og 8. og 9. hverja lykkju slétt saman. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2: Byrjið 2 lykkjum á undan merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um op fyrir þumalfingur): Aukið er út um 1 lykkju með því að prjóna 2 lykkjur í sömu lykkju. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, frá úlnliði að fingurtoppi. VINSTRI VETTLINGUR: Fitjið upp 59-61-63 lykkjur á sokkaprjóna 4,5 með DROPS Lima. Prjónið 4 umferðir sléttprjón. Næsta umferð er prjónuð þannig: 2-2-3 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 yfir næstu 20 lykkjur (= 4 mynstureiningar með 5 lykkjum), prjónið 3 fyrstu lykkjur í A.1 þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins og prjónið 34-36-37 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 3 cm, fækkið um 4 lykkjur jafnt yfir 34-36-37 lykkjur í lok umferðar (þ.e.a.s. á eftir A.1) – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 (lykkjum er ekki fækkað yfir lykkjur í A.1). Endurtakið úrtöku með 1½ cm millibili alls 3 sinnum á hæðina = 47-49-51 lykkjur. Þegar stykkið mælist 8-8-7 cm, setjið 1 merki í síðustu lykkju í umferð. Nú eru lykkjur auknar út fyrir opi fyrir þumalfingur með því að auka út 1 lykkju hvoru megin við lykkju með merki í – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Aukið svona út utan við útauknar lykkjur í 4. hverri umferð alls 6-7-8 sinnum á hæðina = 59-63-67 lykkjur. Þegar stykkið mælist 16-17-18 cm (útaukningum fyrir opi fyrir þumalfingur á að vera lokið), setjið lykkju með merki í + útauknar lykkjur + 1 lykkju hvoru megin við þessar lykkjur á þráð fyrir þumalfingur = 15-17-19 þumallykkjur. Prjónið hringinn eins og áður og fitjið jafnframt upp 3 nýjar lykkjur á prjóninn yfir lykkjur af þræði = 47-49-51 lykkjur. Prjónið þar til 1 umferð er eftir áður en stykkið mælist ca 12-11½-11 cm frá þar sem nýjar lykkjur voru fitjaðar upp yfir opi fyrir þumalfingur – endið eftir 3. umferð í A.1. Stykkið mælist nú ca 28-28½-29 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem fækkað er um 5 lykkjur jafnt yfir 23 lykkjur í A.1 = 42-44-46 lykkjur eftir. Nú byrjar úrtaka efst á vettlingi. Setjið 1 merki í hvora hlið á vettlingi þannig: Setjið 1 merki í fyrstu lykkju í umferð og 1 merki í 22.-23.-24. lykkju í umferð. Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði merkin – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-5-6 sinnum og síðan í hverri umferð alls 4 sinnum = 10-8-6 lykkjur eftir. Klippið þráðinn frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Vettlingurinn mælist ca 32-33½-35 cm ofan frá og niður. ÞUMALFINGUR: Þumalfingurinn er prjónaður í hring í sléttprjóni. Setjið 15-17-19 þumallykkjur á sokkaprjóna 4,5 – prjónið að auki upp 3 lykkjur í 3 lykkjur sem fitjaðar voru upp aftan við þumalfingur = 18-20-22 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til þumalfingurinn mælist ca 6-6½-7 cm. Fækkið nú um 3 lykkjur jafnt yfir = 15-17-19 lykkjur. Prjónið 3 umferðir án úrtöku. Í næstu umferð er fækkað um 5-7-7 lykkjur jafnt yfir = 10-10-12 lykkjur. Prjónið áfram þar til þumalfingurinn mælist 7½-8-8½ cm. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 5-5-6 lykkjur eftir. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. HÆGRI VETTLINGUR: Fitjið upp 59-61-63 lykkjur á sokkaprjóna 4,5 með DROPS Lima. Prjónið 4 umferðir sléttprjón. Næsta umferð er prjónuð þannig: 34-36-37 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 yfir næstu 20 lykkjur (= 4 mynstureiningar með 5 lykkjum), prjónið 3 fyrstu lykkjur í A.1 þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins og prjónið 2-2-3 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 3 cm, fækkið um 4 lykkjur jafnt yfir 34-36-37 lykkjur í byrjun á umferð (þ.e.a.s. á undan A.1) – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 (lykkjum er ekki fækkað yfir lykkjur í A.1). Endurtakið úrtöku með 1½ cm millibili alls 3 sinnum á hæðina = 47-49-51 lykkjur. Þegar stykkið mælist 8-8-7 cm, setjið 1 merki í fyrstu lykkju í umferð. Nú eru lykkjur auknar út fyrir opi fyrir þumalfingur með því að auka út 1 lykkju hvoru megin við lykkju með merki í – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Aukið svona út utan við útauknar lykkjur í 4. hverri umferð alls 6-7-8 sinnum á hæðina = 59-63-67 lykkjur. Þegar stykkið mælist 16-17-18 cm (útaukningu fyrir opi fyrir þumalfingur á að vera lokið), setjið lykkju með merki í + útauknar lykkjur + 1 lykkju hvoru megin við þessar lykkjur á þráð fyrir þumalfingur = 15-17-19 þumallykkjur. Prjónið hringinn eins og áður og fitjið jafnframt upp 3 nýjar lykkjur á prjóninn yfir lykkjur af þræði = 47-49-51 lykkjur. Prjónið þar til 1 umferð er eftir áður en stykkið mælist ca 12-11½-11 cm frá þar sem nýjar lykkjur voru fitjaðar upp yfir opi fyrir þumalfingur – endið eftir 3. umferð í A.1. Stykkið mælist nú ca 28-28½-29 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem fækkað er um 5 lykkjur jafnt yfir 23 lykkjur í A.1 = 42-44-46 lykkjur eftir. Nú byrjar úrtaka efst á vettlingi. Setjið 1 merki í hvora hlið á vettlingi þannig: Setjið 1 merki í 21.-22.-23. lykkju í umferð og 1 merki í síðustu lykkju í umferð. Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði merkin – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-5-6 sinnum og síðan í hverri umferð alls 4 sinnum = 10-8-6 lykkjur eftir. Klippið þráðinn frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Vettlingurinn mælist ca 32-33½-35 cm ofan frá og niður. Prjónið þumalfingur á sama hátt og á vinstra vettlingi. ÞÆFING: Til þess að koma í veg fyrir að þumalfingurinn þæfist saman, snúið vettlingnum við og setjið lítinn plastpoka í þumalfingurinn. Festið hann með nælu – ATH: Festið næluna lóðrétt niður að topp á þumalfingri þannig að auðvelt sé að taka hana úr eftir þæfingu. Snúið vettlingnum til baka þannig að vettlingurinn þæfist með réttuna út. Verkið má þæfa í þvottavél eða þurrkara – lesið útskýringarnar hér að neðan. Munið: Síðar er stykkið þvegið eins og hver önnur ullarflík Í ÞVOTTAVÉL: Þvottavélar þæfa mismunandi. Ef stykkið hefur þæfst of lítið skaltu bleyta það og prófa að þæfa það aftur. Ef stykkið hefur þæfst of mikið skaltu teygja stykkið í rétta stærð á meðan það er enn blautt GERIÐ ÞANNIG: Settu stykkið í þvottavélina, notaðu þvottakerfi sem tekur um 40 mínútur (ekki ullarþvottakerfi). Þvoðu við 40°C án forþvottar - sápa er valfrjáls. Eftir þvott skaltu móta stykkið á meðan það er enn blautt. Í ÞURRKARA: Að þæfa stykki í þurrkara gefur góða stjórn á því hversu mikið stykkið þæfist. Hægt er að opna þurrkarann á meðan á ferlinu stendur til að athuga stærð verksins. Ef stykkið hefur þæfst of lítið skaltu bleyta það og prófa að þæfa það aftur. Ef stykkið hefur þæfst of mikið skaltu teygja stykkið í rétta stærð á meðan það er enn blautt. GERIÐ ÞANNIG: Leggið stykkið allt í bleyti í vatn. Setjið stykkið síðan í þurrkara og byrjið að þurrka. Þurrkið þar til stykkið er í þeirri stærð sem óskað er eftir - athugið á meðan á ferlinu stendur. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #findthemagicmittens eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 19 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 225-15
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.