Julia skrifaði:
Kann es sein, dass die Anleitung fehlerhaft ist? Die Längsstriche sind FM oder? Und bei A3 das erste Dreifach-Reliefstäbchen ist eigentlich das mit dem Kreis und nicht mit der Raute, oder? Wenn ich nach dem 1. Dreifach-Reliefstäbchen ein Stäbchen in die nächste Masche häkeln soll, dann hat der Rapport 6 Maschen und nicht 5. Das ergibt alles keinen Sinn. Ich verstehe die Anleitung leider überhaupt nicht. Danke für die Hilfe.
30.09.2023 - 20:33DROPS Design svaraði:
Liebe Julia, bei der 5. Reihe ja stimmt - dieses Dreifachstäbchen wird mit 1 Stäbchen zusammengearbeitet so sind es nur 1 Masche. Viel Spaß beim häkeln!
02.10.2023 - 10:12
Ingrid Bär skrifaði:
Das Muster ist echt klasse, das werde ich auf jeden Fall mal ausprobieren, gibt schöne hausschuhe für den Winter. Danke schön
28.08.2022 - 08:42
Crickx Lauranne skrifaði:
Bonjour, serait-il possible d'avoir l'image avec les mesures ? Car j'ai suivi le tuto à la lettre pour le 41-43 et c'est fort fort large au niveau du molet alors que niveau hauteur et le pied en lui-même c'est impeccable. Merci 😊
05.10.2021 - 21:03DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Crickx, nous n'avons pas de schéma pour les chaussons, pensez à bien vérifier et surtout conserver votre tension en largeur, vous devez avoir 17 brides = 10 cm. Bon crochet!
06.10.2021 - 07:27
Northern Knight#northernknightslippers |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Heklaðar tátiljur úr 2 þráðum DROPS Fabel. Stykkið er heklað ofan frá og niður með stuðlakróks-mynstri. Stærð 35 - 43.
DROPS 227-64 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJUR: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með stuðlum eru heklaðar 3 loftlykkjur. Þessar loftlykkjur koma ekki í stað fyrsta stuðuls, heldur eru heklaðar sem viðbót. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er hekluð 1 loftlykkja. Þessi loftlykkja kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju, heldur er hekluð sem viðbót. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 : Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 52 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 2) = 26. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað jafnt yfir með því að hekla 25. og 26. hverja lykkju saman – sjá ÚRTAKA-2. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2: Heklið 2 fastalykkjur saman í 1 fastalykkju þannig: Stingið heklunálinni í gegnum fyrstu lykkjuna og sækið þráðinn, stingið heklunálinni niður í gegnum næstu lykkju og sækið þráðinn (= 3 lykkjur um heklunálina), bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri). Heklið 2 stuðla saman í 1 stuðul þannig: * bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað ofan frá og niður, frá miðju að aftan. Stroffið er heklað í hring, en snúið er við í hverri umferð þannig að önnur hver umferð er hekluð frá réttu og röngu. Hællinn er heklaður fram og til baka. Síðan er fóturinn heklaður í hring, en snúið er við í hverri umferð alveg eins og á stroffi. STROFF / LEGGUR: Heklið 53-57-59 loftlykkjur – sjá LOFTLYKKJUR, með heklunál 4 með 1 þræði í hvorum lit í DROPS Fabel og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð. Heklið 3 loftlykkjur – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 stuðul í hverja af 52-56-58 loftlykkjum = 52-56-58 stuðlar + 3 loftlykkjur til að snúa við með. Heklið umferð með ör í A.1 hringinn í umferð, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. Snúið stykkinu og heklið næstu umferð frá röngu. Haldið áfram fram og til baka svona með því að hekla aðra hverja umferð frá réttu og röngu. Þegar stykkið mælist 4 cm – stillið af að fækkað sé um 2-1-3 fastalykkjur jafnt yfir í síðustu umferð frá röngu – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 = 50-55-55 lykkjur. Nú er mynstur heklað frá réttu þannig: Heklið A.2 yfir fyrstu lykkju, A.3 yfir næstu 45-50-50 lykkjur (= 9-10-10 mynstureiningar með 5 lykkjum), heklið fyrstu 4 lykkjur í A.4 – síðasta lykkjan í A.4 sýnir fyrstu lykkju í umferð, þ.e.a.s. A.2 og er með í mynsturteikningu til að sýna hvernig stuðlakróka-lykkjurnar eru heklaðar í lok umferðar. Haldið svona áfram með aðra hverja umferð frá réttu og röngu. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina, endurtakið mynstur A.x á hæðina. Endurtakið A.x þar til stykkið mælist ca 18-18-18 cm eða að óskaðri lengd (nú eru eftir ca 7-8-9 cm fyrir hæl) – stillið af að endað sé eftir heila mynstureiningu af A.x. Klippið þráðinn. Nú eru sett 2 prjónamerki í stykkið séð frá réttu þannig: Byrjið í byrjun á umferð, hoppið yfir fyrstu 20-20-20 lykkjurnar, setjið eitt prjónamerki hér (síðar byrjar umferðin frá þessu prjónamerki), hoppið yfir næstu 16-16-16 lykkjur (= ofan á fæti), setjið eitt prjónamerki hér. Nú eru 14-19-19 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. HÆLL: Nú er heklað áfram fram og til baka. Byrjið eftir 16-16-16 lykkjur ofan á fæti og heklið frá röngu þannig – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR: Heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 34-39-39 lykkjum (hoppið yfir 3 loftlykkjur sem voru í byrjun á umferð mitt að aftan) og fækkið jafnframt um 6-9-7 lykkjur jafnt yfir = 28-30-32 fastalykkjur fyrir hæl. Snúið og heklið frá réttu með 1 stuðul í hvern stuðul. Haldið áfram fram og til baka með fastalykkjum frá röngu og stuðlum frá réttu þar til stykkið mælist 5-6-7 cm frá skiptingu (= 23-24-25 cm alls) – stillið af að næsta umferð sé hekluð frá röngu. Heklið næstu umferð þannig: Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 8-9-10 lykkjum, heklið næstu 2 fastalykkjur saman – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2, * 1 fastalykkja í næsta stuðul, heklið næstu 2 fastalykkjur saman *, heklið frá *-* alls 3 sinnum, heklið 1 fastalykkju í hverja af síðustu 9-10-11 lykkjum = 24-26-28 fastalykkjur. Heklið næstu umferð þannig: Heklið 1 stuðul í hverja af fyrstu 6-7-8 lykkjum, * heklið 1 stuðul í næsta stuðul, heklið næstu 2 stuðla saman *, heklið frá *-* alls 4 sinnum, heklið 1 stuðul í hverja af síðustu 6-7-8 lykkjum = 20-22-24 stuðlar. Setjið eitt prjónamerki mitt í þessa umferð (= mitt aftan á hæl). HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT. Stykkið mælist ca 25-26-27 cm alls. Klippið þráðinn þannig að það verði ca 25 cm eftir fyrir frágang. FRÁGANGUR: Brjótið niður 20-22-24 kant framan á hæl þannig að stykkið liggi tvöfalt og saumið saman síðustu umferð sem var hekluð mitt undir fæti. Festið þráðinn FÓTUR: Byrjið mitt undir fæti (þ.e.a.s. þar sem saumað var) og heklið frá röngu þannig: Heklið 12-13-14 fastalykkjur jafnt yfir meðfram hlið á hæl þar til 1 cm er eftir á undan 16-16-16 lykkjum á fæti, heklið 1 fastalykkju, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 fastalykkju til viðbótar á undan 16-16-16 lykkjum, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar lykkjur á heklunálinni (= 1 lykkja færri = 13-14-15 fastalykkjur frá miðju að neðan og upp að stroffi), heklið mynstur eins og áður yfir næstu 16-16-16 lykkjur á fæti, heklið meðfram hlið á hæl í annarri hliðinni þannig: Heklið 1 fastalykkju, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 fastalykkju til viðbótar, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar lykkjur á heklunálinni (= 1 lykkja færri), heklið 12-13-14 fastalykkjur jafnt yfir niður að byrjun á umferð = 42-44-46 lykkjur. Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið 1 stuðul í hverja lykkju yfir fyrstu 13-14-15 stuðla og fækkið jafnframt um 3 stuðla jafnt yfir, heklið mynstur eins og áður yfir 16-16-16 lykkjur ofan á fæti þannig – stillið af að byrjað sé í réttri umferð í mynsturteikningu: Heklið A.2 yfir fyrstu lykkju, A.3 yfir næstu 10 lykkjur, A.4 yfir næstu 5 lykkjur, heklið 1 stuðul í hverja lykkju yfir síðustu 13-14-15 stuðla og fækkið jafnframt um 3 stuðla jafnt yfir = 36-38-40 stuðlar. Haldið áfram fram og til baka með mynstri yfir 16-16-16 lykkjur ofan á fæti og aðra hverja umferð með stuðlum og fastalykkjum yfir þær lykkjur sem eftir eru í umferð (nú er hekluð önnur hver umferð frá réttu og röngu eins og áður). Þegar stykkið mælist 18-20-23 cm mælt frá prjónamerki mitt aftan á hæl – stillið af að endað sé eftir heila mynstureiningu með A.x á hæðina, heklið þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju. UMFERÐ 2: Heklið 1 stuðul í hverja lykkju og fækkið jafnframt um 0-2-4 lykkjur jafnt yfir = 36 lykkjur. UMFERÐ 3: Heklið * 1 fastalykkju í hvora af fyrstu/næstu 2 lykkjur, heklið næstu 2 fastalykkjur saman *, heklið frá *-* alls 9 sinnum = 27 lykkjur. UMFERÐ 4: Heklið * 1 stuðul í fyrstu/næstu lykkju, heklið næstu 2 stuðla saman *, heklið frá *-* alls 9 sinnum = 18 stuðlar. UMFERÐ 5: Heklið allar 2 fastalykkjur saman 2 og 2 = 9 fastalykkjur. Fóturinn mælist ca 22-24-27 cm. Klippið þráðinn og þræðið upp og niður í gegnum lykkjurnar í kringum opið framan á tátilju. Herðið á þræði, þannig að opið lokist og festið vel. Heklið aðra tátilju á sama hátt. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #northernknightslippers eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 15 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 227-64
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.