-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
= sl frá réttu, br frá röngu | |
= 2 l slétt saman | |
= takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana br (með bandið aftan við stykkið), 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir | |
= sláið uppá prjóninn á milli 2 l | |
= takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana br (með bandið aftan við stykkið), 2 l slétt saman og steypið óprjónuðu l yfir | |
= sláið 2 uppá prjóninn á milli 2 l, í næstu umf er fyrri uppslátturinn prjónaður slétt, seinni uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt á meðan fellt er af. |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Autumn Leaf |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Prjónað sjal úr DROPS Lace eða DROPS BabyAlpaca Silk með gatamynstri og blöðum.
DROPS 164-41 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.23. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR: Hægt er að prjóna sjalið í öðrum grófleika prjóna en það sem gefið er upp hér. Notið fínni prjóna fyrir minna sjal og grófari prjóna fyrir stærra sjal. Sjalið er strekkt og formað til í lokin, þá koma allar ójöfnur til með að jafnast út. FORMUN: Ef skipt er um annað garn en Lace frá garnhópi A þarf ekki að strekkja sjalið út í lokin í rétta stærð, heldur er nóg að leggja það til í rétt form. Látið það þorna. Endurtakið þetta í hvert skipti sem sjalið er þvegið. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna til þess að fá pláss fyrir allar lykkjurnar. LESIÐ LEIÐBEININGAR. SJAL: Fitjið upp 9 l með Lace eða BabyAlpaa Silk á hringprjóna nr 3 og prjónið 1 umf sl frá röngu. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan þannig (= rétta): 3 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 3 l sl = 13 l. Setjið 1 prjónamerki í miðjulykkju og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Aukið síðan út um 4 l í hverri umf frá réttu þannig: Aukið út um 1 l innan við 3 kantlykkjur í hvorri hlið og 1 l hvoru megin við miðjulykkju. Aukið út alls 5 sinnum, það eru 33 l á prjóni. Prjónið nú áfram eftir A.1 þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, A.1 yfir næstu 13 l, 1 l sléttprjón (= miðjulykkjan er alltaf prjónuð í sléttprjóni), A.1 yfir 13 l og 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Prjónið A.1 1 sinni á hæðina = 61 l á prjóni (þ.e.a.s. það eru 30 l hvoru megin við miðju-l). Prjónið síðan eftir A.2-A.4 þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, A.2 yfir 7 l, A.3 yfir 14 l, A.4 yfir 6 l, 1 miðjulykkja, A.2 yfir 7 l, A.3 yfir 14 l og A.4 yfir 6 l og 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Þegar A.2-A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er pláss fyrir 1 endurtekningu af A.3 á milli A.2 og A.4. haldið áfram að prjóna eftir mynstri þar til mynstur A.2-A.4 hefur verið prjónað alls 3 sinnum á hæðina = 145 l á prjóni (þ.e.a.s. nú eru 72 l hvoru megin við miðjulykkju). Prjónið síðan eftir A.5-A.10 þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, A.5 yfir 11 l, A.6 er endurtekið þar til 10 l eru eftir á undan miðjulykkju, A.7 yfir 10 l, 1 miðjulykkju, A.8 yfir 10 l, A.9 er endurtekið þar til 14 l eru eftir, A.10 yfir 11 l og 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Prjónið A.5-A.10 1 sinni á hæðina = 2147 l á prjóni (þ.e.a.s. það eru 108 l hvoru megin við miðjulykkju). Prjónið eftir mynstri A.11-A.16 þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, A.11 yfir 4 l, A.12 er endurtekið þar til 5 l eru eftir á undan miðjulykkju, A.13 yfir 5 l, 1 miðjulykkju, A.14 yfir 5 , A.15 er endurtekið þar til 7 l eru eftir, A.16 yfir 4 l og 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Prjónið mynstur A.11-A.16 1 sinni á hæðina = 267 l á prjóni (þ.e.a.s. það eru 133 l hvoru megin við miðjulykkju). Prjónið mynstur A.17-A.23 þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, A.17 yfir 4 l, A.18 er endurtekið þar til 6 l eru eftir á undan miðjulykkju, A.19 yfir 3 l, A.20 yfir 7 l (miðjulykkjan er mitt í þessum lykkjum), A.21 yfir 3 l, A.22 er endurtekið þar til 7 l eru eftir, A.23 yfir 4 l og 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Þegar mynstrið hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er fellt laust af. ATH! Tvöfaldi uppslátturinn í síðustu umf í mynstri er prjónaður á meðan fellt er af þannig: 1. uppslátturinn er prjónaður slétt, 2. uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt. STREKKING: Leggið sjalið í volgt vant þar til það er orðið gegnblautt. Pressið vatnið varlega úr sjalinu – það á ekki að vinda, rúllið síðan sjalinu inn í handklæði og pressið til þess að ná burtu meira vatni – sjalið á nú að vera aðeins rakt. Ef BabyAlpaca Silk er notað – LESIÐ FORMUN! Leggið sjalið á mottu eða á dýnu – dragið það varlega út í rétta stærð og notið nálar til að festa það með, dragið í hornin á blöðunum meðfram affellingarkantinum. Látið sjalið þorna. Endurtakið í hvert skipti sem sjalið er þvegið. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 309 vörulista og 11518 mynstur - 7032 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (56)
Renate Heesakkers skrifaði:
\"Als A.2-A.4 1 keer in de hoogte is gebreid, is er ruimte voor nog 1 herhaling van A.3 tussen A.2 en A.4. \"\r\nIk begrijp deze instructie niet.\r\nBrei ik over de hele lijn patroon A3 of alleen tussen A2-A4, zodat ik 2 afzonderlijke delen heb ?
02.08.2024 - 14:47DROPS Design svaraði:
Dag Renate,
Je breit A.3 tussen A.2 en A.4, maar als je de patronen 1 keer in de hoogte hebt gebreid, dan heb je meer steken op de naald en kun je A.3 2 keer tussen A.2 en A.4 breien.
03.08.2024 - 10:59Kassalia Maria skrifaði:
Liebes Team wenn ich die ersten 13M gestrickt habe bei A1 bleiben noch 7M übrig wie komme ich weiter vielen dank
01.03.2023 - 09:51DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Kassalia, wenn Sie so stricken: 3 M kraus rechts, A.1 (= 13 M), 1 M glatt rechts (Mittel-M), A.1 (=13M) und 3 M kraus rechts stricken Sie: 3+13+1+13+3=33 Maschen (nach der 1. Reihe haben Sie 4 Maschen zugenommen). Schauen Sie mal ob 1. Reihe in A.1 richtig über 13 M gestrickt wurde. Viel Spaß beim stricken!
01.03.2023 - 10:07Kassalia Maria skrifaði:
Hallo liebes Team ich versuche zum ersten mal ein solches tuch zu stricken Frage wird es von oben nach unten gestrickt ? Ich komme nicht klar bei A1 muß ich es doppelt stricken . VIELEN DANK
28.02.2023 - 17:21DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Kassalia, ja genau, das Tuch wird von oben nach unten gestrickt. Zuerst sollen Sie krausrechts stricken und 4 Maschen bei jeder Hinreihe zunehmen bis 33 M sind. Dann stricken Sie so: 3 M kraus rechts, A.1 (= 13 M), 1 M glatt rechts (Mittel-M), A.1 (=13M) und 3 M kraus rechts. A.1 wird so beidseitig von der Mittel-M gestrickt. Viel Spaß beim stricken!
28.02.2023 - 17:59Fontaine skrifaði:
Bonjour, Les photos du modèle le montre en jersey endroit et les explications le donnent en point mousse. Je viens de le commencer, il ne correspond pas aux photos.... je suis seule dans ce cas ?
13.04.2022 - 23:53DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Fontaine, les tous premiers rangs du châle se tricotent au point mousse, puis lorsque l'on tricote les diagrammes, il est bien indiqué de tricoter: 1 m end sur l'endroit, env sur l'envers autrement dit jersey endroit. Ou bien ai-je mal compris votre question?
19.04.2022 - 14:22Milalala skrifaði:
Oh, das hilft mir leider gar nicht: A2 beginnt eben nicht mit einem Umschlag, sondern mit einer (glatt) rechtsgestrickten Masche, d. h. am Anfang: drei kraus rechts gestrickte Maschen, dann eine glatt rechtsgestrickte Masche aus A2, dann der Umschlag. Ebenso bei der Mittelmasche: Mittelmasche, dann eine dann eine glatt rechtsgestrickte Masche aus A2, dann der Umschlag. So sieht es die Anleitung vor, was jedoch falsch aussieht.
15.12.2021 - 11:20DROPS Design svaraði:
Liebe Milalala, A.2 beginnt doch mit einem Umschlag und wird so über 7 Maschen gestrickt (Hinreihen liest man rechts nach links): 1 Umschlag, 1 re, 2 M re zs, 1 Umschlag, 1 re, 2 M re zs, 1 Umschlag, 1 re = es sind jetzt 8 M. Die MittelMasche wird nach dem Umschlag A.4 gestrickt, dann nach dieser Masche stricken Sie A.2 und damit immer bei Hinreihen mit 1 Umschlag anfangen. Kann das Ihnen helfen?
15.12.2021 - 11:55Milalala skrifaði:
Im Anleitungsteil, in dem man 3 + A2 + A3 + A4 + 1 + A2 + A3 + A4 + 3 stricken soll, habe ich folgende Fragen: 1. Stimmt das so, dass es nicht symmetrisch ist? Soll es wirklich nicht 3 + A2 + A3 + A4 + 1 + A4 + A3 + A2 + 3 sein? 2. In diesem Teil schließt die Mittelmasche zum ersten Mal nicht an einen Umschlag an, was ich nicht verstehe: Aus A4 kommend gibt es einen Umschlag, dann die Mittelmasche, aber mit A2 fortfahrend kommt wieder eine rechte Masche. Kann das stimmen? Hilfe!
14.12.2021 - 20:59DROPS Design svaraði:
Liebe Milalala, so stimmt es, die beiden Seiten sind beidseitig von der Mittelmasche gleich: A.2-A.3-A.4. So stricken Sie weiter über A.1. Am Anfang der Reihe gibt es 1 Umschlag (vor der 1. Masche in A.2), am Ende A.4 vor der Mittelmasche, am Anfang A.2 nach der Mittelmasche und am Ende der Reihe am Ende A.4. Kann das Ihnen helfen?
15.12.2021 - 08:00Julie skrifaði:
Bonjour.pour être sure de la taille, j'ai fait des calculs :il y a effectivement un problème. Pour un échantillon de 24*32 -> 10*10, on devrait tricoter 224 rangs pour avoir 70 cm au milieu du dos (et 140 d envergure). En faisant la somme des rangs des motifs ( A1, 3*A2, A5, A11, A17), on obtient 160 rangs (soit 50 cm au lieu de 70cm). Il semble difficile d étirer le châle de 50 à 70 juste en le bloquant. La photo aussi est plus cohérente avec les 50 cm, sauf si la femme mesure 2.5m
23.03.2021 - 18:17DROPS Design svaraði:
Bonjour Julie, un modèle ajouré de ce type ne peut pas se recalculer ainsi, le milieu dos (le long de la maille centrale), vous n'aurez que des jours, et après blocage, les mesures seront plus que les 32 rangs de l'échantillon. Vous pourrez trouver les photos de différentes tricoteuses ici, sur Ravery. Bon tricot!
24.03.2021 - 09:34Tewia skrifaði:
Bonjour, je suis arrivée à la fin de la troisième étape où je dois avoir 72 mailles de chaque côté de la maille centrale. Mais j'arrive à 86 mailles, je n'arrive pas à comprendre pourquoi. J'ai pourtant suivi les instructions et fais 3 fois en hauteur A2-A4. J'obtiens bien les motifs de feuilles régulier. Pouvez-vous m'aider? Merci.
07.02.2021 - 17:08DROPS Design svaraði:
Bonjour Tewia, il semble que vous avez tricoté 1 fois de trop les diagrammes en hauteur, après 3 motifs en hauteur vous devez avoir: 3 m point mousse, 14 m de A.2, 42 m de A.3, 13 m de A.4, 1 m centrale, 14 m de A.2, 42 m de A.3, 13 m de A.4, et 3 m point mousse = 145 m et 72 de chaque côté de la m centrale - Après la 1ère fois, vous avez 89 m, après la 2ème fois, vous avez 117 m et après la 3ème fois, 145 m au total. Bon tricot!
08.02.2021 - 10:24Lynne skrifaði:
Is there a photo of this shawl laid flat. I need to view the placement of graphs A2, A3 and A4. at the top of the garment. Thankyou
20.07.2020 - 11:01DROPS Design svaraði:
Dear Lynne, we do not have much pictures - work A.2-A.4 over the stitches of A.1 = there are 27sts in each A.1 after last row in diagram, work then these 27 sts with: A.2 (= 7 sts), A.3 (= 14 sts) and A.4 (= 6 sts). Continue the 3 sts in garter stitch on each side and the middle stitch in stocking stitch. Happy knitting!
29.07.2020 - 08:09Joëlle Gac skrifaði:
Oui ,il est magnifique ! Mais trop petit à mon goût . J'ai utilisé la laine et la grosseur d'aiguilles recommandées et j'obtiens un châle plus petit que ce que vous avez dit même après l'avoir bloqué . Je ne suis pas une débutante et en principe les échantillons sont respectés . Aux personnes qui souhaitent le réaliser ,tenez compte de ma remarque .
09.07.2020 - 19:06DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Gac, il doit mesurer 140 cm d'envergure, donc peut être vous l'auriez souhaité plus grand? Si votre tension était juste = 24 m x 32 rangs jersey, vous devriez avoir les bonnes mesures finales. Bon tricot!
10.07.2020 - 08:30