Í þessu DROPS myndbandi sýnum við hvernig hægt er að prjóna Indverskar krosslykkjur. Í þessu sýnishorni höfum við fitjað upp 32 lykkjur (verður að vera deilanlegt með 8). Við höfum nú þegar prjónað mynstureiningu (1-12 umferð) og umferð 1-4. Í myndbandinu byrjum við á umferð 5 í annað sinn.
UMFERÐ1-4: Prjónið garðaprjón.
UMFERÐ 5: Prjónið 1 lykkju slétt, * prjónið næstu lykkju slétt án þess að sleppa lykkju niður af prjóni, en sláið 4 sinnum uppá prjóninn áður en lykkjan er prjónuð til loka (allir uppslættir eru látnir falla niður í næstu umferð). Haldið svona áfram út umferðina, en síðasta lykkjan er prjónuð slétt.
Snúið við *.
UMFERÐ 6: Takið fyrstu lykkju óprjónaða yfir á hægri prjón. Takið næstu lykkju óprjónaða yfir á hægri prjón og takið næstu 3 uppslætti yfir á hægri prjón. Haldið svona áfram þar til 8 lykkjur eru á hægri prjón, dragið lykkjurnar til þannig að þær verði jafn langar. Takið fyrstu 4 lykkjur á hægri prjóni yfir á vinstri prjón, yfir þær 4 síðustu lykkjur, setjið síðan 4 síðustu lykkjur á vinstri prjón (= 8 lausar lykkjur á vinstri prjón sem liggja í kross yfir hverja aðra). Passið uppá að þær liggi í réttri röð. Prjónið þessar 8 lykkjur slétt. Haldið svona áfram með 8 næstu lykkjur og 8 lykkjur á eftir það út umferðina.
UMFERÐ 7-10: Prjónið garðaprjón.
UMFERÐ 11: Prjónið eins og umferð 5.
UMFERÐ 12: Takið fyrstu lykkju óprjónaða yfir á hægri prjón. Takið næstu lykkju óprjónaða yfir á hægri prjón og takið næstu 3 uppslætti yfir á hægri prjón. Haldið áfram 2 sinnum til viðbótar = 4 langar lykkjur á hægri prjóni, dragið lykkjurnar til þannig að þær verði jafn langar. Takið 2 fyrstu lykkjur á hægri prjón yfir á vinstri prjón, yfir 2 síðustu lykkjur, setjið síðan 2 síðustu lykkjur á vinstri prjón (= 4 lausar lykkjur á vinstri prjón sem liggja í kross yfir hverja aðra). Passið uppá að þær liggi í réttri röð. Prjónið þessar 4 lykkjur slétt. Takið næstu 8 uppslætti og setjið á hægri prjón, dragið í lykkjurnar þannig að þær verði jafn langar. Takið fyrstu 4 lykkjur af 8 lykkjum yfir síðustu 4 lykkju yfir á vinstri prjón, takið síðan síðustu 4 l af hægri prjón yfir á vinstri prjón (= 8 langar lykkjur á vinstri prjón sem liggja í kross yfir hverja aðra). Prjónið þessar 8 lykkjur slétt. Haldið svona áfram með 8 næstu lykkjur og 8 lykkjur á eftir þær þar til eftir eru 4 langar lykkjur á hægri prjóni. Dragið í lykkjurnar til þess að þær verði jafn langar. Takið fyrstu 2 lykkjur af þeim 4 yfir síðustu 2 lykkjur, setjið síðustu 2 lykkjur á hægri prjóni yfir á vinstri prjón (= 4 lausar lykkjur á vinstri prjón sem liggja í kross yfir hverja aðra). Prjónið þessar 4 lykkjur slétt. Endurtakið umferð 1-12 að óskaðri lengd.
Fylgja þarf uppskrift til þess að geta fylgt myndbandinu eftir.
Þú finnur mynstur þar sem þessi aðferð er notuð með því að smella á myndirnar að neðan.
Mynstur þar sem þessi aðferð er notuð
Amei este ponto gostaria de aprender outros pontos
01.06.2016 - 03:12Hoi, gewoon breinaalden gebruiken, met rondbreinaalden blijf het achter de naald hangen en blijf je aan je draaden plukken. Verder een mooie steek
26.08.2015 - 10:28Mariam Jutta skrifaði:
I have tried this on a circular needle and it was very difficult to move the row with the loops...the loops tend to get stuck under and above each other when you try to push them back to the front and knit them off.........it seems best to use straight needles for projects that include this pattern, at least for the portions that include this pattern. I had a very frustrating time indeed :P
07.04.2015 - 10:00Vind het een mooi patroon en een heel duidelijke uitleg
12.09.2014 - 23:19Hejsa, har en opskrift på en bluse/trøje med indiske korssting?
19.08.2014 - 15:59Merci , je vais essayer encore ;-) Bonne année ( du cheval) et bon tricot
05.02.2014 - 21:21Susanne skrifaði:
Thank you for the demonstration. It was very clarifying.
30.01.2014 - 13:46Bonjour , je n'arrive pas à comprendre comment faire pour ne pas augmenter le nombre de maille à chaque fois que je faire le jeté :-/ le mien il a augmenté exponentiellement... Merci d'avance pour les explications ;-) bonne journée!
07.01.2014 - 08:47DROPS Design :
Bonjour Rivana, les jetés ne doivent pas être tricotés mais lâchés au rang suivant, les mailles sont ainsi plus longues mais vous devez bien conserver le même nombre de mailles à chaque fois. Bon tricot!
09.01.2014 - 17:29