DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7480.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Hey June

Hekluð poncho peysa með laskalínu úr DROPS Sky. Stykkið er heklað ofan frá og niður í vinkil, A-formi og gatamynstri. Stærð XS - XXL.

DROPS 213-35
DROPS Design: Mynstur sk-085
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250-250-300-300-350-400 g litur 03, ljós beige

HEKLFESTA:
16 stuðlar á breidd og 8 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 4,5.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7480.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LOFTLYKKJA:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum, skiptið út fyrsta stuðli með 3 loftlykkju.
Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð.
Umferðin sem byrjar með 1 loftlykkju í mynsturteikningu, byrjar með 3 loftlykkjum (sem koma í stað síðasta stuðul í umferð).
Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð.
Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum, skiptið út fyrstu fastalykkju með 1 loftlykkju.
Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun á umferð.

ÚTAUKNING:
Heklið 2 stuðla í sömu lykkju (= 1 stuðull fleiri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring, ofan frá og niður. Fyrst er berustykkið heklað. Síðan skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar sem heklað er síðan í hring hvert fyrir sig. Að lokum er heklaður kantur í hálsmáli.

BERUSTYKKI:
Heklið 96-96-104-104-112-112 loftlykkjur – sjá LOFTLYKKJA, með heklunál 4,5 með Sky og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju og aukið út 16-16-12-16-16-24 stuðla jafnt yfir – sjá HEKLLEIÐBEININGAR OG ÚTAUKNING = 112-112-116-120-128-136 stuðlar.

HEKLIÐ MYNSTUR A.1 TIL A.5 ÞANNIG:
Umferðin byrjar í skiptingunni á milli vinstri ermi og bakstykkis.
Heklið * A.1a (= 2 stuðlar) yfir 22-22-23-24-26-28 stuðla, A.2a (= 1 stuðull = mitt aftan/mitt framan), A.3a (= 2 stuðlar) yfir 22-22-23-24-26-28 stuðlar (= bakstykki/ framstykki), A.4a (= 1 stuðull), A.3a yfir 8 stuðla, A.5a (= 2 stuðlar = ermi) *, heklið *-* alls 2 sinnum.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Í 4. umferð er aukið út (í viðbót við mynsturteikningu) 0-2-2-4-4-6 stuðlar jafnt yfir á hvoru framstykki/bakstykki hvoru megin við miðju lykkju (þ.e.a.s. alls 0-4-4-8-8-12 lykkjur fleiri á hvoru framstykki/bakstykki) og 0-2-2-2-2-4 stuðlar jafnt yfir á hvorri ermi (= alls 0-12-12-20-20-32 lykkjur fleiri jafnt yfir og 40 lykkjur fleiri í A.2a/A.4a/A.5a) = 152-164-168-180-188-208 lykkjur.
Endurtakið mynstur á hæðina.
Þ.e.a.s. A.2a er heklað yfir miðju stuðul frá fyrri endurtekningu.
Í hvert skipti sem endurtekningin er gerð verða 6 stuðlar fleiri hvoru megin við miðju lykkjuna, sem er hekluð inn í mynstur A.1a/A.3a.
A.4a er heklað yfir fyrsta stuðul frá fyrri endurtekningu, þær 4 lykkjur sem eftir eru, eru heklaðar inn í mynstur A.3a.
A.5a er heklað yfir 2 síðustu stuðlana frá fyrri endurtekningu, þær lykkjur sem eftir eru, eru heklaðar inn í mynstur A.3a.
Þ.e.a.s. aukið er út um alls 8 lykkjur á hvorri ermi og 12 lykkjur á framstykki/bakstykki í hverri endurtekningu á mynstri á hæðina (= alls 40 lykkjur fleiri).
Í 8. umferð (þ.e.a.s. síðasta umferð á 2. endurtekningu) er aukið út (í viðbót við í mynsturteikningu) 0-2-2-4-4-6 stuðlar jafnt yfir á hvoru framstykki/bakstykki hvoru megin við miðjulykkju (þ.e.a.s. alls 0-4-4-8-8-12 lykkjur fleiri á hvoru framstykki/bakstykki) og 0-2-2-2-2-4 stuðlar jafnt yfir á hvorri ermi (= alls 0-12-12-20-20-32 lykkjur fleiri jafnt yfir og 40 lykkjur fleiri í A.2a/A.4a/A.5a) = 192-216-220-240-248-280 lykkjur.
Endurtakið síðan mynstrið áfram á hæðina.
Nú hafa verið heklaðar alls 15-15-17-19-21-21 umferðir, heklið 1 umferð til viðbótar eins og áður, en aukið út um 1 lykkju í hvorri ermi = 274-298-322-362-390-422 lykkjur.
Stykkið mælist ca 20-20-23-25-28-28 cm.
Setjið 4 prjónamerki í stykkið án þess að hekla þannig:
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, setjið 1 prjónamerki eftir 93-101-109-125-135-147 stuðlar (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki eftir 44-48-52-56-60-64 stuðla (= hægri ermi), setjið 1 prjónamerki eftir 93-101-109-125-135-147 stuðlar (= framstykki), þær lykkjur sem eftir eru í umferð (= 44-48-52-56-60-64 stuðlar) eru vinstri ermi.
Þessi prjónamerki merkja hvar berustykkið skiptist síðar.
Ef heklfestan passar ekki alveg á hæðina, þá er hægt að hekla áfram eins og útskýrt er að neðan þar til stykkið mælist 20-20-23-25-28-28 cm, en haldið áfram að auka út, þannig að fram- og bakstykki komi þá til með að verða aðeins breiðari.
Heklið e.t.v. þannig:
Haldið áfram með A.2a yfir miðjulykkju/miðjulykkjur (fer eftir því í hvaða umferð er heklað) á framstykki/bakstykki og A.1a/A.3a yfir þær lykkjur sem eftir eru.
Þegar stykkið mælist 20-20-23-25-28-28 cm skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Heklið eins og áður yfir lykkjurnar á bakstykki fram að prjónamerki, heklið 8 loftlykkju, hoppið yfir lykkjur á milli 2 prjónamerkja (= ermi), heklið eins og áður yfir lykkjur á framstykki fram að næsta prjónamerki, heklið 8 loftlykkjur, hoppið yfir síðustu lykkjur á milli prjónamerkja (= ermi).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8 lykkja undir hvorri ermi. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að fækka lykkjum hvoru megin við þau.
Haldið áfram með mynstur eins og áður, þ.e.a.s. aukið út mitt fram og mitt aftan, á meðan lykkjum er fækkað undir hvorri ermi með því að hekla mynsturteikningu A.6a og A.7a þannig:
Heklið þar til lykkjurnar í A.6a eru eftir á undan prjónamerki (þetta fer eftir hvar í mynstrinu lykkjum er fækkað fyrir fram- og bakstykki/ermar), heklið A.6a, heklið A.7a.
Heklið svona hvoru megin við hvert prjónamerki. Lykkjum er fækkað í A.6a og A.7a og aukið út í A.2a mitt fram/mitt aftan.
Þegar 1 eining/4 umferðir hafa verið heklaðar á hæðina hefur verið fækkað um 16 lykkjur og aukið út 24 lykkjur, þ.e.a.s. það er aukið út um 8 lykkjur í hverri endurtekningu. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 24 cm frá skiptingu, stillið af að endað sé með 2 umferðum einungis með stuðlum – eða heklið áfram að óskuðu máli.

ERMI:
Festið þráðinn með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju undir ermi, heklið 1 stuðul í hverja af 4 loftlykkjum undir ermi, heklið mynstur eins og áður yfir 44-48-52-56-60-64 lykkjur sem hoppað var yfir fyrir ermi og endið með 1 stuðul í hverja af síðustu 4 loftlykkjum undir ermi = 52-56-60-64-68-72 stuðlar.
Haldið áfram með A.3a þar til stykkið mælist 32-33-31-30-27-28 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd – ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykki) – stillið af eftir 2 umferð einungis með stuðlum.
Heklið nú 1 kant í kringum ermi þannig:
Heklið * 1 fastalykkju, 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm *, heklið frá *-* í kringum alla ermina, stillið af að endað sé með 3 loftlykkjum og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju.
Klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina á sama hátt.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Heklið kant í kringum hálsmál þannig: Byrjið mitt ofan á öxl, festið þráðinn með 1 keðjulykkju í 1. lykkju. Heklið * 1 fastalykkju í næstu lykkju, 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm *, heklið frá *-* í kringum hálsinn þannig, stillið af að umferðin endar með 3 loftlykkjum og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. Passið uppá að kanturinn verði ekki stífur í hálsmáli, hoppið e.t.v. yfir færri lykkjur. Klippið frá og festið þráðinn.

Mynstur

symbols = stuðull í lykkju
symbols = stuðull um lykkju
symbols = loftlykkja
symbols = heklið 2 stuðla saman þannig: Heklið 1 stuðul í næsta stuðul, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul í næsta stuðul, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er hann dreginn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni (= 1 stuðull færri)
symbols = heklið 2 stuðla saman þannig: Heklið 1 stuðul um næstu loftlykkju, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul í næsta stuðul, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er hann dreginn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni (= 1 stuðull færri)
symbols = heklið 2 stuðla saman þannig: Heklið 1 stuðul um næsta stuðul, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul um næstu loftlykkju, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er hann dreginn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni (= 1 stuðull færri)
symbols = þessi umferð hefur nú þegar verið hekluð, sýnir bara hvernig á að hekla næstu umferð í lykkjurnar
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 213-35

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (61)

country flag Susanne Daniel wrote:

Tycker hela beskrivningen är svår att förstå. Hur ska jag öka med 40 maskor i A2a,A4a,A5a Jag virkar minsta storleken

24.11.2023 - 19:46

DROPS Design answered:

Hei Susanne. Når du hekler 4. omgang skal det i noen str. øke jevnt fordelt, men ikke i den minste str. du hekler. Så når du har heklet 4. omgang av diagrammene har du økt 40 masker. A.2 starter med 1 maske og når du har heklet 4. omgang i A.2a har du økt med 12 masker x 2 steder = 24 økte masker. A.4 starter med 1 maske og når du har heklet 4. omgang i A.4a har du økt med 4 masker x 2 steder = 8 økte masker. A.5 starter med 2 masker og når du har heklet 4. omgang i A.5a har du økt med 4 masker x 2 steder = 8 økte masker. Tilsammen har du da økt med 24 + 8 + 8 = 40 masker. mvh DROPS Design

27.11.2023 - 08:35

country flag Antonella wrote:

Non ho ricevuto una risposta corretta alla mia domanda.Consiglio di rivedere le spiegazioni in alcuni punti poco chiare forse a causa della traduzione dall'originale . Dovrò rinunciare e disfare il maglione che mi piaceva molto

20.11.2023 - 10:41

country flag Antonella wrote:

Le diminuzioni dei sottomanica degli schemi a6a e a7a quante volte vengono ripetute? perchè a sinistra alla fine del giro non ci sono più maglie a meno di non spostare l'inizio del giro successivo. Però poi non si corre il rischio di non avere un lavoro simmetrico?

07.11.2023 - 08:17

DROPS Design answered:

Buonasera Antonella, deve lavorare come stabilito fino a quando il lavoro misura 24 cm. Buon lavoro!

19.11.2023 - 19:47

country flag Karin wrote:

Hej, Gör storlek XXL, Hur kommer jag upp till 208 maskor på 4;e varvet?

22.10.2023 - 01:29

country flag Steffi wrote:

Ich mag ihre Anleitungen sehr, aber diese hier ist sehr verwirrend. es fängt schon an bei der 4. runde. es ist einfach zu kompliziert geschrieben. die zusätzlichen zunahmen hätte man ruhig mal in einem kleinen schema zeigen können. GsD habe ich noch nicht so viel gehäkelt, so reute mich das auftrennen nicht so sehr. Die fragen hatte ich mir alle durchgelesen, aber auch diese konnten mir nicht weiterhelfen. sehr schade. ich werde mich an etwas anderem versuchen

29.08.2023 - 16:43

country flag Claire Hackwood wrote:

Hi there, I've finished the yoke and I am at the point where you add markers to divide the body and sleeves. I've put them in after the number of stitches stated, but then it looks like the front and back mid points won't line up and lie centrally. Should there be an even number of stitches either side of the mid stitch in A.2, i.e. for small size 50 stitches either side of A.2 on front before sleeves begin?

23.08.2023 - 00:40

DROPS Design answered:

Dear Mrs Hackwood, in first size, you should have: 93 sts for front and back piece = 40 sts A.1a, 13 sts A.2a, 40 sts A.4a and 44 sts for each sleeve = 5 sts A.4a, 32 sts A.3a + 1 st increased, 6 sts A.5a. The middle stitch in A.2 should be still the middle stitch on front/back piece. Hope it can help. Happy crocheting!

23.08.2023 - 09:49

country flag Regina Steinmetz-Rieth wrote:

Hallihallo, kann ich den Poncho auch aus 100% Baumwolle (170m/50g) häkeln oder muss ich da sehr viel umändern? dankeschön

19.05.2023 - 21:05

DROPS Design answered:

Liebe Frau Steinmetz-Rieth, solange Ihre Maschenprobe (16 Stächen x 8 Reihen = 10 x 10 cm) stimmt, dann können Sie dieses Garn benutzen, beachten Sie nur, daß wegen verschiedene Zusammensetzung die Textur verschieden wird. Viel Spaß beim häkeln!

22.05.2023 - 08:15

country flag Jessica wrote:

Hallo, bin am Rumpfteil: "Wenn 1 Rapport/ 4 Runden in der Höhe gehäkelt wurden, wurden 16 Maschen abgenommen und 24 Maschen zugenommen, d.h. insgesamt werden pro Rapport in der Höhe 8 Maschen zugenommen. Je Rapport/Seite lt Häkelschrift zähl ich A2a = 10 Zun, A6a = 3 Abn, A7a = 3 Abn und komme nicht auf 24 Zun -16 Abn=8 Zun sondern auf 20 Zun - 12 Abn=8 Zun. Ist das ein Schreibfehler in der Anleitung oder fehlen mir trotz gleichem Ergebnis Zun & Abn. Wenn ja, wo sollten die sein. Lg.

21.03.2023 - 00:04

DROPS Design answered:

Liebe Jessica, es wird 4 Maschen in A.6a und A.7a abgenommen (1. Reihe ist über 6 Stb gehäkelt, 2 Stb sind noch übrig nach der 4. Reihe) und 12 Stb sind in A.2a zugenommmen (= 1. Reihe wird über 1 Stb gehäkelt und es sind 13 Stb nach der 4.Reihe), so haben Sie: 4 Stb x 2 (Seiten) abgenommen und 12 Stb x 2 (Mitte vorne + hinten) = 24 Stb zugenommen. Viel Spaß beim häkeln!

21.03.2023 - 10:44

country flag Gerrie Van Dinteren wrote:

Tot de 4de toer klopt. Bij de vierde toer weet klopt het bij mij niet meer. Er staat dat ik moet meerderen en op 20 uitkom. Ik kom als ik het telpatroon volg niet verder dan 12. Er staat zelfs dat ik uiteindelijk 40 steken moet hebben. Hoe dan! En waar moet ik die dan meerderen. Ik zal best iets verkeerd doen maar wist ikmaar waar.

12.12.2022 - 18:15

DROPS Design answered:

Dag Gerrie,

In de 4e toer van de telpatronen meerder je 8 steken op elke mouw en 12 steken op het voorpand en het achterpand. Je meerdert daardoor 40 steken in totaal. Je meerdert de steken gelijkmatig verdeeld, zodat ze niet allemaal bij elkaar zitten. Na het meerderen heb je 192-216-220-240-248-280 steken in totaal. (192 steken in maat S, 216 steken in maat M, enzovoort)

15.01.2023 - 17:35

country flag Lena Hassel wrote:

Kan inte förstå detta mönster. Virkar M = 120 st efter första ökningen. Enligt mönstret ska man virka 23 st + 1 st( mitt fram/bak) det blir 4 gånger 23 +2= 96 . 120- 96= 24 , ingenstans står det att varje ärm ska vara 12 st? Stämmer min uträkning? Tänker jag rätt?

05.12.2022 - 17:03

DROPS Design answered:

Hei Lena. Har du sett feil på mskeantallet på str. M og L? I str. M hekles det 104 luftmasker, settes sammen til en ring og deretter hekles det 1 stav i hver luftmaske, samtidig som det økes 12 staver jevnt fordelt = 116 staver etter 1. økning. Nå hekles det A.1a (2 staver) over 23 staver + A.2a (1 stav), + A.3a (2 staver) over 23 staver + A.4a (1 stav) + A.3a over 8 staver + A.5a (2 staver) = 23+1+23+1+8+2=58 staver, gjenta dette 1 gang til = 58+58= 116 masker. mvh DROPS Design *, hekle fra *-* totalt 2 ganger.

12.12.2022 - 09:12