DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Searching for Spring Jacket

Prjónuð síð peysa úr DROPS Melody. Stykkið er prjónað í klukkuprjóni og sjalkraga. Stærð S - XXXL.

DROPS 207-41
DROPS Design: Mynstur ml-038
Garnflokkur D eða A + A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS MELODY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki D)
300-300-350-400-400-450 g litur 09, ljós sægrænn

PRJÓNFESTA:
9 lykkjur á breidd og 20 umferðir (10 umferðir taldar í sléttri lykkju) á hæð með klukkuprjóni með uppslætti = 10 x 10 cm.
13 lykkjur á breidd og 15 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 9: lengd 40 cm og 80 cm fyrir klukkuprjón.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 7: lengd 40 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 7: fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 6: fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS TRÉTALA, NR 512: 3 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6.

LEIÐBEININGAR:
Allur lykkjufjöldi sem gefinn er upp þegar klukkuprjón er prjónað er án uppsláttar þar sem uppslátturinn tilheyrir sléttu lykkjunni og er ekki talinn sem 1 lykkja.

AFFELLING (á við um klukkuprjón):
Til að koma í veg fyrir að affeellingarkanturinn verði stífur, fellið uppsláttinn af eins og eigin lykkja. Þ.e.a.s. uppslátturinn er prjónaður eins og lykkja og er felldur af eins og hinar lykkjurnar.

ÚRTAKA-1 (á við um V-hálsmál á hægra framstykki):
Öll úrtaka er gerð í 1 umferð frá réttu.
Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, síðan eru prjónaðar 3 lykkjur og 2 uppslættir (= alls 5 lykkjur) saman þannig: Lyftið fyrstu lykkjunni og 1 uppslætti yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið næstu 2 lykkjur og 1 uppslátt slétt saman, steypið 2 lykkjunum sem lyftar voru yfir (1 lykkja og 1 uppsláttur) frá hægri prjón yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (= 2 lykkjur færri).

ÚRTAKA-2 (á við um V-hálsmál á vinstra framstykki):
Öll úrtaka er gerð í 1 umferð frá réttu.
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir og 2 uppslættir á undan 5 kantlykkjum að framan og prjónið þessar 3 lykkjur + uppslátt slétt saman (= 2 lykkjur færri).

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

HNAPPAGAT (neðan frá og upp):
Fellið af fyrir hnappagötum á hægri kant að framan. 1 HNAPPAGAT = Prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt = gat.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
S: 23, 32 og 41 cm
M: 24, 33 og 42 cm
L: 25, 34 og 43 cm
XL: 26, 35 og 44 cm
XXL: 27, 36 og 45 cm
XXXL: 28, 37 og 46 cm

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykki og bakstykki er prjónað hvort fyrir sig, fram og til baka á hringprjón.
Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 51-55-59-63-71-75 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 9 með Melody. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, endurtakið A.1 (= 2 lykkjur) þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið A.2 (= 1 lykkja) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni – sjá LEIÐBEININGAR.
Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið næstu umferð frá réttu þannig:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, endurtakið A.4 (= 2 lykkjur) þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið A.5 (= 1 lykkja) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur. A.4 og A.5 er endurtekið á hæðina.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm fellið af miðju 9-9-9-11-11-11 lykkjur fyrir hálsmáli – sjá AFFELLING. Fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 21-23-25-25-29-31 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm, fellið af. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, 16-17-18-19-20-21 cm niður frá öxl. Prjónamerkið merkir ermarnar eru saumaðar í. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

HÆGRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð).
Fitjið upp 30-32-34-36-40-42 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan og 1 kantlykkja í hlið) á hringprjón 9 með Melody. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, endurtakið A.1 (= 2 lykkjur) þar til 1 lykkja er eftir á prjóni og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið næstu umferð frá réttu þannig:
Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, endurtakið A.4 (= 2 lykkjur) þar til 1 lykkja er eftir á prjóni og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur, A.4 er endurtekið á hæðina – munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan.
Prjónið þar til stykkið mælist 41-42-43-44-45-46 cm. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 2 lykkjur fyrir V-hálsmáli – sjá ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona með 10-11-12-9-10-11 cm millibili alls 2-2-2-3-3-3 sinnum = 26-28-30-30-34-36 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm. Í næstu umferð frá röngu eru felldar af fyrstu 21-23-25-25-29-31 lykkjur fyrir öxl = 5 lykkjur eftir fyrir sjalkraga. Haldið áfram í garðaprjóni yfir þær lykkjur sem eftir eru þar til sjalkraginn mælist 7-7-7-9-9-9 cm, fellið af. Setjið 1 prjónamerki í hlið, 16-17-18-19-20-21 cm niður frá öxl. Prjónamerkið merkir hvar á að sauma ermina í.

VINSTRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð).
Fitjið upp 30-32-34-36-40-42 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan og 1 kantlykkja í hlið) á hringprjón 9 með Melody. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið A.3 (= 1 lykkja), endurtakið A.1 (= 2 lykkjur) þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið A.2 (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Þegar A.1, A.2 og A.3 hefur verið prjónað til loka, prjónið næstu umferð frá réttu þannig:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið A.6 (= 1 lykkja), endurtakið A.4 (= 2 lykkjur) þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið A.5 (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur. A.4, A.5 og A.6 er endurtakið á hæðina. Prjónið þar til stykkið mælist 41-42-43-44-45-46 cm. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 2 lykkjur fyrir V-hálsmáli – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með 10-11-12-8-8-9 cm millibili alls 2-2-2-3-3-3 sinnum = 26-28-30-30-34-36 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm – stillið af eftir hægra framstykki. Í næstu umferð frá réttu eru felldar af fyrstu 21-23-25-25-29-31 lykkjur fyrir öxl = 5 lykkjur eftir fyrir sjalkraga. Haldið áfram í garðaprjóni yfir þær lykkjur sem eftir eru þar til sjalkraginn mælist 7-7-7-9-9-9 cm, fellið af. Setjið 1 prjónamerki í hlið, 16-17-18-19-20-21 cm niður frá öxl. Prjónamerkið merkir hvar á að sauma ermina í.

ERMI:
Fitjið upp 40-40-44-44-48-48 lykkjur á sokkaprjón 6 með Melody. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 7. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, prjónamerkið er notað aðeins síðar þegar auka á út. Prjónið síðan sléttprjón – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 38-38-37-35-32-31 cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3 cm millibili alls 1-2-2-3-2-3 sinnum = 42-44-48-50-52-54 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 46-46-45-43-40-39 cm.
Fellið laust af. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið sjalkragann saman mitt að aftan með lykkjuspori og saumið við hálsmál aftan í hnakka – saumurinn á að snúa inn að röngu. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju (frá prjónamerki að prjónamerki). Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = sláið 1 sinni uppá hægri prjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið
symbols = uppslátturinn og lykkjan er prjónað slétt saman
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 207-41

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (8)

country flag Béatrice Betra wrote:

Bonjour, Je souhaite faire le modèle ml-038 expliqué en côtés anglaises avec jeté. Est-il possible de faire ce modèle en côte double mailles. Quelles vont être les conséquences par rapport aux explications du gilet. Merci pour votre réponse que j'attends avec impatience.

27.02.2021 - 13:22

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Betra, il vous faudra d'abord vérifier que vous avez toujours le bon échantillon - et vérifier également si la consommation de fil sera la même ou s'il vous en faudra plus ou moins, vous devrez également ajuster les diminutions et les augmentations qui sont expliquées pour des côtes anglaises à jeté. Votre magasin saura probablement vous aider si besoin, n'hésitez pas à les contacter même par mail ou téléphone. Bon tricot!

01.03.2021 - 08:07

country flag Julie wrote:

Ja, det er der Vh Julie

05.08.2020 - 16:21

DROPS Design answered:

Hej igen Julie, det bliver ikke 3.pind men 6.pind fra retsiden, da diagrammerne går over 4 pinde. God fornøjelse!

06.08.2020 - 08:32

country flag Julie wrote:

Ved bagstykke og forstykker går opskriften således: 1. Pind: strik 1pind vrang fra vrangen 2. Pind: strikkes således fra retsiden... 3. Pind: strikkes således fra retsiden... Jeg forstår ikke hvordan to på hinanden følgende pinde kan strikkes fra retsiden? Glæder mig til at strikke denne smukke cardigan :) Vh Julie

02.08.2020 - 15:37

DROPS Design answered:

Hej Julie, det kan jeg ikke finde... hvor er du i opskrften? Er det her hvor vi skriver, når A.1 og A.2 er færdig strikkes næste pind således fra retsiden.

05.08.2020 - 15:22

country flag Joelle Baudouin wrote:

Bonjour je decouvre votre site ou vous avez de beaux modeles . par contre vous parlez d aiguilles circulaire peut on faire ces modeles avec des aiguilles classiques ? je sais pas tricoter autrement merci de votre aide et reponse

07.01.2020 - 17:44

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Baudouin et merci. Vous trouverez ici quelques informations sur l'utilisation des aiguilles circulaires. Bon tricot!

08.01.2020 - 08:20

country flag Baudouin Joelle wrote:

Bonsoir j aimerais savoir quand vous parlez d aiguille circulaire pour faire le dos et les devants comment faites vous ? est il possibble avec des aiguilles classiques merci de votre reponse

07.01.2020 - 17:40

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Baudouin, cette vidéo montre comment tricoter (du jersey, mais c'est la même technique pour tout autre point) en allers et retours sur aiguille circulaire. Bon tricot!

08.01.2020 - 08:19

country flag Antonia Ferrer Gadea wrote:

Me gusta pero es mi primer proyecto y lo he leído y veo difícil para mi empezar con esto. No se el grado de dificultad de la prenda.Me a gustado mucho la verdad,pero ando perdida con la lectura. Gracias.

04.01.2020 - 06:57

country flag Bullermor wrote:

Dejlig!! Endelig en god v-udskærig!!

19.06.2019 - 23:49

country flag Ellis wrote:

To big, to long + wide sleeves

09.06.2019 - 21:53