Dolly's Kids |
|
|
|
Hekluð kind úr DROPS Merino Extra Fine.
DROPS Children 35-9 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR-1: Umferðin er hekluð án skiptingar (eða eins og spírall). Þ.e.a.s: Heklað er í hring án þess að enda, það er prjónamerki sem sýnir hvar umferðin byrjar og endar – það er því engin keðjulykkja sem er hekluð í lok hverrar umferðar. HEKLLEIÐBEININGAR-2: Mikilvægt er að hekla fastalykkjuna á milli tvíbrugðnu stuðlana á búk fast, þannig að tvíbrugðni stuðullinn myndi kúlu. Ef óskað er eftir stærri/sterkari kúlu er hægt að hekla þríbrugðinn stuðul í stað tvíbrugðinn stuðull. HEKLAÐ SAMAN-1: 4 STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN Í 1 STUÐUL ÞANNIG: * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* 3 sinnum til viðbótar, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 5 lykkjurnar á heklunálinni (= 3 stuðlar færri). HEKLAÐ SAMAN-2: 2 FASTALYKKJUR HEKLAÐAR SAMAN Í 1 FASTALYKKJU ÞANNIG: * Stingið heklunálinni í næstu lykkju, sækið þráðinn *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (1 fastalykkja færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KIND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring ofan frá höfði og niður, síðan er fitjað upp út fyrir búk og heklað niður að fótum. Í lokin er kindin fyllt með vatti og saumað saman undir maga, að lokum er toppurinn á höfðinu heklaður saman jafnframt því sem eyrun eru hekluð. HÖFUÐ/BÚKUR: Heklið 19 loftlykkjur með heklunál 3,5 með litnum ljós grár. UMFERÐ 1: Heklið þessa umferð í hring með því að hekla 2 fastalykkjur í fyrstu hekluðu loftlykkjuna og síðan er hekluð 1 fastalykkja í hverja loftlykkju = 20 fastalykkjur í umferð. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð. UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju – lesið HEKLLEIÐBEININGAR-1 að ofan. UMFERÐ 3: Heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 3 lykkjum, 1 hálfur stuðull í næstu lykkju, 2 stuðlar og 1 tvíbrugðinn stuðull í næstu lykkju, 1 tvíbrugðinn stuðull og 2 stuðlar í næstu lykkju, 1 hálfur stuðull í næstu lykkju, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja af næstu 13 lykkjum – nú hafa verið auknar út 4 lykkjur fyrir nef = 24 lykkjur í umferð. UMFERÐ 4 og 5: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! UMFERÐ 6: Heklið 4 fastalykkjur í hverja lykkju, næstu 4 lykkjurnar eru heklaðar saman í 1 lykkju sjá HEKLAÐ SAMAN-1 í útskýringu að ofan, næstu 4 lykkjurnar eru heklaðar saman í 1 lykkju sjá HEKLAÐ SAMAN-1 í útskýringu að ofan, heklið síðan 12 fastalykkjur í hverja lykkju – nú hefur verið fækkað um 6 lykkjur fyrir nefi = 18 lykkjur í umferð. UMFERÐ 7: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju. Klippið frá og skiptið yfir í natur (lit á búk). UMFERÐ 8: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju. UMFERÐ 9: Heklið 17 nýjar loftlykkjur, snúið stykkinu og heklið til baka í þessar loftlykkjur þannig: Í 2. lykkju frá heklunálinni eru heklaðir 2 hálfir stuðlar, 2 hálfir stuðlar í hvora af 2 næstu lykkjum (= dindill) – nú eru 13 loftlykkjur eftir. Heklið 1 fastalykkju í hverja loftlykkju og síðan eru heklaðar 18 fastalykkjur í kringum hálsinn, síðan er heklað áfram með fastalykkjur að dindli í sömu loftlykkjuröð en á gagnstæðri hlið þannig: 1 fastalykkja í hverja og eina af 13 loftlykkjum að dindli. Umferðin byrjar og endar undir dindil og það eru 44 lykkjur í kringum búk. UMFERÐ 10: Lyftið dindlinum þannig að hægt er að hekla búkinn í hring. Byrjið með að hekla 1 fastalykkju í fyrstu lykkju og eftir það 1 tvíbrugðinn stuðul í næstu lykkju - sjá HEKLLEIÐBEININGAR-2 í útskýringu að ofan, endurtakið þessar 2 lykkjur í kringum allan búkinn. UMFERÐ 11: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju. Endurtakið umferð 10 og 11 þar til búkurinn mælist ca 8,5 cm – passið uppá að endað sé með 11. umferð. Klippið frá og skiptið yfir í litinn ljós grár. Heklið nú fæturna á kindinni, byrjið við miðju að aftan. FYRSTI FÓTUR = HÆGRI AFTURFÓTUR: UMFERÐ 1: Heklið 7 fastalykkjur, heklið 7 loftlykkjur. UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í fyrstu af 7 fastalykkjum, nú hefur myndast hringur og stykkið heldur áfram í hring með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju og 1 fastalykkju í hverja loftlykkju = 14 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð. UMFERÐ 3 til 4: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju. UMFERÐ 5: Heklið nú allar lykkjur saman 2 og 2 – sjá HEKLAÐ SAMAN-2 í útskýringu að ofan = 7 fastalykkjur í umferð. UMFERÐ 6 og 12: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju. Klippið frá. Brjótið hringinn saman flatan og saumið gatið saman þannig að fóturinn verði flatur og breiður í sömu átt og búkurinn. ANNAR FÓTUR = HÆGRI FRAMFÓTUR: Hoppið yfir 8 lykkjur (= mitt undir maga) UMFERÐ 1: Heklið 7 fastalykkju í fyrstu 7 lykkjurnar á hægri hlið á búk og heklið síðan 7 loftlykkjur. UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í fyrstu af 7 fastalykkjum, nú hefur myndast hringur og stykkið heldur áfram í hring með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju og 1 fastalykkju í hverja loftlykkju = 14 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð. UMFERÐ 3 til 4: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju. UMFERÐ 5: Heklið nú allar lykkjur saman 2 og 2 – sjá HEKLAÐ SAMAN-2 í útskýringu að ofan = 7 fastalykkjur í umferð. UMFERÐ 6 og 7: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju. Klippið frá. Brjótið hringinn saman flatan og saumið gatið saman þannig að fóturinn verði flatur og breiður í sömu átt og búkurinn. ÞRIÐJI FÓTUR = VINSTRI FRAMFÓTUR: UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 7 lykkjunum á vinstri hlið á búk og heklið síðan 7 loftlykkjur. UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í fyrstu af 7 fastalykkju, nú hefur myndast hringur og stykkið heldur áfram í hring með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju og 1 fastalykkju í hverja loftlykkju = 14 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð. UMFERÐ 3 til 4: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju. UMFERÐ 5: Heklið nú allar lykkjur saman 2 og 2 – sjá HEKLAÐ SAMAN-2 í útskýringu að ofan = 7 fastalykkjur í umferð. UMFERÐ 6 og 7: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju. Klippið frá. Brjótið hringinn saman flatan og saumið gatið saman þannig að fóturinn verði flatur og breiður í sömu átt og búkurinn. FJÓRÐI FÓTUR = VINSTRI AFTURFÓTUR: Hoppið yfir 8 lykkjur (= mitt undir maga) UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í hverja af síðustu 7 lykkjunum lengst aftan á vinstri hlið á búk og heklið síðan 7 loftlykkjur. UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í fyrstu af 7 fastalykkjum, nú hefur myndast hringur og stykkið heldur áfram í hring með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju og 1 fastalykkju í hverja loftlykkju = 14 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð. UMFERÐ 3 til 4: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju. UMFERÐ 5: Heklið nú allar lykkjur saman 2 og 2 – sjá HEKLAÐ SAMAN-2 í útskýringu að ofan = 7 fastalykkjur í umferð. UMFERÐ 6 og 7: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju. Klippið frá. Brjótið hringinn saman flatan og saumið gatið saman þannig að fóturinn verði flatur og breiður í sömu átt og búkurinn. FRÁGANGUR: Saumið nú augu í kindina, nef og munn með litnum dökk grár – sjá e.t.v. mynd til að sjá staðsetningu og form. Fyllið síðan kindina með vatti og búkurinn er saumaður saman mitt undir maga. Fyllið höfuðið og nefið með vatti. Brjótið uppá gatið á toppnum á höfði flatt saman með andlitið fram. Heklið síðustu umferðina með litnum ljós grár þar sem höfuðið er heklað saman og heklað er eitt eyra í byrjun og lokin þannig: Heklið 4 loftlykkjur, heklið 2 fastalykkjur í 2 loftlykkju frá heklunálinni og heklið 2 fastalykkjur í hvora af 2 næstu loftlykkjum = eyra. Eftir það er opið á toppi á höfði heklað saman þannig: Heklið fastalykkjur í gegnum bæði lögin á flata hringnum, 1 lykkja í hverja lykkju fram að og með næst síðustu lykkju. Eftir síðustu lykkju er heklað hitt eyrað þannig: 4 loftlykkjur, 2 fastalykkjur í 2 loftlykkju frá heklunálinni og heklið 2 fastalykkjur í hvora af 2 næstu loftlykkjum, 1 keðjulykkja í síðustu lykkju á höfði = eyra. Klippið þráðinn og festið. HÁR: Heklið nú hár í toppnum á höfðinu með litnum natur þannig: Í fyrstu lykkjuna á eftir fyrra eyranu er heklað: 1 keðjulykkja, * 4 loftlykkjur, 1 tvíbrugðinn stuðull, 4 loftlykkjur og síðan 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* yfir toppinn á höfðinu. Endið með að skipta út síðustu lykkjunni með 1 keðjulykkju í sömu lykkju eins og síðasti tvíbrugðni stuðullinn. Klippið frá og festið enda. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (2)
Kristina wrote:
Hej!Jag undrar om det stämmer vad det står under varv 9 på huvud/kropp att det blir 13 maskor kvar för när jag gör det blir det 12 kvar? Man virkar 2 hst i maska 16, 15, 14 och 13 och alltså blir det 12 maskor kvar + 18 runt kroppen. Eller har jag missat nåt?
12.04.2022 - 12:42DROPS Design answered:
Hei Kristina. Ja, her var det en feil. Takk for at du gjorde oss oppmerksom på dette. Feilen er rettet og det er lagt til en rettelse (det skulle ikke hekles 2 halvstaver i den 3. masken fra nålen). mvh DROPS Design
19.04.2022 - 14:33Urda wrote:
Skal ikke bena fylles med vatt? Når det står under BEN: « Brett sirkelen flat sammen og sy sammen hullet slik foten blir flat og bred i samme retning som kroppen.» - menes det at man skal sy sammen foten i toppen (nærmest kroppen), eller i bunnen? Eller begge?
04.09.2021 - 09:28DROPS Design answered:
Hei Urda. Sy sammen i bunnen og senere i oppskriften (under Montering) står det at man skal fylle saunen med vatt, da fyller du vatt også i beina. mvh DROPS design
13.09.2021 - 11:43