DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1650.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS Children 35-8
DROPS Design: Mynstur ee-141-bn
Garnflokkur E eða C + C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
Kindin er ca 29 cm á hæð og ca 24 cm löng.

EFNI:
DROPS SNOW frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
50 g litur 53, ljós grár
100 g litur 01, natur

Eða notið:
DROPS BIG MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
50 g litur 02, grár
150 g litur 01, natur

Nef og munnur:
Afgangur af dökk grár.

HEKLFESTA:
9 fastalykkjur á breidd og 10 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.
Notið 2 þræði BIG MERINO eða 1 þráð SNOW.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 8.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1650.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

30% AFSLÁTTUR á 6 tegundum af bómullargarni!
Tilboðið gildir til 12.04.2024

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR-1:
Umferðin er hekluð án skiptingar (eða eins og spírall). Þ.e.a.s: Heklað er í hring án þess að enda, það er prjónamerki sem sýnir hvar umferðin byrjar og endar – það er því engin keðjulykkja sem er hekluð í lok hverrar umferðar.

HEKLLEIÐBEININGAR-2:
Mikilvægt er að hekla fastalykkjuna á milli tvíbrugðnu stuðlana á búk fast, þannig að tvíbrugðni stuðullinn myndi kúlu. Ef óskað er eftir stærri/sterkari kúlu er hægt að hekla þríbrugðinn stuðul í stað tvíbrugðinn stuðuls.

HEKLAÐ SAMAN-1:
4 STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN Í 1 STUÐUL ÞANNIG:
* Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* 3 sinnum til viðbótar, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 5 lykkjurnar á heklunálinni (= 3 stuðlar færri).

HEKLAÐ SAMAN-2:
2 FASTALYKKJUR HEKLAÐAR SAMAN Í 1 FASTALYKKJU ÞANNIG:
* Stingið heklunálinni í næstu lykkju, sækið þráðinn *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (1 fastalykkja færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

KIND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Ef kindin er hekluð úr Snow, heklið með 1 þræði með heklunál 8, ef kindin er hekluð úr Big Merino, heklið með 2 þráðum með heklunál 8.
Stykkið er heklað í hring ofan frá höfði og niður, síðan er fitjað upp út fyrir búk og heklað niður að fótum. Í lokin er kindin fyllt með vatti og saumað saman undir maga, að lokum er toppurinn á höfðinu heklaður saman jafnframt því sem eyrun eru hekluð.

HÖFUÐ/BÚKUR:
Heklið 19 loftlykkjur með heklunál 8 með litnum ljós grár.
UMFERÐ 1: Heklið þessa umferð í hring með því að hekla 2 fastalykkjur í fyrstu hekluðu loftlykkjuna og síðan er hekluð 1 fastalykkja í hverja loftlykkju = 20 fastalykkjur í umferð. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð – sjá HEKLLEIÐBEININGAR-1 í útskýringu að ofan.
UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju.
UMFERÐ 3: Heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 3 lykkjum, 1 hálfur stuðull í næstu lykkju, 2 stuðlar og 1 tvíbrugðinn stuðull í næstu lykkju, 1 tvíbrugðinn stuðull og 2 stuðlar í næstu lykkju, 1 hálfur stuðull í næstu lykkju, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja af næstu 13 lykkjum – nú hafa verið auknar út 4 lykkjur fyrir nef = 24 lykkjur í umferð.
UMFERÐ 4 og 5: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
UMFERÐ 6: Heklið 4 fastalykkjur í hverja lykkju, næstu 4 lykkjurnar eru heklaðar saman í 1 lykkju sjá HEKLAÐ SAMAN-1 í útskýringu að ofan, næstu 4 lykkjurnar eru heklaðar saman í 1 lykkju sjá HEKLAÐ SAMAN-1 í útskýringu að ofan, heklið síðan 12 fastalykkjur í hverja lykkju – nú hefur verið fækkað um 6 lykkjur fyrir nefi = 18 lykkjur í umferð.
UMFERÐ 7: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju. Klippið frá og skiptið yfir í litinn natur (lit á búk).
UMFERÐ 8: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju.
UMFERÐ 9: Heklið 17 nýjar loftlykkjur, snúið stykkinu og heklið til baka í þessar loftlykkjur þannig: Í 2. lykkju frá heklunálinni eru heklaðir 2 hálfir stuðlar, 2 hálfir stuðlar í hverja af næstu 2 lykkjum (= dindill) – Nú eru eftir 13 loftlykkjur.
Heklið 1 fastalykkju í hverja loftlykkju og síðan eru heklaðar 18 fastalykkjur í kringum hálsinn, síðan er heklað áfram fastalykkjur að dindli í sömu loftlykkjuröð en á gagnstæðri hlið þannig: 1 fastalykkja í hverja og eina af 13 loftlykkjum að dindli. Umferðin byrjar og endar undir dindil og það eru 44 lykkjur í kringum búk.
UMFERÐ 10: Lyftið dindlinum þannig að hægt sé að hekla búkinn í hring. Byrjið með að hekla 1 fastalykkju í kringum allan búkinn.
UMFERÐ 11: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju.
Endurtakið umferð 10 og 11 þar til búkurinn mælist ca 12 cm – passið uppá að endað sé með 11. umferð.
Klippið frá og skiptið yfir í litinn ljós grár. Heklið nú fæturna á kindina, byrjið við miðju að aftan.

FYRSTI FÓTUR = HÆGRI AFTURFÓTUR:
UMFERÐ 1: Heklið 7 fastalykkjur, heklið 7 loftlykkjur.
UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í fyrstu af 7 fastalykkjum, nú hefur myndast hringur og stykkið heldur áfram í hring með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju og 1 fastalykkju í hverja loftlykkju = 14 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð.
UMFERÐ 3 til 4: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju.
UMFERÐ 5: Heklið nú allar lykkjur saman 2 og 2 – sjá HEKLAÐ SAMAN-2 í útskýringu að ofan = 7 fastalykkjur í umferð.
UMFERÐ 6 og 12: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju. Klippið frá. Brjótið hringinn saman flatan og saumið gatið saman þannig að fóturinn verði flatur og breiður í sömu átt og búkurinn.

ANNAR FÓTUR = HÆGRI FRAMFÓTUR:
Hoppið yfir 8 lykkjur (= mitt undir maga)
UMFERÐ 1: Heklið 7 fastalykkju í fyrstu 7 lykkjurnar á hægri hlið á búk og heklið síðan 7 loftlykkjur.
UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í fyrstu af 7 fastalykkjum, nú hefur myndast hringur og stykkið heldur áfram í hring með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju og 1 fastalykkju í hverja loftlykkju = 14 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð.
UMFERÐ 3 til 4: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju.
UMFERÐ 5: Heklið nú allar lykkjur saman 2 og 2 – sjá HEKLAÐ SAMAN-2 í útskýringu að ofan = 7 fastalykkjur í umferð.
UMFERÐ 6 og 7: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju. Klippið frá. Brjótið hringinn saman flatan og saumið gatið saman þannig að fóturinn verði flatur og breiður í sömu átt og búkurinn.

ÞRIÐJI FÓTUR = VINSTRI FRAMFÓTUR:
UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 7 lykkjunum á vinstri hlið á búk og heklið síðan 7 loftlykkjur.
UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í fyrstu af 7 fastalykkju, nú hefur myndast hringur og stykkið heldur áfram í hring með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju og 1 fastalykkju í hverja loftlykkju = 14 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð.
UMFERÐ 3 til 4: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju.
UMFERÐ 5: Heklið nú allar lykkjur saman 2 og 2 – sjá HEKLAÐ SAMAN-2 í útskýringu að ofan = 7 fastalykkjur í umferð.
UMFERÐ 6 og 7: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju. Klippið frá. Brjótið hringinn saman flatan og saumið gatið saman þannig að fóturinn verði flatur og breiður í sömu átt og búkurinn.

FJÓRÐI FÓTUR = VINSTRI AFTURFÓTUR:
Hoppið yfir 8 lykkjur (= mitt undir maga)
UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í hverja af síðustu 7 lykkjunum lengst aftan á vinstri hlið á búk og heklið síðan 7 loftlykkjur.
UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í fyrstu af 7 fastalykkjum, nú hefur myndast hringur og stykkið heldur áfram í hring með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju og 1 fastalykkju í hverja loftlykkju = 14 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð.
UMFERÐ 3 til 4: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju.
UMFERÐ 5: Heklið nú allar lykkjur saman 2 og 2 – sjá HEKLAÐ SAMAN-2 í útskýringu að ofan = 7 fastalykkjur í umferð.
UMFERÐ 6 og 7: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju. Klippið frá. Brjótið hringinn saman flatan og saumið gatið saman þannig að fóturinn verði flatur og breiður í sömu átt og búkurinn.

FRÁGANGUR:
Saumið nú augu í kindina, nef og munn með litnum dökk grár – sjá e.t.v. mynd til að sjá staðsetningu og form.
Fyllið síðan kindina með vatti og búkurinn er saumaður saman mitt undir maga.
Brjótið uppá gatið á toppnum á höfði flatt saman með andlitið fram. Heklið síðustu umferðina með litnum ljós grár þar sem höfuðið er heklað saman og heklað er eitt eyra í byrjun og lokin þannig:
Byrjið í fyrstu lykkjunni í hægri hlið: Í sömu lykkju eru heklaðar 4 loftlykkjur, 2 tvíbrugðnir stuðlar, 4 loftlykkjur, 1 keðjulykkja = 1 eyra.
Heklið síðan gatið á toppnum á höfði saman þannig:
Heklið fastalykkjur í gegnum bæði lögin á flata hringnum, 1 lykkja í hverja lykkju fram að og með næst síðustu lykkjunni.
Í síðustu lykkjuna er heklað hitt eyrað þannig: 4 loftlykkjur, 2 tvíbrugðnir stuðlar, 4 loftlykkjur, 1 keðjulykkja. Klippið frá og festið enda.

HÁR:
Heklið nú hár í toppnum á höfðinu með litnum natur þannig: Í fyrstu lykkjuna á eftir fyrra eyranu er heklað: 1 keðjulykkja, * 4 loftlykkjur, 1 tvíbrugðinn stuðull, 4 loftlykkjur og síðan 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* yfir toppinn á höfðinu. Endið með að skipta út síðustu lykkjunni með 1 keðjulykkju í sömu lykkju eins og síðasti tvíbrugðni stuðullinn.
Klippið frá og festið enda.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 35-8

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (4)

country flag Gerd Brodén wrote:

Den här raden i varv 6 på huvud och kropp är väldigt lätt att missförstå "Virka 4 fastmaskor i varje maska". Man kan tro att det ska vara 4m i samma maska. Borde stå 4 fastmaskor, en i varsin m. Gäller även längre fram i varvet där det står 12 m i varje.

11.01.2023 - 19:33

country flag Kristina wrote:

Hej, jag har virkat t.o.m varv 9 på Huvud/Kropp men har sen fastnat då jag inte förstår hur varv 10 virkas runt. Maskorna förstår jag men inte hur man kommer runt efter varv 9. Skulle uppskatta en kort video eller en förklaring. Tack på förhand.

17.09.2021 - 17:05

DROPS Design answered:

Hej Kristina. Jag är inte helt säker på att jag förstår vad du menar, men varvet börjar och slutar nu under svansen så det är där du startar och virkar sedan som det står runt kroppen. Kanske någon av våra virk-videor kan vara till hjälp? Vi har dessvärre ingen på just detta mönster men det kan hända att en till ett annat mönster kan vara till hjälp. Mvh DROPS Design

22.09.2021 - 09:30

country flag Rhonda wrote:

This pattern is not typical of any other amigurumi I've ever done. Every other leg has been started with a magic circle and attached later or crocheted as part of the body. Please tell, are the legs supposed to be closed at the top too? And then the body is one long closed seam while the legs dangle with left and right right next to each other? This is really confusing and I'd appreciate some help. Diagrams, under these odd circumstance would've been helpful. Interesting concept though.

27.11.2020 - 11:15

DROPS Design answered:

Dear Rhonda, legs are worked from the stitches on the bottom of body and are sewn flat (they should be flat and wide in the same direction as body) - then after 4 legs have been worked, sew the sem flat on the bottom of body (the remaining sts unworked between legs). Happy crocheting!

30.11.2020 - 07:32

country flag Berit wrote:

Ich verstehe überhaupt nicht, wie der Körper gehäkelt werden soll.... Ab Runde 9!? Ich habe nun einen Kopf (oben offen) mit einer Luftmaschenschnur daran, an deren Ende ein Schwanz ist!? Dann "2.RUNDE: 1 feste Masche die erste der 7 festen Maschen, es ist nun eine Runde entstanden, 1 feste Masche in jede feste Masche und 1 feste Masche in jede Luftmasche rundum häkeln = 14 Maschen." Wie kommt man auf 14? Und was genau ist nun die Runde? Danke schonmal!

12.01.2020 - 23:18

DROPS Design answered:

Liebe Frau Berit, es war etwas nicht richtig bei der 9. Runde, es wurde jetzt korrigiert, schauen Sie mal ob es Ihnen klarer ist. Viel Spaß beim häkeln!

14.01.2020 - 09:25