DROPS Alpaca Bouclé
DROPS Alpaca Bouclé
80% Alpakka, 15% Ull, 5% Polyamide
frá 1034.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8272.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Willow Lane Jacket

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca Bouclé. Stykkið er prjónað fram og til baka í garðaprjóni og röndum. Stærð S - XXXL.

DROPS 197-36
DROPS Design: Mynstur ab-090
Garnflokkur C
-------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA BOUCLÉ frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
200-250-250-300-300-350 g litur 0517, grár
200-250-250-300-300-350 g litur 0602, brúnn

PRJÓNFESTA:
15 lykkjur á breidd og 29 umferðir á hæð með garðaprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir garðaprjón.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

DROPS HORNATALA, (köntuð) NR 537: 2 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca Bouclé
DROPS Alpaca Bouclé
80% Alpakka, 15% Ull, 5% Polyamide
frá 1034.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8272.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

RENDUR:
* Prjónið 2 umferðir garðaprjón með litnum brúnn, 2 umferðir garðaprjón með litnum grár *, prjónið frá *-*.

ÚRTKA-1 (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman.

ÚRTAKA-2 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 92 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 20,5. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis 19. og 20. hverja lykkju og 20. og 21. hverja lykkju slétt saman. Lykkjum er ekki fækkað yfir kanta að framan.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt = gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist 45-47-48-50-51-53 cm. Fellið að auki af fyrir einu hnappagati í kanti í hálsmáli.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón í stykkjum og saumað saman í lokin. Öll peysan er prjónuð í garðaprjóni og röndum. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón ofan frá og niður. Fellið af fyrir einu hnappagati í kanti að framan og 1 hnappagati í kanti í hálsmáli.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 98-104-110-118-126-136 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 5,5 með 1 þræði af hvorum lit (= 2 þræðir). Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan með 1 þræði Alpaca Bouclé. Prjónið nú áfram í garðaprjóni og RENDUR – sjá útskýringu að ofan, þar til stykkið mælist 39-40-41-42-43-44 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í byrjun á næstu 2 umferðum eru felldar af 2-2-3-3-4-4 lykkjur fyrir handveg = 94-100-104-112-118-128 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í garðaprjóni og röndum. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm fellið af miðju 32-32-34-34-36-36 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í byrjun á næstu umferð frá hálsi = 30-33-34-38-40-45 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm. Fellið af, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 53-56-59-63-67-72 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hlið og 5 kantlykkjur að við miðju að framan) á hringprjón 5,5 með 1 þræði af hvorum lit (= 2 þræðir). Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Prjónið síðan með 1 þræði Alpaca Bouclé. Prjónið nú áfram í garðaprjóni og röndum eins og á bakstykki, þar til stykkið mælist 39-40-41-42-43-44 cm. Í næstu umferð frá röngu eru felldar af 2-2-3-3-4-4 lykkjur fyrir handveg í hlið = 51-54-56-60-63-68 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í garðaprjóni og röndum. Munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan, þegar stykkið mælist 45-47-48-50-51-53 cm. Þegar stykkið mælist 47-49-50-52-53-55 cm eru fyrstu 13-13-14-14-15-15 lykkjur (frá réttu) settar á þráð fyrir hálsmáli. Fellið síðan lykkjur af í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 3 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 2 sinnum = 30-33-34-38-40-45 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm. Fellið af, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju. Uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 53-56-59-63-67-72 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hlið og 5 kantlykkjur að við miðju að framan) á hringprjón 5,5 með 1 þræði af hvorum lit (= 2 þræðir). Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Prjónið síðan með 1 þræði Alpaca Bouclé. Prjónið nú áfram í garðaprjóni og röndum eins og á bakstykki, þar til stykkið mælist 39-40-41-42-43-44 cm. Í næstu umferð frá réttu eru felldar af 2-2-3-3-4-4 lykkjur fyrir handveg í hlið = 51-54-56-60-63-68 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í garðaprjóni og röndum. Þegar stykkið mælist 47-49-50-52-53-55 cm eru fyrstu 13-13-14-14-15-15 lykkjur (frá röngu) settar á þráð fyrir hálsmáli. Fellið síðan lykkjur af í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 3 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 2 sinnum = 30-33-34-38-40-45 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm. Fellið af, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju. Uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja.

ERMI:
Fitjið upp 53-56-59-62-65-68 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði í litnum brúnn. Prjónið garðaprjón og rendur fram og til baka. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA-1. Fækki lykkjum svona með ca 4-3-3-3-3-2 cm millibili alls 7-8-8-9-10-11 sinnum = 39-40-43-44-45-46 lykkjur. Haldið áfram þar til ermin mælist 41-40-40-38-37-35 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Prjónið 4 umferðir garðaprjón með 1 þræði af hvorum lit (= 2 þræðir). Fellið af, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Brjótið uppá ermina neðst niðri.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í við fram- og bakstykki niður að lykkjum sem felldar voru af fyrir handveg. Saumið innan við 1 kantlykkju með garðaprjóni á fram- og bakstykki og innan við uppfitjunarkantinn á ermum. Saumið saum undir ermi og hliðarsaum í eitt innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Endurtakið í hinni hliðinni.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Kantur í hálsmáli er prjónaður fram og til baka á hringprjón. Byrjið með hringprjón 5,5 og 1 þræði af hvorum lit (= 2 þræðir) og prjónið upp frá réttu 92-92-97-97-102-102 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði). Prjónið 1 umferð slétt til baka frá röngu.
Haldið síðan áfram með 8 umferðir slétt, JAFNFRAMT í hverri umferð frá réttu er fækkað um 4 lykkjur jafnt yfir - sjá ÚRTAKA-2. Þegar kantur í hálsmáli mælist 1 cm er fellt af fyrir hnappagati í byrjun á umferð frá réttu þannig: Prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn (í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt = gat) = 76-76-81-81-86-86 lykkjur.
Prjónið 4 umferðir garðaprjón til viðbótar. Fellið af en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 14.12.2018
Leiðrétting: Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist 45-47-48-50-51-53 cm.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 197-36

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (17)

country flag Susie wrote:

Hi, On Willow Lane Jacket, am I decreasing from the (15) sts on stitch holder or from the remaining sts on needle? I cannot see any reference to rejoining yarn to 15 sts on stitch holder… Many thanks.

04.11.2023 - 15:54

DROPS Design answered:

Dear Susie, if you are talking about the times when you slip stitches, you will slip them for the neck from the sts in the needle and then pick them up when you work the neck at the end. Happy knitting!

05.11.2023 - 20:07

country flag Christina James wrote:

Hello, I am so sorry that I don't understand Danish. Would it be possible to have the instructions for this lovely garment in English, please? Many thanks Christina

25.10.2021 - 19:08

country flag Christine Tercier wrote:

Bonjour, Pour les devants il est noté de faire 5 mailles de bordure devant. Je ne comprends pas comment elles doivent se faire. Merci pour votre réponse.

20.10.2021 - 17:44

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Tercier, elles se tricotent au point mousse comme les autres mailles, mais ces 5 mailles sont pour la bordure des devant: pour les boutonnières et les boutons. Bon tricot!

21.10.2021 - 06:52

country flag Ilsemarie wrote:

Hallo, heißt in Streifen stricken, dass in je einer Farbe 1x hin- und zurück gestrickt wird, z.B. in Grau, und dann in der anderen Farbe, also in Braun auch wieder hin- und zurück gestrickt wird? Vielen Dank und liebe Grüße, Ilsemarie Weber

22.09.2021 - 13:19

DROPS Design answered:

Liebe Ilsemarie, für die Streifen stricken Sie jeweils 1 krausrippe = 2 Reihen rechts mit braun/ 1 krausrippe = 2 Reihen rechts mit grau (oder die gewüsnchten Fraben). Viel Spaß beim stricken!

22.09.2021 - 17:14

country flag Paquerette Gagnon wrote:

Les manches: après avoir tricoté 40cm je ne comprends pas ce qui suit : tricoter 2 cotes mousse st ce que ca veut dire 2 rangs . Il m semble que la grandeur des manches n'est pas très longue 41 cm elle v a en bas des épaules est-ce correct

21.09.2021 - 02:27

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Gagnon, pour obtenir 1 côte mousse, on doit tricoter 2 rangs endroit cf POINT MOUSSE (en allers et retours):, pour tricoter 2 côtes mousse, on va devoir tricoter 4 rangs endroit. Retrouvez toutes les mesures finales par taille dans le schéma en bas de page, comparez-les à un vêtement analogue dont vous aimez la forme pour ajuster si besoin (n'oubliez pas que les épaules sont larges et qu'elles influencent automatiquement la longueur des manches). Bon tricot!

21.09.2021 - 09:11

country flag Sylvie Vaillancourt wrote:

Bonjour, Pour ce modele, doit on monter les mailles avec les deux fils ensembles? Est-ce qu´il y a des cotes dans le bas de la veste et au poignets? Car 1 cote de mousse et un point de mousse pour moi c´est toujours tricote en endroit sur les deux cotes...c´est un peu confus. Merci de me repondre sous peu, Sylvie

18.06.2021 - 20:54

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Vaillancourt, on monte effectivement les mailles avec 2 fils en même temps (= 1 de chaque couleur) pour que le montage soit suffisamment souple, et on tricote 2 côtes mousse (= 4 rangs endroit - cf POINT MOUSSE) puis on continue avec juste 1 seul fil en suivant les rayures. Bon tricot!

21.06.2021 - 07:23

country flag Lise Kjær wrote:

Jeg er igang med at strikke denne i den største størrelse.....kan ikke forstå opskriften. Det virker som om, ærmet skal være kortere i de store størrelser end i de små størrelser.....Er det ikke en fejl ? Det virker ikke logisk for mig:-)

26.03.2020 - 08:43

DROPS Design answered:

Hei Lise. Man har ikke lengre armer selv om man bruker større plagg. Vidden på plagget + ermlengden på den største størrelsen blir større enn vidden + ermlengden på den minste størrelsen. God Fornøyelse!

30.03.2020 - 13:22

country flag Petra Voermans wrote:

Ik heb nog heel veel laine coton van Phildar 50% wol 50% katoen , 22 st 2n 29 nl zijn 10x10 cm, naalden 3,5 , kan ik dat gebruiken?

09.03.2020 - 16:36

DROPS Design answered:

Dag Petra,

Het beste is om even een proeflapje te maken en te kijken wat de stekenverhouding is. Op basis daarvan kun je een patroon uitzoeken.

10.03.2020 - 20:03

country flag Nele wrote:

Stricke die Jacke bereits zum zweiten Mal. Diesmal in eine anderen Farbkombi. Lässt sich sehr schön tragen und ist kuschelweich.

20.02.2020 - 12:57

country flag Hanneke wrote:

Is de kantsteek voor de voorpanden de eerste en laatste steek recht breien? Of anders?

19.01.2020 - 14:41

DROPS Design answered:

Dag Hanneke,

Bij de voorpanden zitten de kantsteken alleen in de zijkanten (dus waar de zijnaden komen) en niet bij midden voor. De kantsteken worden altijd in ribbelsteek gebreid

19.01.2020 - 18:02