DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13860.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Winter Skies Tunic

Hekluð ermalaus tunika úr 2 þráðum DROPS Alpaca með gatamynstri og röndum, hekluð ofan frá og niður. Stærð S-XXXL.

DROPS Extra 0-1326
DROPS Design: Mynstur nr z-769
Garnflokkur C eða A + A
---------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L/XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
150-150-150-200 g nr 100, natur
300-350-350-400 g nr 9020, ljós perlugrár
200-200-200-250 g nr 501, ljós grár
150-150-150-200 g nr 517, milligrár
ATH: Ef hekla á flíkina með einum lit þarf 700-750-850-900 g með 2 þráðum Alpaca.

DROPS HEKLUNÁL NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 12 st x 7 umf með 2 þráðum Alpaca verði 10 x 10 cm – eða 1 mynstureining A.2 mælist 8 cm á breiddina og síðustu 4 umf í A.3 mælist 4,5 cm á hæðina.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13860.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun hverrar umf með st er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll.
Í byrjun hverrar umf með fl er fyrstu fl skipt út fyrir 1 ll.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5 – sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð.

RENDUR:
Allar rendur eru heklaðar með 2 þráðum.
1. mynstureining á hæðina = 4 síðustu umf í mynstri. 1.-5. rönd er 3 mynstureiningar, 6. röndin er hekluð til loka.
RÖND 1: 1 þráður natur + 1 þráður ljós perlugrár.
RÖND 2: 2 þræðir ljós perlugrár.
RÖND 3: 1 þráður ljós perlugrár + 1 þráður ljós grár.
RÖND 4: 2 þræðir ljós grár.
RÖND 5: 1 þráður ljós grár + 1 þráður milligrár.
RÖND 6: 2 þræðir milligrár.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TUNIKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka ofan frá og niður í 2 stykkjum og saumað saman í lokin.

BAKSTYKKI:
Hægri öxl:
Heklið 48-53-59-63 ll með 1 þræði í litnum natur og 1 þræði í litnum ljós perlugrár DROPS Alpaca (= 2 þræðir) með heklunál nr 6.
Klippið frá og heklið vinstri öxl.
Vinstri öxl:
Heklið 50-55-61-65 ll með 1 þræði í litnum natur og 1 þræði í litnum ljós perlugrár (= 2 þræðir) með heklunál nr 6. Snúið við og heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni (= 2 st) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 st í hverja af næstu 4-2-1-5 ll, * hoppið yfir 1 ll, heklið 1 st í hverja af 6 ll *, endurtakið frá *-* alls 6-7-8-8 sinnum = 42-46-51-55 st. Heklið 18 ll (= fyrsta umf í A.5), heklið 1 st í 1. ll frá lausu ll-umf (= hægri öxl), heklið 1 st í hverja af næstu 5-3-2-6 ll, * hoppið yfir 1 ll, heklið 1 st í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* alls 6-7-8-8 sinnum = 42-46-51-55 st fyrir hvora öxl, snúið við og heklið RENDUR – sjá útskýringu að ofan, og MYNSTUR frá réttu þannig – byrjið á umf 2 í mynstri: Heklið A.1a – sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð (= 1 l), A.2 (= 5 st) 1-0-1-0 sinnum á breiddina, endurtakið frá A.3 (= 9 st) yfir næstu 36-45-45-54 st, A.5 yfir 18 ll við hnakka, endurtakið A.3 yfir næstu 36-45-45-54 st, A.4 1-0-1-0 sinnum, A.1a. Heklið 1 umf til baka í mynstri (= umf 3). Haldið svona áfram með mynstur, nema nú er hekluð umf 4 í mynstri A.3 yfir A.5 (hnakki), þ.e.a.s. heklið alls 10-12-12-14 mynstureiningar A.3 á breiddina. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar mynstur A.1 til A.4 hefur verið heklað til loka eru endurteknar 4 umf í mynstri á hæðinni. Þegar rönd 2 hefur verið hekluð til loka á hæðina mælist stykkið ca 28 cm. Síðasta umf sem er hekluð verður að vera síðasta umf í mynstri. Klippið frá.
Haldið nú áfram með rönd 3 og mynstureiningar enda í hvorri hlið til að draga stykkið inn eftir ermar í mismunandi stærðum eins og útskýrt er frá að neðan – byrjið frá röngu:

S/M - XXL:
ATH: Byrjið að hekla frá umf 3 í mynstri.
Hoppið yfir A.1a, A.4, 1 mynstureining A.3 og fyrsta ll-boga í næstu mynstureiningu A.3 til fækka l á eftir ermi. Byrjið í næsta ll-boga (= 3 l) og heklið A.1a, heklið A.4, A.3 alls 6-8 sinnum á breiddina, A.2, A.1a.
ATH: Nú er eftir svipað í mynstri í lok umf eins og þegar hoppað var yfir í byrjun umf.

L/XL - XXXL:
ATH: Byrjið á að hekla frá umf 3 í mynstri
Hoppið yfir A.1a, 1 mynstureining A.3 og hoppið yfir 2 næstu ll-bogana í næstu mynstureiningu A.3 fyrir úrtöku eftir ermi. Byrjið í næsta ll-boga (= síðasti ll-boginn í A.3) og heklið A.1a, heklið A.3 alls 8-10 sinnum á breiddina, heklið A.1a í næsta ll-boga. ATH: Nú er eftir svipað í mynstri í lok umf eins og þegar hoppað var yfir í byrjun umf.

Haldið áfram að endurtakið 4 síðustu umf í mynstri þar til rönd 5 hefur verið hekluð til loka á hæðina. Heklið rönd 6 þar til stykkið mælist 82-84-87-89 cm frá öxl.

FRAMSTYKKI:
Vinstri öxl:
Heklið 51-56-62-66 ll með 1 þræði í litnum natur og 1 þræði í litnum ljós perlugrár (= 2 þræðir) með heklunál nr 6. Snúið við og heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni (= 2 st), heklið 1 st í hverja af næstu 5-3-2-6 ll, * hoppið yfir 1 ll, heklið 1 st í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* alls 6-7-8-8 sinnum = 43-47-52-56 st. Snúið við og heklið rendur og mynstur frá réttu þannig – byrjið á umf 2 í mynstri: Heklið A.1c (= 1 l), endurtakið A.3 yfir næstu 36-45-45-54 st, A.2 (= 5 st) 1-0-1-0 sinnum á breiddina, heklið A.1a – sjá mynstur fyrir rétta stærð. Haldið svona áfram fram og til baka þar til 4 umf í mynstri hefur verið hekluð til loka á hæðina. Klippið frá og heklið hægri öxl.
Hægri öxl:
Heklið 51-56-62-66 ll með 1 þræði í litnum natur og 1 þræði í litnum ljós perlugrár (= 2 þræðir) með heklunál nr 6. Snúið við og heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni (= 2 st), heklið 1 st í hverja af næstu 5-3-2-6 ll, * hoppið yfir 1 ll, heklið 1 st í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* alls 6-7-8-8 sinnum = 43-47-52-56 st. Snúið við og heklið rendur og mynstur frá réttu þannig – byrjið á umf 2 í mynstri: Heklið A.1a – sjá mynstur fyrir rétta stærð (= 1 l), A.2 (= 5 st) 1-0-1-0 sinnum á breiddina, A.3 (= 9 st) yfir næstu 36-45-45-54 st, heklið A.1c (= 1 l). Haldið svona áfram fram og til baka þar til umf 5 í mynstri hefur verið hekluð til loka á hæðina – en í umf 5 er hoppað yfir A.1c, heklið fyrstu umf í A.5 (þ.e.a.s. 18 lausar ll fyrir háls), haldið síðan áfram yfir vinstri öxl þannig: Hoppið yfir A.1c, heklið umf 5 í mynstri yfir þær l sem eftir eru í umf. Heklið síðustu umf í mynstri til baka. Endurtakið síðan síðustu 4 umf í mynstri á hæðina – yfir A.5 er heklað A.3 2 sinnum á breiddina, þ.e.a.s. nú eru 10-12-12-14 mynstureiningar A.3 á breiddina. Haldið síðan áfram með rendur og mynstur til að draga stykkið inn eftir ermar eins og á bakstykki.

FRÁGANGUR:
Leggið axlir á bakstykki og framstykki að hvoru öðru og saumið axlasauma með 1 þræði í litnum natur með því að sauma l eina og eina saman.
Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í ett með 1 þræði í litnum ljós grár, saumið yst í lykkjubogana í l eina og eina þar til 26 cm eru eftir fyrir klauf neðst meðfram hvorri hlið.

KANTUR:
Heklið kant í kringum ermar þannig: Byrjið mitt undir ermi og heklið með 1 þræði í litnum natur og 1 þræði í litnum ljós perlugrár (= 2 þræðir) með heklunál nr 6 þannig: * heklið 1 fl, 3 ll, hoppið yfir 1 cm *, endurtakið frá *-* í kringum alla ermina og endið með 1 kl í fyrstu fl í umf.
Heklið á sama hátt í kringum hina ermina.
Heklið kant í kringum hálsmál þannig:
Byrjið mitt ofan á annarri öxlinni og heklið á sama hátt og í kringum ermar.

Mynstur

symbols = 1 ll
symbols = 1 fl í l
symbols = 1 fl um ll-boga
symbols = 1 st í l
symbols = Heklið 2 st saman þannig: Heklið 1 st í næsta st en bíðið með að draga bandið í gegn í lokin, heklið 1 st til viðbótar í sama st, en þegar draga á bandið í gegn í lokin er það dregið í gegnum allar l á heklunálinni.
symbols = Heklið 2 st saman þannig: Heklið 1 st um miðju ll í st-hópnum en bíðið með að draga bandið í gegn í lokin, heklið 1 st til viðbótar um sömu ll, en þegar draga á bandi í gegn í lokin er það dregið í gegnum allar l á heklunálinni.
symbols = 1 st um ll-boga
symbols = Heklið einn st-hóp um ll-bogann þannig: Heklið * 1 st, 1 ll *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar um sama ll-boga, 1 st um sama ll-boga.
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1326

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (8)

country flag Dominique wrote:

Bonjour! Je suis à nouveau auprès de vous pour vous demander de l’aide. Je ne comprends pas, après plusieurs essais, comment terminer les rangs. C’est soit c’est trop soit pas assez. Je ne comprends pas si je dois tricoter A2, A3 et A5 ou seulement A3… et je réussis pas à insérer le A1, ça ne marche jamais. J’en suis déjà à ma dixième tentative et ça ne marche vraiment pas. Y a-t-il peut-être une erreur dans les explications?’ Merci mille fois de m’aider!

18.09.2023 - 22:52

DROPS Design answered:

Bonjour Dominique, commencez les diagrammes par A.1a; puis crochetez les diagrammes dans l'ordre indiqué et terminez par A.1a, autrement dit, en début de rang, vous crochetez soit 3 mailles en l'air (si la 1ère maille est une bride) soit 1 maille en l'air (si la première maille est une maille serrée); et vous terminez soit par 1 bride soit par 1 maille serrée. Entre temps, crochetez simplement les diagrammes dans l'ordre indiqué pour votre taille. Bon crochet!

19.09.2023 - 09:23

country flag Dominique wrote:

Bonjour! Je ne comprends pas du tout le début du modèle… la chaînette que l’on doit faire au début à quoi correspond-elle? Et les 18 mailles en l’air? Je n’arrive pas du tout à me mettre dedans… pouvez-vous éclairer ma lanterne, s’il vous plaît? Merci!

29.08.2023 - 15:45

DROPS Design answered:

Bonjour Dominique, vous crochetez d'abord la chaînette de l'épaule droite, puis la chaînette de l'épaule gauche (séparément), crochetez ensuite des brides sur la chaînette de l'épaule gauche, 18 mailles en l'air pour l'encolure dos, et crochetez ensuite dans la chaînette de l'épaule droite = les 2 épaules sont maintenant réunies et vous avez 1 rang de brides sur les 2 épaules + une chaînette entre les deux. Bon crochet!

30.08.2023 - 07:51

country flag Joanne wrote:

Is it possible to obtain this pattern in writing and not a chart? I struggle to read charts. Thank you.

09.09.2020 - 16:13

DROPS Design answered:

Dear Joanne, there are only diagrams to this pattern, but you will find how to read crochet diagrams here. Happy crocheting!

09.09.2020 - 16:27

Carolina wrote:

Hola, soy Carolina Fresno de Chile, me gustaría saber si venden sus lanas acá en mi país? Y perdonen pero si alguien me puede ayudar para aprender a leer sus patrones, la verdad es q estoy empezando y lo único q quiero es aprender. Muchas gracias

28.02.2018 - 19:39

DROPS Design answered:

Hola Carolina. En Chile no hay tiendas de Drops, bajo esté línk puedes encontrar las tiendas que tienen envíos internacionales.: https://www.garnstudio.com/findastore.php?s=w&cid=23

01.03.2018 - 20:27

country flag Britt wrote:

Hej vil lige høre om i har fundet ud af mit spørgsmål? Vh Britt

14.07.2017 - 14:30

DROPS Design answered:

Hej Britt, jo men det skal passe, du hækler 18 lm imellem stykkerne og mønsteret går over 9 masker, så du skal hækle de to stykker som tidligere, plus 2 gange over de nye masker. God fornøjelse!

08.08.2017 - 08:21

country flag Britt wrote:

Hej Jeg er kommet til forstyk hvor jeg hækler venstre og højreskulder sammen med 18 lm jeg laver str. xxl, der kan jeg ikke få det til at passe sammen med mønsteret.

14.06.2017 - 09:42

country flag Britt wrote:

Jeg kan ikke få mønsteret til at passe på forstykket. Jeg har lavet ryggen. Kan der være en fejl i maske antallet? Vh Britt

12.06.2017 - 14:12

DROPS Design answered:

Hej Britt, Kan du beskrive hvor du er i opskriften. Hvilken størrelse du hækler og hvor mange masker du har, så skal vi se på det.

13.06.2017 - 13:55

Britt wrote:

Jeg har lavet ryggen på denne, og er nu gået til skulder på forstykket. Jeg kan ikke få mønsteret til at passe. Er der muligvis en fejl i mønsteret? britt

12.06.2017 - 09:56