Molly Bear |
|
|
|
Heklaður bangsi úr DROPS Merino Extra Fine
DROPS Baby 19-13 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsta fastalykkja í byrjun á hverri umferð er skipt út fyrir 1 loftlykkju og hver umferð endar með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. FASTALYKKJUR HEKLAÐAR SAMAN: 2 fastalykkjur eru heklaðar í 1 fastalykkju þannig: Stingið heklunálinni í fyrstu lykkju, sækið þráðinn og stingið heklunálinni í næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræði um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BANGSI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Byrjað er að hekla fyrst efst á höfði og síðan niður yfir búk. Að lokum eru hekluð eyru, hendur, fætur og nef sem saumað er á í lokin. HÖFUÐ: Sjá HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 4 með litnum natur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. UMFERÐ 1: Heklið 8 fastalykkjur um hringinn. UMFERÐ 2: 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 16 fastalykkjur. UMFERÐ 3: * 1 fastalykkja í fyrstu fastalykkju, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 24 fastalykkjur. UMFERÐ 4: * 1 fastalykkja í hvora af fyrstu 2 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 32 fastalykkjur. UMFERÐ 5-10: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 32 fastalykkjur. UMFERÐ 11: * 1 fastalykkja í hvora af fyrstu 2 fastalykkjum, heklið síðan 2 næstu fastalykkjur saman (sjá útskýringu að ofan) *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 24 fastalykkjur. UMFERÐ 12: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 24 fastalykkjur. UMFERÐ 13: * 1 fastalykkja í hvora af fyrstu 2 fastalykkjum, heklið síðan 2 næstu fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 18 fastalykkjur. UMFERÐ 14: * 1 fastalykkja í fyrstu fastalykkju, heklið síðan 2 næstu fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 12 fastalykkjur. Fyllið höfuðið með vatti og heklið áfram hringinn á búk án þess að klippa frá. UMFERÐ 15: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 16: * 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 18 fastalykkjur. UMFERÐ 17: * 1 fastalykkja í hvora af fyrstu 2 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 24 fastalykkjur. UMFERÐ 18 * 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 5 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 28 fastalykkjur. UMFERÐ 19-22: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 28 fastalykkjur. Skiptið yfir í litinn rauður. UMFERÐ 23: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 28 fastalykkjur. Skiptið yfir í kirsuberjarauður. UMFERÐ 24: * 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 6 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 32 fastalykkjur. Skiptið yfir í litinn rauður. UMFERÐ 25: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 32 fastalykkjur. Skiptið yfir í litinn kirsuber. UMFERÐ 26: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 32 fastalykkjur. Skiptið yfir í litinn rauður. UMFERÐ 27: * 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 6 fastalykkjum, heklið síðan 2 næstu fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 28 fastalykkjur. Skiptið yfir í litinn kirsuber. UMFERÐ 28: * 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 5 fastalykkjum, heklið síðan 2 næstu fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 24 fastalykkjur. Skiptið yfir í litinn rauður. UMFERÐ 29: * 1 fastalykkja í hverja f fyrstu 4 fastalykkjum, heklið síðan 2 næstu fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 20 fastalykkjur. Skiptið yfir í litinn kirsuber. UMFERÐ 30: * 1 fastalykkja í hvora af fyrstu 2 fastalykkjum, heklið síðan 2 næstu fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 15 fastalykkjur. Skiptið yfir í litinn rauður. UMFERÐ 31: * 1 fastalykkja í fyrstu fastalykkju, heklið síðan 2 næstu fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 10 fastalykkjur. Skiptið yfir í litinn kirsuber. UMFERÐ 32: Heklið allar fastalykkjur saman 2 og 2 = 5 fastalykkjur. Fyllið bangsann með vatti, dragið þráðinn í gegnum 5 lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. FÓTUR: Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 4 með litnum kirsuber og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. UMFERÐ 1: Heklið 7 fastalykkjur um hringinn. UMFERÐ 2: 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 14 fastalykkjur. UMFERÐ 3: * Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju þannig: 5 fastalykkjur, 1 hálfur stuðull, 2 stuðlar, 1 hálfur stuðull og endið með 5 fastalykkjur = 14 lykkjur. UMFERÐ 4: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju = 14 fastalykkjur – ATH: Heklið í ysta lykkjubogann. UMFERÐ 5: ATH: Heklið nú aftur í gegnum alla fastalykkjuna. Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 3 fastalykkjum, heklið síðan 8 næstu fastalykkjur saman 2 og 2, endið með 3 fastalykkjur = 10 fastalykkjur. UMFERÐ 6: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 10 fastalykkjur. Skiptið yfir í litinn natur. UMFERÐ 7-13: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 10 fastalykkjur. Fyllið fótinn með vatti, leggið stykkið flatt og heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju í gegnum bæði lögin = 5 fastalykkjur. Klippið frá. Heklið annan fót á sama hátt og saumið báða fætur mitt undir búk. HÖND: Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 4 með litnum natur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. UMFERÐ 1: Heklið 8 fastalykkjur um hringinn. UMFERÐ 2-6: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 8 fastalykkjur. Fyllið höndina með vatti, leggið stykkið flatt og heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju í gegnum bæði lögin = 4 fastalykkjur. Klippið frá og saumið höndina efst á búk. Heklið aðra hönd á sama hátt og saumið í gangstæða hlið. EYRA: Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 4 með litnum natur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. UMFERÐ 1: Heklið 6 fastalykkjur um hringinn. UMFERÐ 2: * 1 fastalykkja í hvora af fyrstu 2 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 4: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 12 fastalykkjur. Leggið stykkið flatt og heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju í gegnum bæði lögin = 6 fastalykkjur. Klippið frá og saumið eyrað á höfuðið. Heklið annað eyra á sama hátt og saumið í gangstæða hlið. NEF: Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 3 með litnum grár og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. UMFERÐ 1: Heklið 6 fastalykkjur um hringinn. Skiptið yfir í heklunál 4 og litinn natur. UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 6 fastalykkjur. UMFERÐ 3: Heklið 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 4: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 12 fastalykkjur. Fyllið nefið með vatti og saumið á með smáu spori framan á höfði. Saumið 2 lítil augu með litnum svartur framan á höfuðið. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (4)
Carmen Arteaga Echeverría wrote:
No entiendo para tejer la oreja ,como tejer a través de ambas capas”, donde tejo el primer punto de la sa manera. Hay algún video? Gracias
09.08.2021 - 22:50DROPS Design answered:
Hola Carmen. Este vídeo puede ayudarte: https://www.garnstudio.com/video.php?id=202&lang=es
11.08.2021 - 16:46Claartje wrote:
Dit is een haakpatroon, maar staat in de database als breipatroon.
27.01.2019 - 16:42Denise wrote:
Merci pour ce modèle bien expliqué , sympa à crocheter
29.06.2016 - 18:54Hanneke wrote:
Op de webpage voordat je bij dit patroon komt, staat 19 steken. In het patroon staat echter dat je haaknaalden moet gebruiken. Dit klopt niet.
19.01.2013 - 09:51DROPS Design answered:
Je hebt 19 v (vasten/steken) per 10 cm voor dit patroon.
19.01.2013 - 20:56