Judith skrifaði:
Ik heb deze mat gehaakt alleen nu wil ik hem groter maken. Hoe ga ik dan verder met meerderen kan iemand mij dat op papier geven.
09.01.2022 - 11:19DROPS Design svaraði:
Dag Judith,
Voor het sterrenpatroon heb je een meervoud van 4 steken plus 1 nodig. Op de toer van vasten meerder je steeds steken zodat de mat plat blijft. Op die manier kan je het patroon voortzetten en de mat groter maken.
10.01.2022 - 17:42
Silvia skrifaði:
Ist Haeckeldiagramm nicht besser als 1000 Woerte?
07.06.2020 - 15:07
Maria Cecchinato skrifaði:
Lovely seating pads. I wait for the pattern!
18.01.2020 - 08:15
Beach Seat#beachseatpad |
|
![]() |
![]() |
Hekluð sessa með stjörnumynstri úr 2 þráðum DROPS Snow.
DROPS 209-5 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á umferð með venjulegum hálfum stuðlum er fyrstu lykkju skipt út fyrir 2 loftlykkjur, umferðin endar með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SESSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring frá miðju og út. Heklið 1 sessu með 2 þráðum í litnum ljós bleikur og 1 sessu með 2 þráðum í litnum ametist. SESSA: Notið heklunál 10 og 2 þræði í litnum ljós bleikur, heklið 5 loftlykkjur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. SJÁ HEKLLEIÐBEININGAR! UMFERÐ 1: Heklið 11 hálfa stuðla um loftlykkjuhringinn. UMFERÐ 2: Í þessari umferð er heklað í aftari lykkjubogana. Heklið 2 hálfa stuðla í hverja lykkju umferðina hringinn = 22 hálfir stuðlar. UMFERÐ 3: Í þessari umferð er heklað í aftari lykkjubogana. Heklið 2 hálfa stuðla í hverja lykkju þar til 1 lykkja er eftir, heklið 3 hálfa stuðla í síðustu lykkju = 45 hálfir stuðlar. UMFERÐ 4: Í þessari umferð er heklað í aftari lykkjubogana. Heklið 3 loftlykkjur, heklið upp 1 lykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni, heklið upp 1 lykkju í 3. loftlykkju frá heklunálinni, heklið upp 1 lykkju í fyrstu lykkju í umferð (= sama lykkja og loftlykkjurnar komu frá) og heklið upp 1 loftlykkju í hverja og eina af 2 næstu lykkjum = 6 lykkjur á heklunálinni. Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið í gegnum allar 6 lykkjurnar og heklið 1 loftlykkju (þessi myndar 1 «stjörnugat» á toppi á 6 lykkjum sem heklaðar voru saman). * Heklið upp 1 lykkju í gatið, heklið upp 1 lykkju í hlið á þeim síðustu af 6 lykkjum, heklið upp 1 lykkju í sömu lykkju sem 6. lykkjan var hekluð upp í fyrra skipti, heklið upp 1 lykkju í hverja og eina af næstu 2 lykkjum í umferð = 6 lykkjur á heklunálinni, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið í gegnum allar lykkjur og heklið 1 loftlykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn. Endið með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju frá byrjun á umferð = 22 stjörnur í umferð. UMFERÐ 5: Heklið 2 loftlykkjur, heklið 2 hálfa stuðla í hvert stjörnugati umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju frá byrjun á umferð = 45 hálfir stuðlar. Stykkið mælist ca 20 cm að þvermáli. UMFERÐ 6: Í þessari umferð er heklað í aftari lykkjubogana. Heklið hálfa stuðla JAFNFRAMT því sem auka á út 28 hálfa stuðla jafnt yfir þannig: Heklið 2 loftlykkjur, * heklið 2 hálfa stuðla í hvora af næstu 2 lykkjum, heklið 1 hálfan stuðul í næstu lykkju *, heklið frá *-* alls 14 sinnum, heklið 1 hálfan stuðul í hvora af síðustu 2 lykkjum = 73 hálfir stuðlar. UMFERÐ 7: Í þessari umferð er heklað í aftari lykkjubogana. Heklið 3 loftlykkjur, heklið upp 1 lykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni, heklið upp 1 lykkju í 3. loftlykkju frá heklunálinni, heklið upp 1 lykkju í fyrstu lykkju í umferð (= sama lykkja og loftlykkjurnar komu frá) og heklið upp 1 loftlykkju í hvora af næstu 2 lykkjum = 6 lykkjur á heklunálinni. Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið í gegnum allar 6 lykkjurnar og heklið 1 loftlykkju (þessi myndar 1 «stjörnugat» á toppi á 6 lykkjum sem heklaðar voru saman). * Heklið upp 1 lykkju í gatið, heklið upp 1 lykkju í hlið á þeim síðustu af 6 lykkjum, heklið upp 1 lykkju í sömu lykkju sem 6. lykkjan var hekluð upp í fyrra skipti, heklið upp 1 lykkju í hvora af næstu 2 lykkjum í umferð = 6 lykkjur á heklunálinni, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið í gegnum allar lykkjur og heklið 1 loftlykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn. Endið með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju frá byrjun á umferð = 36 stjörnur í umferð. UMFERÐ 8: Heklið 2 loftlykkjur, heklið 2 hálfa stuðla í hvert stjörnugati umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju frá byrjun á umferð = 73 hálfir stuðlar. Stykkið mælist ca 32 cm að þvermáli. UMFERÐ 9: Í þessari umferð er heklað í aftari lykkjubogana. Heklið hálfa stuðla JAFNFRAMT því sem auka á út 28 hálfa stuðla jafnt yfir þannig: Heklið 2 loftlykkjur, * heklið 2 hálfa stuðla í næstu lykkju, heklið 1 hálfan stuðul í hvora af næstu 2 lykkjum, heklið 2 hálfa stuðula í næstu lykkju, heklið 1 hálfan stuðul í næstu lykkju *, heklið frá *-* alls 14 sinnum, heklið 1 hálfan stuðul í hvora af síðustu 2 lykkjum = 101 hálfir stuðlar. UMFERÐ 10: Í þessari umferð er heklað í aftari lykkjubogana. Heklið 3 loftlykkjur, heklið upp 1 lykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni, heklið upp 1 lykkju í 3. loftlykkju frá heklunálinni, heklið upp 1 lykkju í fyrstu lykkju í umferð (= sama lykkja og loftlykkjurnar komu frá) og heklið upp 1 loftlykkju í hvora af næstu 2 lykkjum = 6 lykkjur á heklunálinni. Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið í gegnum allar 6 lykkjurnar og heklið 1 loftlykkju (þessi myndar 1 «stjörnugat» á toppi á 6 lykkjum sem heklaðar voru saman). * Heklið upp 1 lykkju í gatið, heklið upp 1 lykkju í hlið á þeim síðustu af 6 lykkjum, heklið upp 1 lykkju í sömu lykkju sem 6. lykkjan var hekluð upp í fyrra skipti, heklið upp 1 lykkju í hvora af næstu 2 lykkjum í umferð = 6 lykkjur á heklunálinni, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið í gegnum allar lykkjur og heklið 1 loftlykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn. Endið með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju frá byrjun á umferð = 50 stjörnur í umferð. UMFERÐ 11: Heklið 2 loftlykkjur, heklið 2 hálfa stuðla í hvert stjörnugati umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju frá byrjun á umferð = 101 hálfir stuðlar. Stykkið mælist ca 42 cm að þvermáli. Klippið frá og festið enda. Heklið aðra sessu með 2 þráðum í litnum ametist. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #beachseatpad eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 6 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 209-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.