Kim skrifaði:
Liebes Team, was bedeutet "betont" abnehmen? Vielen Dank für Eure Antwort. Viele Grüße Kim
03.10.2024 - 10:21DROPS Design svaraði:
Liebe Kim, hier ist "geneigt" gemeint, entweder nach rechts geneight (2 M rechts zusammen) oder nach links geneight (1 M abheben, 1 M stricken, die abgehobene Masche über die gestrickte Masche ziehen). Viel Spaß beim Stricken!
03.10.2024 - 16:08
Kim skrifaði:
Liebes Team, was bedeutet "betont" abnehmen? Vielen Dank für Eure Antwort. Viele Grüße Kim
03.10.2024 - 10:02
Savenville skrifaði:
Wearing/carrying purchased wool fabric berets for recent capricious weather - rain and wind with sunny intervals, hairstyle demolished so hat must remain all day. This is perfect to stay in place and knit in cotton or cotton polyester, one colour if preferred. I can usually rely on you and drops.tks.
12.08.2019 - 23:48
Ready to Cheer#readytocheerhat |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð húfa með fána úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað frá hlið í garðaprjóni og röndum.
DROPS 194-40 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju með tveimur mismunandi aðferðum þannig: Fækkið um 1 lykkju til hægri á vinstri hlið á stykki: Prjónið 2 lykkjur slétt saman. Fækkið um 1 lykkju til vinstri á hægri hlið á stykki: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið óprjónuðu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt til að koma í veg fyrir göt. ÚTAUKNING OG ÚRTÖKU UMFERÐ: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju – sjá ÚTAUKNING!, prjónið sléttar lykkjur þar til 4 lykkjur eru eftir, fækkið um 1 lykkju til hægri – sjá ÚRTAKA! og prjónið 2 lykkjur slétt. ATH! Munið eftir að hver umferð frá röngu er prjónuð slétt. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 4 lykkjur eru eftir, fækkið um 1 lykkju til hægri og prjónið 2 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt, fækkið um 1 lykkju til vinstri – sjá ÚRTAKA! Prjónið sléttar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju, prjónið 2 lykkju slétt. UMFERÐ 4 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkjur og prjónið 2 lykkjur slétt. LITAVALMÖGULEIKAR: Húfurnar á myndinni eru prjónaðar í litavalmöguleikum fyrir NOREG sem er útskýrt hér, ef óskað er eftir er hægt að skipta yfir í aðra litavalmöguleika eins og útskýrt er að neðan. NOREGUR: Litur 1 = rauður, litur 2 = natur og litur 3 = dökk blár. ÍSLAND: Litur 1 = dökk blár, litur 2 = natur og litur 3 = rauður. SVÍÞJÓÐ: Litur 1 og 3 = blár og litur 2 = gulur. DANMÖRK: Litur 1 og 3 = rauður og litur 2 = natur. FINNLAND: Litur 1 og 3 = natur og litur 2 = blár. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað frá hlið, allar umferðir eru prjónaðar slétt (= garðaprjón). HÚFA: HLUTI 1: Notið lit 1 – sjá LITAVALMÖGULEIKI. Fitjið upp 38-40-42 lykkjur á prjón 4 með Merino Extra Fine. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan garðaprjón – JAFNFRAMT er aukið út/lykkjum fækkað í hverri umferð frá réttu – sjá ÚTAUKNING OG ÚRTÖKU UMFERÐ. Allar umferðir frá röngu eru prjónaðar slétt og eru ekki útskýrðar í uppskrift. Setjið gjarna prjónamerki í réttu á stykkinu, þannig að auðveldara sé að sjá hvoru megin í hvorri hlið á að auka út/fækka lykkjum. Prjónið fyrstu umferð frá réttu þannig: Prjónið UMFERÐ 1 – sjá útskýringu að ofan, alls 12-13-14 sinnum. Það er enn sami fjöldi lykkja í umferð og prjónaðar hafa verið alls 26-28-30 umferðir garðaprjón frá byrjun. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið UMFERÐ 2 – sjá útskýringu að ofan, alls 4-4-4 sinnum. Nú eru 34-36-38 lykkjur í umferð og prjónaðar hafa verið alls 34-36-38 umferðir garðaprjón frá byrjun. Prjónið UMFERÐ 3 – sjá útskýringu að ofan, alls 12-13-14 sinnum. Það er enn sami fjöldi lykkja í umferð og prjónaðar hafa verið alls 58-62-66 umferðir garðaprjón frá byrjun. HLUTI 2: Notið lit 2. Prjónið UMFERÐ 4 – sjá útskýringu að ofan, alls 4-4-4 sinnum. Nú eru 38-40-42 lykkjur í umferð. Nú hafa verið prjónaðar 66-70-74 umferðir garðaprjón frá byrjun. HLUTI 3: Notið lit 3. Prjónið UMFERÐ 1 alls 6-8-8 sinnum. Það er enn sami fjöldi lykkja í umferð. Prjónið UMFERÐ 2 alls 4-4-4 sinnum. Nú eru 34-36-38 lykkjur í umferð, prjónaðar hafa verið alls 86-94-98 umferðir garðaprjón frá byrjun. Stykkið mælist ca 21-22-23 cm (= mitt framan á húfu). Prjónið UMFERÐ 4 alls 4-4-4 sinnum. Nú eru 38-40-42 lykkjur í umferð. Prjónaðar hafa verið alls 94-102-106 umferðir garðaprjón frá byrjun. Prjónið UMFERÐ 3 ALLS 6-8-8 sinnum. Það er enn sami fjöldi lykkja í umferð. HLUTI 4: Notið lit 2. Prjónið UMFERÐ 2 alls 4-4-4 sinnum. Nú eru 34-36-38 lykkjur í umferð. Prjónaðar hafa verið alls 114-126-130 umferðir garðaprjón frá byrjun. HLUTI 5: Notið lit 1. Prjónið UMFERÐ 1 alls 12-13-14 sinnum. Það er enn sami fjöldi lykkja í umferð og prjónaðar hafa verið alls 138-152-158 umferðir garðaprjón frá byrjun. Prjónið UMFERÐ 4 alls 4-4-4 sinnum. Nú eru 38-40-42 lykkjur í umferð og prjónaðar hafa verið alls 146-160-166 umferðir garðaprjón frá byrjun. Prjónið UMFERÐ 3 alls 12-13-14 sinnum. Það er enn sami fjöldi lykkja í umferð og prjónaðar hafa verið alls 170-186-194 umferðir garðaprjón frá byrjun. Endið með að prjóna 2 umferðir garðaprjón og fellið af með sléttum lykkjum í næstu umferð. Prjónaðar hafa verið alls 172-188-196 umferðir garðaprjón frá byrjun og stykkið mælist ca 42-44-46 cm. FRÁGANGUR: Toppurinn á húfunni = sú hlið á stykki sem er með 2 heilum hornum og 2 hálfum hornum. Opið á húfunni = sú hlið á stykki sem er með 3 heil horn (miðju hornið nær fram á enni að framan). Saumið húfuna saman kant í kant með smáu spori þannig: Saumið saman toppinn á húfunni með því að sauma fyrsta hálfa hornið saman við fyrri helming á fyrsta heila horninu. Síðan er seinni helmingurinn af fyrsta heila horninu saumað við fyrri helming af næsta heila horni. Saumið síðan seinni helming af seinna heila horninu saman við síðasta hálfa hornið. Að lokum er húfan saumuð saman við miðju að aftan (= affelling og uppfitjun). |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #readytocheerhat eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 14 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 194-40
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.