Rays of Spring |
|
|
|
Prjónuð peysa í garðaprjóni, stuttum umferðum og röndum úr DROPS Fabel. Stærð S - XXXL.
DROPS 178-26 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR: Garðaprjón er mjög teygjanlegt og flíkin kemur til með að teygjast við notkun, bæði á breidd og lengd og verður stærri en mynsturteikningin með máli segir til um. Veldu því minni stærð en þú notar venjulega. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. MÆLING: Mælt er frá uppfitjunarkanti. Mál undir op fyrir handveg, þar sem stykkið er minnst. STUTTAR UMFERÐIR: Stuttar umferðir eru alltaf prjónaðir með litnum natur og í garðaprjóni. 1 mynstureining með stuttum umferðum eru 2 umferðir í garðaprjóni yfir allar lykkjur í stykkinu, 18 umferðir garðaprjón með stuttum umferðum, 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur, 18 umferðir garðaprjón með stuttum umferðum og 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í 86. lykkju frá réttu. Skiptið yfir í litinn natur, prjónið síðan stuttar umferðir þannig (1. umferð = frá réttu): UMFERÐ 1: Prjónið allar lykkjur slétt = 143-148-152-157-161-166 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið allar lykkjur slétt. UMFERÐ 3: Prjónið 86 lykkjur slétt. UMFERÐ 4: Snúið og prjónið 85 lykkjur slétt til baka, prjónið 2 lykkjur í síðustu lykkju. UMFERÐ 5: Prjónið 77 lykkjur slétt. UMFERÐ 6: Snúið og prjónið 76 lykkjur slétt til baka, prjónið 2 lykkjur í síðustu lykkju. Haldið áfram með stuttar umferðir og garðaprjón, snúið 10 lykkjum fyrr í hverri umferð frá réttu og aukið út um 1 lykkju í lok hverrar umferðar frá röngu. Haldið svona áfram þar til prjónaðar hafa verið 14 lykkjur áður en snúið er við, snúið og prjónið 2 lykkju í síðustu lykkju. Nú hafa verið prjónaðar 18 umferðir garðaprjón með stuttum umferðum. Prjónið 2 umferðir yfir allar lykkjur á prjóni. Prjónið síðan frá réttu – þannig: UMFERÐ 1: Prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja á prjóni), prjónið 13 lykkjur slétt. UMFERÐ 2: Snúið og prjónið sléttar lykkjur til baka. UMFERÐ 3: Prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja á prjóni), prjónið 22 lykkjur slétt. UMFERÐ 4: Snúið við og prjónið sléttar lykkjur til baka. UMFERÐ 5: Prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja á prjóni), prjónið 31 lykkju slétt. UMFERÐ 6: Snúið og prjónið sléttar lykkjur til baka. Haldið áfram með stuttar umferðir og garðaprjón, snúið 10 lykkjum nær lykkju með prjónamerki í hvert skipti sem snúið er við og prjónið 2 lykkjur slétt saman í byrjun hverrar umferðar frá réttu. Haldið svona áfram þar til prjónaðar hafa verið 86 lykkjur áður en snúið er við, snúið og prjónið út umferðina. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu = 143-148-152-157-161-166 lykkjur í umferð. Á vinstri hlið á stykki/á öxl á peysu: 1 mynstureining með stuttum umferðum = 6 umferðir garðaprjón með natur. RENDUR: * Prjónið 2 umferðir garðaprjón með litnum bleik þoka, prjónið 2 umferðir garðaprjón með litnum natur *, endurtakið frá *-*. Rendurnar eru prjónaðar á milli mynstureininga með stuttum umferðum á bakstykki og á framstykki. Hliðarnar og kantar eru prjónað með litnum bleik þoka. RENDUR ERMI: * Prjónið 2 umferðir garðaprjón með litnum natur, 2 umferðir með garðaprjón með litnum bleik þoka *, endurtakið frá *-* í 8 cm. Afgangur á ermi er prjónaður í sléttprjóni með rönguna út með litnum bleik þoka (= brugðnar lykkjur frá réttu og sléttar lykkjur frá röngu). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón. Prjónið GARÐAPRJÓN = allar umferðir slétt. Fitjið upp og prjónið frá vinstri hlið, sjá örvar í mynsturteikningu fyrir prjónstefnu. LESIÐ LEIÐBEININGAR. PEYSA: Fitjið laust upp 102-104-106-109-111-113 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum bleik þoka. Prjónið 5-11-13-15-19-21 umferð (1. umferð = frá röngu). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í lok næstu umferðar (= frá réttu) eru fitjaðar upp 3 nýjar lykkjur fyrir handveg. Fitjið síðan upp 3 nýjar lykkjur í lok 6. hverrar umferðar: 0-0-1-2-4-5 sinnum = 105-107-112-118-126-131 lykkjur. Í lok næstu umferðar frá réttu eru fitjaðar upp 38-41-40-39-35-35 nýjar lykkjur = 143-148-152-157-161-166 lykkjur. Haldið áfram að prjóna garðaprjón yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 9-10-11-12-14-16 cm (stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu). Prjónið síðan 1 mynstureiningu með STUTTAR UMFERÐIR – sjá útskýringu að ofan – með litnum natur. Prjónið síðan RENDUR – útskýringu að ofan, yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 17-19-21-23-26-28 cm – LESIÐ MÆLING. Fellið nú af 5 lykkjur í byrjun næstu umferð frá röngu í hnakka = 138-143-147-152-156-161 lykkjur. Haldið áfram að prjóna garðaprjón yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 20-22-24-26-30-32 cm (stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu). Prjónið 1 mynstureiningu með stuttum umferðum með litnum natur. Haldið síðan áfram með rendur og garðaprjón þar til stykkið mælist 25-27-29-31-36-38 cm. Fitjið nú upp 5 lykkjur í lok næstu umferðar frá réttu = 143-148-152-157-161-166 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 32-35-38-41-47-49 cm (passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá réttu). Prjónið 1 mynstureiningu með stuttum umferðum með litnum natur. Prjónið til loka í garðaprjóni og litnum bleik þoka. Prjónið þar til stykkið mælist ca 40-43-45-47-52-54 cm. Fellið nú af 38-41-40-39-35-35 lykkjur í byrjun næstu umferðar frá röngu fyrir handveg = 105-107-112-118-126-131 lykkjur. Í næstu umferð frá röngu eru felldar af 3 lykkjur í byrjun umferðar. Fellið síðan af í byrjun 6. hverrar umferðar: 3 lykkjur 0-0-1-2-4-5 sinnum = 102-104-106-109-111-113 lykkjur. Prjónið fram og til baka þar til stykkið mælist 42-46-50-54-62-66 cm. Fellið laust af. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið frá hlið að miðju að framan. Sjá ör í mynsturteikningu fyrir prjónstefnu. Fitjið laust upp 102-104-106-109-111-113 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum bleik þoka. Prjónið síðan og aukið út fyrir handveg eins og á bakstykki = 143-148-152-157-161-166 lykkjur. Þegar stykkið mælist 6-7-8-9-12-14 cm (passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá réttu) prjónið 1 mynstureiningu með stuttum umferðum með litnum natur. Prjónið síðan áfram í garðaprjóni og röndum yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 13-15-17-17-19-21 cm – LESIÐ MÆLING- (passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá réttu) prjónið 1 mynstureiningu með stuttum umferðum með litnum natur. Prjónið síðan garðaprjón með litnum bleik þoka. Prjónið þar til stykkið mælist 3-3-3-5-6-6 cm á eftir síðasta snúning (stykkið mælist nú alls ca 17-19-21-23-26-28 cm). Fellið nú af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umferðar frá röngu: 9-9-11-9-11-8 lykkjur 1 sinni, 5 lykkjur 7 sinnum og 2 lykkjur 1-1-1-2-2-4 sinnum = 97-102-104-109-111-115 lykkjur. Prjónið 5 umferðir fram og til baka yfir allar lykkjur með litnum bleik þoka. Fellið nú af fyrir hnappagati, prjónið frá réttu þannig: Prjónið 56-61-63-68-70-74 lykkjur, * prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 16 lykkjur *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum, prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið síðustu 3 lykkjurnar = 3 hnappagöt. Prjónið 5 umferðir fram og til baka yfir allar lykkjur með litnum bleik þoka. Fellið laust af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið frá miðju að framan í hlið. Fitjið laust upp 97-102-104-109-111-115 lykkjur á hringprjóna 3,5 með litnum bleik þoka. Prjónið 11 umferðir (1. umferð = frá réttu) fram og til baka yfir allar lykkjur. Aukið síðan út fyrir hálsmáli í lok hverrar umferðir frá réttu: 2 lykkjur 1-1-1-2-2-4 sinnum, 5 lykkjur 7 sinnum og 9-9-11-9-11-8 lykkjur 1 sinni = 143-148-152-157-161-166 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist ca 10-10-10-12-13-14 cm (passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá réttu). Prjónið 1 mynstureiningu með stuttum umferðum með litnum natur. Prjónið síðan áfram í garðaprjóni og röndum. Haldið áfram fram og til baka yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist ca 17-18-19-20-20-21 cm (passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá réttu). Prjónið 1 mynstureiningu með stuttum umferðum með litnum natur. Prjónið síðan í garðaprjóni og litnum bleik þoka. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4-4-3-2-2-2 cm á eftir síðastu stuttu umferðum eru fellar af fyrstu 38-41-40-39-35-35 lykkjur frá röngu fyrir handveg. Í næstu umferð frá röngu eru felldar af 3 lykkjur í byrjun umferðar. Fellið síðan af í byrjun 6. hverrar umferðar: 3 lykkjur 0-0-1-2-4-5 sinnum = 102-104-106-109-111-113 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 6-7-8-9-12-14 cm á eftir síðasta snúning. Fellið laust af. ERMI: Ermin er prjónuð fram og til baka á hringprjón. Fitjið laust upp 48-50-52-54-56-58 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 3,5, með litnum bleik þoka. Prjónið GARÐAPRJÓN og RENDUR ERMI - sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 5-5-5-5-5-8 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið. Haldið áfram með útaukningu með 3-2½-2-1½-1½-1 cm millibili alls 12-14-16-19-20-22 sinnum = 72-78-84-92-96-102 lykkjur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 8 cm er prjónað með litnum bleik þoka og sléttprjóni með rönguna út. Þegar stykkið mælist 41-41-40-40-38-37 cm fellið af 3 lykkjur í hvorri hlið fyrir ermakúpu. ATH! Styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla. Fellið síðan af fyrir ermakúpu í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: 2 lykkjur 2-2-2-2-1-0 sinnum og 1 lykkja 10-12-14-15-24-28 sinnum. Fellið síðan af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist 47-48-48-49-49-50 cm. Fellið nú af 3 lykkjur í hvorri hlið 1 sinni. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru, stykkið mælist nú ca 48-49-49-50-50-51 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í. Saumið erma- og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju. Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (52)
Jos wrote:
Bonjour je ne métrise pas votre modèle. Est-ce que je commence à lire le patron à partir du devant droit, ensuite ce serait le dos pour terminer par le devant gauche. Est-ce que j’ai bien compris? Sinon expliquer moi comment faire. Mer Merci
31.10.2023 - 18:22DROPS Design answered:
Bonjour Mme Jos, vous tricotez chaque pièce dans le sens de la longueur en commençant par le dos, à partir du côté gauche vers le côté droit (le côté gauche, vu sur l'endroit est le bas de la veste), puis vous tricotez le devant droit en commençant par le côté vers la bordure devant et vous tricotez ensuite le devant gauche en commençant à partir de la bordure devant vers le côté (cf flèches dans le schéma); Bon tricot!
01.11.2023 - 14:56Sophie LACAILLE wrote:
Bonjour, j'ai un souci dans la maîtrise des rangs raccourcis. Après chaque rang tourné, faut-il faire un rang ou deux sur toutes les mailles et quelle maille faut-il tricoter deux fois ? Merci pour votre lumière. Cordialement
09.05.2023 - 12:32DROPS Design answered:
Bonjour Mme Lacaille, après le rang 6, tournez et tricotez les 68 premières mailles, tournez et tricotez ces 68 m en augmentant 1 m, puis tricotez 10 m en moins au rang suivant = 58 m; puis augmentez 1 m à la fin du rang suivant = 59 m, continuez ainsi, (sur l'endroit, vous tricotez 10 m en moins en remontant vers le haut de la veste; sur l'envers, vous augmentez 1 maille pour former la pointe en bas) jusqu'à ce que vous ayez tricoté 14 m sur l'envers + 1 augmentation = 15 m. Bon tricot!
09.05.2023 - 16:33Jeanett Wenche Müllertz wrote:
Jeg er simpelthen gået i stå allerede lige efter der er slået masker op i ærmegabet. Her står at man skal fortsætte til arbejdet måler (mener det er 14 cm til den str jeg arbejder med) men umiddelbart giver det altså ikke mening når jeg kigger på trøjen... Skal de 14 cm ikke være efter der er slået de nye masker op? Ellers får jeg kun nogle få cm skulder før jeg skal til at starte på kilen...
05.04.2023 - 13:56DROPS Design answered:
Hej Jeanette, jeg kan ikke finde hvor du er i opskriften. Skriv hvor du er, og hvilken størrelse og hvad du ikke forstår, så skal vi se på det?
13.04.2023 - 12:25Mette Malmstrøm wrote:
Jeg skal lukke af for 3 masker i hver side af pinden. Jeg ved godt hvordan jeg gør det i begyndelsen af pinden, men hvordan gør jeg det sidst på pinden?
02.04.2023 - 21:16DROPS Design answered:
Hej Mette, du lukker kun af i starten af hver pind :)
13.04.2023 - 11:34Kristin Wingender wrote:
Liebes Drops Team,\r\n\r\nganz lieben Dank für die schnelle Antwort, Problem gelöst, Brett vorm Kopf beseitigt! :) LG, Kristin Wingender
07.12.2022 - 11:54Kristin Wingender wrote:
Ich stricke aktuell an diesem wunderschönen Modell. Schön wäre es, wenn in der Anleitung bei den verkürzten Reihen direkt die Variante mit Umschlag hingewiesen würde, denn die Löcher, die sich ohne Umschlag bilden, entstehen erst mit den Rückreihen und man fragt sich so lange, ob man selbst was falsch macht und sich immer wieder mit Blick in die Anleitung versichert, dass das nicht der Fall ist und einem nurnoch bleibt, es vorn mit Umschlag zu versuchen und die hinten zu vernähen.
07.12.2022 - 07:35Kristin Wingender wrote:
Liebes Drops-Team, wenn ich der Anleitung für den rechten Ärmel folge (Rückenteil ist fertig), ergibt sich das Problem, dass ich bei Größe M nach sieben Zentimetern den ersten Rapport in Natur stricken soll. Da lande ich aber gleichzeitig bei der letzten Zunahme (+38 M) für den Armausschnitt. Das kann ich zwar machen, aber stimmen dann die restlichen Maßangaben, sodass in der Breite alles zusammen passt? LG, Kristin Wingender
07.12.2022 - 07:26DROPS Design answered:
Liebe Frau Wingender, ich misverstehe vielleicht Ihre Frage aber das rechte Vorderteil stricken Sie ab die Seite bis zur vorderen Mitte (Blende), so stricken Sie am Anfang genau wie beim Rückenteil : 11 Reihen dann für die Armausschnitt 3 neue Maschen 1 Mal und 38 Maschen 1 Mal anschlagen. Weiterstricken bis die Arbeit 7 cm misst dann die ersten verkürzten Reihen stricken. Viel Spaß beim stricken!
07.12.2022 - 08:30Fabienne wrote:
Bonjour, j'ai un souci avec les manches : en taille L on doit rabattre 3+(2*2)+(14*1)+2 = 23 mailles tous les 2 rangs, diminutions qui se font donc sur 2*(1+2+14+1) = 36 rangs. Or en jersey, 36 rangs correspondent à environ 12cm. Par conséquent comment peut on avoir un ouvrage de 40cm avant de commencer les diminutions, et de 48cm à la fin (mesures indiquées dans vos explications).? On a forcément au moins 12cm d'écart entre les 2, et pas 8... Ou est l'erreur ? Merci !
14.09.2022 - 19:08Magali wrote:
Bonjour, Merci pour vos beaux modèles. Je les découvre et c'est ma 1ère réalisation DROPS. Ma question porte sur l'emmanchure du dos en taille S. J'ai monté les 3 mailles en fin de rang 6, et je ne suis pas certaine de bien comprendre à quel rang monter les 38 mailles additionnelles suivantes. Est-ce au rang 8 ou serait-ce au rang 6+(5x6) = 36 ? Merci par avance de votre réponse !
18.08.2022 - 07:11DROPS Design answered:
Bonjour Magali et merci, vous augmentez ici pour l'emmanchure, en fin de rang sur l'endroit à chaque fois: 1 x 3 m en fin de rang sur l'endroit puis, en taille S, 38 mailles à la fin du rang suivant sur l'endroit (vous n'augmentez pas tous les 6 rangs en taille S) (= 41 mailles pour l'emmanchure). Bon tricot!
18.08.2022 - 09:23Stine Kristiansen wrote:
Lurer på hvor mange cm det skal være med striper på bakstykke, står bare gjenta fra * - * men ikke hvir langt
10.05.2022 - 21:19DROPS Design answered:
Hej Stine, antal cm står nede i selve opskriften: Fortsett videre med striper og riller til arbeidet måler 25-27-29-31-36-38 cm. :)
11.05.2022 - 08:02