Irena skrifaði:
Prosze o wyjasnie -probka 10 o ale ile rzedow?
23.10.2017 - 18:19DROPS Design svaraði:
Witaj Ireno, to będzie 14 rzędów. Pozdrawiam
23.10.2017 - 19:08
Elizabeth skrifaði:
I am follwing pattern,but(XL) 60 stiches - 15 nr of needles gives size for elephant.I was traing 48 stiches on nr 15 is still to big for me.What nr od needles is the best for this pattern?
12.08.2017 - 13:15DROPS Design svaraði:
Dear Elizabeth, you should always knit a sample and check the gauge before you start knitting, and change needle sized if necessary. Since the main part of thsis piece is knitted with size 9 needles, you should swatch with thatt, and go up or down for each needle-size. The design uses the different effect knitting with different gauges gives, so the begining of each piece is deliberatlely knitted looser, with larger needles. I hope this helps. Happy Knitting!
13.08.2017 - 11:06
Vinciane Bertrand skrifaði:
Bonjour quand je clique sur l'onglet Belgique pour voir le prix des laines pour expédition en Belgique, je système retourne une erreur 404. Merci de régler le problème.
29.01.2017 - 10:52DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Bertrand, merci pour votre retour, nous allons faire le nécessaire. Bon tricot!
30.01.2017 - 11:55Elin skrifaði:
Foruten oppskrift (funnet dansk), savnes arbeidstegning? Den er viktigs for meg.
30.05.2014 - 12:48DROPS Design svaraði:
Hei Elin. Dette er en opskrift publiceret i et dansk ugeblad engang og er derfor ikke paa norsk. Vi har desvaerre derfor heller ikke en skemategning med maal paa den, men du kan evt beregne med strikkefastheden.
05.06.2014 - 17:30
Capdevielle skrifaði:
Puis je tricoter ce model avec des aiguilles plus petites 7-8-10 ou 6-7-8
06.10.2012 - 14:11DROPS Design svaraði:
Bonjour Madame Capdevielle, ce modèle a été écrit pour un échantillon de 10 m = 10 cm. Si vous souhaitez tricoter un pull avec une tension différente, je vous recommande d'effectuer une recherche pour un autre modèle avec le nombre de mailles souhaité ou bien vous pouvez également recalculer les explications pour adapter à la tension souhaitée. Bon tricot !
08.10.2012 - 12:08
Grete Måsøy skrifaði:
Ja, hvor er oppskriften!!!!!
16.08.2012 - 20:44DROPS Design svaraði:
Du finder den på Dansk eller Svensk så længe. Her finder du også en supergod ordliste hvis der skulle være et ord du ikke lige forstår! God fornøjelse!
17.08.2012 - 14:42
Sonja Stefanussen skrifaði:
Hvor er oppskriften?
18.07.2012 - 17:42
DROPS Extra 0-228 |
|
|
|
Prjónuð peysa úr DROPS Snow með háum kraga, laskalínu og sléttprjóni, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS Extra 0-228 |
|
UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: LASKALÍNA: Aukið er út fyrir laskalínu hvoru megin við hvert prjónamerki. Aukið út þannig, byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið við hvert prjónamerki (= 8 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR: Til þess að fá fallega skiptingu þegar skipt er um prjónastærð, prjónið * 1 umferð með grófari prjóninum, 1 umferð með fína prjóninum *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum og síðan yfir í að prjóna með grófari prjóninum. ÚRTAKA (á við um ermar): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Prjónið 1 lykkju slétt, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), 1 lykkja slétt. ---------------------------------------------------------- PEYSA: Berustykkið er fyrst prjónað í hring ofan frá og niður frá miðju að aftan á sokkaprjóna/hringprjón. Síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar fram og til baka í lokin. Berustykkið er fyrst prjónað í hring á sokkaprjón 9 þar til nægilega margar lykkjur eru til að skipta yfir á hringprjón 9, síðan er fram- og bakstykki prjónað á hringprjón 12 og að lokum á hringprjón 15. BERUSTYKKI: Stykkið er prjónað í hring. Fitjið upp 48-48-50-52-54-56 lykkjur á sokkaprjón 9 með Snow, skiptið yfir á hringprjón þegar nægilega margar lykkjur eru komnar á prjóninn. Prjónið sléttprjón í 10 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Setjið 1 prjónamerki í stykkið, HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið 4 prjónamerki í stykkið, 1. prjónamerki eftir 8-8-8-9-9-10 lykkjur (= hálft bakstykki), 2. prjónamerki eftir 8 nýjar lykkjur (= ermi), 3. prjónamerki eftir 16-16-17-18-19-20 nýjar lykkjur (= framstykki) og 4. prjónamerki eftir 8 nýjar lykkjur (= ermi), nú eru eftir 8-8-9-9-10-10 lykkjur eftir síðasta prjónamerki (= hálft bakstykki). Láið prjónamerkin sitja í stykkinu, perjónamerkin fylgja með áfram í stykkinu! Haldið áfram í sléttprjón og með útaukningum fyrir laskalínu – sjá útskýringu að ofan. Aukið út í annarri hverri umferð alls 11-13-14-16-17-19 sinnum. Þegar allar útaukningar fyrir laskalínu hafa verið gerðar eru 136-152-162-180-190-208 lykkjur í umferð. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 21-23-24-26-28-30 cm frá prjónamerki (stykkið mælist alls ca 31-33-34-36-38-40 cm). Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 19-21-22-25-27-30 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 30-34-36-39-40-43 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-6-8-8 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið næstu 38-42-45-51-55-61 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 30-34-36-39-40-43 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-6-8-8 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið næstu 19-21-23-26-28-31 lykkjur (= hálft bakstykki). BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Haldið eftir fyrstu 22-24-25-28-31-34 og síðustu 22-24-26-29-32-35 lykkjunum í umferð á prjóni, setjið 44-48-51-57-63-69 lykkjur á framstykki á þráð = 44-48-51-57-63-69 lykkjur á bakstykki. Skiptið yfir á hringprjón 12 – LESIÐ LEIÐBEININGAR! Setjið 1 prjónamerki í stykkið, HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón til loka. Þegar stykkið mælist 21-21-22-22-22-22 cm skiptið yfir á hringprjón 15 – MUNIÐ EFTIR LEIÐBEININGAR! Þegar stykkið mælist 40-40-41-41-41-41 cm prjónið 1 umferð slétt frá röngu, síðan er fellt af með sléttum lykkjum. Stykkið mælist ca 76-78-80-82-84-86 cm alls, mælt frá uppfitjunarkanti að affellingarkanti. FRAMSTYKKI: Setjið til baka 44-48-51-57-63-69 lykkjur á hringprjón 12. Prjónið eins og bakstykki. ERMI: Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón og saumaðar saman í lokin. Setjið 30-34-36-39-40-43 lykkjur af þræði á hringprjón 12 og fitjið upp 3-3-3-3-4-4 nýjar lykkjur á hvorri hlið = 36-40-42-45-48-51 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í stykkið, HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við stykkið – LESIÐ LEIÐBEININGAR. Fækkið lykkjum svona með 6½-4½-4-3-3-2 cm millibili alls 6-8-9-10-11-12 sinnum = 24-24-24-25-26-27 lykkju. Þegar stykkið mælist 29 cm er skipt yfir á hringprjón 15. Prjónið síðan í sléttprjóni þar til stykkið mælist 43-42-41-40-39-37 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, síðan er fellt af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina ermina alveg eins. FRÁGANGUR: Saumið hliðar- og sauma undir ermum í eitt í ystu lykkjubogana. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 16 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-228
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.