Marit skrifaði:
Nydelig vakkert sjal i duse flotte farger :)
07.06.2014 - 23:31
Angela skrifaði:
Lo farò sicuramente
07.06.2014 - 10:20
Frisoline skrifaði:
Belles associations de couleurs qui créent un effet de dégradé très réussi.
06.06.2014 - 13:21Véronique skrifaði:
Un très bel effet coloré tout en nuances à la Paul Klee.
04.06.2014 - 08:43Lauren McRoberts skrifaði:
I love this blanket. It looks cozy and the colors match my living room perfectly. I love how different this yarn is.
03.06.2014 - 13:19
Hanne Krintel skrifaði:
Great look
02.06.2014 - 16:31Deborah Theaker skrifaði:
Beautiful colours and visually interesting. Perfect for Autumn
02.06.2014 - 16:13
Domino#dominoblanket |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónað teppi úr DROPS Big Delight í entrelac-mynstri.
DROPS 156-56 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 fyrir röð, ferninga og prjónstefnu. Mynsturteikning sýnir 1.-5. röð af ferningum. LEIÐBEININGAR: Í stað þess að setja lykkjur á þráð er hægt að setja lykkjur á langan hringprjón, eða fleiri hringprjóna allt eftir því sem teppið stækkar. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TEPPI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á sokkaprjóna. Allt teppið er prjónað í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Byrjið neðst í horni á FERNINGUR 1 – sjá mynsturteikningu A.1. FERNINGUR 2: Fitjið upp 11 nýjar l í lok umf frá FERNINGUR 1 á 1 nýjan prjón. Prjónið fram og til baka yfir þessar 11 l – JAFNFRAMT í lok hverrar umf frá röngu er prjónuð 1 l frá fyrri ferningi til baka á prjóninn og byrjun á hverri umf frá réttu eru 2 fyrstu l prjónaðar slétt saman. Haldið áfram þar til allar l af FERNINGUR 1 hafa verið prjónaðar – ATH! Síðustu 2 l eru prjónaðar slétt saman = 11 l á prjóni (síðasta umf er prjónuð frá röngu). Setjið lykkjur á þráð – LESIÐ LEIÐBEININGAR að ofan. FERNINGUR 3: Prjónið 11 l á 1 nýjan prjón meðfram kanti á FERNINGUR 1 frá réttu. Prjónið fram og til baka yfir þessar l í ca 7 cm (síðasta umf er prjónuð frá röngu). Setjið lykkjur á þráð. FERNINGUR 4: Fitjið upp 11 nýjar l í lok umf frá FERNINGUR 3. Prjónið fram og til baka yfir þessar 11 l – JAFNFRAMT í lok hverrar umf frá réttu er prjónuð 1 l frá FERNINGUR 3 til baka á prjóni og í byrjun á hverri umf frá röngu eru 2 fyrstu l prjónaðar slétt saman. Haldið síðan áfram þar til allar l frá FERNINGUR 3 hafa verið prjónaðar - ATH! Síðustu 2 l af FERNINGUR 3 eru prjónaðar slétt saman = 11 l á prjóni (síðasta umf er prjónuð frá réttu). Setjið lykkjur á þráð. FERNINGUR 5: Prjónið upp 11 l meðfram kanti á FERNINGUR 3 frá réttu, prjónið fram og til baka yfir þessar 11 l – JAFNFRAMT í lok hverrar umf frá réttu er prjónuð 1 l frá FERNINGUR 2 til baka á prjóni og í byrjun á hverri umf frá röngu eru 2 fyrstu l prjónaðar slétt saman. Haldið síðan áfram þar til allar l frá FERNINGUR 2 hafa verið prjónaðar - ATH! Síðustu 2 l af FERNINGUR 2 eru prjónaðar slétt saman = 11 l á prjóni (síðasta umf er prjónuð frá réttu). Setjið lykkjur á þráð. FERNINGUR 6: Prjónið upp 11 l meðfram kanti á FERNINGUR 2 frá réttu. Prjónið fram og til baka yfir þessar 11 l í ca 7 cm (síðasta umf er prjónuð frá röngu). Setjið lykkjur á þráð. FERNINGUR 7: Prjónið eins og FERNINGUR 2 (fitjið upp l í lok umf frá FERNINGUR 6, prjónið upp með 1 og 1 lykkju frá FERNINGUR 6. FERNINGUR 8: Prjónið upp 11 l meðfram kanti á FERNINGUR 6 frá röngu. Prjónið fram og til baka yfir þessar 11 l – JAFNFRAMT í lok hverrar umf frá röngu er prjónuð 1 l frá FERNINGUR 5 til baka á prjóni og í byrjun á hverri umf frá réttu eru 2 fyrstu l prjónaðar slétt saman. Haldið síðan áfram þar til allar l frá FERNINGUR 5 hafa verið prjónaðar - ATH! Síðustu 2 l af FERNINGUR 5 eru prjónaðar slétt saman = 11 l á prjóni (síðasta umf er prjónuð frá röngu). Setjið lykkjur á þráð. FERNINGUR 9: Prjónið eins og FERNINGUR 8 (prjónið upp l frá FERNINGUR 5, prjónið með 1 og 1 l frá FERNINGUR 4). FERNINGUR 10: Prjónið eins og FERNINGUR 3 (prjónið upp l frá FERNINGUR 4). FERNINGUR 11: Prjónið eins og FERNINGUR 4 (Fitjið upp l í lok umf frá FERNINGUR 10, prjónið með 1 og 1 l frá FERNINGUR 10). FERNINGUR 12: Prjónið eins og FERNINGUR 5 (prjónið upp l frá FERNINGUR 10, prjónið með 1 og 1 l frá FERNINGUR 9). FERNINGUR 13: Prjónið eins og FERNINGUR 5 (prjónið upp l frá FERNINGUR 9, prjónið með 1 og 1 l frá FERNINGUR 8). FERNINGUR 14: Prjónið eins og FERNINGUR 5 (prjónið upp l frá FERNINGUR 8, prjónið með 1 og 1 l frá FERNINGUR 7). FERNINGUR 15: Prjónið eins og FERNINGUR 6 (prjónið upp l frá FERNINGUR 7). Haldið áfram með þetta mynstur þar til 13 ferningar eru á breidd – fellið af 11 l í síðasta ferning á breiddina í stað þess að fitja upp nýjar l og haldið áfram með mynstur eins og áður. Þegar prjónaðir hafa verið 21 ferningar á hæðina eru felldar af fyrstu 11 l frá röngu í stað þess að setja lykkjur á þráð. Prjónið áfram teppið þar til prjónaðir hafa verið 13 x 21 ferningar. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dominoblanket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 10 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 156-56
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.