DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
DROPS SS24
DROPS 158-53
DROPS Design: Mynstur nr de-128
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: LÍTIÐ - STÓRT
(teppið á myndinni er lítið)
Mál:
Breidd: ca 83-110 cm.
Lengd: ca 137-164 cm.

Efni:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio
200-300 gr litur nr 09, turkos/fjólublár
150-200 gr litur nr 11, syren/grænn
100-200 gr litur nr 14, fjólublár/grænn
50-100 gr litur nr 12, regnbogi
Og einnig:
DROPS FABEL frá Garnstudio
200-300 gr litur nr 400, svartur

DROPS HEKLUNÁL NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 1 ferningur mælist 13,5 x 13,5 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Vegna litaskiptinga á garninu verða engir ferningar eins, þetta gerir teppin mismunandi. Leggið því ferningana á gólfið og staðsetjið þá þannig að ferningarnir með sterkustu litina (syren/grænn og regnbogi) dreifist um allt teppið.

LITIR Á FERNINGUM:
Teppið er heklað með ferningum í mismunandi fjölda í hverjum lit.
Heklið 6-10 ferninga með litnum regbogi, 13-21 ferninga með litnum fjólublár/grænn, 25-39 ferninga með litnum turkos/fjólublár og 16-26 ferninga með litnum syren/grænn.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TEPPI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í ferningum sem saumaðir eru saman í lokin. Síðan er heklaður kantur í kringum allt teppið.
1 dokka af Delight gefur 6 heklaða ferninga. Heklið samanlagt 60-96 ferninga með Delight – LESIÐ LITIR Á FERNINGUM að ofan.

HEKLAÐUR FERNINGUR:
Heklið eftir A.1, þ.e.a.s. heklið þannig:
Heklið 8 ll með heklunál nr 4 með Delight og tengið saman í 1 hring með 1 kl í 1. ll.
UMFERÐ 1: Heklið 4 ll (= 1 tbst), 5 tbst um hringinn, 3 ll, * 6 tbst um hringinn, 3 ll *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, endið á 1 kl í 4. ll frá byrjun umf = 4 tbst-blöð og 4 ll-bogar.
UMFERÐ 2: * 5 ll, heklið síðan 1 tbst í hvern af 6 tbst frá fyrri umf, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin þar til allir hafa verið heklaðir (= 7 l á heklunálinni), nú er dregið í gegnum allar l, 5 ll, 1 kl um ll-boga, 5 ll, 1 kl í sama ll-boga *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum = 4 tbst-blöð og 4 ll-bogar. Snúið við.
UMFERÐ 3 (= ranga): Heklið 4 ll, heklið nú um næsta ll-boga (5 ll frá fyrri umf) þannig: 2 tbst, 1 ll, 3 tbst, 2 ll, 3 tbst, 1 ll, 3 tbst, heklið 1 fl frá toppi á blaði, * um næsta ll-boga er heklað 3 tbst, 1 ll, 3 tbst, 1 ll, 3 tbst, 1 ll, 3 tbst, heklið 1 fl frá toppi á næsta blaði *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum og endið á 1 kl í 4. ll frá byrjun umf = 8 litlir ll-bogar (1 ll) og 4 horn-bogar (2 ll) hringinn í umf. Snúið við.
UMFERÐ 4: Heklið 4 ll, í fl frá toppi á baldið er heklað 2 tbst, 2 ll og 3 tbst, * um næsta litla ll-boga er hekluð 1 fl, síðan í horn-bogann er heklað 6 tbst, 2 ll, 6 tbst og um næsta litla ll-boga er hekluð 1 fl, í fl frá toppi á blaði er heklað 3 tbst, 2 ll, 3 tbst *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 1 fl um næsta litla ll-boga, síðan í horn-bogann er heklað 6 tbst, 2 ll, 6 tbst, heklið 1 fl um næsta litla ll-boga og 1 kl í 4. ll frá byrjun umf. Snúið við.
UMFERÐ 5 (= ranga): Heklið 3 ll, heklið nú st umf hringinn. ATH! Í tbst og fl frá fyrri umf er heklað í l, í ll frá fyrri umf er heklað um ll. Um horn-bogana er heklað 2 st, 2 ll og 2 st og í 2 ll er heklaður 1 st. Endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = alls 100 st og 2 ll í hvert horn. Klippið frá og festið enda. Snúið við.
UMFERÐ 6: Skiptið yfir í Fabel. Heklið 3 ll, heklið nú þannig: 1 st í hvern st, 2 st, 2 ll og 2 st um hvern horn-boga. Endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = alls 116 st og 2 ll í hvert horn. Klippið frá og festið enda. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!

FRÁGANGUR:
LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Staðsetjið ferningana með 6-8 ferninga á breidd og 10-12 raðir á hæð. Saumið ferninga saman með Fabel kant í kant, rönd fyrir rönd.

HEKLAÐUR KANTUR:
Heklið kant í kringum allt teppið með heklunál nr 4 með Fabel – byrjið í einu horni og heklið frá réttu þannig: Heklið 1 kl í 1. kl, 3 ll, heklið nú þannig: 1 st í hvern st, 2 st, 2 ll og 2 st um hvern horn-boga. Endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 31.08.2016
FERNINGUR: UMFERÐ 6: Skiptið yfir í Fabel. Heklið 3 ll, heklið nú þannig: 1 st í hvern st, 2 st, 2 ll og 2 st um hvern horn-boga. Endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = alls 116 st og 2 ll í hvert horn. Klippið frá og festið enda. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!

Mynstur

symbols = ll
symbols = fl
symbols = kl í l
symbols = kl um l
symbols = tbst í fl, en tbst um ll
symbols = st í l
symbols = st um ll
symbols = Heklið 1 tbst í hvern tbst en bíðið með að draga bandið í gegn þar til allar hafa verið heklaðar (= 7 l á bandi), nú er bandið dregið í gegnum allar l.
symbols = heklstefna í umf
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 158-53

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (35)

country flag Geneviève wrote:

Bonjour, Je souhaite faire le grand modèle et j'ai donc commandé les 16 pelotes préconisées. Avec 1 pelote, j'obtiens tout juste 4 carrés. Comment pourrais-je atteindre les 96 carrés que je suis sensée obtenir pour le grand modèle ?? Merci. GW

01.02.2022 - 14:43

DROPS Design answered:

Bonjour Geneviève, avez-vous bien la bonne tension/les bonnes mesures? 1 carré = 13,5 x 13,5 cm et le dernier tour doit être crocheté en Fabel. Pensez à adapter la taille du crochet si besoin. Bonne continuation!

01.02.2022 - 16:38

country flag Linda Cathrin Pedersen wrote:

Skal denne ruten vere litt sånn boblete? Om du forstår meg rett, altså ikke helt flat men litt opp og ned i mønsteret? Hvis ikke vet jeg ikke hva jeg gjør feil. Bruker nål 4

02.04.2020 - 00:07

DROPS Design answered:

Hej Linda, Nej... Hækler du i DROPS Delight? Har du set videoen? Hvordan hekle bestemorruten til teppet i DROPS 158-53

16.04.2020 - 16:11

country flag Dorte Buus wrote:

Hej Det er et super flot tæppe, men jeg synes kanten om hele tæppet virker lidt kedelig. Er det sådan at I kunne komme med en ide til en anden lidt mere spændende kant ? Har selv kig på The Meadow - Ledetråd #16 ... kunne det evt blive godt ? Vh Dorte

21.05.2019 - 10:47

DROPS Design answered:

Hei Dorte. Ja det er bare å velge den kanten du selv syntes er fin - her er det ingen fasit. Ville tro the Meadow-kanten helt fint kan passe her. God fornøyelse

21.05.2019 - 14:50

country flag Ingrid Winnelinckx wrote:

Ik heb wol besteld voor het grootste deken en heb nu al 7 vierkantjes gehaakt maar ik merk dat ik geen wol genoeg zal hebben. Het klopt niet wat aangegeven is want uit 1 bol kan ik bijna 6 vierkantjes haken maar van paars/groen bv heb je er al 39 nodig en er stond bij dat je 300gr nodig had dus ik heb 6 bollen besteld maar daar kunnen nog geen 36 vierkantjes uit dus heb ik te weinig gekocht en ik lees nu pas dat nog mensen dit voor hebben dus waarom is dit niet aangepast?

16.10.2018 - 18:47

country flag Sylvie wrote:

Bonjour Je ne comprends pas sur le rang 2 : 2 fois 5 mailles en l’air et maille coulée dans l’arceau. ( ce qui forme 2 arceaux) .Sur le diagramme, on ne voit qu’une fois 5 mailles en l’air et une maille coulée pour former un seul arceau... je n’arrive pas à voir sur la vidéo comment faire. Les laines sont magnifiques et le modèle très beau, alors je ne voudrais pas être si vite arrêtée ! Merci d’avance

23.04.2018 - 22:37

DROPS Design answered:

Bonjour Sylvie, les 5 ml après les 6 DB écoulées ensemble sont faites pour "atteindre" l'arceau suivant, elles ne vont pas réellement former un arceau, crochetez ensuite 1 mc dans l'arceau, 5 ml et 1 mc dans le même arceau (= vous avez 1 arceau de 5 ml où vous crochèterez au tour suivant (3 DB, 1 ml, 3DB, 2 ml, 3DB, 1 ml, 3DB), puis vous crochetez de nouveau 5 ml (= pour être à la bonne hauteur pour les DB) et 6 DB écoulées ensemble, 5 ml, 1 mc dans l'arceau suivant. Ces 5 ml, 6DB, 5ml vont former un groupe de DB au sommet duquel vous crochèterez 1 ms au tour suivant. Bon crochet!

24.04.2018 - 09:01

country flag Barbara Reusser wrote:

Die 6. RD ergibt am Schluss 116 Stäbchen und je 2 Lm in jeder Ecke. (Nicht 145).

21.10.2016 - 20:56

country flag Suzanne Carter wrote:

Sur le modèle 158-53, il est indiqué dans les explications au tour 5 et 6: crocheter en B. Dans la video correspondante, le tour 5 et 6 sont crochetés en DB. Question: faut-il crocheter en B ou DB les tours 5 et 6?

20.07.2016 - 08:43

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Carter, on doit effectivement crocheter des brides aux 2 derniers tours, comme indiqué dans les explications et le diagramme - une correction sera ajoutée à la vidéo. Merci, bon crochet!

20.07.2016 - 11:56

country flag Merete wrote:

Jeg er i tvivl om, om der i 5. omgang og 6. omgang skal hækles dbl stangmasker eller alm stangmasker? Jeg undrer mig over at man ender med 145 stm efter 6. omgang, når man kun har øget med 4 m i hver hjørne, så ender man da kun med 116 m

13.06.2016 - 13:03

DROPS Design answered:

Hej Merete. Du hekler stangmasker i baade 5. og 6. omg. Og du har ret i det skal vaere 116 m. Det er en fejl i mönstret som skal rettes. Fölg diagrammet - det er i orden.

13.06.2016 - 14:08

country flag Marion wrote:

Bonjour, dans la section "couleur des carrés", vous indiquez "13-21 carrés violet/vert, (...) et 16-26 carrés violet/vert". Deux fois violet/vert et pas de mauve/violet. Après déduction (je fais la grande couverture) je pense que je dois réaliser 21 carrés mauve/vert, non? Merci pour votre aide.

07.04.2016 - 09:36

DROPS Design answered:

Bonjour Marion, il faut 13-21 carrés mauve/vert (couleur 14) et 16-20 en violet/vert (couleur 11) - les couleurs ont été corrigées, merci. Bon crochet!

07.04.2016 - 11:52

country flag Linda wrote:

I just started the Heartland blanket drops 158-53 and on the 5th round of square you end up w/100 dc. Round six says you end up with 145 dc. How is this possible when previous round was 100 and you added 4 new dc per corner which added up to 116?

29.03.2016 - 20:56

DROPS Design answered:

Dear Linda, thank you for your feedback and information has been forwarded to our Design Team. Happy crocheting!

30.03.2016 - 09:18