DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 17600.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

A Patch of Comfort

Prjónað teppi með ferningum og garðaprjóni, stjörnumynstri, klukkuprjóni, röndum, vöfflumynstri og bambusmynstri úr DROPS Nepal

DROPS 157-21
DROPS Design: Mynstur nr ne-160
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Mál:
Breidd: 88 cm.
Lengd: 154 cm.

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio
350 gr litur nr 0206, ljós beige
300 gr litur nr 0100, natur
300 gr litur nr 0500, ljós grár
300 gr litur nr 0300, beige

DROPS PRJÓNAR NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 15 l og 29 umf með garðaprjón verði 10 x 10 cm.
Mynsturprjón á 10 cm á breiddina: Stjörnumynstur: 17 l, Klukkuprjón: 12 l, Vöffluprjón: 12 l, Bambusmynstur: 16 l.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 17600.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LITIR Á FERNINGUM:
Ferningur 1 (Garðaprjón): 1 beige, 1 ljós beige, 1 ljós grár, 3 natur.
Ferningur 2 (Stjörumynstur): 1 beige, 1 ljós beige, 2 ljós grár.
Ferningur 3 (Klukkuprjón): 2 beige, 1 ljós beige, 1 ljós grár, 1 natur.
Ferningur 4 (Rendur): 1 beige, 2 ljós beige, 1 ljós grár, 1 natur.
Ferningur 5 (Vöfflumynstur): 1 beige, 1 ljós beige, 1 ljós grár, 1 natur.
Ferningur 6 (Bambusmynstur): 1 beige, 1 ljós beige, 1 ljós grár, 1 natur.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. Sjá mynsturteikningu A.2 fyrir frágang á ferningum.

LEIÐBEININGAR UM MYNSTUR:
Mynsturteikning A.1 passar ekki yfir hverja aðra á hæðina þegar það er endurtekið, en gataumferðin heldur áfram á ská upp úr eins og áður.

FRÁGANGUR Á FERNINGUM:
Tölurnar merkja hvaða mynsturferning á við, bókstafirnir segja til um mynsturlit:
A = beige
B = ljós beige
C = ljós grár
D = natur

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TEPPI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Ferningarnir eru prjónaðir stakir og saumaðir saman í lokin. Hver ferningur er prjónaður fram og til baka. Mismunandi fjöldi ferninga er prjónaður og með mismunandi litum – sjá LITIR Á FERNINGUM að ofan = alls 28 ferningar. 1 ferningur mælist 22 x 22 cm.

FERNINGUR 1 (GARÐAPRJÓN):
Fitjið upp 33 l á prjóna nr 6. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Fellið af þegar stykkið mælist 22 cm.

FERNINGUR 2 (STJÖRNUMYNSTUR):
Fitjið upp 33 l á prjóna nr 6. Prjónið 3 umf slétt. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er aukið út um 4 l jafnt yfir = 37 l.
Prjónið nú STJÖRNUMYNSTUR þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): 1 umf slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): 1 l sl, * 3 l br saman án þess að taka þær af prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l br saman í sömu 3 l og sleppið þeim niður af prjóni, 1 l sl *, endurtakið frá *-* út umf.
UMFERÐ 3 (= rétta): 1 umf slétt.
UMFERÐ 4 (= ranga): 3 l sl, * 3 l br saman án þess að taka þær af prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l br saman í sömu 3 l og sleppið þeim af prjóni, 1 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir á prjóni, endið á 2 l sl.
Endurtakið umf 1-4. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 20½ cm prjónið 1 umf slétt – JAFNFRAMT er fækkað um 4 l jafnt yfir = 33 l. Prjónið 3 l slétt, fellið af.

FERNINGUR 3 (KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI):
Fitjið upp 33 l á prjóna nr 6. Prjónið 3 umf slétt. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 6 l jafnt yfir = 27 l.
Prjónið nú KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI þannig:
UMFERÐ 1: 2 l sl, * 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir, endið á 3 l sl.
UMFERÐ 2: 2 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l slétt saman *, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir, endið á því að slá 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, 2 l sl.
UMFERÐ 3: 2 l sl, * prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 4 l eru eftir, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l slétt saman, 2 l sl. Endurtakið umf 2 og 3. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Þegar stykkið mælist 20 cm – passið uppá að enda á eftir umf 2 og prjónið næstu umf þannig: 2 l sl, * prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l slétt saman, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 4 l eru eftir, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l slétt saman, 2 l sl. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er aukið út um 6 l jafnt yfir = 33 l. Prjónið 3 umf slétt, fellið af.

FERNINGUR 4 (RENDUR):
Fitjið upp 33 l á prjóna nr 6. Prjónið 3 umf slétt. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er aukið út um 1 l = 34 l. Prjónið nú 2 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, mynstur eftir A.1 (1. umf = rétta) yfir næstu 30 l, endið á 3 l garðaprjón – lesið LEIÐBEININGAR UM MYNSTUR. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 20½ cm – prjónið 1 umf slétt – JAFNFRAMT er fækkað um 1 l = 33 l. Prjónið 3 umf slétt, fellið af.

FERNINGUR 5 (VÖFFLUMYNSTUR):
Fitjið upp 33 l á prjóna nr 6. Prjónið 3 umf slétt. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 7 l jafnt yfir = 26 l. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið nú VÖFLUMYNSTUR þannig:
UMFERÐ 1 ( ranga): sl fá röngu.
UMFERÐ 2 (rétta): 2 l sl, * prjónið 1 l sl í l frá fyrri umf og sleppið niður l af vinstri prjóni, 1 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir á prjóni, 2 l sl.
UMFERÐ 3 (ranga): 2 l sl, * prjónið 1 l sl, takið upp lykkjuna sem liggur í kringum l og prjónið þá l slétt saman með l af prjóni *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir á prjóni, 2 l sl.
UMFERÐ 4 (rétta): 2 l sl, * 1 l sl, prjónið 1 l sl í l frá fyrri umf og sleppið síðan niður l af vinstri prjóni *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir á prjóni, 2 l sl.
UMFERÐ 5 (ranga): 2 l sl, * takið upp lykkjuna sem liggur í kringum l og prjónið hana slétt saman með l á prjóni, 1 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir á prjóni, 2 l sl.
Endurtakið umf 2-5. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 20 cm – stillið af að næsta umf sé umf nr 3 – prjónið næstu umf samkvæmt útskýringu, en l innan við l með garðaprjóni er prjónað br í stað sl. Prjónið 1 umf slétt – JAFNFRAMT er aukið út um 7 l jafnt yfir = 33 l, prjónið 3 umf slétt saman, fellið af.

FERNINGUR 6 (BAMBUSMYNSTUR):
Fitjið upp 33 l á prjóna nr 6. Prjónið 3 umf slétt. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er aukið út um 3 l jafnt yfir = 36 l.
Prjónið nú BAMBUSMYNSTUR þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): 1 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, steypið uppslættinum yfir 2 l sl *, endurtakið frá *-*, 1 l sl.
UMFERÐ 2 (= ranga): 1 l sl, prjónið br þar til 1 l er eftir, endið á 1 l sl.
Endurtakið umf 1-2. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 20½ cm prjónið 1 umf slétt – JAFNFRAMT er fækkað um 3 l jafnt yfir = 33 l. Prjónið 3 umf slétt, fellið af.

FRÁGANGUR:
Gangið frá endum á hverjum ferningi. Saumið alla ferningana saman með litnum ljós beige eins og útskýrt er í mynsturteikningu A.2 – Lesið FRÁGANGUR Á FERNINGUM að ofan. Saumið saman kant í kant yst í lykkjubogann svo að kantarnir verði ekki of þykkir.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = sl frá röngu
symbols = 2 l slétt saman
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = prjónastefna
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

A Pacht of Comfort

Strick.traeume, Germany

A patch of comfort

Sissel, Sweden

Skrifaðu athugasemd um DROPS 157-21

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (80)

country flag Louisa wrote:

Hallo! Folgt die Anordnung der Muster einer bestimmten Regelmäßigkeit? Ich würde die Decke gerne breiter machen (also die Anzahl der Quadrate erhöhen) bin mir aber unsicher, wie. Lieben Dank!

19.03.2024 - 14:55

country flag Wiola wrote:

Np: 5A (jeden mały kwadrat) i 4B (drugi mały kwadrat). Ja zawsze robię na około, to będzie pierwszy zszywany projekt :) i zastanawiam się czy jak kończę np 5A, to zamykam oczka czy może jak już będzie odpowiednia długość, ściągam taki niezamknięty z drutów, łącze z pętelkami z 4B i dopiero jak nałożę znów pętelki z 5A i 4B (naprzemian) na drut to wtedy zamykam?

06.02.2024 - 00:02

DROPS Design answered:

Witaj Wiolu, te kwadraty zszywamy razem. Zobacz instrukcje video na dole wzoru, tam znajdziesz filmy jak zszywać robótkę. Pozdrawiamy!

06.02.2024 - 08:04

country flag Wiola wrote:

Hej! Małe kwadraty zamykamy czy ściągamy niezamknięte i takie łączymy ze sobą?

05.02.2024 - 12:26

DROPS Design answered:

O jakie małe kwadraty chodzi?

05.02.2024 - 15:27

country flag Britt wrote:

Jeg fant min egen metode for å klare å strikke vaffel. Når jeg strikker i maske fra forrige rad, henter jeg opp tråden/løkken med en gang og setter den på pinnen. Da slipoer man å hente opp feil tråd på neste omg som jeg gjorde hundrevis av ganger før jeg endret metoden. Da er det bare å strikke den sammen med rett. Lett som bare det.

16.07.2023 - 16:14

country flag Henrietta Popplewell wrote:

I am knitting a patch of comfort blanket and struggling with the stripes pattern and diagram. Please can you let me have the pattern in writing. Thank you

24.01.2023 - 18:49

DROPS Design answered:

Dear Mrs Popplewell , we only have diagrams to this pattern, but there is a video to the diagram A.1 that could help you understanding how to work it. Happy knitting!

25.01.2023 - 11:43

country flag Lia Breddels wrote:

Vierkant 5. Volgens mij klopt de beschrijving niet. Naald 4, na 'linkernaald afglijden' hoort NIET 1r maar *

04.11.2022 - 10:49

country flag Liina Kaev wrote:

Tere!\r\nVäike apsakas: 1 ruut… loo 33 mitte 22 silma!\r\nTänud ja tervitused!\r\nLiina

16.10.2022 - 19:34

country flag Linda Visagie wrote:

I don't understand square 4 stripes. It says work 2 st in garter st, what is the next 30 st before I end with 2 garter stitches

08.11.2021 - 15:40

DROPS Design answered:

Dear Linda, after the 2 edge stitch knitted with garter stitch, you should knit pattern according to diagram A.1 (1st row = RS) over the next 30 sts. Happy Stitching!

09.11.2021 - 07:50

country flag Solange wrote:

Bonsoir J’ai réalisé ce modèle en 2 couleurs mais je l’ai faite aux dimensions suivantes : 5 carreaux sur 6 carreaux de 22cm chacun, me conseillez de la doubler? Cela lui donnerait-elle plus de tenu? merci

04.07.2021 - 01:32

DROPS Design answered:

Bonjour Solange, c'est une question de choix personnel, en fonction de l'utilisation prévue je suppose. N'hésitez pas à demander conseil à votre magasin si besoin - ils pourront vous aider, même par mail ou téléphone. Bon tricot!

05.07.2021 - 07:56

country flag Lise St-cyr wrote:

Je ne comprend pas le petit rond noir dans le diagramme A1 puisqu’elle tricote à la suisse pourriez+vous me donner l’explication par écrit. svp. merci. lise

23.06.2021 - 05:28

DROPS Design answered:

Bonjour Mme St-cyr, le petit rond noir dans le diagramme est une maille tricotée à l'endroit sur l'envers. Suivez simplement le diagramme (cf cette leçon si besoin), lorsque vous le répétez en hauteur, veillez à bien continuer les diagonales - la vidéo vous aidera, regardez la position du fil sur les aiguilles et non sur les mains, la technique est la même. Bon tricot!

23.06.2021 - 08:16