Ingrid skrifaði:
Den vill jag sticka.
06.01.2014 - 15:57Zulema Privat skrifaði:
Original..it is a beutiful design for this summer...I make for my sister. It is the winner
05.01.2014 - 18:57
M. Wiley skrifaði:
So perfect for a summer wrap!
03.01.2014 - 21:40
Petra D. skrifaði:
Tolle Kurzjacke, super
03.01.2014 - 13:57
Franca skrifaði:
Leuk vestje om over een zomerjurk te dragen
02.01.2014 - 13:51
Kirsti skrifaði:
Denne vil jeg prøve å strikke med litt mer lengde. Kjempefin!
31.12.2013 - 07:49
Marianne CONRAD skrifaði:
Joli
28.12.2013 - 18:37
Ulla skrifaði:
Hätte gern die Strickanleitung für diese tolle legäre Kurzjacke.
28.12.2013 - 14:55
Betty Ann skrifaði:
This has a beautiful intricate design, but a very unstructured shape. I may knit this one longer to give it more functionality.
11.12.2013 - 17:06
Cisca skrifaði:
Zo mooi!!!!!!
11.12.2013 - 15:05
Audry#audrycardigan |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Paris með gatamynstri og sjalkraga. Stærð S - XXXL
DROPS 154-20 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.3. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið 5. og 6. l frá miðju að framan slétt saman. Í næstu umf er fitjuð upp 1 ný l yfir þá l sem felld var af. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 6, 12 og 18 cm STÆRÐ M: 6, 12 og 18 cm STÆRÐ L: 6, 13 og 20 cm STÆRÐ XL: 6, 13 og 20 cm STÆRÐ XXL: 7, 14 og 21 cm STÆRÐ XXXL: 7, 14 og 21 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í tveimur stykkjum frá neðri kanti á framstykki að miðju baki. Þessi tvö stykki eru saumuð saman við miðju að aftan í lokin. VINSTRA FRAMSTYKKI / BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna til þess að fá pláss fyrir allar l. Fitjið upp 44-46-48-52-56-62 l (meðtaldar 6 kantlykkjur við miðju að framan) á hringprjóna nr 5 með Paris. Prjónið frá réttu þannig: Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – yfir fyrstu 5-7-9-13-17-23 l, 2 l br, 4 l sléttprjón, A.2 (= 21 l), 4 l sléttprjón, 2 l br, endið á 2 l sl, 2 l br, 2 l sl (= kantur að framan). ATH! Kanturinn að framan er prjónaður svona til loka. Prjónið 4 umf síðan er prjónað frá réttu þannig: Prjónið garðaprjón yfir fyrstu 5-7-9-13-17-23 l, A.3 (= 6 l), A.2 (= 21 l), A.1 (= 6 l), endið á 2 l sl, 2 l br, 2 l sl (= kantur að framan). Prjónið þar til stykkið mælist 3 cm. Prjónið nú sléttprjón yfir fyrstu 5-7-9-13-17-23 l, A.3/A.2/A.1 og kantur að framan (= 2 l sl, 2 l br, 2 l sl) eins og áður JAFNFRAMT í næstu umf frá röngu byrjar útaukning í hlið og fitjaðar eru upp nýjar l í lok hverrar umf frá röngu þannig: Fitjið upp 1 l alls 5 sinnum og 2 l alls 3 sinnum. Nýjar l eru prjónaðar í sléttprjóni. Síðan í næstu umf frá röngu eru fitjaðar upp 5 nýjar l alls 1 sinni = 60-62-64-68-72-78 l. Þær 5 nýju l eru prjónaðar í garðaprjóni fyrir kant á ermum. Þegar stykkið mælist 28-28-30-30-32-32 cm fitjið LAUST upp 30-30-34-34-38-38 nýjar l fyrir ermi í lok næstu umf frá röngu = 90-92-98-102-110-116 l. Þær 30-30-34-34-38-38 nýju l eru prjónaðar í garðaprjóni. Prjónið 6 umf garðaprjón yfir nýju l. Afgangurinn af l eru prjónaðar eins og áður. Prjónið nú sléttprjón yfir l í garðaprjóni (l eru prjónaðar í sléttprjóni til loka). Fellið nú af fyrir hálsmáli þannig: Prjónið sléttprjón þar til 2 l eru eftir á undan A.3, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, endurtakið úrtöku í 4. hverri umf alls 10 sinnum. JAFNFRAMT í næstu umf frá röngu byrjar útaukning í hlið og fitjaðar eru upp nýjar l í lok hverrar umf frá röngu þannig: Fitjið upp 2 l alls 5 sinnum og 1 l alls 2 sinnum. ATH! Þær 12 nýju l eru prjónaðar í sléttprjóni. Í næstu umf frá röngu eru fitjaðar upp 5 nýjar l alls 1 sinni (þær 5 nýju l eru prjónaðar í garðaprjóni til loka). Eftir að úrtöku fyrir hálsmáli er lokið eru 97-99-105-109-117-123 l á prjóni. Prjónið eins og áður þar til stykkið mælist 58-60-63-65-69-72 cm. Stillið af að næsta umf sé frá réttu. Prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l JAFNFRAMT í síðustu umf (= ranga) eru felldar af fyrstu 39 l. Prjónið nú garðaprjón JAFNFRAMT er fellt af þannig: Prjónið sl yfir allar l (= frá réttu), snúið við og * fellið af fyrstu 5-5-5-6-5-6 l (= ranga) og prjónið aðrar l í umf, snúið við og prjónið til baka *, endurtakið frá *-* alls 11-11-12-12-14-14 sinnum. Fellið af þær l sem eftir eru . HÆGRA FRAMSTYKKI / BAKSTYKKI: Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki / bakstykki nema gagnstætt. Þ.e.a.s. að fellið af og aukið út í vinstri hlið á stykki (þ.e.a.s. í lok hverrar umf frá réttu). Fellið af við hálsmál eftir A.3 (frá réttu) með því að prjóna 2 l slétt saman. Fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. FRÁGANGUR: Saumið saman bæði stykkin við miðju að aftan yst í lykkjubogann. Saumið saman A við B – sjá mynsturteikningu – saumið yst í lykkjubogann. Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #audrycardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 17 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 154-20
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.