DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7304.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 154-21
DROPS Design: Mynstur nr as-009
Garnflokkur A + C
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
200-200-200-250-250-300 gr litur nr 100, natur
Og einnig:
DROPS ALPACA SILK frá Garnstudio
100-150-150-150-150-200 gr litur nr 06, kórall

DROPS HRINGPRJÓNN (60 eða 80 cm) NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 14 l og 19 umf með 1 þræði af hvorri tegund verði 10 x 10 cm.
DROPS PERLUTALA NR 522: 3-3-4-4-4-4 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7304.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l innan við 1 kantlykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. ATH! Uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn í næstu umf, það á að myndast gat.

ÚRTAKA (á við um hálsmál):
Fækkið lykkjum frá réttu um 1 l innan við 4 l garðaprjón.
Á eftir 4 l garðaprjón er prjónað þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Á undan 4 l garðaprjón er prjónað þannig: Prjónið 2 l slétt saman.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið aðra og þriðju l frá kanti br saman og sláið síðan 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 4, 14 og 24 cm.
STÆRÐ M: 4, 14 og 24 cm.
STÆRÐ L: 2, 11, 20 og 28 cm.
STÆRÐ XL: 2, 11, 20 og 28 cm.
STÆRÐ XXL: 3, 12, 21 og 30 cm.
STÆRÐ XXXL: 3, 12, 21 og 30 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka í sléttprjóni með gataumferð.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 72-76-84-88-96-104 l með 1 þræði af hvorri tegund á hringprjóna nr 6. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið nú sléttprjón þar til stykkið mælist 1-1-3-3-1-4 cm. Í næstu umf frá réttu er aukið út í hvorri hlið þannig: Aukið út um 1 l með 1-1-1-1-1½-1½ cm millibili alls 18-18-16-16-12-10 sinnum í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING að ofan = 108-112-116-120-120-124 l – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 11 cm er prjónað A.1 – sjá MYNSTUR að ofan (1. umf = ranga).
Haldið áfram að prjóna sléttprjón með A.1 ca í 8. hverjum cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 19 cm eru fitjaðar upp 4 l hvoru megin á stykkinu í lokin á 2 næstu umf, þær 4 útauknu l eru prjónaðar í garðaprjóni = 116-120-124-128-128-132 l. Prjónið síðan í sléttprjóni og A.1 eins og áður þar til stykkið mælist alls 40-41-42-43-44-45 cm. Fellið nú af 4 l garðaprjón í hvorri hlið (fellið af í byrjun á næstu 2 umf) = 108-112-116-120-120-124 l. Prjónið nú eftir A.2 til loka (1. umf = rétta) – JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í byrjun hverrar umf frá hlið þannig: Fækkið um 4 l 2-2-1-0-0-0 sinnum, fækkið um 2 l 11-12-14-16-17-18 sinnum. Þegar stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm eru prjónaðar 2 umf garðaprjón yfir miðju 22-22-24-24-26-26 l og síðan eru felldar af miðju 14-14-16-16-18-18 l laust af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig með 4 l við hálsinn í garðaprjóni. Í næstu umf frá réttu eftir síðustu úrtöku á öxl þá eru felldar af þær 17-17-18-20-17-17 l sem eftir eru laust af. Stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til bakaí sléttprjóni með gataumferð.
Fitjið upp 40-42-46-48-52-56 l (meðtaldar 4 l í kanti að framan) með 1 þræði af hvorri tegund á hringprjóna nr 6. Prjónið 4 umf garðaprjón. Stykkið er nú prjónað áfram í sléttprjóni með 4 l garðaprjón í vinstri hlið (séð frá réttu = kantur að framan) ATH! Þær 4 l garðaprjón eru prjónaðar í garðaprjóni til loka. Þegar stykkið mælist 1-1-3-3-1-4 cm er aukið út í næstu umf frá réttu í hægri hlið á stykki þannig: Aukið út um 1 l með 1-1-1-1-1½-1½ cm millibili alls 18-18-16-16-12-10 sinnum – sjá ÚTAUKNING að ofan = 58-60-62-64-64-66 L – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 11 cm er prjónað A.1 – sjá MYNSTUR að ofan. Haldið áfram að prjóna sléttprjón með A.1 ca 8. hvern cm.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 19 cm eru fitjaðar upp 4 l frá réttu í hægri hlið á stykki, þær 4 útauknu l eru prjónaðar í garðaprjóni = 62-64-66-68-68-70 l. Prjónið áfram í sléttprjóni og A.1 eins og áður. Þegar stykkið mælist 26-26-28-28-30-30 cm fellið af fyrir hálsmáli þannig: Fellið af 1 l í vinstri hlið innan við 4 l garðaprjón – SJÁ ÚRTAKA, endurtakið úrtöku í öðrum hvorum cm alls 11-11-12-12-13-13 sinnum JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 40-41-42-43-44-45 cm eru felldar af 4 l garðaprjón í hægri hlið á stykki. Prjónið nú eftir mynstri A.2 – JAFNFRAMT eru lykkjur felldar laust af í hægri hlið á stykki þannig: Fellið af 4 l í hverri umf frá réttu 2-2-1-0-0-0 sinnum, fellið af 2 l í hverri umf frá réttu 11-12-14-16-17-18 sinnum, í næstu umf frá réttu eru felldar af þær 17-17-18-20-17-17 l sem eftir eru. Eftir síðustu úrtöku á öxl mælist stykkið 54-56-58-60-62-64 cm.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema spegilmynd. Að auki er fellt af fyrir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.

FRÁGANGUR:
Saumið hliðarsauma yst í lykkjubogann upp að og með 4 útauknum lykkjum í garðaprjóni. Saumið axlasauma yst í lykkjubogann frá og með 4 útauknum lykkjum í garðaprjóni og upp að úrtöku fyrir hálsmáli.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 29.01.2014
undir BAKSTYKKI (það eiga að vera 57 ekki 67): ... Þegar stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm eru prjónaðar 2 umf garðaprjón yfir miðju 22-22-24-24-26-26 l...

Mynstur

symbols = sl frá röngu
symbols = br frá röngu, sl frá réttu
symbols = takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 2 l slétt saman
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 154-21

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (38)

country flag Camilla Schou wrote:

Det ser på modellen ud til at der er strikket en lille kant på ærmerne - er det korrekt - og er de “bare” slået op efter sammensyning??

31.05.2019 - 21:14

DROPS Design answered:

Hej Camilla, det er de 4 masker du tager ud på ærmet som strikkes i retstrik. God fornøjelse!

03.06.2019 - 08:35

country flag Lena wrote:

Hallo, ich habe zwei Fragen zum Rückenteil; stricke ich nur über die mittleren 22M die Krausrippe und lege den Rest in der Zeit still oder stricke ich weiter A2 und die mittleren 22 als Krausrippe? Und als zweite Frage: Wo steht die Schulterabnahme beschreieben? In der Anleitung steht nur: nach der letzten Schulterabnahme aber inwiefern soll ich diese arbeiten? Vielen Dank!

22.07.2018 - 14:58

DROPS Design answered:

Liebe Lena, wenn Sie 1 Krausrippe über die mittleren 22 M gestrickt haben, werden die mittleren 14 M abgekettet (= jede Schulter jetzt separat stricken). Stricken Sie dann weiter wie zuvor (A.2 und Krausrippen) über die restlichen Maschen. Wenn die Schulterabnamen fertig sind (= Abketten von 2-2-1-0-0-0 x 4 M und 11-12-14-16-17-18 x 2 M.), werden alle restlichen Maschen abgekettet. Viel Spaß beim stricken!

23.07.2018 - 08:43

country flag Valerie wrote:

Bonjour Pouvez-vous m’indiquer les modifications à apporter pour faire le modèle 154/21 en manches longues? Merci

17.05.2018 - 10:56

DROPS Design answered:

Bonjour Valérie, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir adapter chaque modèle à chaque demande individuelle. N'hésitez pas à vous adresser au magasin où vous avez acheté votre laine pour toute assistance complémentaire. Bon tricot!

17.05.2018 - 13:18

country flag Sylvie wrote:

Bonjour. Je suis arrivée à la fin des diminutions (2 fs 4mailles et 11fs 2 m. Combien doit il rester de mailles après des diminutions ? Les 17 m a rabattre dont elles a rabattre d es deux côté. Merci pour votre reponse.

29.04.2018 - 17:49

DROPS Design answered:

Bonjour Sylvie, vous aviez 108 m, vous rabattez de chaque côté (2x4 m) et (11 x 2 m) soit un total de 60 m, il reste 48 m. Vous rabattez les 14 m centrales pour l'encolure= il reste 17 m de chaque côté pour les épaules. Terminez chaque côté séparément pour rabattre les mailles des 2 épaules au rang suivant sur l'endroit. Bon tricot!

30.04.2018 - 11:33

country flag Glynis Bowering wrote:

I am making size XL. I have only got 106 stitches on my needle with 9 inc on each side and i\\\'m already at 7 inches from the beginning. The pattern says to inc 4 st each side at 7.5 in to make 128. My gauge is slightly less than it calls for. I have to inc 7 more times so it will be almost twice as long as the pattern calls for. Do I go for the length or knit til the stitch count is correct?

09.04.2018 - 06:02

DROPS Design answered:

Dear Mrs Bowering, this pattern has been written for a gauge of 14 sts x 19 rows = 4"x4", make sure to change needle size to get the right measurements matching the instructions. We are unfortunately not able to adapt each our patterns to every single request. You are welcome to contact the store where you bought your yarn for any further individual assistance recalculating the pattern to your own swatch. Happy knitting!

09.04.2018 - 13:15

Gery wrote:

Hi! I would like to know what does "eyelet row" means? And if it is a knitting technic where cxan I find it? Thank you!

20.01.2017 - 20:27

DROPS Design answered:

Dear Gery, the eyelet rows refer to the lace pattern, ie diagrams A.1 and A.2 as explained in written pattern. Happy knitting!

23.01.2017 - 09:10

country flag Anneke wrote:

Na nog extra rekenen klopt het gelukkig toch. Een heel leuk vest! Zou het mogelijk zijn om het toch iets duidelijker aan te geven, alvast bedankt!

21.11.2016 - 22:39

DROPS Design answered:

Hoi Anneke. Ik was ook bezig met rekenen, maar gelukkig ben je er nu uit. Bedankt voor het melden :)

22.11.2016 - 10:16

country flag Anneke wrote:

Het is me niet duidelijk hoeveel ik moet minderen bovenaan het rugpand. Ik begin met 108 steken, dan minder ik 2 keer vier steken en 11 keer 2 steken dat maakt samen 60 steken. Dan trek ik de steken van de hals eraf, dat maakt 48 steken. Dat is dus 24 per schouder in plaats van 17 st. Wat zie ik over het hoofd?

21.11.2016 - 11:10

country flag Jannicke Aven wrote:

Jeg mener det mangler opplysninger eller er veldig dårlig forklart ift halsfellingen. Når arbeidet måler 53 cm (str M) skal man felle de midterste 14 masker på bakstykket, før hver side strikkes hver for seg. Man sitter da igjen med 37 masker på hver side, hvor - etter det jeg forstår - 1 maske skal felles innenfor de fire rillemaskene på hver pinne fra rettsiden. Men når ferdig arbeid skal måle 56 cm; hvordan kan man da felle 20 masker (slik at man står igjen med de siste 17) på bare 3 cm....?

09.04.2016 - 23:03

DROPS Design answered:

Hej Jannicke, du har 112m, lukker 4x2 og 2x12m af i hver side = 48 m. Lukker de midterste 14m af og har nu 17 m tilbage på hver skulder. God fornøjelse!

11.04.2016 - 14:47

country flag Sylvia wrote:

Er worden eerst 2 ribbels gebreid en dan doorgegaan in tricotsteek, deze onderste ribbelrand krult op, wat kan ik daaraan doen?

09.04.2016 - 15:01

DROPS Design answered:

Hoi Sylvia. Meestal wordt dat minder hoe verder je brei. Je kan ook altijd na afloop de rand lichtjes persen, dan blijft die mooi in vorm.

12.04.2016 - 11:05