Sarah skrifaði:
Anschmiegen bitte, hm
01.06.2013 - 00:37
José skrifaði:
Mooie zachte trui!
31.05.2013 - 22:42
Mari skrifaði:
¡Ups! Lo he votado sin querer. De todas formas, es uno de los pocos modelos que nos pueden quedar bien a las bajitas y delgadas. Los modelos demasiado holgados y que no marcan la cintura no nos favorecen nada.
31.05.2013 - 17:39Judith Sampson skrifaði:
Lovely jumper
30.05.2013 - 22:55Sue Mitchell skrifaði:
Looks so warm and snuggly for winter!
30.05.2013 - 15:55
Jutta skrifaði:
Very harmonious combination, both in choice of colour and the pattern
30.05.2013 - 14:54
Tine skrifaði:
Beautiful!
30.05.2013 - 14:27
Morning Mist Sweater#morningmistsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa með röndum úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stærð S - XXXL
DROPS 151-10 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *Prjónið 1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*. RENDUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið sléttprjón á prjóna nr 5 og skiptið yfir á prjóna nr 4 í garðaprjóni. Alpaca litur nr 9020 og Kid-Silk nr 20 í sléttprjóni: 15-14½-15½-16-16-17 cm Alpaca litur nr 9020 og Kid-Silk nr 10 í sléttprjóni: 8-8½-8½-9-9½-9½ cm Alpaca litur nr 9020 og Kid-Silk nr 10 í garðaprjóni: 8-8½-8½-9-9½-9½ cm Alpaca litur nr 9020 og Kid-Silk nr 20 í garðaprjóni: 5-5½-5½-5-5-5 cm Alpaca litur nr 9020 og Kid-Silk nr 20 í sléttprjóni: 3-3-3-3½-4-4 cm Alpaca litur nr 0100 og Kid-Silk nr 20 í sléttprjóni: 8-8½-8½-9-9½-9½ cm Alpaca litur nr 0100 og Kid-Silk nr 01 til loka. RENDUR Á ERMI: Prjónið sléttprjón á prjóna nr 5 og skiptið yfir á prjóna nr 4 í garðaprjóni. Alpaca litur nr 9020 og Kid-Silk litur nr 20 í sléttprjóni: 16-14½-14½-15-14-14 cm Alpaca litur nr 9020 og Kid-Silk litur nr 10 í sléttprjóni: 8-8½-8½-8½-9-9 cm Alpaca litur nr 9020 og Kid-Silk litur nr 10 í garðaprjóni: 8-8½-8½-8½-9-9 cm Alpaca litur nr 9020 og Kid-Silk litur nr 20 í garðaprjóni: 5-5½-5½-5-5-5 cm Eftir þetta eru rendurnar prjónaðar eftir röndum á fram- og bakstykki. LASKALÍNA: Fækkið lykkjum hvoru megin við 4 prjónamerki. Fækkið lykkjum á UNDAN prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á EFTIR prjónamerki þannig: Takið 1 l eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 l sl og steypið óprjónuðu l yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið laust upp 142-164-176-192-204-220 l á hringprjóna nr 4 með 1 þræði í litnum ljós perlugrár Alpaca og 1 þræði í litnum ljós beige Kid-Silk. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5 og setjið 1 prjónamerki í hvora hlið = 71-82-88-96-102-110 l hvoru megin við prjónamerkin. Prjónið nú RENDUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan til loka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 5 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin í hliðum (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku með 3 cm millibili 5 sinnum til viðbótar (= alls 6 sinnum) = 118-140-152-168-180-196 l. Þegar stykkið mælist 25 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 2½-2½-3-3-3½-3½ cm millibili 4 sinnum til viðbótar (= alls 5 sinnum) = 138-160-172-188-200-216 l. Þegar stykkið mælist 39-40-41-42-43-44 cm, fellið af 8 l frá réttu í báðum hliðum fyrir handveg (þ.e.a.s. 4 l hvoru megin við bæði prjónamerkin) = 122-144-156-172-184-200 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið LAUST upp 38-40-42-44-46-48 l á sokkaprjóna nr 4 með 1 þræði í litnum ljós perlugrár Alpaca og 1 þræði í litnum ljós beige Kid-Silk. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan þar til stykkið mælist 3 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 5, setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= miðja undir ermi). Prjónið nú RENDUR Á ERMI – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 8-8-9-9-8-9 cm aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki. Endurtakið útaukningu með 4-3½-3-3-3-2½ cm millibili 7-8-9-9-10-11 sinnum til viðbótar (= alls 8-9-10-10-11-12 sinnum) = 54-58-62-64-68-72 l. Þegar stykkið mælist 40 cm í öllum stærðum eru felldar af 8 l fyrir miðju undir ermi (4 l hvoru megin við prjónamerkin) = 46-50-54-56-60-64 l eftir á prjóni. Geymið stykkið, prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 214-244-264-284-304-328 l. Setjið 1 prjónamerki í allar skiptingar á milli erma og fram- og bakstykkis (= 4 prjónamerki). Haldið síðan áfram með RENDUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI yfir allar l – JAFNFRAMT er byrjað á LASKALÍNA (= 8 l færri) – sjá útskýringu að ofan! Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf 2-2-2-2-3-4 sinnum til viðbótar (= alls 3-3-3-3-4-5 sinnum) = 190-220-240-260-272-288 l. Setjið 1 nýtt prjónamerki, stykkið er mælt héðan! Í næstu umf er fækkað um 4-4-6-8-8-18 l jafnt yfir = 186-216-234-252-264-270 l. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 6-6-6-7-7-7 cm frá prjónamerki. Í næstu umf er fækkað þannig: * Prjónið 4 l sl, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* út umf = 155-180-195-210-220-225 l. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 11-11-12-13-13-13 cm. Í næstu umf er fækkað þannig: * 3 l sl, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* út umf = 124-144-156-168-176-180 l. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 15-16-17-18-18-18 cm. Skiptið yfir á minni hringprjóna eftir þörf. Næsta umf er prjónuð þannig: STÆRÐ S: * Prjónið 2 l sl, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* út umf = 93 l. STÆRÐ M: Prjónið 3 ls l, * 2 l sl, 2 l slétt saman, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* út umf og endið á 3 l sl = 98 l. STÆRÐ L: * Prjónið 2 l sl, 2 l slétt saman, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* út umf = 104 l. STÆRÐ XL: Prjónið 4 l sl, * 2 l slétt saman, 1 l sl, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* út umf og endið á 4 l sl = 104 l. STÆRÐ XXL: Prjónið 3 l sl, * 2 l slétt saman, 1 l sl, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* út umf og endið á 3 l sl = 108 l. STÆRÐ XXXL: Prjónið 2 l sl, * 2 l slétt saman, 1 l sl, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* út umf og endið á 3 l sl = 110 l. ALLAR STÆRÐIR: Klippið frá. Setjið 1 prjónamerki við miðju að framan. Byrjið við miðju að aftan og prjónið sl þar til 19-21-23-23-23-23 l eru eftir á undan prjónamerki, snúið við herðið á þræði og prjónið br frá röngu þar til 19-21-23-23-23-23 l eru eftir á undan prjónamerki. Snúið við og herðið á þræði og prjónið sl frá réttu þar til 33-35-37-37-37-37 l eru eftir á undan prjónamerki, snúið við herðið á þræði og prjónið br frá röngu þar til 33-35-37-37-37-37 l eru eftir að prjónamerki. Snúið við, herðið á þræði og prjónið sl frá réttu þar til 40-42-44-44-44-44 l eru eftir á undan prjónamerki, snúið við og herðið á þræði og prjónið br frá röngu þar til 40-42-44-44-44-44 l eru eftir á undan prjónamerki. Snúið við og prjónið sl yfir allar l í umf fram að miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið 6 umf garðaprjón yfir allar l. Fellið laust af. Stykkið mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm mælt við miðju að framan. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #morningmistsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 151-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.