Mai-Brit skrifaði:
Ups - det var striben med lys grå jeg mente - anden sidste stribe.
29.08.2013 - 09:20
Mai-Brit skrifaði:
Som jeg læser opskriften skal der strikkes 6 striber, men tæller du på selve billedet er der kun 5 striber - den sidste stribe med natur mangler. Er det rigtigt?
29.08.2013 - 09:15DROPS Design svaraði:
Hej Mai-Brit. Der er 6 striber paa billedet, overgangen er ikke saa tydeligt, men den sidste stribe er helt oppe ved halsen
29.08.2013 - 15:43
Annette Mosslund skrifaði:
Hej Om man vill sticka den enfärgad hur mycket garn går det åt i storlek L. Mvh Annette
23.08.2013 - 09:42DROPS Design svaraði:
Vi har tyvärr inte vikten på en enfärgad tröja, någon som har stickat den får gärna lägga ut vikt och storlek.
18.09.2013 - 15:24
Martha skrifaði:
Muss ich haben, ist genau das richtige zum kuscheln!
21.06.2013 - 18:43
Elisabeth skrifaði:
Winter come on
13.06.2013 - 17:50
Hanna skrifaði:
Nicht elegant aber sehr, sehr gemütlich und kuschelwarm
11.06.2013 - 16:44
Antje skrifaði:
Kann mich nur anschließen. Keine Sorge vor dem nächsten Herbst;-) Super kuschelig!!
10.06.2013 - 13:45Valentina Venezia skrifaði:
Total kuschelig
06.06.2013 - 07:40
Tania skrifaði:
Leuk ! Maar weer zo groot!
05.06.2013 - 18:04
Sarah skrifaði:
Stimme ich zu Bibo, wo bleibt der Herbst, ach ja, draußen
01.06.2013 - 00:20
Grey Sunset Sweater#greysunsetsweater |
|||||||
|
|||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Snow með röndum, perluprjóni, laskalínu og lausum kraga. Stærð S - XXXL
DROPS 150-44 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Laskalína er hvoru megin við öll 4 prjónamerkin og lykkjum er fækkað þannig: Á undan A.1 : Prjónið 2 l slétt saman. Á eftir A.1: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ATH: Síðasta úrtakan hvoru megin á ermi er gerð þannig: Takið síðustu l í A.1 (= 1 l br) eins og prjóna eigi brugðið, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir. Þær 2 næstu l eru prjónaðar br saman (þ.e.a.s. næsta l á ermi og fyrsta l í A.1). RENDUR-1 (á við um fram- og bakstykki og ermi): Rendur eru prjónaðar í PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að neðan. Prjónið 12-12-14-14-13-13 cm á fram- og bakstykki og 15-13-14-13-10-9 cm, á ermum með lit nr 14, dökk grár. Prjónið nú rendur á fram- og bakstykki og ermum þannig: Prjónið 10-10-10-10-11-11 cm með lit nr 14, dökk grár og lit nr 46, milligrár þannig: UMFERÐ 1: Milligrár UMFERÐ 2: Dökk grár Endurtakið umf 1 og 2. Prjónið 10-10-10-10-11-11 cm með lit nr 46, milligrár. Prjónið 10-10-10-10-11-11 cm með lit nr 46, milligrár og lit nr 53, ljós grár þannig: UMFERÐ 1: Ljós grár UMFERÐ 2: Milligrár Endurtakið umf 1 og 2. Prjónið 10-11-11-12-12-13 cm með lit nr 53, ljós grár. Prjónið 10-11-11-12-12-13 cm með lit nr 53, ljós grár og lit nr 01, natur þannig: UMFERÐ 1: Ljós grár UMFERÐ 2: Natur Endurtakið umf 1 og 2. RENDUR-2 (á við um kraga): Rendurnar eru prjónaðar í PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að neðan. Prjónið 10-10-11-11-12-12 cm með lit nr 53, ljós grár og lit nr 01, natur þannig: UMFERÐ 1: Ljós grár. UMFERÐ 2: Natur Endurtakið umf 1 og 2. Prjónið nú 10-10-11-11-12-12 cm með lit nr 53, ljós grár. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * Prjónið 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: Prjónið sl yfir br og br yfir sl. Endurtakið umf 2. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna með RENDUR-1 – sjá útskýringu að ofan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 84-92-100-108-116-128 l á hringprjóna nr 10 með litnum dökk gár. Prjónið 1 l br, prjónið PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – yfir næstu 41-45-49-53-57-63 l (= bakstykki), prjónið 1 l br og prjónið perluprjón yfir næstu 41-45-49-53-57-63 l (= framstykki). Haldið svona áfram með mynstur JAFNFRAMT eru prjónaðar RENDUR-1. Þegar stykkið mælist 15 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við br l í hvorri hlið (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm = 76-84-92-100-108-120 l. Þegar stykkið mælist 33-33-35-35-37-37 cm er næsta umf prjónuð þannig: Fellið af 3 l fyrir handveg, prjónið 32-36-40-44-48-54 l, fellið af næstu 6 l fyrir handveg, prjónið 32-36-40-44-48-54 l, fellið af síðustu 3 l fyrir handveg (= 6 l felldar af á hvorri hlið). Klippið frá. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, skiptið yfir á hringprjóna eftir þörf. Fitjið laust upp 24-24-28-28-32-32 l á sokkaprjóna nr 9 með litnum dökk grár og prjónið RENDUR-1 JAFNFRAMT er prjónað stroff (= 2 l sl, 2 l br) í 7 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 10 og prjónið 1 umf sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 2-2-4-4-6-6 l jafnt yfir = 22-22-24-24-26-26 l. Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið 21-21-23-23-25-25 l perluprjón, 1 l br. Haldið svona áfram með mynstur, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 9 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við br l. Endurtakið útaukningu með 2 cm millibili 9-6-7-5-6-2 sinnum til viðbótar, síðan eftir hvern cm alls 5-10-8-12-10-16 sinnum (= útaukning alls 15-17-16-18-17-19 sinnum) = 52-56-56-60-60-64 l. ATH: Útauknu l eru prjónaðar í perluprjóni. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 36-34-35-34-34-33 cm. Næsta umf er prjónuð þannig: Fellið af 3 l, prjónið næstu 46-50-50-54-54-58 l, fellið síðan af síðustu 3 l í umf (= 6 l felldar af) = 46-50-50-54-54-58 l. Geymið stykkið og prjónið hina ermin á sama hátt– ATH: Prjónið spegilmynd, þ.e.a.s. byrjið umf á 1 l br og prjónið síðan 21-21-23-23-25-25 l í perluprjóni. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 156-172-180-196-204-224 l – haldið áfram með RENDUR-1. Setjið 1 prjónamerki í allar skiptingar á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki) – 1. prjónamerki er sett í skiptinguna á milli vinstri ermi og framstykkis. Byrjið við fyrsta prjónamerki og prjónið frá réttu þannig: Prjónið perluprjón yfir fyrstu 32-36-40-44-48-54 l (= framstykki), A.1 yfir 4 næstu l (þ.e.a.s. eftir 2. prjónamerki), perluprjón yfir næstu 38-42-42-46-46-50 l, A.1 (= 4 l á undan 3. prjónamerki = hægri ermi), perluprjón yfir næstu 32-36-40-44-48-54 l (= bakstykki), A.1 (= 4 l á eftir 4. prjónamerki), perluprjón yfir næstu 38-42-42-46-46-50 l, A.1 yfir næstu 4 l (þ.e.a.s. á undan 1. prjónamerki = vinstri ermi). Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT í 4. umf að þar sem fram- og bakstykki og ermar voru settar inn er lykkjum fækkað fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Endurtakið úrtöku að neðan eins og útskýrt var frá. ATH: Fellt er af mismunandi á ermum og á fram- og bakstykki. ERMAR: Fækkið lykkjum í 4. hverri umf 2-1-1-1-1-0 sinnum til viðbótar og síðan í annarri hverri umf alls 16-19-19-21-21-24 sinnum (= alls 19-21-21-23-23-25 úrtökur hvoru megin við A.1 inn við ermar). ATH: Síðasta úrtaka á ermi er þannig: Takið síðustu l í A.1 (= 1 l br) eins og prjóna eigi hana br, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir. Næstu 2 l eru prjónaðar brugðið saman (þ.e.a.s. næsta l á ermi og fyrsta l í A.1). FRAM- OG BAKSTYKKI: Fækkið lykkjum í 8. hverri umf 2-1-0-1-0-0 sinnum til viðbótar, í 6. hverri umf alls 4-5-5-3-3-0 sinnum og síðan í 4. hverri umf alls 0-1-3-5-7-12 sinnum (= alls 7-8-9-10-11-13 úrtökur hvoru megin við A.1 inn við fram- og bakstykki) = 18-20-22-24-26-28 l eftir á framstykki og 18-20-22-24-26-28 l eftir á bakstykki. Eftir úrtöku eru 52-56-60-64-68-72 l eftir á prjóni. Klippið frá. Prjónið nú upphækkun í hnakka með stuttum umferðum í perluprjóni þannig: ATH! Í hvert skipti sem snúið er við í miðri umf er 1. l tekin óprjónuð, herðið á þræði og prjónið áfram: Byrjið við miðju að aftan og prjónið 11-12-13-14-15-16 l, snúið við, herðið á þræði og prjónið 22-24-26-28-30-32 l. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 11-12-13-14-15-16 l, snúið við og herðið á þræði. Prjónið 1 umf (= ranga) hringinn yfir allar l fram að miðju að aftan. Snúið við (þ.e.a.s. prjónað er nú frá réttu). HÁLSMÁL: Skiptið yfir á hringprjóna nr 9 og prjónið 1 umf slétt hringinn yfir allar 52-56-60-64-68-72 l JAFNFRAMT er fækkað um 8 l jafnt yfir = 44-48-52-56-60-64 l. Prjónið stroff (= 2 l sl, 2 l br) þar til stroffið mælist 2 cm. Fellið nú laust af með sl yfir sl og br yfir br. LAUS KRAGI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna í perluprjóni. Fitjið upp 51-53-55-57-59-61 l á hringprjóna nr 10 með ljós grár og prjónið RENDUR-2 (á við um kraga) – sjá útskýringu að ofan. Fellið af þegar stykkið mælist 20-20-22-22-24-24 cm. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #greysunsetsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 19 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 150-44
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.