Anna skrifaði:
Buongiorno sto realizzando questo modello taglia L con il filato Fabel e brusced alpaca silk , ma non mi trovo con le misure del vostro grafico. Alla fine degli aumenti (prima di avviare le quattro maglie per lato) quanto dovrebbe misurare il lavoro? A me mancano ancora 4 aumenti e il lavoro misura 27 cm. Grazie mille
01.09.2020 - 13:58DROPS Design svaraði:
Buongiorno Anna, il suo campione corrispondeva alle misure indicate? Se il suo campione corrisponde, le misure alla fine di quella sezione saranno quelle indicate. Buon lavoro!
02.12.2020 - 09:05
Gail Bright skrifaði:
How can I print the pictures for the patterns?????
20.03.2019 - 14:59DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Bright, just click on the icon with the printer + Photo (between Print pattern and Add to favourites). Happy knitting!
20.03.2019 - 15:54
Marion Sanders skrifaði:
Ich bin gerade beim Ruecken und stelle fest,das die Abnahmen nicht stimmen koennen.
18.07.2013 - 14:25DROPS Design svaraði:
Liebe Marion, bitte schreiben Sie uns, an welcher Stelle Sie einen Fehler vermuten.
19.07.2013 - 08:21
Debora skrifaði:
Originale, mi piacerebbe vedere il retro.....
04.06.2013 - 22:25
Ulrika skrifaði:
Snygg! Ledig stil men stilfull!
02.06.2013 - 10:52
Ulrika skrifaði:
Snygg! Ledig stil men stilfull!
02.06.2013 - 10:51Eme skrifaði:
Desde Uruguay, precioso, ojalá publiquen el patrón. Afectuoso saludo!
30.05.2013 - 18:13
Maren skrifaði:
Schöner Shnitt! Sieht sehr gemütlich aus!!
30.05.2013 - 15:07
Graphite#graphitecardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Fabel og DROPS Vivaldi. Stærð S - XXXL.
DROPS 149-18 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf . ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l innan við 1 kantlykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. ATH! Uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn í næstu umf, það á að myndast gat. ÚRTAKA (á við um hálsmál): Fækkað er um 1 l frá réttu innan við 4 l í garðaprjóni. Á eftir 4 l í garðaprjóni: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Á undan 4 l í garðaprjóni: Prjónið 2 l slétt saman. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan: 1 hnappagat = prjónið aðra og þriðju l frá kanti br saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 11, 18, 25 og 32 cm STÆRÐ M: 11, 18, 25 og 32 cm STÆRÐ L: 13, 20, 27 og 34 cm STÆRÐ XL: 13, 20, 27 og 34 cm STÆRÐ XXL: 15, 22, 29 og 36 cm STÆRÐ XXXL: 15, 22, 29 og 36 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í sléttprjóni. BAKSTYKKI: Fitjið upp 72-76-84-88-96-104 l með 1 þræði af hvorri tegund á hringprjóna nr 6. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið nú áfram í sléttprjóni. Í næstu umf frá réttu er aukið út í hvorri hlið á stykki þannig: Aukið út um 1 l með 1,5-1,5-1,5-1,5-2-2,5 cm millibili alls 18-18-16-16-12-10 sinnum í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING að ofan = 108-112-116-120-120-124 l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Fitjið síðan upp 4 l í hvorri hlið á stykki í lok á 2 næstu umf, þær 4 l sem auknar voru út eru prjónaðar í garðaprjóni = 116-120-124-128-128-132 l. Prjónið þar til stykkið mælist alls 49-50-51-52-53-54 cm. Fellið nú af 4 l í garðaprjóni í hvorri hlið (fellið af í byrjun á næstu 2 umf ) = 108-112-116-120-120-124 l. Fellið nú af í byrjun á hverri umf í hvorri hlið á stykkinu þannig: Fellið af 4 l 2-2-1-0-0-0 sinnum, fellið af 2 l 11-12-14-16-17-18 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm prjónið 2 umf garðaprjón yfir miðju 22-22-24-24-26-26 l og fellið síðan af miðju 14-14-16-16-18-18 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig með 4 l við hálsmál í garðaprjóni. Í næstu umf frá réttu eftir síðustu úrtöku á öxl er fellt af þær 17-17-18-20-17-17 l sem eftir eru. Stykkið mælist 63-65-67-69-71-73 cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í sléttprjóni. Fitjið upp 40-42-46-48-52-56 l (meðtaldar eru 4 kantlykkjur að framan) með 1 þræði af hvorri tegund á hringprjóna nr 6. Prjónið 4 umf garðaprjón. Prjóni nú áfram í sléttprjóni með 4 l garðaprjón í vinstri hlið (séð frá réttu) (= kantur að framan) ATH! Þær 4 l með garðaprjóni eru prjónaðar í garðaprjóni til loka. Í næstu umf frá réttu er aukið út í hægri hlið á stykki þannig: Aukið út um 1 l með 1,5-1,5-1,5-1,5-2-2,5 cm millibili alls 18-18-16-16-12-10 sinnum – sjá ÚTAUKNING að ofan = 58-60-62-64-64-66 l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í næstu umf frá réttu eru fitjaðar upp 4 l í hægri hlið á stykki, þessar 4 útauknu l eru prjónaðar í garðaprjóni = 62-64-66-68-68-70 l. Þegar stykkið mælist 35-35-37-37-39-39 cm er fellt af fyrir hálsmáli þannig: Fellið af 1 l í vinstri hlið innan við 4 l í garðaprjóni – SJÁ ÚRTAKA, endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 11-11-12-12-13-13 sinnum JAFNFRAMT þegar stykkið mælst 49-50-51-52-53-54 cm eru felldar af 4 l í garðaprjóni í hægri hlið. Fellið nú af í hægri hlið á stykki þannig: Fellið af 4 l í hverri umf frá réttu 2-2-1-0-0-0 sinnum, fellið af 2 l í hverri umf frá réttu 11-12-14-16-17-18 sinnum, í næstu umf frá réttu eru felldar af þær 17-17-18-20-17-17 l sem eftir eru. Eftir affellingu á öxl mælist stykkið 63-65-67-69-71-73 cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema spegilmynd. Að auki er fellt af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. FRÁGANGUR: Saumið hliðarsauma yst í lykkjubogann upp að og með þeim 4 útauknu l í garðaprjóni. Saumið axlarsauma yst í lykkjubogann frá og með þeim 4 útauknu l í garðaprjóni upp að úrtöku fyrir hálsmáli. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #graphitecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 18 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 149-18
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.