Lisette skrifaði:
Je je voudrais tricoté le bonnet 151/14 selon le diagramme il nous dit tricoté endroit et je vois le modèle il semble que je vois des mailles tricotés envers . Je vous remercie .
15.02.2024 - 04:23DROPS Design svaraði:
Bonjour Lisette, dans le diagramme A.1 vous commencer par des côtes 2 m env, 2 m end, puis vous augmenterez au dernier tour de A.1 et tricoterez ensuite les torsades et le point ajouré; dans le diagramme, 1 case blanche = 1 maille jersey endroit, 1 étoile = 1 maille jersey envers. Bon tricot!
15.02.2024 - 07:46
Jane Sakino skrifaði:
Do you have a Written pattern version/instead of Charted pattern?
25.03.2020 - 22:59
Jane Sakino skrifaði:
Hello - I was anxious to start this Neck Warmer pattern. But, was wondering if you had a written pattern vs a ‘charted’ pattern?? I have not yet mastered reading Chart patterns yet. If you have one, can you Please email to me? Thank you, Jane
25.03.2020 - 22:58DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Sakino, we do not have any written pattern but you will find here how to read knitting diagrams. Happy knitting!
26.03.2020 - 09:55
Manuela skrifaði:
Das war die 1. Mütze, die ich für mich gestrickt habe. Und bereits den ganzen Winter getragen. Der Schulterwärmer sitzt auch perfekt.
15.06.2015 - 11:03
Mariuccia skrifaði:
Non so come si esegue un gettato tra due maglie. Non ho mai lavorato con i ferri circolari si esegue il diagramma così come è presentato. Non come si fa con i ferri normali cioe' i ferri al diritto lavorare il diagramma a rovescio lavorare le maglie come si presentano. Complimenti per i bellissimi lavori
15.03.2015 - 19:37DROPS Design svaraði:
Buonasera Mariuccia. Per il diagramma: si legge dal basso verso l’alto e, poiché si lavora in tondo, sempre da destra verso sinistra. Nel diagramma trova tutti i giri: quindi 1° giro: prima riga del diagramma, 2° giro: seconda riga del diagramma e così via. Per la m gettata può esserle utile il seguente video. Buon lavoro!
15.03.2015 - 20:51
Valeria skrifaði:
Ho iniziato lo scialle ma ho un dubbio. Il diagramma A4 ho un totale di 10 giri il diagramma A5 ne ha solo 8 . I due giri di differenza come si lavorano? Grazie. Fatemi sapere.
22.11.2013 - 15:31DROPS Design svaraði:
Buonasera Valeria. Una volta completati gli 8 giri del diagramma A5, deve riprendere a lavorare dal primo giro del diagramma stesso. Ci riscriva se si trova ancora in difficoltà. Buon lavoro!
22.11.2013 - 18:31
Claire skrifaði:
Idéal pour braver le froid avec élégance et originalité
28.06.2013 - 14:04Manuela skrifaði:
Einfach wunderschön!!! Bitte schnell die Anleitung aufschalten.
09.06.2013 - 13:46
Heidi Neseker skrifaði:
Der Herbst kann kommen - superschönes Muster und Farbe
30.05.2013 - 16:25
Schmidt skrifaði:
Wann gibt es die Anleitung?? Bitte bald!!
30.05.2013 - 15:12
Irene#ireneset |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð húfa og axlarskjól með gatamynstri úr DROPS BabyAlpaca Silk.
DROPS 151-14 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.11. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 100-125 l á hringprjóna nr 2,5 með BabyAlpaca Silk. Prjónið 1 umf slétt, síðan er prjónað stroff eftir A.1 (= 4-5 mynstureiningar í umf). Eftir A.1 eru 116-145 l á prjóni. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið mynstur eftir A.2 þar til stykkið mælist ca 21-22 cm – stillið af eftir heila mynstureiningu á hæðina. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú og fækkið lykkjum eftir mynstri A.3. Þegar A.3 hefur verið prjónað eru 84-105 l á prjóni. Næsta umf er prjónuð þannig: * Prjónið 2 l br saman, 2 l sl saman, 2 l sl saman, 2 l br saman, 2 l sl saman, 2 l br saman, 2 l br saman, 1 l sl, 2 l br saman, 2 l br saman, 2 l sl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 44-55 l eftir á prjóni. Prjónið 1 umf með sl yfir sl og br yfir br, prjónið síðan allar l slétt saman 2 og 2 = 22-28 l eftir á prjóni. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að of festið vel. Húfan mælist ca 27-28 cm ofan frá og niður. ------------------------------------------------------- AXLARSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. AXLARSKJÓL: Fitjið laust upp 253-284 l á hringprjóna nr 2,5 með BabyAlpaca Silk. UMFERÐ 1: Prjónið 134-134 l sl, 2 l slétt saman, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir og prjónið 115-146 l sl = 251-282 l. UMFERÐ 2: Prjónið brugðið. UMFERÐ 3: Prjónið 133-133 l sl, 2 l slétt saman, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir og prjónið 114-145 l sl = 249-280 l. UMFERÐ 4: Prjónið brugðið. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið næstu umf þannig: * Prjónið A.4 (= 19 l), A.5 (= 12 l) *, endurtakið frá *-* 2-2 sinnum til viðbótar, prjónið A.4 (= 19 l), A.6 (= 22 l), A.7 (= 22 l), prjónið * A.4, A.5 *, og endurtakið frá *-* 2-3 sinnum til viðbótar. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist ca 2 cm – stillið af að næsta umf er umf með útaukningu og úrtöku í A.6/A.7 – fækkið um 1 l aukalega í A.6 og A.7 þannig að einingin með aflíðandi röndum verður minni og minni. Fækkið um 1 l í A.6 með því að prjóna 2 síðustu l á undan úrtöku alveg eins og úrtakan, þ.e.a.s. prjónið 2 l slétt saman. Fækkað er um 1 l í A.7 með því að prjóna 2 næstu l eftir úrtöku alveg eins og úrtaka, þ.e.a.s. takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Endurtakið úrtöku í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í hvert skipti sem aukið er út og lykkjum fækkað í A.6/A.7), 18 sinnum til viðbótar (= alls 19 úrtökur í hvorri hlið). JAFNFRAMT þegar prjónaðar hafa verið 5-7 mynstureiningar á hæðina með A.4, er næsta umf prjónuð þannig: Prjónið *A.8, A.9 *, endurtakið frá *-* 2-2 sinnum til viðbótar, prjónið a.8, haldið áfram með A.6 og A.7 með úrtöku eins og áður, prjónið * A.8, A.9 * og endurtakið frá *-* 2-3 sinnum til viðbótar. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 25 cm (allar úrtökur í A.6/A.7 eiga að hafa verið gerðar), fækkið og aukið út í A.6 og A.7 í 8. hverri umf í stað 4. hverri umf þannig að hallinn á línunni verður minni. Þetta er gert alls 2 sinnum (ATH: þetta á við útaukningu/úrtöku í mynstri þ.e.a.s. lykkjufjöldinn í A.6/A.7 fækkar ekki), síðan er mynstrið prjónað yfir miðju 6 l án útaukninga og úrtöku (aðrar l eru prjónaðar eins og áður). Þegar A.8/A.9 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina (og úrtaka í A.6/A.7 er lokið) eru 133-152 l eftir á prjóni. Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið * A.10, A.11 *, endurtakið frá *-* 2-2 sinnum til viðbótar, prjónið A.10, haldið áfram með A.6 og A.7 eins og áður, prjónið * A.10, A.11 * og endurtakið frá *-* 2-3 sinnum til viðbótar. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist ca 30-36 cm – stillið af eftir heila mynstureiningu með A.10 á hæðina, setjið 1 prjónamerki í stykkið. Skiptið yfir í hringprjóna nr 2,5 og prjónið næstu umf þannig: * Prjónið 2 l sl, 3 l br, 3 l sl, 3 l br, 2 l sl, 2 l br, 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* 2-2 sinnum til viðbótar, 2 l sl, 3 l br, 3 l sl, 3 l br, 2 l sl, prjónið A.6 og A.7 eins og áður (án útaukninga/úrtöku), * 2 l sl, 3 l br, 3 l sl, 3 l br, 2 l sl, 2 l br, 2 l sl, 2 l br * og endurtakið frá *-* 2-3 sinnum til viðbótar. Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist 7-8 cm frá prjónamerki. Aukið nú út um 1 l í hverri br einingu umf hringinn = 159-182 l á prjóni. Haldið áfram með sl yfir sl og br yfir br þar til stykkið mælist ca 8-9 cm frá prjónamerki (allt axlaskjólið mælist ca 38-45 cm). Fellið laust af með sl yfir sl og br yfir br. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #ireneset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 14 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 151-14
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.