Malene skrifaði:
Hei! Kan dere forklare oppskriften bedre? Den er litt vanskelig å forstå. Eks: omg 2: Videre hekles det frem og til bake et stykke. Hva menes med det? skal jeg hekle fritt, eller menes det som begynnelsen på omg 3? Samme problemet med omg. 23. Her skal det også hekles frem og tilbake et stykke. Skjønner heller ikke hvordan åpningen til snuten skal hekles.. 3-7 omg. På forhånd takk.
07.08.2013 - 17:28DROPS Design svaraði:
Det er 3.-7.rad som hekles frem og tilbake ifølge opskriften. Efter det hekler du rundt igen. Bare følg opskriften!
18.09.2013 - 15:39
Melman#dropsmelman |
|
![]() |
![]() |
Heklaður gíraffi / leikfang úr DROPS Safran eða DROPS Paris
DROPS Children 24-8 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- RÁÐ VARÐANDI FYLLINGU: Fyllið dýrið með vatti jafnóðum og heklað er. HEKLLEIÐBEININGAR: Allar umf með fl byrja á 1 ll (þessi kemur ekki í stað fyrstu fl) og endar á 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf. Allar umf með fl er snúið við með 1 ll – þessi ll kemur ekki í stað fyrstu fl í umf. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkað er um 1 l með því að hekla 2 l saman þannig: * Stingið heklunálinni í næstu l, sækið þráðinn *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- LÍTILL GÍRAFFI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað ofan frá á höfði, niður yfir háls og út búk. Fætur, hali, eyru, horn og blettir eru heklaðar sér hver fyrir sig og saumað á í lokin. LESIÐ RÁÐ VARÐANDI FYLLINGU! HÖFUÐ, HÁLS OG BÚKUR: Heklið 4 ll með litnum skærgulur með heklunál nr 3 og tengið í hring með 1 kl í fyrstu ll. UMFERÐ 1: Heklið 5 fl um ll-hringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 10 fl. Snúið við með 1 ll, heklið nú fram og til baka einu sinni. UMFERÐ 3-7: Heklið 1 fl í hverja fl fram og til baka (= op þar sem nefið er heklað í lokin). UMFERÐ 8-20: Heklið 1 fl í hverja fl hringinn án þess að ljúka hverri umf, að lokum er heklað upp að miðjum hnakka. UMFERÐ 21: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 4 fl, 2 fl í hvora af næstu 2 fl og 1 fl í hverja af síðustu 4 fl = 12 fl. UMFERÐ 22: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 5 fl, 2 fl í hvora af næstu 2 fl og 1 fl í hverja af síðustu 5 fl = 14 fl. UMFERÐ 23: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 12 fl, snúið við með 1 ll, héðan er heklað fram og til baka og myndað stykki fyrir brjóstkassa. UMFERÐ 24 (ranga): Hoppið yfir fyrstu fl, 1 fl í hverja af næstu 10 fl, snúið við með 1 ll. UMFERÐ 25 (rétta): Hoppið yfir fyrstu fl, 1 fl í hverja af næstu 8 fl, snúið við með 1 ll. UMFERÐ 26 (ranga): Hoppið yfir fyrstu fl, 1 fl í hverja af næstu 6 fl, snúið við með 1 ll. UMFERÐ 27 (rétta): Hoppið yfir fyrstu fl, 1 fl í hverja af næstu 4 fl, snúið við með 1 ll. UMFERÐ 28 (ranga): Hoppið yfir fyrstu fl, 1 fl í hvora af næstu 2 fl, snúið við með 1 ll. UMFERÐ 29 (rétta): Hoppið yfir fyrstu fl, 1 fl í hverja af næstu 4 fl, snúið við með 1 ll. UMFERÐ 30 (ranga): Hoppið yfir fyrstu fl, 1 fl í hverja af næstu 6 fl, snúið við með 1 ll. UMFERÐ 31 (rétta): Hoppið yfir fyrstu fl, 1 fl í hverja af næstu 8 fl, snúið við með 1 ll. UMFERÐ 32 (ranga): Hoppið yfir fyrstu fl, 1 fl í hverja af næstu 10 fl, snúið við með 1 ll. UMFERÐ 33 (rétta): Hoppið yfir fyrstu fl, 1 fl í hverja af næstu 12 fl, snúið við með 1 ll. UMFERÐ 34 (ranga): Hoppið yfir fyrstu fl, 1 fl í hverja af næstu 14 fl, snúið við með 1 ll. Nú er haldið áfram að hekla aftur í hring. UMFERÐ 35: Heklið fl í kringum allt opið – aukið út jafnt yfir þannig að það verða alls 22 fl. UMFERÐ 36-45: Haldið áfram hringinn með 10 umf fl. UMFERÐ 46: Heklið fl, jafnframt því sem fækkað er um 4 fl jafnt yfir með því að hekla 2 og 2 fl saman – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA = 18 fl. UMFERÐ 47: Heklið fl, jafnframt sem fækkað er um 4 fl jafnt yfir með því að hekla 2 og 2 fl saman = 14 fl. UMFERÐ 48: Heklið fl, jafnframt sem fækkað er um 4 fl jafnt yfir með því að hekla 2 og 2 fl saman = 10 fl. UMFERÐ 49: Heklið allar fl saman 2 og 2 = 5 fl. Klippið frá, þræðið endann í kringum opið, herðið að og festið. NEF: Heklið 14 fl með litnum skærgulur í kringum op framan á höfði. Setjið 1 prjónamerki fyrir miðju á höfði. Haldið áfram 3 umf með 1 fl í hverja fl jafnframt sem heklaðar eru saman 2 fl fyrir miðju á höfði = 11 fl. Skipti yfir í litinn ljós brúnt. Haldið áfram með 1 umf fl jafnframt sem 2 miðju fl á höfði eru heklaðar saman í hverri umf = 10 fl. Heklið nú 1 umf þar sem allar fl eru heklaðar saman = 5 fl, klippið frá. Þræðið smá vatti í nef, þræðið endann í kringum opið, herðið að og festið. FÓTUR: Heklið 4 ll með litnum ljós brúnn og tengið í hring með 1 kl í fyrstu ll. UMFERÐ 1: Heklið 6 fl um ll-hringinn. UMFERÐ 2: * Heklið 1 fl í fyrstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* = 9 fl, klippið frá. UMFERÐ 3-8: Skiptið yfir í litinn skærgulur og heklið 1 fl í hverja fl hringinn, klippið frá. Heklið 4 alveg eins fætur. Troðið smá vatti í fæturna og saumið niður neðan á búk. HALI: Heklið 7 ll með litnum ljós brúnn, heklið nú 3 hst í 2. ll frá heklunálinni, heklið nú 1 kl í hverja af síðustu 5 ll, klippið frá og saumið halann fastann aftan á búk þannig að hann vísar upp. EYRA: Heklið 4 ll með litnum ljós brúnn, heklið nú 1 tbst í fyrstu ll, 3 ll og 1 kl neðst í tbst, klippið frá. Heklið 2 alveg eins eyru og saumi þau á höfuðið. HORN: Heklið 5 ll með litnum svartur, heklið nú 1 tbst í 2. ll frá heklunálinni, heklið nú 1 fl í hverja af síðustu 3 ll, klippið frá. Heklið 2 alveg eins horn og saumið þau á höfuðið, innan við eyru. BLETTIR: Heklið 4 ll með litnum ljós brúnn og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll. Heklið nú 6 fl í ll-hringinn, endið á 1 kl í fyrstu fl, klippið frá. Heklið 5 alveg eins bletti og saumið þá á bakið á gíraffanum. Saumið út augu með litnum svartur. ------------------------------------------------------- STÓR GÍRAFFI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Heklið á sama hátt og lítill gíraffi, nema með heklunál nr 4 með Paris. Skiptið út litnum skærgulur með litnum ferskja og skiptið út litnum ljós brúnn með litnum millibleikur. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dropsmelman eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 9 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 24-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.