Sarah Kjær skrifaði:
Hei! Jeg vil anta at jeg har strikket minst 10 av disse luene og gitt i gave til nyfødte. Skulle nå lage en til en bebi på 7,5 måned og størrelse 4 år, strikket en halv pinnestørrelse større enn oppskriften sier passer såvidt/er litt trang. Her må det være en eller flere feil i oppskriften? Mvh Sarah
26.11.2024 - 23:26
Kirsten H Hansen skrifaði:
Kan ikke se logikken med magis cirkel i model nr u 709 kan ikke komme videre fra opslaget v.h Kirsten
06.11.2021 - 15:01DROPS Design svaraði:
Hei Kristen. Nå er det ikke brukt magisk sirkel på denne luen du har lagt ditt spørsmål under, men under sokken (u-709) er starten en magisk sirkel. Ta en titt på videoen hvordan du gjør det: Hvordan man slår op med en cirkel = magic loop Om du heller vil legge opp "vanlig", kan du fint gjøre det. mvh DROPS Design
08.11.2021 - 14:10
Mina skrifaði:
Er det mening at når mærkerne er i, at hun ikke skal være symmetrisk? Jeg har talt og talt mærker, både med hvor man kommer mærke et i maske 2 og mærke 2 i selveste mæske 25 mm. Og den anden vej rundt, hvor mærke 2 kommer 25 m efter mærke 1. Intet få det til at se symmetrisk ud. Hvad mon jeg gøre forkert?
19.08.2019 - 07:50DROPS Design svaraði:
Hei Mina. HAr du tatt en titt på videoen til denne luen? Kanskje den kan hjelpe deg. Du finner vidoen under bildet/eller helt nederst på siden. VIDEO: Ud og indtagninger til babyhue
20.08.2019 - 14:15
Tora Ovides skrifaði:
Oppskriften er helt grei, men det er mye enklere å strikke luen rundt på rundpinne/settpinner. Da er fellingen enklere og du slipper sømmen bak. Morsom lue !
30.06.2018 - 00:51
Torhild Pedersen skrifaði:
Tulle oppskrift . Dårlig forklart .min går rett i søpla hvertfall .irriterende 😔
11.04.2016 - 20:01
Eye Smile |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð skrímsla húfa fyrir börn úr DROPS Alpaca. Húfan er prjónuð með augu, munn og loftneti. Stærð 0 - 4 ára.
DROPS Extra 0-932 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. ÚTAUKNING: Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið út um 1 lykkju fyrir og eftir lykkju við prjónamerki með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br (þ.e.a.s prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) til að koma í veg fyrir göt. ÚRTAKA: Öll úrtaka er gerð frá réttu. Fækkið um 1 l hvoru megin við l með prjónamerki. Byrjið 1 l á undan l við prjónamerki. Setjið 1 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, takið 1 l óprjónaða (= l við prjónamerki), prjónið næstu l og l af hjálparprjóni slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka og saumað saman í lokin. HÚFA: Fitjið upp 117-123-129 (135-141) l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 2,5 með Alpaca. Prjónið 8 umf slétt (1. umf = rétta). Setjið 7 prjónamerki í stykkið frá réttu þannig: 1. prjónamerki í 2. l á prjóni. 2. prjónamerki í 25. – 26. – 27. (28. – 29.) l, 3. prjónamerki í 48. – 50. – 52. (54. – 56.) l, 4. prjónamerki í 59. – 62. – 65. (68. – 71.) l, 5. prjónamerki í 70. – 74. – 78. (82. – 86.) l, 6. prjónamerki í 93. – 98. – 103. ( 108. – 113.) l 7. prjónamerki í næst síðustu l á prjóni. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – í hvorri hlið á stykkinu – JAFNFRAMT í 1. umf byrjar ÚTAUKNING og ÚRTAKA sjá útskýringu að ofan – í annarri hverri umf þannig: Aukið út um 1 l eftir 1. prjónamerki. Fækkið um 1 l hvoru megin við 2. prjónamerki. Aukið út um 1 l hvoru megin við 3. prjónamerki. Fækkið um 1 l hvoru megin við 4. prjónamerki. Aukið út um 1 l hvoru megin við 5. prjónamerki. Fækkið um 1 l hvoru megin við 6. prjónamerki. Aukið út um 1 l á undan 7. prjónamerki. Haldið áfram að auka út og fækka lykkjum frá réttu í annarri hverri umf 6 sinnum alls. Fækkið síðan lykkjum hvoru megin við 2., 4., og 6. prjónamerki þar til 15 cm eru eftir. Stykkið mælist nú ca 15-15-16 (16-17) cm frá neðsta oddi við 2. eða 6. prjónamerki = eyrnaleppur. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 l sl, 2 l slétt saman, 9 l sl, 2 l slétt saman, 1 l sl = 13 l. Endurtakið úrtöku í hvorri hlið í hverri umf (frá röngu eru prjónaðar 2 l á undan og á eftir kantlykkju brugðið saman) þar til 3 l eru eftir, fellið af og þræðið þráðinn í gegnum l. FRÁGANGUR: Saumið húfuna saman við miðju að aftan innan við 1 kantlykkju. Miðjulykkjur af 3 heilu hornunum á uppfitjunarkantinum snúa niður að enni að framan. SNÚRA: Fitjið upp 4 l á prjóna nr 2,5. Prjónið þannig: * Prjónið 1 l sl, setjið þráðinn fyrir framan stykkið (á móti þér), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, leggið þráðinn aftur fyrir aftan stykkið (frá þér) *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar og í öllum umf. Nú myndast hringlaga snúra. Fellið af þegar snúran mælist ca 20-22-24 (26-28) cm. Prjónið aðra snúru á sama hátt. Saumið snúrurnar neðst í hvort horn á eyrnaleppnum í hvorri hlið. MUNNUR: Saumið út munn með litnum svartur fyrir miðju framan á húfuna. TÖNN: Fitjið upp 6 l með litnum hvítur á prjóna nr 2,5. UMFERÐ 1-2: Prjónið slétt. UMFERÐ 3: Prjónið 1 l sl, 2 l slétt saman 2 sinnum, 1 l sl = 4 l á prjóni. UMFERÐ 4: Prjónið 2 l slétt saman 2 sinnum = 2 l á prjóni. UMFERÐ 5: Prjónið 2 l slétt saman = 1 l á prjóni, klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum l. Saumið tönnina efst við munninn. AUGA: Fitjið upp 6 l með litnum blár á sokkaprjóna nr 3 og prjónið í hring þannig: UMFERÐ 1: Prjónið 2 l í hverja l þannig: Prjónið 1 l sl og prjónið 1 l sl aftan í lykkjubogann á sömu l = 12 l á prjóni. UMFERÐ 2: Prjónið 1 umf slétt. UMFERÐ 3: Prjónið 2 l í hverja l þannig: Prjónið 1 l sl og prjónið 1 l sl aftan í lykkjubogann á sömu l = 24 l á prjóni. UMFERÐ 4: Skiptið yfir í litinn hvítur og prjónið 1 umf slétt. UMFERÐ 5-8: Prjónið slétt. Fellið af, festið enda og saumið augað niður fyrir miðju að framan fyrir ofan munninn. LOFTNET: Fitjið upp og prjónið eins og 2 snúrur, nema fellið af þegar þær mælast 10 cm. Gerði tvo litla dúska með litnum rauður sem mælast ca 2 cm að þvermáli. Saumið dúskana í annan endann á hvoru loftneti og saumið hinn endann fastann efst uppi á húfunni. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 9 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-932
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.