Grete skrifaði:
Ang. nr. 147-8 Kan ikke forstå i forhold til billede, efter 2 gange A1 står der glatstrikning indtil 37 cm, herefter A2, men iflg. billedet er der ingen glatstrik???? V.h Grete
15.02.2013 - 11:48DROPS Design svaraði:
Jo, men det er kun nogle få cm. Hvis du overholder strikkefastheden skal der kun strikkes 1,5 cm i den mindste størrelser og lidt mere i de større størrelser.
19.02.2013 - 13:29
Anette skrifaði:
Får ikke antall maker til å stemme med målskjema. Måttevredusere str M med 8 masker
03.02.2013 - 22:21DROPS Design svaraði:
Med den rette strikkefasthed skulle det stemme (15 m per 10 cm).
04.02.2013 - 14:12
Kim Lindberg skrifaði:
Pattern 147-8 calls for 1 skein of beige and 2 skeins of peach. However, the pattern is written to use beige in between A1 and A2 and then throughout all of A2, and only uses peach in A1. How should the color scheme in A2 be? (based on pic it looks like peach is in the lower half of A2) Thanks.
29.01.2013 - 04:36DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Lindberg, A.1 is repeated 2 times while A.2 is worked only 1 time, there are not many rows between A1 and A2 (in beige) before starting A2. Happy knitting!
14.02.2013 - 16:17
Sophie skrifaði:
J adore
26.01.2013 - 22:02
Sophie skrifaði:
J adore
26.01.2013 - 21:45
Marisa skrifaði:
Underbart, både modell och färgvalet. Kommer säkert att hamna mellan mina favoriter!
23.01.2013 - 21:06Janet skrifaði:
Can't wait to start this one have already ordered my yarn
17.01.2013 - 03:37
Hana Doanová skrifaði:
Je nádherný a svěží.
16.01.2013 - 14:21
Anne-Marie skrifaði:
Wauw smukke dejlige varme farver, modellen kunne hedde: Solopgang eller solnedgang
15.01.2013 - 14:57Mercè skrifaði:
Maquíssim. El faré segur per a la meva filla!!
14.01.2013 - 10:09
Candy#candysweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Safran í garðaprjóni, löngum lykkjum og ¾ löngum ermum. Stærð S - XXXL
DROPS 147-8 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ATH: Til þess að koma í veg fyrir að hliðarnar verði og stífar þegar mynstrið er prjónað, verður í hverri umf með löngum lykkjum að slá 2 sinnum uppá prjóninn áður en kemur að kantlykkju í hvorri hlið (í stað 1 sinni). Báðir uppslættirnir eru látnir falla niður í næstu umf. RENDUR: Skipt er um lit í hverri umf merktri með ör í mynstri A.1 og A.2. Rendur eru prjónaðar í eftirfarandi röð: A.1: 1 þráður rústrauður + 1 þráður kóral 1 þráður kóral + 1 þráður ferskja 2 þræðir kóral 1 þráður kóral + 1 þráður ferskja 1 þráður ferskja + 1 þráður kirsuber 1 þráður kirsuber + 1 þráður millibleikur 2 þræðir kirsuber 1 þráður kóral + 1 þráður millibleikur A.2: 1 þráður millibleikur + 1 þráður beige 2 þræðir beige 1 þráður beige + 1 þráður skærgulur 1 þráður beige + 1 þráður vanillugulur MÆLING: Vegna lögunar á peysunni verður að mæla stykkið þegar því er haldið uppi, annars verður peysan of löng miðað við mælingu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. FRAMSTYKKI: LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN BYRJAÐ ER AÐ PRJÓNA! Fitjið upp 63-69-75-83-91-99 l á prjóna nr 6 með 1 þráð í litnum rústrauður + 1 þráð í litnum kóral. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í 2-2-3-3-4-4 cm. Prjónið nú MYNSTUR eftir mynsturteikningu A.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið (1. umf = rétta), JAFNFRAMT eru prjónaðar RENDUR – sjá útskýringu að ofan! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! ATH: Mynsturteikningu A.1 er endurtekið 2 sinnum á hæðina (þar til rendur í A.1 hafa verið prjónaðar). Eftir A.1 er skipt yfir í 1 þráð í litnum millibleikur + 1 þráð í litnum beige. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm – LESIÐ MÆLING. Prjónið nú mynstur eftir A.2 JAFNFRAMT er haldið áfram með RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Þegar rendur í A.2 hafa verið prjónaðar er haldið áfram með mynstur með lit frá síðustu rönd (1 þráður beige + 1 þráður vanillugulur) til loka. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 39-40-41-42-43-44 cm – munið eftir MÆLING, setjið 1 prjónamerki í hvora hlið (merkir dýpt á handveg). Þegar stykkið mælist 48-50-52-52-54-56 cm fellið af miðju 21-21-23-23-25-25 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af í byrjun hverrar umf frá hálsmáli: 2 l 1 sinni og 1 l 1 sinni = 18-21-23-27-30-34 l eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 53-55-57-59-61-63 cm, prjónið 2 umf garðaprjón og fellið laust af, stykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm. Endurtakið á sama hátt á hinni öxlinni. BAKSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og framstykki. Merkið dýpt á handveg eins og á framstykki. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Fellið nú af miðju 25-25-27-27-29-29 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af 1 l í næstu umf frá hálsi = 18-21-23-27-30-34 l eftir á öxl. Þegar stykkið mælist 53-55-57-59-61-63 cm eru prjónaðar 2 umf garðaprjón áður en fellt er laust af. Endurtakið á sama hátt á hinni öxlinni. FRÁGANGUR: Saumið axlarsauma. ERMI: Prjónið upp frá réttu 45-47-51-53-57-59 l á milli 2 prjónamerkja í annarri hliðinni á peysunni á prjón nr 6 með 1 þræði í litnum vanillugulur + 1 þræði í litnum beige. ATH: Ef prjónaðar eru upp fleiri eða færri l en þetta er lykkjufjöldinn jafnaður út í 1. umf. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN BYRJAÐ ER AÐ PRJÓNA! Prjónið MYNSTUR eftir A.2 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið, JAFNFRAMT eru prjónaðar RENDUR – sjá útskýringu að ofan, en byrjið efst í mynstri (1. umf = ranga) og í öfugri röð í litum í röndum, prjónið að neðan svo að byrjað er með litnum vanillugulur efst á ermi og prjónað niður að litnum rústrauður. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er skipt yfir í 1 þráð í litnum kirsuberjar + 1 þráð í litnum millibleikur og haldið áfram með A.1 og RENDUR á sama hátt (byrjið efst í mynstri og öfuga röð í röndum). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2-2-3-3-4-4 cm frá prjónamerki er fækkað um 1 l í hvorri hlið. Endurtakið úrtöku í hvorri hlið með 9-7-5½-4½-3½-3 cm millibili, 4-5-6-7-8-9 sinnum til viðbótar (= alls 5-6-7-8-9-10 fækkun) = 35-35-37-37-39-39 l. Prjónið þar til ermin mælist 47-46-45-44-42-40 cm frá prjónamerki – munið eftir MÆLING. Prjónið 4 umf garðaprjón með 1 þráð í litnum dökk bleikur + 1 þráð í litnum rústrauður og fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt yst í lykkjubogann. HÁLSMÁL: Prjónið upp ca 70 til 85 l í kringum hálsmál á hringprjóna nr 5 með 1 þráð í litnum vanillugulur + 1 þráð í litnum beige. Prjónið 1 umf br og 1 umf sl, fellið síðan laust af með br. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #candysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 147-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.