Katrine skrifaði:
Skynd jer at lægge denne her opskrift op! Jeg kan ikke vente med at komme i gang :)
27.06.2012 - 10:21Elsa Gonzalez skrifaði:
Deben de ponerle Santa Fe
25.06.2012 - 02:14Knitcro53 skrifaði:
I absolutely love this! Can't wait until pattern is available
25.06.2012 - 00:05
Emma skrifaði:
Prachtig!!Dit wil ik maken!!
24.06.2012 - 18:50
Audrey skrifaði:
J'adore ce modèle! J'attends les explications avec impatience!;)
23.06.2012 - 12:05
Anita skrifaði:
WOW super schön !! Das werde ich mir auf alle Fälle stricken !!!
23.06.2012 - 09:07
Stine skrifaði:
Gorgeous. I want to crochet this for the fall.
23.06.2012 - 01:28
Roberta skrifaði:
Bellissimo!!
22.06.2012 - 18:56Tiziana Bonelli skrifaði:
Please write about this poncho as soon as possible. I want to crochet it for this coming autumn even if it is in English; I can undersand it quite well
22.06.2012 - 15:01
Tiziana Bonelli skrifaði:
Un poncho così non può che essere copiato. i vostri modelli migliorano ogni anno !!!
21.06.2012 - 21:44
Raffinement#raffinementponcho |
|
![]() |
![]() |
Heklað poncho úr 1 þræði DROPS Polaris eða 2 þráðum DROPS Cloud með hettu. Stærð S - XXXL
DROPS 140-44 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Allar umf með tbst byrja á 4 ll (= 1. tbst), hoppið yfir 1. l frá fyrri umf, heklið tbst í hverja l út umf, snúið. MYNSTUR A.1: 1 mynstureining A.1 = 2 tbst, 2 ll, 2 tbst (í sama tbst og í 1. umf, síðan um sama ll-boga). Í byrjun á umf koma 4 ll í stað 1. tbst. MYNSTUR A.2: 1 mynstureining A.2 = 3 tbst, 2 ll, 3 tbst um sama ll-boga. Í byrjun umf koma 4 ll í stað 1. tbst. ÚTAUKNING: Aukið er út um 1 l með því að hekla 2 ll í sömu l. ÚRTAKA: Fækkað er um 1 l í 1. umf á hettu með því að hoppa yfir 1 ll í uppfitjunarkanti. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað frá hálsmáli og niður. Heklað er fyrst fram og til baka að opi við miðju að framan, síðan er heklað hringinn. PONCHO: Heklið laust 29-31-31-33-33-35 ll með 1 þræði Polaris eða 2 þráðum Cloud með heklunál nr 12, snúið og heklið 1 tbst í 5. ll frá heklunálinni (fyrstu 4 ll = 1 tbst), síðan 1 tbst í hverja ll = 26-28-28-30-30-32 tbst, snúið (umf 1 = ranga). LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Í umf 2 er aukið út 17-21-21-25-25-29 tbst – LESIÐ ÚTAUKNING – jafnt yfir í umf = 43-49-49-55-55-61 tbst. Endurtakið útaukningu 1 sinni til viðbótar í næstu umf = 60-70-70-80-80-90 tbst. Heklið nú hringinn þannig: UMFERÐ 1: Heklið í 1. tbst A.1 - sjá útskýringu að ofan, * hoppið yfir 4 tbst, heklið A.1 í næsta tbst *, endurtakið frá *-* umf hringinn, hoppið yfir síðustu 4 tbst, endið með 1 kl í 4. ll (= 1. tbst) í byrjun umf = 12-14-14-16-16-18 mynstureiningar A.1 UMFERÐ 2: Heklið kl í 1. ll-boga, heklið A.1 um sama ll-boga, síðan A.1 um hvern ll-boga í umf, endið með 1 kl í 4. ll (= 1. tbst ) í byrjun umf. UMFERÐ 3: Heklið eins og umf 2. UMFERÐ 4: Heklið kl að 1. ll-boga, heklið A.2 – sjá útskýringu að ofan – um sama ll-boga, síðan A.2 um hvern ll-boga í umf, endið með 1 kl í 4. ll (=1. tbst) í byrjun umf. Endurtakið umf 4 5-5-6-6-7-7 sinnum til viðbótar = alls 6-6-7-7-8-8 umf með A.2. Klippið frá og festið enda. Stykkið mælist ca 52-52-57-57-62-62 cm á hæðina. HETTA: Heklið fram og til baka meðfram uppfitjunarkanti þannig: Heklið tbst frá réttu – JAFNFRAMT er fækkað um 5-2-2-4-4-1 l jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA = 21-26-26-26-26-31 tbst. Heklið nú þannig: Heklið 1. tbst í A.1, * hoppið yfir 4 tbst, A.1 í næsta tbst *, endurtakið frá *-* út umf = 5-6-6-6-6-7 mynstureiningar A.1, snúið við og heklið kl að 1. ll-boga (síðasti ll-bogi frá fyrri umf). * Næsta umf er hekluð þannig: Heklið A.1 um hvern ll-boga í umf, snúið við og heklið kl að 1. ll-boga (síðasti ll-bogi frá fyrri umf) *. Endurtakið frá *-* þar til hettan mælist ca 30 cm (ca 6 mynstureiningar á hæðina), klippið frá og festið enda. Leggið hettuna tvöfalda og saumið saman að ofan, saumið yst í lykkjubogann svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið eina tölu í byrjun á 1. umf á poncho (í brúnina við miðju að framan á vinstra framstykki). |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #raffinementponcho eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 5 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 140-44
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.