Elisabeth skrifaði:
Sød trøje
23.05.2011 - 22:13
Nancy skrifaði:
Reminds me of Kate's little after-the-wedding shrug. So pretty.
23.05.2011 - 21:41
MoniK skrifaði:
Fait et enregistré
23.05.2011 - 15:42
Gabriele skrifaði:
Sieht schmuseweich aus. Ein richtiger Klassiker. Auch zum "Ausgehen" fein.
23.05.2011 - 14:33
MoniK skrifaði:
Très doux, très chaud et très élégant. Agréable à tricoter.
23.05.2011 - 11:44
Iviva skrifaði:
Sehr nett !
20.05.2011 - 22:04
Britt skrifaði:
En fin liten jacka som är väldigt användbar.
20.05.2011 - 12:23
Annet skrifaði:
Voor een klein maatje prachtig. Voor een maatje meer zeker niet.
20.05.2011 - 11:21
Christine skrifaði:
Siehr sehr kuschelweich aus. Würde ich auch nachstricken.
20.05.2011 - 11:19
Cantin skrifaði:
Quel bel effet il aura sur une petite robe
20.05.2011 - 04:27
Black Dahlia#blackdahliacardigan |
|
|
|
Prjónuð loðin peysa úr 2 þráðum DROPS Symphony eða DROPS Melody. Stærð S - XXXL
DROPS 134-33 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna): * 1 umf sl, 1 umf br *, endurtakið frá *-*. ÚRTAKA: Fækkið um 1 l hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, (prjónamerki), prjónið næstu 2 l slétt saman. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið 2 l í 1. l hvoru megin við prjónamerki. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagati á röngu í hægri kanti við hálsmál þannig: Prjónið þar til 4 l eru eftir, fellið af 2 næstu l og fitjið upp 2 nýjar l yfir þær lykkjur sem felldar voru af í næstu umf. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 106-118-130-142-154-170 l (meðtalin er 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið) á hringprjóna nr 8 með 2 þráðum úr Symphony eða Melody. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (umf 1 = rétta) og prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 3-4-4-5-5-6 cm eru sett tvö prjónamerki í stykkið 27-30-33-36-39-43 l (= framstykki) inn frá hvorri hlið (bakstykki = 52-58-64-70-76-84 l). Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu. Í næstu umf frá réttu er fækkað um 1 l hvoru megin við hvort prjónamerki – lesið ÚRTAKA að ofan = 4 l færri. Endurtakið úrtöku einu sinni til viðbótar þegar stykkið mælist 6-7-8-9-10-11 cm = 98-110-122-134-146-162 l. Haldið áfram þar til stykkið mælist 12-13-14-15-16-17 cm og aukið síðan út um 1 l hvoru megin við hvort prjónamerki – lesið ÚTAUKNING að ofan = 4 nýjar l. Endurtakið útaukningu einu sinni til viðbótar þegar stykkið mælist 21-22-23-24-25-26 cm. Haldið áfram að prjóna þar til stykkið mælist 29-30-31-32-33-34 cm og fellið síðan af fyrir handveg þannig: Fellið af 2-2-3-3-3-3 l hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4-4-6-6-6-6 færri l á hvorri hlið). Hvor hluti er prjónaður til loka fyrir sig. BAKSTYKKI: = 48-54-58-64-70-78 l. Fellið af fyrir handveg í byrjun umf í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 l 0-0-0-1-1-2 sinnum, 2 l 1-1-2-2-2-2 sinnum, 1 l 1-3-2-1-2-2 sinnum = 42-44-46-48-52-54 l. Haldið áfram með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm. Fellið nú af miðju 18-18-20-20-22-22 l fyrir hálsmáli og prjónið til loka hvora öxl fyrir sig. Fellið af 1 l í næstu umf frá hálsi = 11-12-12-13-14-15 l eftir á hvorri öxl. Fellið laust af allar l þegar stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 25-28-30-33-36-40 l. Fellið af fyrir handveg í hliðum eins og á bakstykki. Jafnframt þegar stykkið mælist 32-34-35-37-38-40 cm fellið af við háls í annarri hverri umf þannig: Fellið af 3 l 1-1-1-2-2-2 sinnum, 2 l 2 sinnum í öllum stærðum, 1 l 4-4-5-2-3-3 sinnum = 11-12-12-13-14-15 l eftir á hvorri öxl. Haldið áfram þar til stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm, fellið laust af allar l. VINSTRA FRAMSTYKKI Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna nr 8 með 2 þráðum Symphony eða Melody. Fitjið upp 28-28-30-32-32-34 l og prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Setjið eitt prjónamerki í byrjun umf = miðja undir ermi. Prjónið nú sléttprjón. Þegar stykkið mælist 10 cm í öllum stærðum er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki = 2 nýjar l í umf. Endurtakið útaukningu með 10-8-6-5-4-3½ cm millibili alls 3-4-5-6-7-8 sinnum = 34-36-40-44-46-50 l. Þegar stykkið mælist 40-40-39-39-38-38 cm prjónið síðan fram og til baka í sléttprjóni (með 1 kantlykkju í garðaprjóni til loka). Fellið nú af fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umf þannig: Fellið af 3 l 0-0-1-1-2-2 sinnum, 2 l 2-2-1-2-1-1 sinnum og fellið nú af 1 l í 4. hverri umf 2-2-2-1-2-2 sinnum. Haldið áfram að prjóna þar til stykkið mælist ca 49-48-48-48-49-47 cm og fellið síðan af í hvorri hlið í annarri hverri umf þannig: 1 l 1-2-2-1-1-3 sinnum, 2 l 1-1-1-2-1-1 sinnum og 3 l 1 sinni í öllum stærðum = 10-10-12-12-14-14 l eftir. Fellið laust af allar l í næstu umf frá réttu (stykkið mælist ca 52 cm í öllum stærðum). FRÁGANGUR: Saumið axlarsauma frá réttu með lykkjuspori. Saumið ermar í. KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið fram og til baka á hringprjóna nr 8. Prjónið upp 40-50 l innan við 1 kantlykkju meðfram hægri kanti við miðju að framan. Prjónið 1 umf garðaprjón frá röngu. Jafnframt er lykkjufjöldinn jafnaður út til 42-44-46-48-50-52 l. Prjónið að auki 2 umf í garðaprjóni og fellið síðan laust af allar l. Prjónið nú á sama hátt meðfram vinstri kanti við miðju að framan. HÁLSMÁL: Prjónið fram og til baka á hringprjóna nr 8. Prjónið upp frá réttu 70-80 l kringum hálsmálinn og byrjið í hægri kanti að framan. Prjónið 1 umf garðaprjón frá röngu. Jafnframt er lykkjufjöldinn jafnaður út til 72-72-78-78-84-84 l. ATH! Fellið af fyrir HNAPPAGAT í lok umf – sjá útskýringu að ofan. Prjónið nú 2 umf í garðaprjóni, fellið laust af allar l í næstu umf frá réttu. Saumið tölu í í vinstri kant við hálsmál. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #blackdahliacardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 14 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 134-33
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.