Drops Air skrifaði:
Jag vill sticka den här västen fast i garnet air går det
22.10.2024 - 17:56DROPS Design svaraði:
Hej. Ja du kan sticka denna i DROPS Air, men då får du sticka den i 4 trådar eftersom Polaris är ett mycket tjockare garn. Mvh DROPS Design
23.10.2024 - 12:49
Anna-Lena Olsson skrifaði:
Jag får inte maskantalet att stämma på bakstycket i slutet. Jag har kommit till avmaskning för hals och har då 32 maskor. Därefter maskar jag av 8m = 24m kvar (12 på var sida) MEN nu ska då ytterligare EN maska maskas av från halsen, dvs 2 totalt med båda sidor inräknade. Jag får det till att jag då har 11m kvar på axeln, beskrivningen säger 9m. Vad missar jag?
01.11.2018 - 15:00DROPS Design svaraði:
Hej Anna-Lena, vi förstår vad du menar och kommer att titta på det. Vi kommer snart att lägga ut en rättelse i mönstret. Tack för info :)
02.11.2018 - 07:54
VU Anna skrifaði:
Bonjour Madame, J'ai suivi les explications de la taille XXL : Pour le dos, après les diminutions des emmanchures, il reste 32 mailles. En rabattant 8 m centrales et 1 m de chaque côté, il reste 22 m. Ainsi, je trouve qu'il y a 4 m en plus, car les deux épaules ne demandent que 18 mailles. Pourriez-vous m'aider à résoudre le problème. Car pour le devant tout est bon. Merci infiniment. Anna
21.10.2017 - 12:08
Karim Speranzoni skrifaði:
Hoeveelheid wol klopt niet met de aangegeven maten. Voor maat XXL heb ik 1400g plus 1 extra bol voor de gedraaide koord gebruikt.
23.02.2016 - 15:42
Ellen skrifaði:
Hei! Ville bare si fra at prisen dere har oppgitt her er regnet ut fra at Polaris kommer i 50 grams nøster, og ikke i 100 grams. Litt synd om noen lar seg skremme fra å strikke en fin vest fordi de synes den blir for dyr ;)
18.01.2014 - 16:56DROPS Design svaraði:
Hei Ellen. Det har du da rett i. Vi skal faa det rettet. Tak for din kommentar.
20.01.2014 - 10:55
DROPS Extra 0-709 |
|
|
|
Prjónað sítt vesti úr DROPS Polaris.
DROPS Extra 0-709 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- SKIPT UM ÞRÁÐ: Þegar skipt er um dokku af Polaris þá er endanum skipt í tvo hluta á garninu sem er að ljúka ca 15 cm. Klippið af annan endann og það sama er gert við nýja þráðinn. Leggið endana saman yfir hvorn annan svo að þykktin verði sú sama og áður. Prjónið áfram. Með þessu er komið í veg fyrir að samskeytin sjáist. MÁL: Öll mál eru gerð þegar stykkinu er haldið uppi, annars kemur vestið til með að verða of langt / sítt þegar vestið er mátað miðað við mál á teikningu. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA-1 (á við um fram- og bakstykki): Öll úrtaka er gerð frá réttu. Fækkið lykkjum 2 lykkjum á undan merki þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. Fækkið lykkjum á eftir merki þannig: 2 lykkjur slétt saman. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Til að koma í veg fyrir göt er uppslátturinn prjónaður snúinn í næstu umferð (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann í stað fremri). ÚRTAKA-2 (á við um handveg): Öll úrtaka er gerð frá réttu: Fækkið lykkjum á eftir 2 lykkjur í garðaprjóni þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. Fækkið lykkjum 2 lykkjum á undan 2 lykkjum í garðaprjóni þannig: 2 lykkjur slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, neðan frá og upp. Lesið SKIPT UM ÞRÁÐ! VESTI: Fitjið upp 82-89-97-102-110-121 lykkjur (meðtaldar 2 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 12 með DROPS Polaris. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan. Prjónið síðan sléttprjón en ystu 2 lykkjur í hvorri hlið við miðju að framan halda áfram í garðaprjóni (= kantar að framan). Setjið 2 merki 22-24-26-27-29-32 lykkjur inn frá hvorri hlið = 38-41-45-48-52-57 lykkjur á milli merkja á bakstykki. Þegar stykkið mælist 6 cm í öllum stærðum – lesið MÁL – fækkið um 1 lykkju á undan báðum merkjum – lesið ÚRTAKA-1 (= 2 lykkjur færri). Þegar stykkið mælist 12 cm í öllum stærðum er fækkað um 1 lykkju á eftir báðum merkjum (= 2 lykkjur færri). Endurtakið úrtöku til skiptis á undan og á eftir báðum merkjum með 6 cm millibili. Fækkið lykkjum alls 8 sinnum í hvorri hlið = 66-73-81-86-94-105 lykkjur. Þegar stykkið mælist 54 cm í öllum stærðum – munið eftir MÁL – aukið út um 1 lykkju á undan báðum merkjum (= 2 lykkjur fleiri). Þegar stykkið mælist 62 cm í öllum stærðum er aukið út um 1 lykkju á eftir báðum merkjum = 70-77-85-90-98-109 lykkjur. Þegar stykkið mælist 68-69-70-71-72-73 cm er prjónuð 1 umferð frá röngu með sléttum lykkjum yfir miðju 8-8-8-8-10-10 lykkjum í hvorri hlið (þ.e.a.s. 4-4-4-4-5-5 lykkjur hvoru megin við bæði merkin). Aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður. Í næstu umferð eru felldar af miðju 4-4-4-4-6-6 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg og hvert stykki er prjónað til loka fyrir sig. BAKSTYKKI. = 28-31-35-38-40-45 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 2 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Fækkið síðan um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg í næstu umferð frá réttu – lesið ÚRTAKA-2! Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 1-2-3-4-4-6 sinnum = 26-27-29-30-32-33 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 2 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 84-86-88-90-92-94 cm – munið eftir MÁL! Fellið síðan af miðju 6-7-7-8-8-9 lykkjur fyrir hálsmáli og prjónið til loka hvora öxl fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 8-8-9-9-11-11 lykkjur eftir á öxl. Prjónið 1 umferð og fellið síðan af. Stykkið mælist ca 86-88-90-92-94-96 cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 17-19-21-22-23-26 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 2 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Byrjið síðan úrtöku í hlið á sama hátt og á bakstykki í næstu umferð frá réttu = 16-17-18-18-19-20 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 2 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 86-88-90-92-94-96 cm. Í næstu umferð frá röngu eru felldar af ystu 8-8-9-9-11-11 lykkjur á öxl = 8-9-9-9-10-11 lykkjur eftir á prjóni fyrir kant í hálsmáli, prjónið út umferðina. Prjónið síðan garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur í kanti í hálsmáli JAFNFRAMT eru prjónaðar stuttar umferðir þannig (með byrjun frá réttu): * 2 umferðir slétt yfir ystu 6 lykkjur frá miðju að framan (þ.e.a.s. prjónið 6 lykkjur, snúið stykki, lyftið fyrstu lykkju yfir, herðið á þræði og prjónið út umferðina), 2 umferðir slétt yfir allar lykkjur *, endurtakið frá *-* þar til kantur í hálsmáli mælist ca 8-9-9-9-9-10 cm meðfram styttri hliðinni (það mælast ca 16-18-18-18-18-20 cm meðfram lengri hliðinni). Prjónið 1 umferð brugðið frá réttu og fellið síðan af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema gagnstætt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið saman kant í hálsmáli mitt að aftan. ATH! Saumið innan við affellingarkantinn, þannig að það verða 2 umferðir brugðið á móti hvor annarri aftan í hnakka (séð frá réttu). Saumið niður kant í hálsmáli fallega niður við hálsmál aftan í hnakka. TVINNUÐ SNÚRA: Klippið þráð DROPS Polaris ca 2,5 metra. Þræðið í gegnum ystu lykkju á öðru framstykkinu, ca 28 til 32 cm niður frá öxl (eða að óskaðri lengd). Tvinnið þræðina saman þar til þeir taka í, leggið þræðina saman tvöfalda og þá koma þeir til með að tvinnast aftur saman. Hnýtið hnút í endann. Gerið á sama hátt aðra snúru fyrir hitt framstykkið (passið uppá að snúrurnar tvær festist jafnt langt niður á bæði framstykkin). Hnýtið slaufu að framan. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-709
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.